Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 19
NÝJAR í verslunum eru Glitra-
uppþvottavélatöflur frá Frigg. Um
er að ræða tvívirkar tveggja laga
töflur sem innihalda ensím sem
ráðast á og brjóta niður óhreinindi.
Einnig innihalda töflurnar bleikiefni
sem fjarlægir erfiða bletti.
Nýtt
Uppþvotta-
vélatöflur
frá Frigg
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 19
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir til 30. sept. nú kr. áður kr. mælie.
Maryland kex, 4 teg., 150 g 125 139 840 kg
Magic, 250 ml 159 180 636 ltr
Mónu Rommý, 25 g 45 55 1.800 kg
Toblerone, 50 g 79 110 1.580 kg
Yankie stórt, 80 g 85 105 1.070 kg
Sóma samloka 189 215 1.460 kg
Fanta, 0,5 ltr 109 130 218 ltr
SAMKAUP
Gildir til 16. september nú kr. áður kr. mælie.
Eldfugl leggir í Brown Suger sósu 860 1.075 860 kg
Eldfugl leggir í Cajun Mex Sósu 860 1.075 860 kg
SELECT-verslanir
Gildir til 29. sept. nú kr. áður kr. mælie.
Júmbó samloka og ½ ltr pepsi 279 kr. 355 kr.
Júmbó samloka og ½ ltr Diet Pepsi 279 kr. 355 kr.
Júmbó saml. og ½ ltr Egils appelsín 279 kr. 355 kr.
Freyju Villiköttur, 50 g, báðar teg. 69 kr. 99 kr. 1.380 kg
Nóa Púkar 50 g, allar tegundir 59 kr. 75 kr. 1.180 kg
UPPGRIP-verslanir OLÍS
September tilboð nú kr áður kr. mælie.
Gatorade Trop/Orange/Lem 500 ml 160 180 320 ltr
Sóma pastabakki 229 270
Freyju rís stórt 85 110
Kit Kat Chunky Kingsize, súkkulaði 109 nýtt
Yankie Bar, súkkulaði 30 60
Bouchee konfektmolar, allar teg. 40 50
ÞÍN VERSLUN
Gildir til 19. september nú kr. áður kr. mælie
Grand Orange helgarsteik 1.053 1.239 1.053 kg
Rjómalifrakæfa, 200 g 175 219 875 kg
Freshetta pitsa, 380 g 449 526 1.167 kg
Kellogǵs special K, 500 g 339 387 678 kg
Nesquik kókómalt, 700 g 389 399 544 kg
Ballerína kex, 180 g 129 147 709 kg
Hjúplakkrís, 200 g 139 184 695 kg
Hel
garTILBOÐIN
BERGÞÓRA Valsdóttir, fram-
kvæmdastjóri SAMFOKS, sam-
bands foreldrafélaga og for-
eldraráða í grunnskólum
Reykjavíkur, telur tómstunda-
starf barna jákvæða viðbót við líf
þeirra. „Ég hef ekki upplifað það
sem þrýsting frá þjóðfélaginu að
foreldrar eigi að hafa börnin sín í
einhverju tómstundastarfi. Marg-
víslegt tómstundarstarf er góð
leið fyrir börn til að fullnægja
þörfinni fyrir vellíðan og að ná
árangri.“
Bergþóra kveðst eiga fjögur
kraftmikil börn sem öll hafi verið
í margvíslegu tómstundastarfi
eftir skólatíma. „Elsti strákurinn
minn var eingöngu í íþróttum og
var þá bæði í vetraríþróttum og
sumaríþróttum. Hann stundaði ís-
hokkí fram í mars og þá tók fót-
boltinn við fram á haust. Ég held
að það sé mjög gott fyrir börn að
skipta aðeins um íþróttir eftir
árstíðum en þau verða auðvitað
að finna út úr því sjálf,“ segir hún
og bætir við að ein stelpan hennar
sé í ballett og leggi jafnframt
stund á píanónám. Bergþóra seg-
ir val á áhugamálum val
barnanna en einnig þurfi að fara
eftir fjárhag foreldra og forráða-
manna.
Innt eftir því hvenær börn
hennar hafi byrjað í tómstunda-
starfi utan skóla segir hún þau
hafa verið sex til sjö ára. „Mér
finnst það góður aldur fyrir börn
því það er líka mikilvægt að hafa
það í huga að þau eru börn og þau
þroskast á mjög jákvæðan hátt í
gegnum leik. Við verðum að gefa
þeim tíma til að geta leikið sér.
