Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 31
Skýjakljúfalandslag Manhattan í New York er ekki eins og áður. Íbúum stórborgarinnar hefur verið hrint út í óvissuna og þeir horfast í augu við óvæginn veruleikann. Morgunblaðið bað Ólaf Jóhann Ólafsson að bregða upp mynd af lífinu á Manhattan í New York daginn eftir árásina. ÍKAFFIBÚÐINNI úti á hornier ys og þys á morgnana –skrifstofufólk á leið í vinnu aðgrípa eitthvað í gogginn, for- eldrar að fara með börnin sín í skólana í nágrenninu, verkamenn sem hafa tekið sér hlé eftir að hafa byrjað daginn snemma. Menn kalla á kaffi og kleinur, spælt egg og beikon, sumir setjast við borð úti við glugga, flestir kveðja með morgunmatinn í höndunum. Í dag er þögn í kaffibúðinni á horninu. Tveir á undan mér, bekk- irnir úti á gangstétt auðir. Konan sem heilsar mér á morgnana og skiptist við mig á glensi meðan hún réttir mér kaffibolla er hljóð eins og samstarfsfólk hennar og við- skiptavinir, hristir einungis höfuðið. Það segir enginn neitt. Orðin víkja fyrir þögninni. Skrifstofa mín er niðri á miðri Manhattan, í Rockefeller Center. Þar er lokað í dag eins og á flestum öðrum vinnustöðum enda hefur fólk verið beðið um að halda kyrru fyrir heima hjá sér. Við höfum hins vegar ákveðið nokkur að koma þar saman til að bera saman bækur okkar og grennslast fyrir um hvort starfsfólk fyrirtækisins hafi orðið fyrir áfalli. Ég geng niður Madison Avenue til að reyna að ná í leigubíl. Þar sem bílar bruna framhjá dag og nótt með flauti og hvini er auðn. Það er engan bíl að fá. Gangstéttirnar eru mann- lausar. Og samt gæti þessi haustdag- ur ekki verið fallegri, tuttugu stiga hiti og blár himinn, sólin á sínum stað. Ég horfist í augu við þá sem ganga framhjá mér; enginn segir orð. Það er eins og skrítin samkennd hafi gripið íbúa stórborgarinnar sem virðist eins og hljótt sveitaþorp í dag. Freddy vinur minn sem sér um ör- yggismál fyrirtækisins tekur á móti mér niðri á götu. Faðmar mig að sér. Segir ekkert í fyrstu, getur þess svo hvaða samstarfsmenn mínir séu komnir. Við lítum í kringum okkur, þögn. Ég tek lyftuna upp á tutt- ugustu og áttundu hæð. Þegar ég geng inn á skrifstofuna og horfi út stígur reykur upp í loftið þar sem tvíburaturnarnir voru vanir að taka á móti mér. Ljósir reykjarbólstrar sem virðast ekki hreyfast. Engu lík- ara en þeir hafi þegar öðlast hlut- deild í himninum – eða í huga okkar. Við förum yfir þær upplýsingar sem okkur hafa verið fengnar. Kona starfsmanns í tónlistarfyrirtækinu var í flugvélinni sem var flogið á ann- an turninn, dóttur samstarfskonu okkar saknað … Allir þekkja ein- hvern. Mér verður tíðhugsað til vina- fólks okkar og dóttur þeirra. Eig- inmaður hennar vann í öðrum turninum. Við gerum það litla sem við getum, stöndum svo á fætur, kveðjumst. Úti tekur þögnin á móti mér. Ég hef ver- ið á ferli í þessari borg á öllum tíma sólarhrings – horft á bakarana kveikja ljósin um miðja nótt, bar- þjóninn loka dyrunum á eftir sér, slátrarann spúla steininn í stéttinni fyrir utan búðina sína í bítið – og allt- af undrast lífskraftinn og niðinn sem fylgir honum eins og af blóði í æðum. Ég hef aldrei áður rekist á þessa þögn hér á götu. Grafarþögn. Ég geng heim á leið. Yfir fljúga herþotur. Þegar ég er kominn í hverfið sé ég hvar konan sem á bóka- búðina í næstu götu veifar til mín. Hún er búin að opna, fólk þarf að lesa eitthvað fallegt í dag, segir hún við mig. Eitthvað fallegt … Synir okkar eru heima, allir skólar eru lokaðir. Þeir spurðu margs áður en þeir fóru að sofa í gærkvöldi. Heimurinn hafði breyst í einni svipan. Jafnvel börnin virðast skynja að honum verður ekki