Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EKKI var flogið til Bandaríkjanna
eða Kanada í gær á vegum Flug-
leiða þar sem bandarísk yfirvöld
höfðu ekki aflétt flugbanni undir
kvöldmat í gær nema takmarkað.
Guðjón Arngrímsson, talsmaður
Flugleiða, sagði Flugleiðamenn
vonast til að hægt yrði að fljúga
vestur um haf í dag.
Um 500 manns bíða nú flugs og í
dag eru rúmlega 900 farþegar til
viðbótar bókaðir til fimm borga
vestan hafs. Guðjón tjáði Morgun-
blaðinu að ekki tækist að koma öll-
um þessum hópi vestur um í dag en
kvaðst vona að svo gæti orðið á
morgun. Sagði hann félagið mæl-
ast til þess að Íslendingar sem
væru ekki bundnir af því að ferðast
í dag gæfu eftir sæti sín fyrir
Bandaríkjamenn sem vildu komast
til síns heima. Áætlaðar voru ferðir
til fimm borga í gær og í dag, þ.e.
New York, Baltimore, Boston og
Minneapolis í Bandaríkjunum og
Halifax í Kanada.
Flugleiðir buðu farþegum frá
Evrópu að snúa til baka í gær-
morgun og þáðu margir það en
þeim sem stöldruðu við hér var
boðin gisting á hótelum í fyrrinótt.
Þeir gistu hins vegar á eigin kostn-
að síðastliðna nótt og þeir sem ekki
gátu greitt fyrir hótelgistingu
fengu inni hjá Rauða krossinum.
Flugleiðamenn héldu fundi með
farþegunum á hótelum þeirra í
gær til að þeir gætu fylgst með
gangi mála. Fundur er ráðgerður
með farþegunum um hádegi í dag
þar sem tilkynnt verður um fram-
haldið.
Farþegar sem áttu bókað far frá
áfangastöðum í Evrópu og áfram
vestur um haf voru ekki fluttir til
landsins í gær en ákveðið verður í
dag hvort þessir farþegar verða
hugsanlega fluttir til Íslands í dag.
Nokkur hundruð manns bíða flugfars vestur um haf
Vonast til að flug
verði leyft í dag
Morgunblaðið/Þorkell
Flugleiðamenn upplýstu farþega á leið til Bandaríkjanna um gang mála vegna flugbannsins í gær.
ÍSLENSKA alþjóðasveitin svo-
nefnda, sextán manna sveit sérþjálf-
aðra björgunarmanna, er í við-
bragðsstöðu ef óskað verður eftir
liðveislu hennar vegna björgunarað-
gerða í New York. Utanríkisráð-
herra hefur boðið fram aðstoð sveit-
arinnar og aðra hjálp Íslendinga.
Kristbjörn Óli Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Slysavarna-
félagsins Landsbjargar, kvaðst ekki
eiga von á að Bandaríkjamenn
myndu þiggja aðstoð íslensku sveit-
arinnar. Þeir hefðu yfir það öflugum
sveitum að ráða að þeir þyrftu vart
aðstoð annarra. Íslenska sveitin get-
ur haldið af stað með fárra klukku-
stunda fyrirvara.
Íslensk hjálp-
arsveit í við-
bragðsstöðu
NETIÐ gegndi mikilvægu hlut-
verki við að miðla upplýsingum
um atburðina í World Trade
Center og varnarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna í fyrradag. Mikið
álag var á fréttavefi um allan
heim og hafa heimsóknir á
Fréttavef Morgunblaðsins aldrei
verið fleiri á einum sólarhring en
sl. þriðjudag frá því mbl.is tók til
starfa.
Einnig var talsverð umferð á
vefjum American Airlines og
United Airlines, en flugvélum var
rænt frá flugfélögunum í því
markmiði að nota þær sem árás-
artæki á byggingar í Bandaríkj-
unum.
Segir í frétt Reuters að erf-
iðara hafi verið en venja er að
komast inn á vefsvæði helstu
fréttavefja heimsins, eins og
CNN, MSNBC, Yahoo News, ABC-
News og FoxNews, fljótlega eftir
árásirnar. Þá hafi sum fréttavef-
svæði komið fyrir hljóð- og mynd-
skeiðum sem greindu frá atburð-
unum og notkun á þeim hefði
hægt frekar á vefsvæðunum.
Mikil umferð á síðum FBI
Fyrirtækið Keynote Systems,
sem mælir netnotkun, greindi frá
því að það hefði tekið fjórar sek-
úndur í stað 3,5 sekúndna að
meðaltali að komast inn á stórar
fréttasíður. Einnig var mikil um-
ferð á vefsvæðum alríkislögregl-
unnar FBI og varnarmálaráðu-
neytisins (Pentagon).
