Morgunblaðið - 13.09.2001, Page 28

Morgunblaðið - 13.09.2001, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Árásin á Bandaríkin GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sætir vaxandi þrýstingi um að hefna árásar hryðjuverkamanna á Banda- ríkin á þriðjudag. Forsetinn hefur heitið því að þeir, sem ábyrgð bera, verði fundnir og þeim refsað. Banda- rískir embættismenn og sérfræðing- ar vara við því að hefndaraðgerðir feli í sér áhættu og erfiðar ákvarðanir. Herafli Bandaríkjamanna um heim allan var settur á hæsta stig viðbún- aðar á þriðjudag þegar ljóst varð að óþekktir hryðjuverkamenn hefðu rænt þremur farþegaþotum í innan- landsflugi í Bandaríkjunum og flogið þeim á World Trade Center í New York og Pentagon, skrifstofuhús bandaríska varnarmálaráðuneytisins í Washington. Æðstu embættismenn bandarískra varnarmála hafa myndað laustengda „varnarlínu“ meðfram austur- og vesturströnd Bandaríkjanna. Her- skip eru þar í viðbragðsstöðu og strax eftir árásina á þriðjudag tók flugher- inn að halda uppi eftirliti enda var hugsanlegt talið að fleiri flugvélum væri stefnt að skotmörkum í Banda- ríkjunum. Eftir því sem næst varð komist í gær höfðu tíu herskip, þar af tvö flugmóðurskip, verið send af stað til að treysta varnir New York og Washington-svæðisins. Í herstöðvum í Bandaríkjunum og um heim allan var liðsafli landgöngusveita flotans og landhersins settur á hæsta viðbúnað- arstig. Þá hermdu fréttir að herskip hefðu tekið sér stöðu undan vesturströnd- inni og beindist athyglin að Space Needle-turninum, rúmlega 200 metra hárri byggingu í Seattle. Ennfremur var talið nauðsynlegt að fresta þess að efla varnir á þessum slóðum til að koma í veg fyrir hugsanlega árás hryðjuverkamanna á Bank of Amer- ica-bygginguna í sömu borg, en hún er 76 hæðir og hæsta bygging vestan Mississippi-fljótsins. Í borginni er einnig að finna höfuðstöðvar Micro- soft og Boeing. Atlantshafsflotinn brást við með því að flytja til tvö flugmóðurskip, fimm beitiskip og tvo tundurspilla til að efla loftvarnir umhverfis New York og Washington. Þá bárust af því fréttir að flotadeildir í nágrenni Mið- Austurlanda, sem heyra undir 5. flot- ann, væru í viðbragðsstöðu. AWACS- ratsjárþotur voru á lofti. „Ótrúlega fagmannleg aðgerð“ Í Military Joint Intelligent Center, tölvuvæddri miðstöð herstjórnar í Pentagon-byggingunni, sem einnig varð fyrir árás á þriðjudag, voru sam- an komnir helstu yfirmenn herafla Bandaríkjanna og fylgdust furðu lostnir með rás atburða. Einn þeirra lét þess getið að árás hryðjuverka- mannanna hefði verið „ótrúlega fag- mannleg“ og vísaði til þess að þeim hefði tekist að ræna fjórum farþega- þotum samtímis og fljúga þeim á byggingu varnarmálaráðuneytisins, sjálfa taugamiðstöð öflugasta herafla í heimi hér og á World Trade Center, byggingu sem væri tákn hins vest- ræna, frjálsa hagkerfis. Embættis- menn sögðu að ró væri ríkjandi í stjórnstöðinni og kváðu menn þar líta svo á að óþekktur óvinur hefði lýst yf- ir stríði á hendur Bandaríkjamönn- um. „Engum blöðum er um það að fletta að árásin á Bandaríki Norður- Ameríku var heiftarleg og þaulskipu- lögð árás,“ sagði Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á þriðjudagskvöld. Bandarískir embættismenn og stjórnmálaleiðtogar höfðu síðdegis í gær enn ekki lýst ábyrgð á tilræðinu á hendur tiltekinni ríkisstjórn né hópi eða hópum hryðjuverkamanna. Strax á þriðjudag vöknuðu hins vegar grun- semdir um að saudi-arabíski hryðju- verkamaðurinn Osama Bin Laden, sem lýst hefur yfir „heilögu stríði“ gegn Bandaríkjunum og öllu því sem bandarískt er, hefði staðið fyrir ódæð- inu. Orð Bush forseta í ávarpi til þjóð- arinnar aðfaranótt miðvikudags að ís- lenskum tíma þóttu staðfesta þennan grun en þá sagði hann að enginn greinarmunur yrði gerður á hryðju- verkamönnunum og þeim sem skytu yfir þá