auðveldlega tjaslað saman að nýju. Eitthvað fallegt … Mér gekk treg- lega að svara þeim í gærkvöldi þegar þeir spurðu hvernig fólk gæti verið svona vont, eins og þeir orðuðu það. Hvort allt yrði ekki í lagi. Það gætti efasemda í málrómi þeirra þegar þeir spurðu hvort byggingarnar yrðu ekki reistar að nýju, eins og þeir vissu að eitthvað annað og meira hefði glatast. Slökkviliðsmaður fetar sig í gegnum brak skammt frá grunni World Trade Center-turnanna á Manhattan. Orðin víkja fyrir þögninni Höfundur er rithöfundur og fram- kvæmdastjóri hjá AOL-TimeWarner. Reuters á for- st hef- Fred áskóla rir for- kuli við rsetinn yrk og hvetj- grekki n þurfi ursýki í einnig sínum vikum, gagn- örygg- verka- ftir sig seta Kearns ali við ásina á forseti mju og þjóðin urveg- smenn ttöku í rði að sömu honum sína á á, að í ðbrögð Pearl hns F, któber gagn- a hafði ætti frá vegar þann styrk sem sæmdi forseta Banda- ríkjanna. Rólegur og stefnufastur Nánir samstarfsmenn Bush segja að hann haldi ávallt ró sinni þótt álagið sé mikið, hann taki af skarið, ásaki ekki samstarfsfólk sitt eða taki ákvarðanir sem hann iðrist síðar. Þetta eru kostir í fari forset- ans sem Washington Post segir hafa verið lítt áberandi, en þurfi núna að draga fram í dagsljósið. Annar þáttur í fari Bush hefur verið meira áberandi, enda hefur hann sjálfur margítrekað hann, en það er að hann vill hvergi hvika frá yfirlýstum stefnumálum sínum. Hann hefur til dæmis lagt mikla áherslu á nauðsyn þess að Banda- ríkin komi upp öflugu eldflauga- varnarkerfi, til að verjast árásum óvinaþjóða. Atburðir þriðjudagsins hafa hins vegar leitt í ljós, að hugs- anlegar eldflaugar óvinaþjóða eru ekki eina eða stærsta ógnin sem steðjar að Bandaríkjunum. Eld- flaugavarnarkerfið hefði ekki getað séð við hryðjuverkamönnunum, sem notuðu farþegavélar sem eld- flaugar í fjöldamorðum. Árásirnar hljóta að þvinga forsetann til að breyta forgangsröðinni í varnar- málum og leggja áherslu á varnir við hryðjuverkum. Á það er einnig bent, að Banda- ríkin muni aldrei verða söm og eitt af því sem forsetinn þurfi að horfast í augu við sé hversu langt sé hægt að ganga í auknum öryggisráðstöf- unum, ef þær skerði frelsi einstak- linganna. Líklegt sé þó að almenn- ingur muni sætta sig við miklu strangara eftirlit en áður á flugvöll- um, við landamærin og á öðrum mikilvægum stöðum. Los Angeles Times segir líka öruggt að almenn- ingur verði miklu jákvæðari fyrir auknum fjárframlögum til hernað- armála og leyniþjónustu. Engin flokkapólitík Nú þegar Bandaríkjamenn eru að reyna að átta sig á gífurlegu mannfallinu og skemmdarverkun- um, er áberandi að flokkapólitík er látin lönd og leið. Leiðtogar demó- krata og repúblikana á þingi héld- ust í hendur á þriðjudagskvöld fyrir utan þinghúsið og sungu lagið „God bless America“, þingmenn hvar í flokki sem þeir standa lýsa yfir stuðningi við forsetann á þessum erfiðu tímum og Bill Clinton, for- veri Bush í embætti, sagði að fyrstu viðbrögð forsetans hefðu verið hár- rétt, þegar hann lýsti sorg sinni vegna atburðanna og lofaði að gera allt sem í hans valdi stæði til að hin- ir seku næðust. Clinton sagði að verkefnin yrðu forsetanum án efa erfið, en hann myndi leysa þau vel af hendi ef bandaríska þjóðin stæði að baki honum. Hann neitaði að tjá sig um hugsanlegar pólitískar af- leiðingar málsins fyrir Bush og sagði forsetann hafa nóg á sinni könnu. Þjóðin lítur til forsetans Í forsetakosningunum á síðasta ári voru þær raddir háværar, sem sögðu að Bush væri allt of reynslu- lítill til að taka við embætti leiðtoga voldugasta ríkis heims. Nokkuð dró úr þessari gagnrýni þegar Bush