Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁKVÖRÐUN um að fresta tíma-
mörkum lokaákvörðunar um bygg-
ingu Kárahnjúkavirkjunar og álvers í
Reyðarfirði um sjö mánuði virðist
ekki hafa afgerandi áhrif á framtíð-
armöguleika NORAL-verkefnisins
og stefnir Landsvirkjun að því að
hefja orkuframleiðslu í Kárahnjúka-
virkjun síðla árs 2006. Ljóst er að úr-
skurður Skipulagsstofnunar um mat
á umhverfisáhrifum vegna Kára-
hnjúkavirkjunar setti strik í reikn-
inginn, bæði varðandi fjármögnun
verkefnisins og kröfunnar um ítar-
legri umræðu um umhverfisáhrif
virkjunar, og ákveðin óvissa ríkir af
þeim sökum þar til umhverfisráð-
herra úrskurðar í kærumálum vegna
niðurstöðu Skipulagsstofnunar. Sú
ákvörðun á samkvæmt lögum að
liggja fyrir í lok október en aðilum
ber saman um að erfitt verði fyrir
umhverfisráðuneytið að ljúka þeirri
vinnu á tilskildum tíma.
Breyti umhverfisráðherra úr-
skurði skipulagsstjóra og heimili
framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun
mun Landsvirkjun hefja undirbún-
ingsframkvæmdir næsta sumar,
verði niðurstaða samráðsnefndar í
júníbyrjun jákvæð varðandi áfram-
hald verkefnisins. Stjórnvöld stefna
að því að lög um heimild til virkjunar
liggi fyrir eigi síðar en við þinglok
næsta vor og segir Halldór Ásgríms-
son, utanríkisráðherra, að stjórnvöld
séu ákveðnari en nokkru sinni fyrr að
gera Kárahnjúkavirkjun og álver í
Reyðarfirði að veruleika.
Halldór segir það nokkur vonbrigði
að ekki skuli hafa verið hægt að
standa við fyrri tímamörk um loka-
ákvörðun vegna framkvæmdanna, en
hins vegar verði aðilar málsins að
beygja sig fyrir staðreyndum.
„Það hefur orðið töf á málinu, ekki
síst vegna þess að úrskurður um um-
hverfisþáttinn hefur fallið á þann hátt
sem allir vita. Ég tel hins vegar aðal-
atriðið vera að það er meiri áhugi fyr-
ir því að gera þetta að veruleika held-
ur en nokkru sinni fyrr. Það eru
miklar líkur til þess að þessi töf þurfi
ekki að seinka gangsetningu verk-
smiðjunnar mjög mikið. Ég tel mjög
þýðingarmikið að Landsvirkjun geti
farið út í framkvæmdir á næsta
sumri, þannig að þeim tímamörkum
verði haldið. Og eins og málið stendur
í dag vilja aðilar málsins
standa að því með þeim
hætti,“ segir Halldór.
Ráðherra segir að hér
sé um að ræða stærsta
verkefni sem íslenska
þjóðin hafi nokkru sinni ráðist í og
engan þurfi að undra þó eitthvað
breytist í framgangi málsins. „En að-
alatriðið er það, að þetta verði að
veruleika og ríkisstjórnin er ákveðn-
ari í því en nokkru sinni fyrr að þetta
verði að veruleika. Efnahagslífið kall-
ar á það og við verðum að halda áfram
að byggja nýjar stoðir undir okkar
þjóðlíf. Að mínu mati verður ekki við
snúið,“ segir Halldór.
Hann segir það mikinn misskilning
hjá andstæðingum virkjunar og ál-
vers í Reyðarfirði að frestunin sé
upphaf á undanhaldi framkvæmda-
aðila og segir Halldór að þeim verði
ekki að þeirri ósk sinni.
