Morgunblaðið - 27.07.2001, Síða 48
DAGBÓK
48 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:Í dag
eru væntanleg Laug-
arnes og Seabourn Sun
sem fer aftur út ásamt
Mánafossi, Lagarfossi
og Akureyrinni EA.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun eru væntanleg
Markus J. og Ameland.
Viðeyjarferjan. Tíma-
áætlun Viðeyjarferju:
Mánudaga til föstudaga
til Viðeyjar kl. 13, kl.
14 og kl. 15, frá Viðey
kl. 15.30 og kl. 16.30.
Laugardaga og sunnu-
daga: Fyrsta ferð til
Viðeyjar kl. 13, síðan á
klukkustundar fresti til
kl. 17, frá Viðey kl.
13.30 og síðan á
klukkustundar fresti til
kl. 17.30. Kvöldferðir
eru föstudaga og laug-
ardaga til Viðeyjar kl.
19, kl. 19.30 og kl. 20,
frá Viðey kl. 22, kl. 23
og kl. 24. Sérferðir fyr-
ir hópa eftir sam-
komulagi. Viðeyj-
arferjan, sími 892 0099.
Lundeyjarferðir dag-
lega, brottför frá Við-
eyjarferju kl.10.30 og
kl. 16.45, með viðkomu
í Viðey u.þ.b. 2 klst.
Sími 892 0099.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó
fellur niður í dag.
Árskógar 4. Kl. 13-
16.30 opin smíðastofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9-16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 9.30 kaffi-
dagblöð, kl. 11.15 mat-
ur, kl. 13 frjálst að
spila í sal, kl. 15 kaffi.
Ekið um borgina
þriðjudaginn 31. júlí og
nýju hverfin skoðuð.
Kaffi drukkið í Golf-
skála Reykjavíkur,
Grafarholti. Lagt af
stað kl. 13. Skráning í
síma 568-5052 fyrir kl.
12 þann 30. júlí. Allir
velkomnir.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl.10 verslunin opin,
kl.11.30 matur, kl. 13
„opið hús“, spilað á
spil. kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar í dag á
Hrafnistuvelli kl. 14-16.
Morgungangan verður
á morgun, laugardag,
rúta frá Firðinum kl.
9.50 og kl. 10 frá
Hraunseli. Félagsheim-
ilið Hraunsel verður
lokað vegna sumarleyfa
starfsfólks til 12. ágúst
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10-13. Matur í há-
deginu. Miðvikudaginn
1. ágúst almennur
félagsfundur kl. 17.
Fundarefni: Húsnæðis-
mál og önnur mál.
Munið að taka félags-
skírteinið með. Dags-
ferð þriðjudaginn 7.
ágúst, Hítardalur-
Straumfjörður. Brott-
för frá Glæsibæ kl. 9.
Leiðsögn Þórunn Lár-
usdóttir. Eigum laus
sæti. Dagsferð 18.
ágúst. Fjallabaksleið
syðri í samvinnu við
FEB og Ferðaklúbbinn
Flækifót. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8. Leið-
sögn Pálína Jónsdóttir
og fl.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10.
til 12 f.h. í síma 588-
2111. Upplýsingar á
skrifstofu FEB kl. 10
til 16 í síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9-11
morgunkaffi, kl. 9-12
hárgreiðsla, kl. 9-12
sjúkraböðun, kl. 9.30
gönguhópur,kl. 11.30-13
hádegisverður, kl. 14
brids, kl. 15-16 eft-
irmiðdagskaffi.
Gerðuberg, félagsstarf
Sund- og leikfimiæf-
ingar á vegum ÍTR í
Breiðholtslaug á þriðju-
dögum og fimmtudög-
um kl. 9.30. Púttvöll-
urinn er opin virka
daga kl. 9-18, Kylfur og
boltar í afgreiðslu
sundlaugarinnar til
leigu. Allir velkomnir.
Veitingabúð Gerðu-
bergs er opin mánu-
daga til föstudaga kl.
