Morgunblaðið - 27.07.2001, Side 47
MÉR hefur skilist að þingmenn
Suðurlands með Árna Johnsen í
broddi fylkingar séu um það bil að
koma því í gegn
að lýsa Hellis-
heiðina á næst-
unni. Einnig eru
í gangi vegabæt-
ur á heiðinni.
Hvort tveggja
eru góð málefni,
en erum við með
rétta forgangs-
röð og er
kannski hugsan-
legt að við séum
að minnka umferðaröryggi?
Ég tel svo vera.
Veglýsingin: Mér finnst líklegt
að kostnaður við fulla götulýsingu
frá Reykjavík til Hveragerðis kosti
yfir 100 millj. króna, sennilega nær
200 millj. króna og mig langar að
setja fram álit um kosti og galla.
Kostir: Fallegra í myrkri, aukið
öryggi gangandi vegfarenda.
Gallar: Kostnaður, eykur um-
ferðarhraða, í vondum veðrum
draga ljósin til sín athyglina og
auka hættu á aftanákeyrslu, þau
gefa falskt öryggi, auka slysahættu
við útafakstur v/stauranna, svo
dæmi séu tekin.
Mér finnst kostirnir lítilfjörlegir
á móti göllunum, ekki síst vegna
þess að það er komin þörf á að tvö-
falda veginn alla leið og þá breytist
lýsingarútfærslan og staurarnir
verða þá hluti af aðskilnaði akst-
ursstefnanna.
Það eru heilmiklar vegabætur í
gangi á Hellisheiðinni þar sem ver-
ið er að minnka líkur á snjó o.þ.h.
Mér var sagt nú á dögunum að það
væri verið að gera þrjár akreinar á
þá kafla þar sem mesti fram-
úraksturinn væri. Þá hugsaði ég
sem svo: Lengur get ég ekki þagað
„ég hef alltof sterka skoðun á
þessu til að þegja“.
Ætla Íslendingar að taka upp
þriggja akreina brautir eftir að
flestallar þjóðir hafa gefist upp á
þeim vegna hárrar slysatíðni? Ef
þetta er rétt þá er um afar slæm
tíðindi að ræða. Ég man ekki betur
en að þessi vegartegund hafi feng-
ið nafnið „dauðabrautin“ í Þýska-
landi og/eða Svíþjóð.
Forgangsröðun
vegabóta
1. Endurbyggja kaflann beint
frá Kaffistofu austur í Hveradali
með aðskildum akstursstefnum og
mislægum gatnamótum að
Þrengslum. (Dýrt en stóreykur ör-
yggi.)
2. Ljúka aðskilnaði aksturs-
stefna fyrst austur að Hveragerði
vegna erfiðari veðurskilyrða og
seinna til Reykjavíkur.
3. Þegar þessi varanlegi vegur
er kominn geta menn hugsað um
veglýsingu og jafnvel með hverjum
varanlegum kafla sem lokið er, en
veglýsing er þó alger óþarfi á
þessari leið nema vegna gangandi
umferðar, s.s. við Kaffistofuna.
ÁRMANN BENEDIKTSSON,
Miðsölum 2, Kópavogi
Veglýsing
á Hellisheiði
Frá Ármanni Benediktssyni:
Ármann
Benediktsson
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 47
Í KASTLJÓSI Sjónvarpsins hjá
Gísla Marteini föstudaginn 20. júlí
var rætt um frelsi og agaleysi. Þar
kom meðal annarra fram gamli
haukurinn Bubbi Morthens og talaði
hart á móti því geigvænlega frelsi
sem leyfir allt hvar sem er og hve-
nær sem er. Bubbi hefur marga fjör-
una sopið og veit nokk um hvað hann
er að tala.
Að gefnu þessu tilefni er alveg
upplagt að rifja það upp, að skóla-
piltar úr Lærða skólanum í Reykja-
vík fóru árið 1875 í skrúðgöngu að
húsinu Glasgow, en þar var verið að
halda Jóni Sigurðssyni samsæti, en
það gerðu Íslendingar mjög oft,
bæði hér heima og í höfuðborg Dana-
veldis. Piltar höfðu verið að gantast
með að Jón Sigurðsson vildi algjört
frelsi til allra hluta en hvorki boð né
bönn. Forsetinn kom út á tröppurn-
ar, þungur á brún og brá og hélt
þrumandi ræðu yfir drengjunum og
mótmælti þeim ummælum að hann
hefði aldrei þekkt bönd. Að þola
stjórn og bönd væri eitt af skilyrðum
þess að geta orðið nýtur maður.
Bönd væru jafn nauðsynleg inn á við
sem út á við, jafn nauðsynleg fyrir líf
einstakra manna sem þjóða. Frelsi
án banda, án takmörkunar, væri
ekki frelsi, heldur agaleysi og
óstjórn.
Svo mælti Jón Sigurðsson. Þessi
orð hans eru okkur öllum íhugunar-
efni.
HALLGRÍMUR SVEINSSON,
Hrafnseyri.
Kastljósi varpað
á frelsið
Frá Hallgrími Sveinssyni:
Mörkinni 3, sími 588 0640
G
læ
si
le
g
hú
sg
ög
n
Sérpantanir
Opið virka daga
frá kl. 12-18.
Sandalar í
miklu úrvali
á allan aldur
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 14-18 og laugard. kl. 10-14.
Skóbúðin
KUNERT
WELLNESS
Sokkabuxur
Hnésokkar
Ökklasokkar
iðunn
tískuverslun
2. hæð, Kringlunni, sími: 588 1680
v/ Nesveg, Seltjarnarnesi, sími: 561 1680
Höfðabakka 1, sími: 567 2190
Nýjar
myndir
300 kr.
Mýkir
og
róar
RAKAKREM