Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 25
ar voru stríðsaðgerð“
Reuters
dag í kjölfar þess að tvíburaturnarnir hrundu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 25
GEORGE W. BUSH BANDARÍKJAFORSETI
Hann hefði alveg verið lamaður og
ekki alveg vitað hvað hann ætti að
gera. Hann ætti vinkonu sem hefði
verið að vinna fimm til tíu hæðum
neðar en fyrsta sprengingin varð
og sér hefði auðvitað orðið fyrst
hugsað til hennar. Hann hefði því
farið heim til hennar, en íbúðin
hennar væri hinum megin við turn-
inn í álíka fjarlægð frá bygging-
unni og hans íbúð væri. Það hefði
tekið hann dágóðan tíma að kom-
ast þangað og þar hefði hann hitt
hana skömmu seinna. Þau hefðu
ákveðið að fara þaðan til að finna
skjól annars staðar, fara í íbúð til
vinafólks eða eitthvað slíkt.
„Við erum á miðri götunni þegar
við heyrum mikil læti. Ég hélt að
flugvél væri að hrapa til jarðar
beint á móti mér. Sumir héldu að
flugskeyti hefði verið skotið eða
eitthvað slíkt, en það var sem sé
annar turninn að hrynja. Það varð
allt kolsvart. Ég sá ekki út úr aug-
unum fyrir rykinu. Við hlupum
eins og við ættum lífið að leysa. Ég
hélt jafnvel að þetta væri mitt síð-
asta,“ sagði Sigurður Pétur.
Hann sagði að þau hefðu fengið
inni á veitingastað og síðan farið á
syðsta hluta Manhattan sem heitir
Batteri Park og þar hefðu þau ver-
ið þegar seinni turninn hrundi. Þá
hefðu þau verið mun fjær og þess
vegna orðið minna vör við það, en
samt hefði borist ryk þangað.
Sigurður sagði að þau hefðu síð-
an verið flutt með ferju yfir til Ell-
is Island og þaðan yfir til New
Jersey og þar hefðu þau komið sér
fyrir á hóteli, enda væri ekki hægt
að komast til Manhattan aftur.
Vinkona Sigurðar Péturs er kan-
adísk og var að vinna í öðrum turn-
inum, 5-10 hæðum neðan við stað-
inn þar sem fyrri sprengingin varð
eða á rúmlega sjötugustu hæð.
„Hún segir að þau hafi ekki
heyrt mikinn hvell en þó nokkurn
og svo sveiflaðist húsið fjórum
sinnum fram og til baka og fólk
hentist til. Fólk fór strax af stað
niður tröppurnar og hún gekk al-
veg niður á jarðhæð. Hún var kom-
in út um hálf tíu og heim rétt fyrir
tíu,“ sagði Sigurður Pétur.
Hann sagði að vel hefði gengið
að koma þeim út úr byggingunni
sem hefðu verið fyrir neðan
sprenginguna og að sögn vinkonu
hans hefði ekki verið ríkjandi
skelfing eða örvænting meðal
þeirra sem yfirgáfu bygginguna.
að hrapa til jarðar“
Bandarískir
múham-
eðstrúar-
menn ótt-
ast hefndir
Washington. AP.
LEIÐTOGAR múham-
eðstrúarmanna og araba í
Bandaríkjunum hafa fordæmt
árás hryðjuverkamanna á
World Trade Center-
bygginguna og höfuðstöðvar
varnarmálaráðuneytisins í
Washington. Þeir hafa hvatt
almenning til að sýna stillingu
enda óttast þeir að reiði al-
þýðu manna vestra bitni á
samfélögum araba og múham-
eðstrúarmanna. Svipuð um-
mæli bárust frá leiðtogum
múhameðstrúarmanna í
nokkrum Evrópulöndum.
Strax á þriðjudag mátti sjá
orðsendingar á Netinu þar
sem múhameðstrúarmönnum í
Bandaríkjunum var hótað öllu
illu. Þá sögðu talsmenn sam-
taka araba og múham-
eðstrúarmanna í Washington,
Los Angeles, San Jose og víð-
ar að símtöl hefðu borist þar
sem boðað væri að reiði þjóð-
arinnar myndi skella af fullum
þunga á þessum þjóðfélags-
hópum.
Sundurlausar fréttir bárust
af því að gerð hefðu verið
hróp að fólki úr þessum þjóð-
félagshópum m.a. í Chicago
og í bæ einum í Colorado var
hermt að hópur manna hefði
hótað því að kveikja í mosku
múhameðstrúarmanna.
Um sex til sjö milljónir
manna í Bandaríkjunum játa
íslamska trú eins og hún birt-
ist í kenningum Múhameðs
spámanns. Leiðtogar þessara
hópa vísuðu til hatursfullra
skrifa á Netinu og kváðust
óttast mjög viðbrögð landa
sinna. Í yfirlýsingu frá stofn-
un er nefnist Arab American
Institute sagði m.a: „Óháð því
hver verður að lokum gerður
ábyrgur fyrir þessum morðum
hryðjuverkamannanna er
ótækt að tiltekinn þjóðfélags-
eða trúarhópur liggi undir
grun sem heild.“ Talsmaður
stofnunarinnar í Washington
sagði að símtöl hefðu borist
þar sem múhameðstrúar-
mönnum hefði ýmist verið
sagt að „hafa sig á brott“ eða
að hefndum hefði verið hótað.
Öryggisgæsla við moskur
Helstu samtök múham-
eðstrúarmanna og araba í
Bandaríkjunum fordæmdu
ódæðið og vottuðu aðstand-
endum fórnarlambanna samúð
sína. „Hugur okkar, hjarta og
bænir eru hjá þeim fjöl-
skyldum sem misstu ástvini
sína þennan skelfilega dag,“
sagði í yfirlýsingu Íslömsku
stofnunarinnar („The Islamic
Institute“) í Washington.
Annar hópur, Council on Am-
erican-Islamic Relations eða
Sambandsráð Ameríku og Ísl-
am, hvatti leiðtoga múham-
eðstrúarmanna um gjörvöll
Bandaríkin til að fara fram á
öryggisgæslu við moskur sín-
ar.
Félagar í slíkum samtökum
voru og hvattir til að gefa
blóð í New York og Wash-
ington.