Morgunblaðið - 13.09.2001, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 29
Árásin á Bandaríkin
UMFANG hryðjuverkanna komu
sérfræðingum í opna skjöldu en
Jessica Stern, sem er fyrrum sér-
fræðingur hjá bandaríska þjóðarör-
yggisráðinu í málefnum hryðju-
verkahópa og kennir nú námskeið
við Harvard-háskóla um sama efni,
segir, að þrátt fyrir það sé mikilvægt
að viðbrögð Bandaríkjanna einkenn-
ist af yfirvegun og menn falli ekki í
þá gryfju að gera einhvern þjóð-
félagshóp að allsherjar blóraböggli.
Jessica Stern sagði að þrátt fyrir
að sérfræðingar hefðu á síðast-
liðnum árum velt fyrir sér ýmsum
möguleikum á hryðjuverkaárásum
kæmi umfang þessarar árásar á
Bandaríkin sér í opna skjöldu. Spurð
hver gæti talið sig hafa hag af því að
magna upp mál með þessum hætti
sagði hún að það hlyti að vera hópur
eða ríki er óttaðist ekki gagnárás af
hálfu Bandaríkjanna, teldi sig geta
villt á sér heimildir eða létist stjórn-
ast af einhvers konar brenglaðri,
trúarlegri sannfæringu.
Skipulag árásarinnar hefur vakið
upp getgátur um að hugsanlega sé
þetta ekki einungis verk hryðju-
verkahóps heldur hljóti ríki að vera
á bak við undirbúning og skipulag
árásarinnar. Stern sagðist ekki geta
tjáð sig um það en allavega væri
ljóst að um gífurlega háþróuð sam-
tök eða hóp samtaka væri að ræða.
Hvað viðbrögð Bandaríkjanna
varðar sagði hún að nú reyndi á leið-
togahæfileika Bandaríkjaforseta.
Bandaríkin hefðu áður gripið til
hefndaraðgerða í hasti og það hefði
haft þveröfug áhrif. Slíkar aðgerðir,
s.s. sprengjuárásin á Súdan á sínum
tíma, hefðu ekki fælt hryðjuverka-
menn frá árásum á Bandaríkin,
heldur þvert á móti verið vatn á
myllu hryðjuverkahópa.
Óttast
fljótfærn-
islegar
hefndarað-
gerðir
Boston. Morgunblaðið.
Bandarískur sérfræð-
ingur í hryðjuverkum
koma ýmsir kostir til greina. Herafli
Bandaríkjanna gæti gert árásir á
búðir hans í Afganistan og á höfuð-
stöðvar hryðjuverkahópa sem honum
tengjast í Mið-Austurlöndum og víða
um heim. Hins vegar telja sérfræð-
ingar að erfitt geti verið að ráðast að
Bin Laden með nægilegum krafti til
að stöðva hryðjuverkastarfsemi hans.
Er vísað til þess að Bill Clinton forseti
hafi reynt það með heldur litlum ár-
angri. Hér væri ekki um að ræða
hefðbundna herför með fullum slag-
krafti vopna gegn þekktum óvini líkt
og við ætti í „venjulegum“ hernaði
gegn landher eða t.a.m. skriðdreka-
sveitum. Búðir Bin Ladens eru
dreifðar víða og sveitir hans og stuðn-
ingshópa hans hreyfanlegar mjög.
Erfitt gæti því reynst að skilgreina
skotmörkin.
Þá benda sérfróðir á að andstæð-
ingurinn sé ekki hefðbundinn liðsafli
skilgreinds óvinaríkis. Hryðjuverka-
mennirnir hafi verið tilbúnir til að
fórna lífi sínu fyrir málstaðinn og
hefndarárásir gætu verið til þess eins
fallnar að blása þeim aukinn baráttu-
anda í brjóst. Kenneth M. Pollack,
fyrrum starfsmaður þjóðaröryggis-
ráðsins, sagði í samtali við dagblaðið
Los Angeles Times að hættan væri sú
að viðkomandi leiðtogi, t.a.m. Bin
Laden, skyti upp kollinum sprelllif-
andi fáeinum dögum eftir árásina.
„Þá gætu Bandaríkin litið út eins og
pappírstígrisdýr,“ bætti hann við.
Annar möguleiki sem til greina
kæmi væri að ráðast beint gegn hern-
aðarskotmörkum í Afganistan. Taleb-
ana-stjórnin þar hefur ekki amast við
veru Bin Ladens í landinu þó svo tals-
menn hennar hafi lýst yfir því að
hvorki ráðamenn í Afganistan né Bin
Laden hafi komið nærri ódæðinu í
Bandaríkjunum.
Á þriðjudagskvöld kváðu við
sprengingar í Kabúl, höfuðborg Afg-
anistan, og urðu strax vangaveltur
um að Bandaríkjamenn hefðu ákveðið
að bregðast við og hefna árásarinnar.