10-16. Félagsstarfið
lokað vegna sumarleyfa
frá 2. júlí til 14 ágúst.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9.30-16.
Hraunbær 105. Kl. 9-
12 baðþjónusta, kl. 9-17
hárgreiðsla, kl. 10-12
pútt.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 11 leikfimi.
Norðurbrún 1. Kl. 10
ganga. Hárgreiðslu-
stofan verður lokuð frá
10. júlí til 14. ágúst.
Vinnustofur lokaðar í
júlí vegna sumarleyfa.
Vesturgata 7. Kl. 9
dagblöð, kaffi, fótaað-
gerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15 almenn handa-
vinna, kl. 11.45 matur,
kl. 13.30 sungið við
flygilinn, kl. 14.30 kaffi
og dansað í aðalsal.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerð, kl. 11.45
matur, kl. 13.30 bingó,
kl. 14.30 kaffi.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður á morgun kl. 21
í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105, Nýir félag-
ar velkomnir. Munið
gönguna mánudag og
fimmtudag.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
spilar vist í kvöld kl.
20.30 í félagsheimilinu
Leirvogstungu. Kaffi
og meðlæti.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16-25 ára) að mæta
með börnin sín á laug-
ardögum kl.15-17 á
Geysir, Kakóbar, Að-
alstræti 2 (gengið inn
Vesturgötu megin). Op-
ið hús og kaffi á könn-
unni, djús, leikföng og
dýnur fyrir börnin.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Nánari uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður í
dag kl. 14 við Tungu-
veg.
Minningarkort
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspít-
alasjóðs Hringsins fást
hjá Kvenfélagi Hrings-
ins í síma 551-4080.
Kortin fást í flestum
apótekum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Bergmál, líknar og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikna fyrir krabba-
meinssjúka og
langveika fást í síma
587-5566, alla daga fyr-
ir hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru
til sölu í Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4,
s. 551-3509.
Minningarkort Stóru-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í
síma 456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Í dag er föstudagur 27. júlí, 208.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Varist að iðka réttlæti yðar fyrir
mönnum, þeim til sýnis, annars eigið
þér engin laun hjá föður yðar á
himnum.
(Matt. 6.1.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 hraust, 8 snjói, 9 ráð-
leysisfum, 10 lengdarein-
ing, 11 seint, 13 kjánar,
15 öflug, 18 lóð, 21 bók-
stafur, 22 horaður, 23
frumeindar, 24 hörku-
tóla.
LÓÐRÉTT:
2 ríkt, 3 skilja eftir, 4
svipta, 5 góðmennskan, 6
eldstæðis, 7 vex, 12 meis,
14 eyða, 15 heiður, 16
reika, 17 ílátið, 18
skjögra, 19 fatnaður, 20
kvenfugl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 gláka, 4 hópur, 7 skæri, 8 lokum, 9 nýt, 11 reit,
13 arga, 14 etinn, 15 þjöl, 17 nekt, 20 egg, 22 órótt, 23
álkan, 24 tjara, 25 annar.
Lóðrétt: 1 gosar, 2 ámæli, 3 alin, 4 hælt, 5 pukur, 6
rimma, 10 ýring, 12 tel, 13 ann, 15 þrótt, 16 ölóða, 18 eik-
in, 19 týnir, 20 etja, 21 gáta.
MIG langar til að lýsa
ánægju minni með djass-
þætti Lönu Kolbrúnar
Eddudóttur á Rás 1 Rík-
isútvarpsins.
Ég hlusta alltaf á þessa
þætti og mér finnst at-
hyglisvert hve þeir eru í
háum gæðaflokki og gæð-
in stöðug. Það segir mér
m.a. að stjórnandinn hafi
mikla þekkingu á við-
fangsefninu, metnað og
leggi mikla vinnu í hvern
þátt.
Svona eiga djassþættir
að vera, að mínum dómi,
þótt ég geri mér grein fyr-
ir því að skiptar skoðanir
geti verið um djass eins
og alla aðra hluti.
