Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 16
SUÐURNES 16 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                                                FLOTASTÖÐ Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli vann nýlega til æðstu verðlauna bandaríska flota- málaráðuneytisins fyrir árangur í vinnuvernd. Er þetta annað árið í röð sem starfsmenn Varnarliðsins vinna til þessarar viðurkenningar. Afhenti Daniel Reinhard aðstoðar- ráðherra Bandaríkjaflota yfirmanni flotastöðvarinnar og Magnúsi Guð- mundssyni forstöðumanni vinnueft- irlits Varnarliðsins verðlaunin við at- höfn á Keflavíkurflugvelli á dögunum. Flotastöðin á Keflavíkuflugvelli er stærsta deild Varnarliðsins og ann- ast alla þjónustu þess á varnarsvæð- inu, þ. á m. rekstur flugvallarins, húsnæðis, veitu- og birgðastofnana, svo eitthvað sé nefnt. Auk nítján hundruð hermanna starfa um átta hundruð og fimmtíu Íslendingar beint hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, flestir hjá flota- stöðinni, og er vinnueftirlitið rekið á vegum hennar. Auk þess starfa að minnsta kosti sex hundruð manns á vegum íslenskra verktakafyrirtækja á varnarsvæðinu. Farið eftir þeim reglum sem ná lengra Íslensk vinnuverndarlög gilda á Keflavíkurflugvelli. Sú vinnuregla er þó viðhöfð að ávallt er farið eftir þeim lögum og reglugerðum, ís- lenskum eða bandarískum, sem ná lengra hverju sinni, segir í fréttatil- kynningu. Forstöðumaður og eftir- litsmenn vinnueftirlitsins eru ís- lenskir og annast þeir reglubundið eftirlit með öryggi og vinnuvernd í öllum mannvirkjum og á vinnustöð- um á varnarsvæðinu auk öryggis við íþrótta- og tómstundaiðkun svo og á sviði umferðaröryggis. Fá æðstu verð- laun flotans fyrir vinnuvernd Keflavíkurflugvöllur Yfirmaður flotastöðvar Varnarliðsins, Mark Anthony kafteinn, til vinstri á myndinni, og forstöðumaður vinnueftirlits Varnarliðsins, Magnús Guðmundsson, t.h., veita verðlaunum viðtöku úr hendi Daniels Reinhards, aðstoðarráðherra Bandaríkjaflota. LEIKSKÓLINN við Krók í Grinda- vík er einkarekinn. Skólahúsið var byggt og er rekið af einkafyrirtæki og annað einkafyrirtæki annast rekstur leikskólans samkvæmt samningi við Grindavíkurbæ. Stjórnendur skólans eru nú að fara yfir reynsluna af því rúma hálfa ári sem þeir hafa annast starfsemina og undirbúa stefnumót- un til framtíðar. Grindavíkurbær bauð út byggingu og rekstur hins nýja leikskóla. Samið var við Nýsi ehf. um að byggja húsið, halda því við, kaupa leiktæki og hús- gögn og endurnýja. Þá var samið við RV ráðgjöf-verktaka ehf. um rekstur leikskólans. Húsnæði leikskólans er hið glæsi- legasta og lætur Hulda Jóhannsdóttir vel af því að vinna í því. „Húsið er bjart og þótt hátt sé til lofts er það vel hljóðeinangrað,“ segir hún og Pétur R. Guðmundsson rekstrarstjóri bætir því við að húsið sé einn fallegasti leik- skóli sem þau hafi séð. Fjölgar í hverjum mánuði Leikskólinn er fjögurra deilda. Hann er enn ekki fullnýttur. Þegar hann hóf starfsemi, í byrjun febrúar á þessu ári, var nýtingin 62%, er nú kominn yfir 70% og fer vaxandi með hverjum mánuðinum sem líður, að sögn Péturs. Hulda segir að nú séu 111 börn í skólanum, á mismunandi tímum dags. Hún segir ekki alveg ljóst hvað hús- næðið geti borið mörg börn eða hvað starfsfólkið treysti sér til að sinna mörgum en það verður metið á næstu mánuðum í ljósi reynslunnar. Hulda segir að enn sé ekki komin full reynsla á starfið í leikskólanum. Verið sé að byggja upp nýja stofnun og hún sé auk þess að þreyta frum- raun sína