skjólshúsi. Voru þessi ummæli lögð út á þann veg að þau vísuðu til Taleban-stjórnarinnar í Afganistan en þar í landi heldur Osama Bin Lad- en til og rekur þar m.a. þjálfunarbúðir fyrir hryðjuverkamenn. Óhefðbundin herför Fari svo að Bandaríkjastjórn geri Bin Laden ábyrgan fyrir árásinni Hefndin fæli í sér áhættu Herafli Bandaríkjamanna um heim allan er á hæsta viðbúnaðarstigi og mjög er þrýst á George Bush forseta að huga að hefndaraðgerðum. Ásgeir Sverrisson segir frá viðbrögðum heraflans og veltir fyrir sér þeim kostum sem Bandaríkja- forseti kann að standa frammi fyrir ákveði hann að hefja refsivöndinn á loft. ARI Fleischer, talsmaður Hvíta hússins í Washington, sagði í gær að nokkurn tíma tæki að meta áhrif hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin á efnahagslíf þar í landi og sér- fræðingar í efnahagsmálum eru al- mennt hikandi við að kveða upp úr um þau. Þau sjónarmið hafa heyrst að árásirnar hafi aukið líkur á kreppu í efnahagslífi heimsins og seðla- bankar hafa lagst á eitt til að minnka líkur á lausafjárskorti. Seðlabanki Japans jók pen- ingamagn í umferð um 17 milljarða Bandaríkjadala og í Evrópu lánaði seðlabankinn 63 milljarða Banda- ríkjadala aukalega, sem er ámóta mikið og bankinn lánar annars á tveggja vikna tímabili. Wim Duisenberg, seðla- bankastjóri Evrópu, sagði Evr- ópuþinginu að hann teldi að með þessu væri bankinn að mæta skammtímaþörf fyrir lausafé, sem skapast hefði vegna skelfingar í kjölfar árásanna. Hann sagðist álíta að þetta hefðu verið hæfileg viðbrögð, en sagðist ekki telja ástæðu til vaxtalækkunar og hvatti til að menn héldu ró sinni, Evrópa væri ekki á leið inn í kreppu. Seðlabanki Bandaríkjanna gaf þegar á þriðjudag út yfirlýsingu um að hann myndi mæta lausa- fjárþörf banka ef nauðsynlegt yrði til að liðka fyrir viðskiptum. Í gær hafði bankinn tímabundið lánað bankakerfinu 38,25 milljarða Bandaríkjadala. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tók undir með þeim sem reyndu að lægja öldurnar og sagðist ekki reikna með að hryðjuverkaárásin hefði mikil áhrif á efnahagslíf og fjármálamarkaði heimsins. Hætta á samdrætti í flugi Áhrif árásanna á flugfélög voru greinileg þegar á þriðjudag en þá lækkuðu flugfélög mikið. Félögin verða fyrir töluverðum beinum kostnaði vegna þeirra tafa sem orð- ið hafa og munu verða áfram. Áætl- að hefur verið að tekjutap vegna þessa fyrir atvinnugreinina í heild kunni að vera um 50 milljarðar króna á dag. Til lengri tíma litið er óvissan mikil. Ef almenningur telur hættu samfara flugi hafa aukist og forð- ast þess vegna flugvélar geta af- leiðingarnar orðið alvarlegar. Sem dæmi má taka að í framhaldi af Persaflóastríðinu minnkaði flug- umferð í heiminum um 17% milli ára. Verði auk þess almennur sam- dráttur geta afleiðingarnar orðið enn alvarlegri. Á það hefur einnig verið bent að flugleiðin yfir Norður-Atlantshafið sé yfirleitt sú flugleið sem evrópsk flugfélög hagnast mest á, þannig komi til dæmis allur hagnaður Brit- ish Airways frá flugi á þessari leið. Tryggingafélaganna bíða háar tjónagreiðslur Tryggingageirinn hefur einnig farið illa út úr hryðjuverkaárás- unum og evrópsk tryggingafélög hafa lækkað mikið. Tryggingaskil- málar í Bandaríkjunum gera ráð fyrir að tryggingar veiti vernd gegn hryðjuverkum þannig að kostnaður félaganna verður mikill. Nákvæmar tölur liggja ekki enn fyrir, en talið er að tjónið hlaupi á hundruðum milljarða króna. Endurtryggjendur bera stóran hluta tjónsins og stærsti end- urtryggjandi heims, Munich Re, segir það verða umtalsvert en muni þó ekki ógna fjárhagslegum stöð- ugleika félagsins. Óvissa rík- ir um áhrif- in á efna- hagslíf heimsins APLögreglumenn á verði við rústir World Trade Center í fyrrinótt. Í bakgrunni má sjá leifar af ytra byrði annars turnsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.