Að sögn Halldórs liggur það ljóst
fyrir að Alþingi muni fjalla um málið
með einhverjum hætti þegar við upp-
haf þings í haust. „Í hvaða formi það
verður vil ég ekki segja á þessari
stundu. Það er óeðlilegt að mínu mati
ef Alþingi tekur ekki málið til með-
ferðar eins fljótt og verða má. Eitt er
ljóst að heimild Alþingis til virkjunar
verður að liggja fyrir við þinglok
næsta vor og það verður að haga um-
fjölluninni þannig að þingmenn hafi
nægilegan tíma til þess og ég tel að
undirbúningurinn eigi að miða að
því.“
Halldór segir mikla þjóðhagslega
hagsmuni í húfi og allur dráttur sem
verði á málinu sé skaðlegur. „Þess
vegna hvet ég alla sem að þessu máli
standa til að hraða því sem mest má
verða. Það er besta leiðin til að koma
þessu mikilvæga máli í höfn.
Ég vonast líka til þess að um það
geti orðið tiltölulega góð samstaða og
ég hef tekið eftir því að það er vax-
andi samstaða um málið. Mér finnst
það mjög ánægjuleg þróun,“ segir ut-
anríkisráðherra.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, segir að ekki sé
búið að taka ákvörðun um það hve-
nær lagt verði fram frumvarp á Al-
þingi til að heimila framkvæmdir við
Kárahnjúkavirkjun, en ráðherra seg-
ir að unnið sé að undirbúningi frum-
varpsins í ráðuneytinu. Að sögn Val-
gerðar er þó reiknað með að
heimildarlögin fáist samþykkt á þingi
í vetur, enda skipti það
miklu máli fyrir framhald
verkefnisins. Það sé hins
vegar ljóst að þingið geti
ekki afgreitt málið fyrr en
niðurstaða umhverfisráð-
herra liggur fyrir.
Valgerður segir að frestunin hafi
verið nauðsynleg vegna þess að meiri
tíma þurfi til að yfirfara umhverfis-
málin. „Þetta er auðvitað gríðarlegt
verk sem er núna framundan hjá um-
hverfisráðuneytinu, að fá allar þessar
kærur og þurfa að vinna úr þeim.“
Hún segir einnig að úrskurður
Skipulagsstofnunar um að hafna
virkjun setji málin í biðstöðu gagn-
vart lánastofnunum sem líti þannig á
að málið sé í ákveðinni óvissu. „Og
það er ekki hægt neita því að það er
svo. Það gerir að verkum að fjárfest-
arnir geta ekki farið í alvöru viðræður
við lánastofnanir fyrr en málið skýr-
ist.“
Kærufrestur vegna úrskurðar
skipulagsstjóra rann út 5. september
og samkvæmt lögum á umhverfisráð-
herra að úrskurða í málinu átta vik-
um eftir að kærufrestur rennur út.
Valgerður segir að gera verði ráð fyr-
ir því að ekki náist á átta vikum að
ljúka þeirri vinnu í ráðuneytinu. Hún
segist jafnframt telja lögin undarleg í
þessu sambandi og óraunhæft sé að
ætla umhverfisráðherra sama tíma
að úrskurða í kæru vegna virkjunar
af þessari stærðargráðu og taka á að
úrskurða í kæru vegna einstakra,
stuttra vegaframkvæmda.
Að sögn Valgerðar telur hún mik-
ilvægt að verkefnið sem slíkt hafi ver-
ið að styrkjast að undanförnu. Það
skref sem stigið verði í júní á næsta
ári muni skýra málið nægilega mikið
til þess að Landsvirkjun geti hafið
framkvæmdir næsta sumar þó að bið
verði á endanlegri ákvarðanatöku.
Aðspurð um það hvort málið falli
um sjálft sig staðfesti umhverfisráð-
herra úrskurð Skipulagsstofnunar
eða hvort Alþingi muni eiga síðasta
orðið, segir Valgerður að það sé lög-
fræðilegt mál sem lögfræðingar hafi
ekki verið sammála um hvernig eigi
að túlka. „T.d. um það hvort að iðn-
aðarráðherra verður að taka tillit til
niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum,
en ég held að það liggi ljóst fyrir að sá
iðnaðarráðherra sem núna situr mun
ekki fara þvert á niðurstöður um-
hverfisráðherra,“ segir Valgerður.
Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar,
segist ekki hafa áhyggjur
af því að fresta endanlegri
ákvarðanatöku, enda gefi
frestunin Landsvirkjun
rýmri tíma til undirbúnings fram-
kvæmda. Að sögn Friðriks eru þeir
aðilar sem standa að verkefninu nú
ákveðnari en áður að láta hlutina
ganga upp og því engin ástæða til að
ætla annað en orkuframleiðsla hefjist
í Kárahnjúkavirkjun á seinni hluta
ársins 2006.
„Með þessum breytingum gefst
betra svigrúm til þess að undirbúa
framkvæmdirnar og það er jákvætt
að okkar mati,“ segir Friðrik.
Hann segir að Landsvirkjun muni
meta stöðu verkefnisins í júníbyrjun
á næsta ári og verði þá yfirgnæfandi
líkur á framgangi málsins muni und-
irbúningsframkvæmdir hefjast
næsta sumar. Það yrðu aðallega
vegaframkvæmdir og aðrar skyldar
undirbúningsframkvæmdir til að
nýta tímann áður en virkjanafram-
kvæmdirnar sjálfar hefjast.
Að sögn Friðriks mun Landsvirkj-
un að öðru leyti halda áfram sínum
undirbúningi fyrir Kárahnjúkavirkj-
un í vetur. Verið er að undirbúa útboð
sem byggist á forvali vegna fram-
kvæmdanna og miðar undirbúningur
að því að Landsvirkjun verði tilbúin
að hefjast handa við virkjunarfram-
kvæmdir ef jákvæð niðurstaða liggur
fyrir í byrjun september á næsta ári.
„Við gerum síðan ráð fyrir, ef allt
gengur upp, að hefja framleiðslu og
tryggja raforku til verksmiðjunnar á
síðasta hluta ársins 2006. En þetta er
auðvitað háð þeim skilyrðum að nið-
urstaða mats á umhverfisáhrifum
verði jákvæð og heimildarlög verði
afgreidd á Alþingi og leyfi ráðherra
og sveitarstjórna liggi fyrir um rekst-
ur og byggingu virkjunarinnar. Það
eru forsendur fyrir framkvæmdum,“
segir Friðrik.
Smári Geirsson, forseti bæjar-
stjórnar Fjarðabyggðar, segir það
ekki hafa komið þeim sem fylgist náið
með framgangi mála að lokaákvörðun
um virkjun og álver á Austurlandi
hafi verið frestað. Hann segir þó enga
ástæðu til að ætla að ekki verði af
framkvæmdum eða áhuginn sé minni
fyrir verkefninu.
„Grunnástæðan fyrir þessari frest-
un er í reynd úrskurður Skipulags-
stofnunar varðandi Kárahnjúkavirkj-
un. Sá úrskurður hefur tefjandi áhrif
á aðra þætti undirbúnings, m.a. fjár-
mögnunarþætti. Þannig að það varð
fljótlega ljóst eftir að sá úrskurður lá
á borði að það hlaut að koma til þess-
arar frestunar. Þetta þýðir hins vegar
ekki það að það sé eitthvað minni
áhugi fyrir verkefninu. Þvert á móti
er unnið að verkefninu af fullum
krafti og menn eru vonast til þess að
Landsvirkjun muni geta nýtt næsta
sumar mjög vel til undirbúnings
framkvæmda,“ segir Smári.
Aðspurður um hvort hann hafi orðið
var við ótta meðal Austfirðinga vegna
frestunar um ákvörðun framkvæmda,
segir Smári, að fólk verði
strax hrætt við að fá slík-
ar fréttir og það sé mjög
eðlilegt. „Fólk hefur
reynslu af verkefnum hér
sem hafa verið undirbúin
og ekkert orðið úr og það er ekkert
óeðlilegt að fólk hafi miklar áhyggjur
þegar það fær fréttir sem þessar. En
það er ekkert sem bendir til þess að
það sé ástæða til slíks í dag.“
Smári segir að haldið verði áfram
af fullum krafti við undirbúning verk-
efnisins og segir að von sé á stórum
hópi Norðmanna í næstu viku frá
Norsk Hydro. Það sé því engan bil-
bug að finna á Austfirðingum.
Tölvugerð mynd af fyrirhuguðu álveri í Reyðarfirði.