Hins vegar spyr ég:
Hver óskaði eftir þessum
leikritum sem nú eru nán-
ast á hverjum degi, t.d. er
komið leikrit í stað
,,Fréttaauka á laugar-
degi“?
Persónulega finnst mér
,,Útvarpsleikhúsið“ leiðin-
legt og átta mig ekki alveg
á því hvers við ,,nauðugir
áskrifendur“ eigum að
gjalda – er ef til vill verið
að styrkja leikarastéttina
á þennan hátt með al-
mannafé? Ef svo er finnst
mér það ósmekklegt, svo
ekki sé meira sagt.
Útvarpshlustandi.
Rafstrætó
MIG langar til að lýsa
furðu minni á því, að
Strætó bs. skuli ekki hafa
keypt að minnsta kosti tvo
rafknúna vagna, þegar
þeir keyptu nýja vagna,
sem ganga fyrir mengandi
orkugjafa. Ég vona að
þeir kaupi rafknúna vagna
næst þar sem víða er mikil
og góð reynsla af þeim.
Vonandi lýsir þetta ekki
stefnu hins nýja fyrirtækis
í umhverfismálum.
Kveðja,
Gísli Júlíusson.
Í áður birtum pistli
Gísla var skrifað um
Strætisvagna Reykjavíkur
en átti að vera Strætó bs.
og er því pistillinn birtur
aftur.
Tapað/fundið
Veist þú um
skóna mína?
SVARTIR Ecco cosmo-
heilsusandalar nr. 39 voru
teknir í misgripum í Sund-
laug Kópavogs sunnudag-
inn 22. júlí sl. á milli kl.
10:30-12. Skórnir eru með
sérsmíðuðu innleggi. Eig-
andinn saknar þeirra sár-
lega. Samskonar skór
voru skildir eftir. Vinsaml.
hafið samband við Sund-
laug Kópavogs eða hringið
í s. 565-2182.
Lyklakippa
tapaðist í Garðabæ
LYKLAKIPPA tapaðist í
Garðabæ við garðaskoðun
Garðyrkjufélags Íslands,
sunnudaginn 22. júlí sl.
Skilvís finnandi er vinsam-
lega beðinn að koma lykla-
kippunni til Sóleyjar á 1.
hæð í Morgunblaðshúsinu,
Kringlunni 1.
Tjalddýna í óskilum
TJALDDÝNA fannst við
Vesturlandsveg mánu-
dagsmorguninn 23. júlí sl.
Upplýsingar í síma 892-
0068.
José Carreras
ÓSKA eftir 2 miðum á
José Carreras á svæði A,
hinn 17. sept. nk. í Laug-
ardalshöllinni. Ef einhver
á miða sem hann þarf að
losna við vinsamlegast
hringið í síma 897-7686.
Olympus-
myndavél tapaðist
OLYMPUS-myndavél í
blárri tösku tapaðist á
gönguleiðinni upp Esju
sunnudaginn 22. júlí sl.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 557-9096.
Moongoose-hjól
hvarf úr Grjótaþorpi
GRÁTT Moongoose-karl-
mannshjól hvarf frá
Grjótaþorpi um síðustu
helgi. Þeir sem hafa séð
hjólið vinsamlega hringi í
s. 551-9567 eða 867-0635.
Dýrahald
Ómar er týndur
KÖTTURINN Ómar er
týndur. Hann er gul-
bröndóttur högni með
mikið hvítt í feldi og frek-
ar stór. Ómar er mjög
gæfur og leyfir öllum að
klappa sér. Hann er
eyrnamerktur með núm-
erinu 00G157.
Hann á heima í Laufási
í Garðabæ og hefur ekki
sést síðastliðnar 4 vikur.
Þeir sem hafa einhverjar
uppl. um Ómar eru beðnir
að láta vita í s. 898-4587.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góður
djassþáttur
Víkverji skrifar...
LOKSINS hafa Reykvíkingareignazt almennilega baðströnd.
