Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 20
ERLENT 20 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í SÝNINGARSAL 3, þar sem m.a. voru sýningarsvæði Ford, Land Rov- er, Renault og Nissan, kvað við slitr- óttan háværan tón og eins og hendi væri veifað streymdu gestir og starfs- menn niður rúllustigana og út úr hús- inu. Fjöldi vopnaðra lögreglumanna birtist í húsinu og orðrómur var um að sprengjuhótun hefði borist. Á blaðamannafundi sem VDA hélt um hádegisbilið var skýrt frá því að bilun hefði orðið í loftræstikerfi í húsinu sem hefði sjálfvirkt sett í gang viðvör- unarkerfi. Blaðamaður frá Bremerhaven kvaðst ekki vera í rónni á sýningar- svæðinu, svo skammt frá skýjakljúf- um fjármálahverfisins í miðborg Frankfurt og sagðist ekki vita hvort yfirleitt væri rétt að skrifa stakan staf um hverfulan neysluvarning eins og bíla þegar heimurinn stæði andspæn- is hryðjuverkum af áður óþekktri stærð. Viðhorf blaðamannsins lýsti í hnotskurn andrúmsloftinu og þeim viðbrögðum sem voðaverkin í Banda- ríkjunum hafa á alla. Það kom síðan fram á blaðamannafundinum að öllum sérstökum viðburðum, svo sem blaða- mannaveislum einstakra framleið- enda, opnunarhátíð sýningarinnar í gamla óperuhúsinu og sjálfri setning- arathöfninni nk. laugardag, þegar sýningin verður opnuð almenningi, hefur verið aflýst. Hjólin snúast Allt fellur í skugga atburðanna í New York, Washington og Pitts- burgh og hljómar ankannalega, þ.m.t. kjörorð sýningarinnar; Bílarnir heilla. En í kaldri ró veruleikans held- ur gangverkið áfram og hjól efna- hagslífsins snúast. Hætt er við að heimsfrumsýningar framleiðenda á nýjum bílum hefði betur borið upp á öðrum tíma. Nissan sýndi mikið breyttan Prim- era, millistærðarbíl sem verður hlað- inn búnaði, í bæði fimm dyra hlað- baksútgáfu og fernra dyra stallbaksútgáfu. Bíllinn er orðinn mun ávalari og meðal búnaðar er myndavél og skjár í stað baksýnis- spegils. Áætlanir Nissan gera ráð fyr- ir sölu á 120.000 Primera á ári í Evr- ópu. BMW frumsýndi einnig gerbreytta 7-línu og Alfa Romeo kynnti GTA, sem er sportútgáfa af 156 bílnum, með 3,2 lítra, V6 vél. Audi frumkynnti m.a. hugmyndabílinn Av- antissimo, sem er byggður á lang- baksgerðinni af Avant, sem einnig var kynntur sem og A4 tvennra dyra með blæju. Chrysler, Jeep, Smart og Merced- es-Benz voru undir sama þaki. Mercedes-Benz frumsýndi einn at- hyglisverðasta bíl sýningarinnar, stórglæsilegan SL 500 sportbíl með 306 hestafla vél og rafstýrðu þaki sem opnast á 16 sekúndum. Jeep á hinn bóginn sýndi nýjan Cherokee sem er, eins og tilhneigingin er í jeppahönn- un, allur mýkri og ávalari. Hann virk- ar fyrir vikið minni en gamli bíllinn en er í raun réttri stærri í öllum málum. Chrysler frumsýndi PT Cruiser með blæju. Jean-Martin Folz, yfirstjórnandi Peugeot, sem er annar stærsti bíla- framleiðandi í Evrópu, lýsti því yfir á blaðamannafundi í tengslum við sýn- inguna, að ef Peugeot myndi hasla sér völl í Bandaríkjunum, myndi fyrir- tækið gera það eitt og óstutt en ekki í samstarfi við aðra framleiðendur. Talsverður frískleiki var á sýning- arsvæði Kia og Hyundai, sem bæði sýndu nýja hugmyndabíla. Kia sýndi endurnýjaða gerð af sjö sæta Carni- val fjölnotabílnum með nýrri 2,9 lítra samrásardísilvél. Hyundai sló um sig með Terracan jeppanum og splunku- nýjum Coupé, sem er orðinn hefð- bundnari útlits en áður. Þá sýndi Hy- undai einnig stórskemmtilegan hugmyndabíl sem kallast Klix. Honda sýndi í fyrsta sinn í Evrópu lítinn fjölnotabíl, Jazz, 3,83 m langan, sem kemur á markað á næsta ári. Skoda er í góðum félagsskap, á næsta svæði við Audi. Superb er nafnið á nýja bílnum sem fellur í efri mörk millistærðarflokks. Hann er fremur hefðbundinn útlits og dregur ekki lít- inn dám af VW Passat og er líka smíð- aður á sömu botnplötu og VW Passat fyrir Kínamarkað en er með lúxusinn- réttingu, leðri og viði, og fáanlegur m.a. með 2,8 lítra, V6 vél, 193 hestafla. Skuggi yfir bílasýn- ingunni í Frankfurt Mun færri blaðamenn voru á síðari fjölmiðla- deginum á bílasýning- unni í Frankfurt en þeim fyrri. Skuggi at- burðanna í Bandaríkj- unum hvílir yfir og VDA, Samtök þýskra bifreiðaframleiðenda, skipuleggjandi sýning- arinnar, aflýsti fjöl- mörgum blaðamanna- fundum sem átti að halda og jafnframt var öryggisgæsla stórlega aukin. Guðjón Guðmundsson greinir frá bílasýningunni og lýsir andrúmsloftinu í Frankfurt. Toyota setur á markað nýja Corollu, þeirra á meðal T-sportútgáfu með 190 hestafla vél. Citroen-verksmiðjurnar gera ráð fyrir að um 300 þús- und bílar af hinum nýja C3 muni seljast í Evrópu á ári. Nissan sýndi X-trail sem er lítill jeppi á sjálfstæðri grind og er vænt- anlegur á markað á Íslandi á næstunni. Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Volkswagen-samsteypan sýndi Bugatti Veyron sem er 16 strokka og með fjórum ventlum á hverjum. HÖFÐAÐ hefur verið mál í Bandaríkjunum gegn Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkis- ráðherra landsins, og er honum gefið að sök að bera nokkra ábyrgð á dauða Rene Schneid- er, herforingja í Chile- her, árið 1970. Málið er höfðað í Washington af ætt- ingjum Schneiders að því er fram kom á BBC, breska ríkisút- varpinu. Þar er Kiss- inger sakaður um aðild að samsæri CIA, bandarísku leyniþjónustunnar, um að myrða Schneider en hann var skotinn er hann snerist til varnar gegn mönnum, sem reyndu að ræna honum. Segja ættingjar hans, að samsærið hafi verið liður í víðtækari áætlun um að koma í veg fyrir, að marxistinn Salvador Allende yrði forseti. Kissinger hefur oft neitað að hafa verið viðriðinn dauða Schneiders en dómar- ar í Chile og Argent- ínu hafa farið fram á að fá að ræða við hann um mannréttindabrot, sem framin voru í tíð herforingjastjórnar- innar í Chile. Kæran nú er hins vegar til- komin vegna rann- sóknar bandarískrar sjónvarpsstöðvar á málinu en fréttamenn hennar segja, að fjar- skipti CIA hafi aðra sögu að segja en Kissinger. Bandarísk þingnefnd komst að þeirri niðurstöðu 1975, að bandarísk stjórnvöld hefðu stutt valdaránið, sem kom Augusto Pinochet til valda, en Kissinger hélt því fram, að hann hefði hætt öllu sambandi við valdaræningjana viku áður en Schneider var myrtur. Sakaður um aðild að sam- særi í Chile Kissinger Mál höfðað gegn Henry Kissinger í Washington BÍLAR TILKYNNA átti úr- slit í leiðtogakjöri breska Íhaldsflokks- ins í gær, en því var frestað til dagsins í dag í samúðarskyni vegna hryðjuverk- anna í Bandaríkjun- um. William Hague, sem sagði af sér leið- togastöðunni eftir ófarir Íhaldsflokks- ins í þingkosningun- um í júní, átti að kunngera um eftir- mann sinn á frétta- mannafundi í Lond- on síðdegis í gær. Þegar ljóst varð hve umfang árásanna í Bandaríkjun- um var gífurlegt ákvað Hague hins vegar að fresta fréttamannafundin- um í virðingarskyni við fórnarlömb ódæðisverkanna. Fordæmdi hann hryðjuverkin og sagði þau „hræði- lega árás á hinn siðmenntaða heim“. Ákvörðunin var tekin í samráði við frambjóðendurna tvo, Kenneth Clarke, fyrrver- andi fjármálaráðherra, og Iain Duncan Smith, talsmann flokksins í varnarmálum. Stuðnings- menn þeirra beggja kváð- ust vongóðir um sigur. Mjótt þykir á munum milli frambjóðendanna, en Duncan Smith er þó talinn líklegri til að bera sigur úr býtum. Sigurvegarinn mun stíga sín fyrstu spor í leiðtogahlutverkinu á föstudag, þegar breska þingið kemur saman úr sumarleyfi til að ræða atburðina í Bandaríkjunum. Rúmlega 300 þúsund félagar í Íhaldsflokknum höfðu kosningarétt í leiðtogakjörinu, sem fór fram með póstatkvæðagreiðslu. Kosningu lauk á hádegi á þriðjudag og hermt var í gær að þátttakan hefði verið um 79%, sem telst gott. Breski Íhaldsflokkurinn Úrslitum í leið- togakjöri frestað William Hague ALLS höfðu 44 menn látist í gær í Eistlandi eftir að hafa drukkið heimabrugg sem blandað hafði verið með tréspíritus. 77 eru enn á sjúkrahúsi, þar af nokkrir sem eru í dái. Yfirvöld í Eistlandi segja að tréspíritus hafa verið blandað út í bruggið, annaðhvort til að auka styrkleikann eða fyrir mistök. Var bruggið selt og drukkið í bænum Parnu sem er 125 km fyrir sunnan höfuðborgina, Tall- inn. Lögreglan hefur síðustu daga haft hendur í hári margra brugg- ara og lagt hald á mörg hundruð lítra af framleiðslu þeirra. Hafa tíu menn verið færðir til yfir- heyrslu en engin ákæra hefur verið birt enn. Talið er að þriðj- ungur áfengisneyslunnar í land- inu sé heimabrugg enda er það miklu ódýrara en annað áfengi. Fjörutíu og fjórir látnir í Eistlandi Tallinn. AP. Tréspírituseitrun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.