Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 43
✝ Unnur SigrúnBjarnadóttir
fæddist á Ísafirði 19.
ágúst 1917. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli 7. septem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar Unnar voru
Bjarni Bjarnason sjó-
maður, f. á Laugabóli
við Arnarfjörð 10.
október 1886, d. 7.
júní 1975, og Sigríð-
ur María Jónsdóttir,
f. á Ísafirði 27. maí
1890, d. 12. ágúst
1981. Unnur var
einkadóttir foreldra sinna.
Hinn 28. október 1944 giftist
hún Sigurði Ragnari Sigurjóns-
syni, verkstjóra í Reykjavík, f. 23.
febrúar 1922, d. 3. júní 1977. For-
eldrar hans voru Rannveig Guð-
mundsdóttir og Sigurjón Sigurðs-
son í Reykjavík. Börn Unnar og
Sigurðar eru: 1) Sigríður María, f.
21. júní 1947, maki Sigurður St.
Arnalds. Þeirra börn eru: a) Sig-
urður Ragnar, maki Anna Sigríð-
ur Örlygsdóttir, sonur þeirra er
Örlygur Steinar, b) Ásdís, sam-
býlismaður Guðmundur Daðason,
dóttir þeirra er Hild-
ur María, og c) Unn-
ar Bjarni, sambýlis-
kona Árdís Hulda
Stefánsdóttir. 2)
Þorbjörg, f. 15. apríl
1959. Hennar börn
eru: a) Jóhanna, b)
Unnur Sigrún, sam-
býlismaður Kristján
Nói Sæmundsson,
sonur Unnar er Eið-
ur Orri og sonur
þeirra Kristjáns er
Davíð Nói, c) Sigurð-
ur Ragnar, sambýlis-
kona Tanya Helga
Stockton, d) Sigurþór, og e) Sig-
urjón Sverrir.
Unnur ólst upp á Ísafirði, en
fluttist til Reykjavíkur skömmu
eftir tvítugt. Hún var húsmóðir í
Reykjavík. Þau hjónin bjuggu
lengst á Háteigsvegi 20, en eftir
lát Sigurðar bjó Unnur á Egils-
götu 14. Síðustu átta árin hefur
Unnur dvalið á sambýlinu Lauga-
skjóli og síðan á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli.
Útför Unnar fer fram frá Foss-
vogskapellu í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Elsku mamma mín, nú ert þú
komin í faðminn hans pabba og litla
barnsins sem þið misstuð, og amma
Sigga og afi Bjarni taka örugglega
vel á móti þér líka. Það er erfitt að
kveðja þig, elsku mamma, en ég veit
að þér líður betur núna. Minningarn-
ar koma upp í hugann hver af ann-
arri.
Sunnudagsbíltúrinn í vörubílnum
hans pabba, þið pabbi að fara á Odd-
fellowball, pabbi í kjólfötunum, þú í
síðkjól. Þið voruð svo glæsileg hjón.
Þú að baka fyrir saumaklúbbinn. Þú
að hugsa um afa og ömmu. Kaffiboð-
in hjá ömmu Rannveigu. Þú að
sauma fermingarkjólinn minn. Þú
viðstödd fæðinguna hans Sigga
Ragga míns. Jólin á Háteigsvegin-
um. Þú varst alltaf að hugsa um aðra,
alltaf tilbúin að þurrka tárin þegar á
bjátaði hjá okkur systrum. Það var
ólýsanlegt áfall fyrir okkur öll þegar
pabbi féll frá aðeins 55 ára en þú
stóðst þig eins og hetja fyrir okkur
systurnar. Þið voruð svo samrýnd og
samtaka í öllu. Þið amma Sigga vor-
uð allt í einu orðnar tvær einar og
fluttuð í minni íbúð á Egilsgötuna.
Það lýsti þínu stóra hjarta að ekki
datt þér í hug að setja ömmu Siggu á
elliheimili. Nei, aldeilis ekki, amma
fékk stórt herbergi en þú svafst í
borðstofunni. Þú sást alltaf björtu
hliðarnar á öllu og alltaf stutt í húm-
orinn. Sá eiginleiki fylgdi þér alla tíð
fram í andlátið. Síðustu 12 ár hefur
heilsa þín verið að bila og oft verið
erfitt, sérstaklega síðastliðið ár. Þér
hefur sennilega þótt nóg komið og
ákveðið að fara með reisn sem þú
sannarlega gerðir.
Elsku mamma, þakka þér fyrir að
bíða eftir mér. Guð geymi ykkur
pabba.
Þín dóttir,
Þorbjörg.
Elsku amma mín.
Ég fæ þér aldrei fullþakkað allt
það sem þú gerðir fyrir mig. Ég var
ekki nema þriggja vikna þegar ég
var kominn til þín í pössun og fékk að
kynnast þeirri einstöku hlýju og um-
hyggju sem þú hafðir til að bera. Ég
varð því snemma mjög hændur að
þér og af hreinni eigingirni fannst
mér ég alltaf eiga að njóta sérstöðu
hjá þér sem elsta barnabarnið, þó
aldrei gerðir þú upp á milli okkar.