Ylströndin í Nauthólsvík er frábær
útivistarstaður fyrir alla fjölskyld-
una þegar gott er veður. Víkverji fór
á ströndina einn blíðviðrisdaginn fyr-
ir skemmstu og var stórhrifinn af að-
stöðunni. Til viðbótar við sand-
ströndina og heita pottinn í
flæðarmálinu, sem gengið var frá í
fyrra, er nú búið að opna ágæta bún-
ingsaðstöðu, verönd með borðum og
stólum og nýja busllaug fyrir börnin.
Víkverji skellti sér í sjóinn ásamt
yngsta fjölskyldumeðlimnum. Sá síð-
arnefndi er mikill sóldýrkandi og
baðstrandaraðdáandi og naut sín til
hins ýtrasta, svaraði aðspurður að
þetta væri næstum því eins góð
strönd og þær sem hann hefur heim-
sótt á Ítalíu, Spáni og í Frakklandi.
Það þóttu Víkverja góð meðmæli
með Nauthólsvíkinni.
x x x
VÍKVERJA og fjölskyldunni komsaman um það, þar sem þau
sátu í sandinum og sleiktu sólina, að
ylströndin í Nauthólsvík væri eitt
helzta afrek borgarstjórnarmeiri-
hlutans, þótt ekki sé hún í neinum
minnismerkjastíl. Það vildi svo til að
stuttu eftir að verið var að ræða þetta
birtist Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri á svölunum eða útsýn-
ispallinum, sem útbúinn hefur verið
ofan á nýju búningsaðstöðunni, og
horfði að því er virtist harla ánægð
yfir handaverkin. Hún má líka vera
ánægð – og svo mikið er víst að þær
þúsundir Reykvíkinga, sem busluðu í
volgum sjónum í góða veðrinu, voru
hæstánægðar með þessa nýjustu rós
í hnappagat útivistarborgarinnar
Reykjavíkur.
x x x
NÝI stjórnarráðsvefurinn, radu-neyti.is, er mikill fróðleiks-
brunnur um starfsemi framkvæmda-
valdsins. Sú bragarbót hefur nú verið
gerð að öll ráðuneytin eru komin með
heimasíðu, þar sem hægt er að nálg-
ast upplýsingar um starfsemi þeirra.
Til skamms tíma voru sum ráðuneyt-
in heimasíðulaus, sem var auðvitað
fráleitt í hinu netvædda þjóðfélagi
okkar. Enn eru heimasíður ráðu-
neytanna þó ákaflega misgóðar. Ut-
anríkis- og menntamálaráðuneytið
standa sig t.d. mjög vel, en á síðu
landbúnaðarráðuneytisins eru harla
margir óvirkir tenglar – svo virðist
sem þar eigi t.d. að vera upplýsingar
um skógrækt, landgræðslu, landbún-
aðarrannsóknir, fiskeldi og matvæla-
framleiðslu en ekkert gerist þegar
smellt er á þessa tengla. Sum ráðu-
neytin þurfa greinilega að vinna bet-
ur í vefmálum sínum.
x x x
VÍKVERJI er alveg ósammálaframkvæmdastjóra fegurðar-
samkeppni Íslands, um að ungfrú Ís-
land geti „náttúrlega“ ekki farið í
fegurðarsamkeppni erlendis af því að
hún sé ófrísk. Víkverja finnst óléttar
konur þvert á móti alveg hreint
dæmalaust fallegar og ástand þeirra
einkar náttúrulegt. Einu rökin, sem
Víkverji gæti séð fyrir því að banna
ófrískum konum þátttöku í fegurð-
arsamkeppni eru þau að bumban
gæti veitt þeim forskot, sem keppi-
nautarnir ættu erfitt með að vinna
upp. En óléttubumbur falla víst ekki
inn í hina stöðluðu fegurðarímynd,
sem fegurðarsamkeppni gengur út á.
Sennilega er nú kominn tími til að
breyta ýmsum þeim skilyrðum, sem
sett eru fyrir því að fólk geti tekið
þátt í fegurðarsamkeppni, eins og að
það þurfi að vera ógift og barnlaust.
Víkverji sér ekki rökin fyrir þeim
reglum og spyr á hverju þær byggist.