til- kynnti helstu samstarfsmenn sína, því þar er þrautreyndur maður í hverju rúmi, varaforsetinn Dick Cheney, Colin Powell utanríkisráð- herra, Donald Rumsfeld varnar- málaráðherra og Condoleezza Rice, öryggisráðgjafi forsetans. Mikið mun mæða á þessum hópi á næst- unni og hann verður forsetanum ef- laust ómetanlegur styrkur. Eftir sem áður verður það forseti Banda- ríkjanna, George W. Bush, sem bandaríska þjóðin mun líta til eftir forystu. orge h lít- ftir egir ér slu m euters bætt- óra í MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 31 VERÐBRÉFAMARKAÐIR í Bandaríkjunum voru lokaðir í gær, annan daginn í röð, vegna hryðjuverkanna á þriðjudag. Á blaðamannafundi í New York í gærkvöld var tilkynnt að hlutabréfa- markaðir yrðu áfram lokaðir í dag en vonir stæðu til að hægt væri að hefja viðskipti í Kauphöllinni í New York, NYSE, og á Nasdaq markaðnum á föstudag. Í síðasta lagi á mánudag. Viðskipti með ríkisbréf munu hins vegar hefjast í dag. NYSE er staðsett í nágrenni World Trade Center og margir af aðilum kauphallarinnar eru með starfsemi í hverfinu. Eru verðbréfamiðlarar almennt sammála um að ekki sé hægt að segja til um hvað gerist á banda- rískum hlutabréfamörkuðum þegar þeir verða opnaðir, hvort einhver áhugi á viðskiptum verður fyrir hendi eður ei. Flest bendi til þess að vænt- anlega verði dauft yfir mörkuðum á næstunni. Allir hlutabréfamarkaðir annars staðar í Am- eríku voru einnig lokaðir í gær fyrir utan Brasilíu. Einnar mínútu þögn var í kauphöllum í Evrópu í gær, sólarhring eftir að fyrri vélin lenti á norð- urturni World Trade Center í New York. Í Evrópu var yfirleitt lítilsháttar hækkun á hlutabréfamörkuðum í gær eftir talsverðar lækk- anir á þriðjudag. Í London hækkaði FTSE 100 vísitalan um 2,87% en á þriðjudag lækkaði hún um 5,7% sem er mesta lækkun á einum degi frá 1987. Þrátt fyrir að um hækkun hafi verið að ræða voru miklar svipt- ingar á verði hlutabréfa þennan dag og svipað var upp á tengingnum á öðrum helstu hlutabréfa- mörkuðum í Evrópu. Í París hækkaði CAC 40 hlutabréfavísitalan um 1,34% og þýska Dax vísi- talan um 1,44%. Stærsta tryggingafélag Evrópu, Axa, lækkaði um 5,4% í Frakklandi í gær en Allianz féll um tæp 4% í Frankfurt. Töluvert var um lækkanir á flugfélögum og fé- lögum tengdum ferðaþjónustu í Evrópu í gær. Einhverjar lækkanir gengu þó til baka áður en markaðir lokuðu meðal annars British Airways sem lækkaði um rúm 20% yfir daginn en litlar breytingar urðu á lokaverði þess milli daga. Bréf franska flugfélagsins Air France lækkuðu um 10,45% í gær. Gull lækkaði aftur í verði í gær eftir snarpa hækkun á þriðjudag og var lokaverð únsunnar 278,50 dollarar síðdegis í gær á móti 287 dollurum á þriðjudag. Brent-olía í London lækkaði lítillega í gær og var í 28,28 dölum á tunnu síðdegis í gær. Miklar lækkanir voru á hlutabréfamörkuðum í Asíu í gær en viðskiptum var hætt þar á þriðjudag þegar árásin var gerð. Hlutabréf í flugfélögum, tryggingarfélögum og flutningafélögum lækkuðu mest. Nikkei-vísitalan í Japan lækkaði um 6,63% og hefur hún ekki verið lægri síðan í desember 1983 eða í tæp 18 ár. Hlutabréf í Hong Kong lækkuðu um 8,87% og hafa ekki verið lægri í 30 mánuði og í Suður-Kóreu nam lækkunin 12%. Ekki urðu miklar breytingar á gjaldeyrismörk- uðum í gær. Að sögn Sigurðar Erlingssonar, sér- fræðings hjá Landsbanka Íslands, óskaði Seðla- banki Bandaríkjanna eftir því að seðlabankar myndu halda viðskiptum með Bandaríkjadal í lág- marki. Segir Sigurður að svo virðist sem flestir bíði átekta og séu að meta stöðuna. Hlutabréfamarkaðir áfram lokaðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.