Þær hafa líka alltaf setið sterkt í
minningunni vikurnar sem ég var
hjá þér og afa Sigga, þegar ég kom
heim frá Kaupmannahöfn nokkrum
vikum á undan pabba og mömmu.
Það hefur örugglega ekki verið auð-
velt að taka við mér þá, því ég vildi
alls ekki tala íslensku, snakkede
bare dansk. Það var ekki amalegt að
hafa þig til að stjana við mig og að fá
afa í galsann þegar hann kom heim. Í
bónus hafði ég svo afa Bjarna og
ömmu Siggu til að spila við veiði-
mann. Þessi fyrstu ár var ég ein-
hvern veginn alltaf með annan fótinn
hjá þér, hvort sem það var til að fá
kakó eftir skólann eða að æfa mig á
píanóið hjá þér, áður en mér var góð-
fúslega bent á að framtíð mín lægi
líklega ekki í tónlist. En aldrei kvart-
aðir þú. Svo varð afi bráðkvaddur
alltof ungur, svo hin barnabörnin
fengu aldrei að kynnast þeim dásam-
lega manni. Það þarf ekki að fjölyrða
um hvert reiðarslag það var, þið vor-
uð alltaf svo samhent hjón. Í mínum
huga var afi fyrsti mjúki maðurinn,
því hann var ólíkur flestum af hans
kynslóð. Þið amma Sigga fluttuð svo
á Egilsgötuna, þar sem ég átti sem
fyrr alltaf athvarf. Ég nýtti það m.a.
til að lesa undir próf, undir því yf-
irskini að fá frið fyrir yngri systk-
inum. Þegar ég byrjaði í Háskólan-
um, datt mér það snjallræði í hug að
fá að koma daglega til ömmu í há-
degismat. Það var dásamlegt að tölta
til ömmu og fá steiktar kjötbollur
eða fisk, fleygja sér svo í sófann á
eftir og dotta yfir fréttunum. Svo
hvarflaði það að einhverjum, að
þetta væri bara af því ég væri svo
óskaplega góður að heimsækja
ömmu á hverjum degi. En það var
líka erfitt að sjá þá fyrstu einkenni
alzheimersjúkdómsins koma fram,
án þess að við gerðum okkur nokkra
grein fyrir því hvað væri að gerast.
Það var átakanlegt að sjá þessa lífs-
glöðu hressu konu breytast af völd-
um þessa hræðilega sjúkdóms. Þú
varst svo heppin að verða einn af
frumbyggjum Laugaskjóls, eftir að
sjúkdómurinn ágerðist. Þar leið þér
alltaf vel og það var gott að koma
þangað í heimsókn. Það var samt
alltaf erfitt að finna það óöryggi og
vanlíðan, sem það olli þér að þekkja
ekki lengur þína nánustu. Það var
samt aðdáunarvert að sjá hversu
lengi þú streittist á móti sjúkdómn-
um. Að lokum varð þér þó ljóst að
baráttan væri töpuð og þú þráðir
hvíld. Nú hefur þú fengið þinn frið og
þið afi sameinuð á ný eftir nærri 25
ára aðskilnað. Það eru án efa fagn-
aðarfundir. Elsku amma, hvíldu í
friði. Í hjarta mínu geymi ég minn-
inguna um þá dásamlegu konu sem
þú varst.
Sigurður Ragnar.
Þegar við vorum lítil áttum við
margar góðar stundir á Egilsgötunni
hjá ömmu Unni. Þar þótti okkur gott
að vera enda alltaf hugsað vel um
okkur og jafnvel dekrað við okkur.
Hún var alltaf jákvæð og velviljuð í
okkar garð og annarra og sýndi okk-
ur mikla væntumþykju og góðsemi.
Á unglingsárum okkar fór að halla
undan fæti og amma fór að veikjast.
Þrátt fyrir það var oft stutt í góða
skapið hjá henni og alltaf hnyttin til-
svör til taks. Það varð henni síðan
mikið lán að flytjast snemma í veik-
indum sínum á sambýlið Laugaskjól
þar sem vel var um hana hugsað og
gott að koma.
Nú er ei annað eftir
en inna þakkar-mál
og hinztri kveðju kveðja
þig, kæra, hreina sál.
Þín ástarorðin góðu
og ástarverkin þín
í hlýjum hjörtum geymast,
þótt hverfir vorri sýn.
(Einar H. Kvaran.)
Við erum þakklát fyrir þær stund-
ir sem við áttum með ömmu Unni og
alla þá ást og hlýju sem hún veitti
okkur.
Ásdís og Unnar.
Elsku besta amma,
núna ertu komin til himna og búin
að hitta afa sem þú saknaðir svo sárt.