Þótt þetta tómstundagaman eigi
að vera leikur er það leikur í
skipulögðu formi. Það er ekki það
sama og frjáls leikur.“
Það kostar sitt með
fjögur börn
Það getur verið kostnaðarsamt
að hafa fjögur börn á kafi í marg-
víslegu tómstundastarfi. „Þetta
kostar sitt. Um 70.000 krónur
kostar fyrir eitt barn að stunda
tónlistarnám yfir veturinn. Þá
kosta flestar íþróttir í kringum
20.000 til 25.000 krónur það er að
segja ef barn er bara í einni
íþróttagrein.“ Hún getur þess þó
að foreldrar almennt geri sífellt
meiri kröfur um að þjálfarar
barna þeirra séu menntaðir og
jafnframt að þeir hafi jákvæð og
uppbyggileg viðhorf. „Ef við vilj-
um fá slíkt fólk til starfa verðum
við að geta greitt því ágætislaun.“
Vill tengja tómstundir
meira skólunum
Bergþóra vill tengja tóm-
stundir meira skólunum, þ.e.
íþróttir, tónlist og aðrar list-
greinar. „Við tölum um jafnrétti
til náms, mér finnst þetta líka
vera jafnréttisspurning að börn
eigi kost á því að spreyta sig í list-
um og íþróttum,“ segir hún og
skírskotar þá til fjárhags for-
eldra. „Ég tel mig ekki sér-
staklega efnaða en það kemur of-
arlega á forgangslista að börnin
mín geti lagt stund á áhugamál
sín. Þá förum við fjölskyldan
gjarnan á skíði og í hjólreiðart-
úra. Ég og eiginmaður minn
styðjum börnin okkar í tóm-
stundum en gerum jafnframt
kröfur til þeirra í náminu. Ég er í
hjarta mínu sannfærð um að
þetta sé gott fyrir þau en það eru
auðvitað ekki allir sama sinnis.“
Bergþóra segir það ákveðinn
ókost að tómstundastarf fari yf-
irleitt fram seinni part dags eða á
kvöldin. „Foreldrar vinna flestir
langan vinnudag en skóli
barnanna er yfirleitt búinn í
kringum klukkan 14. Þarna kem-
ur ákveðið bil sem þarf að brúa,
margir foreldrar vildu auðvitað
helst að börn þeirra gætu stundað
tómstundagaman sitt á þessum
tíma þannig að fjölskyldan hefði
tíma saman að loknum vinnudegi.
Ég finn mikið fyrir þessari ósk
foreldra. Málið er bara það að
flestir þjálfarar eru í öðrum störf-
um og sinna þjálfun að loknum
hefðbundnum vinnudegi. Þess
vegna væri mjög jákvætt að hægt
væri að tengja betur t.d. íþrótta-
iðkun, tónlistarnám og skólann
og bjóða upp á fjölbreyttara tóm-
stundarstarf í skólanum strax að
loknum hefðbundum skólatíma.“
Tómstundastarf jákvæð
viðbót við líf barna
Fiskibollur 25% afsl.
Laxaflök 799 kr. kg
Fiskbúðin Vör, Höfðabakka 1,
sími 587 5070
Ekta sólþurrkaður saltfiskur
V i n n u r f y r i r þ i g !
RYÐFRÍ
SÉRSMÍÐI
STÁLBORÐ
STÁLVASKAR
STÁLKLÆÐNINGAR
HEIMILI
MÖTUNEYTI
SÖLUTURNAR
VEITINGASTAÐIR
Ofnasmiðjan
Flatahrauni 13
220 Hafnarfirði
Leitið tilboða
hjá okkur.
Sími 555-6100 Fax 555-6110
NÝR litmyndabækl-
ingur frá Georg Jen-
sen Damask er kom-
inn út. Mörg ný
mynstur og litir.
Sérstaklega er vakin
athygli á nýjum ref-
ildúkum sem nota
má á margan hátt.
Georg Jensen-
bæklingur
NÝKOMNAR eru á markað
Citre Shine-hárvörurnar sem
eru vítamínbættar og gæddar
ferskum sítrusilmi. Vörurnar,
sem fást víða um heim, eru nú
seldar hér í flestum lyfjaversl-
unum, verslunum Nóatúns,
Samkaupum í Njarðvík auk
margra annarra sölustaða, á
vegum heildsölunnar Kosm-
eta.
Citre Shine-hár-
vörur á markað