Alls voru flettingar á mbl.is
440.725 talsins þennan sólarhring
eða rúmlega hundrað og þrjátíu
þúsund fleiri en mest hefur verið
áður á einum sólarhring.
Þá var forsíða mbl.is sótt
196.809 sinnum. Um 60 þúsund
flettingar voru á klukkutíma þeg-
ar álagið var mest um miðjan dag
í gær.
Morgunblaðið tekur þátt í sam-
starfi um skráningu aðsókn-
artalna sem er í umsjón Versl-
unarráðs og fyrirtækisins
Modernus og eru tölur um aðsókn
að 24 vefjum birtar vikulega.
Þessar tölur má skoða á heima-
síðum Verslunarráðs og Mod-
ernus (www.chamber.is og
www.teljari.is).
Forsíða mbl.is heimsótt
nær 200 þúsund sinnum
Mikil umferð á fréttavefsvæðum í kjölfar hryðjuverka
DREGIÐ hefur verið úr viðbúnaði á
varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli
en áfram er þó hert öryggisgæsla við
hlið vallarins og áfram eru vopnaðir
lögreglumenn þar og í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Var þetta ákveðið
laust eftir kvöldmat í gær.
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, sagði að
minni viðbúnaður á varnarsvæðinu
þýddi að skólinn þar yrði opnaður á
ný og að verktakar gætu hafið störf
aftur en áfram yrði strangari gæsla
en venjulega í hliðum vallarins. Þar
væru bæði íslenskir og bandarískir
lögreglumenn vopnaðir.
Sýslumaður sagði gæsluna einnig
herta áfram í Leifsstöð, m.a. væru
lögreglumenn embættisins vopnaðir
og strangari leit hjá flugfarþegum.
Dregið úr
viðbúnaði á
Keflavíkur-
flugvelli
KONA meiddist lítillega á hendi og
var flutt á slysadeild til skoðunar eft-
ir að hafa tekið upp hálfs lítra plast-
flösku á Vitastíg, seinni hluta dags í
gær, sem lögreglan telur að hafi ver-
ið einhvers konar heimatilbúin
sprengja. Málið er komið í rannsókn
hjá lögreglunni.
Að sögn lögreglu mun hafa verið
um að ræða venjulega gosflösku en
hún segir að málið sé óvenjulegt.
Flaska sprakk
í höndum konu
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úr-
skurð Héraðsdóms Reykjaness um
að móðir drengs, sem búsett er í
Frakklandi, hafi rétt til að fá dreng-
inn tekinn úr umsjá föður síns og af-
hentan sér með beinni aðfarargerð.
Hefur Hæstiréttur veitt föður
drengsins þriggja vikna frest til að
afhenda móðurinni drenginn til
Frakklands, en að þeim tíma liðnum
er henni heimilt að fá drenginn tek-
inn úr umsjá föðurins og afhentan
sér með beinni aðfarargerð.
Héraðsdómur hafði áður komist
að sömu niðurstöðu og veitt föðurn-
um 7 daga frest til að afhenda dreng-
inn. Sá frestur rann út fyrir helgi og
var framkvæmd árangurslaus aðfar-
argerð á heimili föður drengsins áð-
ur en úrskurður Hæstaréttar var
kveðinn upp. Í gær var faðirinn enn í
felum með drenginn.
Drengurinn, sem er 9 ára, hefur
lýst því yfir að hann vilji ekki fara til
Frakklands til móður sinnar heldur
vera hjá föður sínum hér á landi.
Hæstiréttur staðfesti
úrskurð Héraðsdóms
Föður ber
að afhenda
drenginn
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÓvæntur sigur KA var síst
of stór / B2
Jóhannes samdi við
Real Betis / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
AFFÖLL af húsbréfum hafa lækkað
talsvert að undanförnu samfara því
að ávöxtunarkrafa á skuldabréfa-
markaði hefur lækkað í miklum við-
skiptum á verðbréfamarkaði. Lætur
nærri að ávöxtunarkrafan hafi lækk-
að um 0,20 prósentustig eða 20
punkta og afföllin lækkað um í kring-
um tvö prósentustig, mismunandi
eftir einstaka flokkum húsbréfa.
Svo dæmi séu tekin var ávöxtun-
arkrafa á nýjasta húsbréfaflokknum
sem merktur er 01/1 og er til 25 ára
5,70% í gær, en var 5,87% í lok ágúst-
mánaðar. Það þýðir að afföll á þess-
um tíma hafa lækkað úr 10,53% þá í
8,95% í gær. Sama er að segja um
fjörutíu ára húsbréfaflokkinn í ár.
Ávöxtunarkrafan hefur lækkað úr
5,57% í lok ágúst í 5,39% í gær, en
það þýðir að afföllin hafa lækkað úr
10,72% í lok ágúst í 8,48% í gær.
Afföll húsbréfa
hafa lækkað
Á FIMMTUDÖGUM