Donald Rumsfeld varnarmálaráð-
herra lýsti hins vegar yfir því
skömmu síðar að Bandaríkjamenn
tengdust á engan hátt rás atburða í
Kabúl. Í landinu geisar borgarastríð
og er talið líklegt að stjórnarandstað-
an hafi verið að verki í Kabúl en óstað-
festar fréttir herma að flugumenn
hafi myrt Massoud, leiðtoga stjórn-
arandstöðunnar, um liðna helgi.
Sprengingarnar í Kabúl kunna að
tengjast því tilræði.
Bandaríkjamenn komust að því ár-
ið 1998 hversu erfitt getur verið að
ráðast gegn hryðjuverkamönnum
með hefðbundnum vopnakerfum. Þá
skutu Bandaríkin fjölda Tomahawk-
stýriflauga á búðir Bin Ladens í Afg-
anistan í hefndarskyni við árásir
hryðjuverkamanna á hans vegum á
tvö sendiráð Bandaríkjanna í Austur-
Afríku. Flugskeytaárásirnar ollu
miklu tjóni á frumstæðum bygging-
um en Bin Laden og helstu undirsát-
ar hans sluppu ósárir. Þessar árásir
þóttu sýna að slíkur vopnabúnaður
hentaði lítt í baráttunni við hryðju-
verkamenn.
Flugvélar fremur
en stýriflaugar
Herfræðingar sögðu í gær að árás
á búðir Bin Ladens, reyndist hann
ábyrgur fyrir árásinni á Bandaríkin,
yrði líklega gerð með flugvélum. Slík
árás yrði í senn nákvæmari og slag-
kraftur hennar meiri. Klasa-sprengj-
ur og annar háþróaður vopnabúnaður
sem herþotur Bandaríkjamanna bera
myndi reynast betur en stýriflaugar
sem hannaðar eru til að tortíma land-
föstum, stórum skotmörkum.
Ýmsir erfiðleikar yrðu því á hinn
bóginn samfara að blása til slíkra að-
gerða. Flugvélar Bandaríkjamanna
þyrftu t.a.m. leyfi Pakistana til að fara
um lofthelgi þeirra á leið til skot-
marka í Afganistan. Stjórnvöld í Pak-
istan halda uppi samskiptum við Tal-
ebana og eru ein fárra sem viður-
kenna stjórn þeirra. Þá kæmi og til
greina að beita landher gegn hópum
hryðjuverkamanna í Mið-Austurlönd-
um en slík árás þyrfti að vera í sam-
vinnu við stjórnvöld í viðkomandi ríkj-
um. Þá væri og þess að geta að verið
gæti að ríki á borð við Rússland og
Kína mótmæltu slíkum árásum.
Hugsanleg mótmæli Kínverja og
Rússa voru þó talin vega heldur létt í
samanburði við þann þrýsting sem
Bush forseti sætir nú á heimavelli.
Henry Kissinger, fyrrum utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna og einn virt-
asti sérfræðingur vestra á þessu sviði,
líkti árásinni á þriðjudag við fyrir-
varalausa árás Japana á Pearl Har-
bour í desember 1941. „Við verðum að
bregðast við með sama hætti og þá og
fólkið sem gerði þetta verður að hljóta
sömu örlög og þeir sem réðust á Pearl
Harbour.“ Lawrence E. Eagleburg-
er, fyrrum utanríkisráðherra, hvatti
og til hefnda: „Það er aðeins ein leið
fær í viðskiptum við slíka menn og
það er að drepa nokkra þeirra. Þeir
þurfa að verða fyrir árás.“ Aðrir sér-
fræðingar hvöttu ráðamenn til að
hrapa ekki að ályktunum og viðbrögð-
um og minntu á að enn lægju ekki fyr-
ir sönnunargögn um þátt Osama Bin
Ladens í árásinni á þriðjudag.
Ef eitthvað er unnt að fullyrða um
hugsanleg viðbrögð Bandaríkja-
manna er freistandi að álykta sem svo
að þau muni ekki felast í einni tiltek-
inni hernaðaraðgerð. Líklegt má telja
að þau felist í röð aðgerða gegn
hryðjuverkahópum í Mið-Austur-
löndum og ef til vill gegn Talebana-
stjórninni. Er þá vísast ráðlegt að
ganga út frá því að Bandaríkjamenn
muni ekki hugsa til daga eða vikna í
því samhengi heldur ára. Yfirlýsingar
þingleiðtoga undanfarið benda til
þess að Bush forseti geti reitt sig á
víðtækan pólitískan stuðning.
og erfiðar ákvarðanir
UNDANFARIN ár hafa menn haft
auknar áhyggjur af hættunni á
stórfelldum hryðjuverkum gegn
Bandaríkjunum. Háttsettir embætt-
ismenn þar í landi og sérfræðingar
í forvörnum gegn hryðjuverkum
hafa varað við tölvuvæddri árás
sem yrði sambærileg við árás Jap-
ana á herstöð Bandaríkjanna í
Pearl Harbour í síðari heimsstyrj-
öld. Ennfremur hafa menn varað
við „kjarnorku“-Pearl Harbour og
jafnvel „Pearl Harbour með efna-
vopnum“.