Þú varst alltaf svo hamingjusöm á
Laugaskjóli og við vorum svo heppin
að fá að hafa þig svo lengi eftir að þú
veiktist. Þú varst alltaf svo fín og vel
tilhöfð, alltaf með naglalakk fram á
síðustu daga. Það er svo margt gott
sem ég get sagt um þig, elsku amma,
að ég get skrifað endalaust, það eru
okkar forréttindi sem eftir erum að
hafa fengið að kynnast slíkri mann-
eskju sem þú varst. Mér er minn-
isstæð ein saga sem mamma sagði
okkur einu sinni af þér þegar þú
varst að passa Sigga Ragga. Siggi
Raggi var sofandi úti í vagni og þú
hélst að þú hefðir séð rottu í garð-
inum, þú hringdir í slökkviliðið og
baðst þá um að koma og ná rottunni
en þegar þeir komu var rottan á bak
og burt. Þú vildir nú ekki taka neina
áhættu og stóðst með kústinn við
vagninn þangað til Siggi Raggi vakn-
aði. Þannig varst þú, passaðir okkur
alltaf svo vel. Ég mun heldur aldrei
gleyma matnum þínum, makkarónu-
súpunni og suðrænutertunni, sem
engin gerði eins og þú. Elsku besta
amma, nú ertu þú orðin að fallegum
engli og ég veit að nú líður þér vel.
Ég mun sakna þín sárt en ég veit að
þú munt vaka yfir okkur og halda
áfram að passa okkur. Við munum
geyma minninguna um fallega og
góða manneskju í hjarta okkar og ég
veit að þú munt vera með okkur
áfram.
Þín
Jóhanna.
Elsku amma mín, föstudagsmorg-
uninn 7. sept. kvaddir þú þennan
heim eftir löng og erfið veikindi þar
sem þú stóðst þig eins og hetja. Þótt
söknuðurinn sé sár hjálpar það svo
mikið að vita að loksins ertu búin að
fá hvíld, elsku amma mín, og eftir
tuttugu og fjögurra ára fjarveru frá
afa sem þú saknaðir svo sárt eruð þið
loksins saman á ný og haldist hönd
hönd í himnaríki. Við sem eftir sitj-
um erum svo stolt af þér hvað þú
varst dugleg, björt og falleg fram að
þínu síðasta. Það eru svo margar
minningar sem reika um hugann og
allar eru þær hver annarri fallegri.
Það er hægt að segja svo margt um
þig, elsku bestu amma mín, að það er
nú bara efni í heila bók. Þú hugsaðir
nú líka alltaf svo vel um öll barna-
börnin þín. Mamma sagði mér einu
sinni frá því þegar hún kom með
barnamat til þín í krukku og ætlaði
að fara að gefa Jóhönnu systur að
borða en þú hélst nú ekki, barna-
börnin þín fengju sko engan krukku-
mat og þú sauðst grænmeti upp á
gamla mátann. Öll þín matargerð
var eftir þessu enda húsmæðraskóla-
gengin og besti kokkur sem ég hef
kynnst. Stendur þar ofarlega í minni
tómatmakkarónusúpan og suðræna
tertan sem engum tekst að gera al-
mennilega nema þér. Elsku amma
mín, ég gæti talið upp endalaust
hversu yndisleg kona þú varst en ég
veit að Guð hefur fengið til sín ynd-
islegan og fallegan engil í himnaríki.
Að lokum vil ég þakka þér, elsku
amma, fyrir allt sem þú varst mér og
ég mun geyma yndislegar minningar
um yndislega manneskju í hjarta
mínu sem enginn getur tekið frá mér
og nafnið þitt sem ég er svo stolt af
að bera. Elsku amma mín, ég kveð
þig með kvæðinu sem þú söngst svo
oft fyrir okkur Jóhönnu þegar þú
varst að passa okkur.
Dansi, dansi, dúkkan mín.
Dæmalaust er stúlkan fín.
Voða-fallegt hrokkið hár,
hettan rauð og kjóllinn blár.
Svo er hún með silkiskó,
sokka hvíta eins og snjó.
Heldurðu ekki að hún sé fín?
Dandi, dansi, dúkkan mín.
(H.C. Andersen.
Gunnar Egilsson þýddi.)
Þín
Unnur Sigrún.
UNNUR SIGRÚN
BJARNADÓTTIR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
$
$
/6
2
"!"
@&
%"$)
;&8
" 0<!*
/ A 0
$ < / %
#$
+%"$#$ ! 4$ #$ !
< <*(< < <*-
+ $
$
0BC66
20
15220
$
!*
& < D
! $
&
!!"
3
0
4
)
% $ $$(
$ %$$( 4$ 0-
, %&
& %$%& @( %$$(
%$$( #$ $%&
< <*(< < < -
!
"#
!
$ % &'( $$
)* ' ) ) )*+