sem leikskólastjóri. Það kalli á mikla hópaðlögun í upphafi og þar sem börnunum sé sífellt að fjölga sé stöðug aðlögun í gangi. Það hafi í för með sér mikið álag á starfsfólk og börn. Vonast hún til þess að þessu uppbyggingarstarfi ljúki um áramót og þá verði leikskólinn fullsetinn. Þótt leikskólinn sé einkarekinn ber honum að veita sömu þjónustu og eldri leikskólinn í Grindavík og for- eldrarnir greiða jafn há gjöld. Þá eiga sömu reglur að gilda í báðum leik- skólunum en Hulda segir að eftir sé að fara yfir þann þátt með stjórnend- um hins leikskólans. Eldri leikskólinn sem er við Dal- braut var yfirfullur og því jókst þjón- ustan mjög með tilkomu leikskólans við Krók. Hulda nefnir að fækkað hafi verið í eldri skólanum og að byrjað hafi verið að taka yngri börn en áður, eða allt niður í 18 mánaða. Þótt Grindavík hafi ekki verið hverfaskipt með tilliti til leikskóla hefur þróunin verið í þá átt. Íbúar í nýrri hverfum bæjarins hafa frekar notað þjónustu leikskólans við Krók. Þá er hann í ná- grenni nýbyggingarsvæða og inni á svæði sem á að byggja á í framtíðinni. Þekkja ýsu frá þorski „Við erum á mjög góðum stað. Börnin eru komin út í náttúruna um leið og við förum með þau út af skóla- lóðinni, á meðan svæðið er óbyggt. Við getum farið í berjamó og íþrótta- vellirnir eru hér í næsta nágrenni. Þá er stutt í sveitabæ. Verra er að við er- um lengra frá fjörunni og sjónum og við förum því sjaldnar þangað,“ segir Hulda. Hún segir að lögð sé áhersla á að kynna atvinnustarfsemi og menn- ingu fyrir börnunum. Þau séu því tíðir gestir á fiskmarkaðnum og öll þekki að minnsta kosti ýsu frá þorski áður en þau byrji í grunnskóla. 23 starfsmenn vinna við leikskól- ann og segir Pétur rekstrarstjóri að þau hafi verið heppin með starfsfólk Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Eftir því var tekið hvað tveggja ára börnin voru stillt á meðan þau voru mynduð með Pétri Guðmundssyni rekstrarstjóra og Huldu Jóhannsdóttur, leikskólastjóra leikskólans við Krók í Grindavík. Sífellt fjölgar í einkarekna leikskólanum við Krók Ekki er tjaldað til einnar nætur Grindavík en það sé forsendan fyrir því að starf- semin gangi vel. Við skólann starfa fjórir leikskólakennarar og einn þroskaþjálfi. Fyrsta árið er reynslutímabil Pétur segir að samstarfið við Grindavíkurbæ hafi gengið vel og hælir bæjaryfirvöldum fyrir framsýni þeirra og dugnað við að koma leik- skólanum upp með þessu formi. Hann segir of snemmt að segja til um það hvernig reksturinn komi út. Fyrsta árið sé reynslutímabil. Þá hafi þurft að leggja í nokkurn kostnað í upphafi, til dæmis við kaup á búnaði í eldhús, kennslugögn og ýmsan búnað sem tilheyri hinu faglega starfi sem afskrifast á lengri tíma. „Við gerðum samning um rekstur leikskólans til fimm ára og höfum möguleika til framlengingar. Við er- um ekki að tjalda til einnar nætur og viljum standa þannig að rekstrinum að við getum rekið skólann áfram,“ segir Pétur. Á vegum Grindavíkurbæjar er ver- ið að undirbúa útboð á nýjum leik- skóla við Dalbraut, í stað þess eldra sem þar er. Eftir er að ákveða hvort hann verður boðinn út sem einka- framkvæmd. MIKIÐ var um að vera á bryggj- unum í Grindavíkurhöfn í gær. Ver- ið var að landa úr skipum og búa önnur á veiðar. Þessir rösku menn voru að landa úr frystiskipinu Hrafni Sveinbjarnarsyni GK-255. Raða þurfti kössunum á bretti eftir kúnstarinnar reglum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Landað úr Hrafni Grindavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.