En engum datt í hug „Pearl
Harbour með dúkahnífum.“ Það
hvarflaði ekki að nokkrum manni
að atburðir yrðu með þeim hætti
sem raunverulega gerðist: Flug-
vélum var rænt og þeim flogið á
helstu miðstöðvar bandarísks við-
skipta- og herveldis.
Líkt og Bill Clinton gerði hefur
George W. Bush lagt gríðarlega
áherslu á og veitt miklu í viðbrögð
við „óhefðbundinni ógn“ við þjóð-
aröryggi Bandaríkjanna í kjölfar
endaloka kalda stríðsins. Þannig
hefur sú kynslóð Bandaríkjamanna
sem ólst upp í skugga kalda stríðs-
ins fengið skólun í mörgum nýjum
hættum sem steðja að, allt frá efna-
vopnaárás í jarðlestarkerfum til
flugskeytaárásar frá „útlagaríki“.
Fjárveitingar til viðbragðaáætl-
ana gegn hryðjuverkum tvöföld-
uðust úr tæpum sex milljörðum
dala 1995 í um 12 milljarða á þessu
ári, og farið hafði verið fram á yfir
13 milljarða á næsta ári. Þá hafði
ríkisstjórn Bush lagt til hliðar 8,3
milljarða til forvinnu við varnir
gegn eldflaugaárás. Eftir sprengju-
tilræðið í World Trade Center 1983
og tilræðisins í Oklahóma 1995 hef-
ur milljörðum dollara verið veitt til
að verja mikilvægar stöðvar fyrir
hryðjuverkum.
Þrátt fyrir allar þessar forvarnir
komu þeir, sem skipulögðu árásina
á Bandaríkin á þriðjudaginn, auga
á mikinn veikleika í vörnum
landsins, veikleika sem enginn,
hvorki í ríkisstjórn Clintons né í
stjórn Bush, hafði áttað sig á.
„Þetta gengur lengra en allt sem
við höfum áður staðið frammi fyrir,
bæði hvað varðar þróun og um-
fang,“ sagði Samuel Berger, þjóð-
aröryggisráðgjafi í stjórn Clintons.
„Þetta bendir svo sannarlega til
þess að áherslan ætti að vera á
þessa gerð ógnar.“
„Bæði stjórnvöld og aðrir myndu
fremur telja að þetta væri eitthvað
sem gerðist í skáldsögu eftir Tom
Clancy en í raunveruleikanum,“
sagði James Lindsay, sem átti sæti í
þjóðaröryggisráðsnefnd Clintons,
sem fyrir um tíu árum hóf að gefa
út viðvaranir um stórfelld hryðju-
verk í Bandaríkjunum.
Nokkrir þingmenn og öryggis-
málasérfræðingar sögðu að var-
úðarráðstafanir stjórnvalda hafi
miðast við ranga gerð af árás.
Stjórnmálamenn og fjölmiðlar hafi
einblínt á gerðeyðingavopnasöfnun
hryðjuverkamanna, t.d. ófull-
komnar kjarnorkusprengjur eða
efnavopn. Þessi áhersla bættist of-
an á áhersluna á venjuleg hryðju-
verk, bílsprengjur og flugrán.
„Við einbeittum okkur að neðri
endanum – bílsprengjum – og efri
endanum, eins og efnavopnum, en
við vanræktum miðjuna,“ sagði
Bruce Hoffman, sérfræðingur í
hryðjuverkaforvörnum hjá Rand-
hugveitunni í Washington.
Sumir sérfræðingar sögðu að
árásirnar á þriðjudag væru til
marks um algerlega misheppnaða
leyniþjónustu, þrátt fyrir umfangs-
miklar tilraunir Bandarísku leyni-
þjónustunnar (CIA) og annarra
bandarískra stofnana til að fylgjast
með leiðtogum hryðjuverka-
samtaka, t.d. Osama Bin Laden.
Aðrir komu til varnar forvarn-
arstarfi stjórnvalda gegn hryðju-
verkum, og sögðu að bandarísk
leyniþjónusta hafi komið í veg fyrir
fjölda tilræða, þ. á m. áætlun stuðn-
ingsmanna Bin Ladens um að
sprengja í loft upp skotmörk í
Bandaríkjunum og Mið-Aust-
urlöndum á nýjársdag í fyrra.
Lágtæknihryðjuverk
komu sérfræðingum
í opna skjöldu
The Washington Post.
Reuters
Rannsóknarlögreglumenn leita vísbendinga í þeim hluta Pentagon-
byggingarinnar sem hrundi er flugvélin brotlenti við húsið.