Lagaheimild til virkjunar
liggi fyrir við þinglok
Sú ákvörðun að fresta tímamörkum loka-
ákvörðunar um Kárahnjúkavirkjun og álver
í Reyðarfirði hefur vakið spurningu um það
hvort frestunin sé upphafið að því að hætt
verði við framkvæmdir. Eiríkur P. Jör-
undsson kannaði málið og komst að því að
stjórnvöld, Landsvirkjun og Austfirðingar
hafa fulla trú á framtíð verkefnisins.
eirikurj@mbl.is
Betra svigrúm
fæst til undir-
búnings
Engan bilbug
að finna á
Austfirðingum
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir stjórnvöld ákveðnari en
nokkru sinni fyrr að gera virkjun og álver á Austurlandi að veruleika
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær mann í 4 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og til greiðslu
5,1 milljónar króna til ríkissjóðs
vegna skattsvika. Ákærða var í
ákæru efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra gert að sök að hafa
hvorki skilað virðisaukaskatts-
skýrslum né staðið sýslumanninum í
Kópavogi skil á virðisaukaskatti sem
hann innheimti, í sjálfstæðri at-
vinnustarfsemi sinni, á árunum 1996
og 1997, samtals að fjárhæð rúmar
2,5 milljónir króna.
Þá var ákærði sakaður um bók-
haldsbrot með því að hafa látið undir
höfuð leggjast að halda lögboðið bók-
hald, vegna sjálfstæðrar atvinnu-
starfsemi sinnar, varðveita bók-
haldsgögn og semja ársreikninga, í
samræmi við það sem lög áskilja,
vegna áranna 1996 og 1997.
Ákærði játaði brot sín, sem talin
voru meiriháttar að mati dómsins.
Jónas Jóhannsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Helgi Magnús
Gunnarsson fulltrúi hjá efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra sótti
málið. Verjandi ákærða var Guð-
mundur Ágústsson hdl.
Dæmdur
fyrir
skattsvik
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær íslenska ríkið til að
greiða lögreglumanni 60 þúsund
krónur í skaðabætur vegna líkams-
tjóns sem hann varð fyrir í starfi.
Málavextir voru þeir að lögreglu-
maðurinn var kvaddur að húsi í
Reykjavík í ágúst 1999 vegna áfloga
en var sjálfur sleginn og hlaut
áverka í andliti. Ofbeldismaðurinn
hlaut síðar 45 daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir að slá lögreglumann-
inn þrisvar sinnum að því er sannað
þótti.
Samkvæmt læknisvottorði var
lögreglumaðurinn óvinnufær með
öllu vegna vinnuslyss í 5 daga. Hann
krafðist alls 111 þúsund króna í bæt-
ur og beindi kröfum sínum að rík-
issjóði á grundvelli þess að ríkissjóði
væri skylt að bæta fyrir líkamstjón
sem lögreglumaður yrði fyrir við
framkvæmd skyldustarfa.
Ríkið krafðist aðallega sýknu í
málinu og byggði á því að áverkar
lögreglumannsins hefðu verið lítils
háttar og hefðu ekki gert hann
óvinnufæran. Héraðsdómur féllst
ekki á það og þótti rétt að ríkissjóður
bætti lögreglumanninum þá áverka
sem hann varð fyrir en taldi hæfileg-
ar bætur 60 þúsund krónur.
Páll Þorsteinsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. María Thejll hdl.
var til varnar fyrir stefnda, ríkið.
Kristinn Ólafsson var lögmaður
stefnanda, lögreglumannsins.
Lögreglu-
manni
dæmdar
bætur
JÓHANN R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, segir að
sprengjuhótun sem barst í kjölfar at-
burðanna í Bandaríkjunum í fyrra-
dag, hafi komið úr síma innanlands
og sé málið í rannsókn hjá lögreglu.
Þegar er búið að yfirheyra nokkra
aðila vegna málsins. Sprengjuleit fór
fram í Leifsstöð, sem var rýmd um
tíma, og skilaði leitin engum árangri.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
var símtalið rakið til síma í Reykja-
vík. Lögreglan tjáir sig ekki frekar
um málið.
Yfirheyrt
vegna
sprengju-
hótunar
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