Morgunblaðið - 13.09.2001, Síða 37

Morgunblaðið - 13.09.2001, Síða 37
UMRÆÐAN HVAÐA tíma gefum við okkur um ævinnar daga til að staldra við, setjast niður og hug- leiða tilgang lífsins? Kannski finnst ein- hverju okkar ekki ástæða til þess. Hvernig er sam- bandinu við Guð hátt- að? Vitum við annars nokkuð hvað hann hef- ur að segja og hvað hann vill okkur? Ert þú í sambandi við hann? Veistu að það er hægt að vera í stöðugu sam- bandi við hann án þess hreinlega að ofgera sér. Hvar er Biblían þín eða Nýja testamentið sem þú ættir að hafa fengið að gjöf frá Gídeonfélaginu þegar þú varst 10 ára? Ég veit að margt mun koma þér á óvart í þeirri gömlu en mögnuðu og blessunar- ríku bók. Hvar sem hjarta þitt er Hefur þú heyrt um strákinn sem var svo lítill og lék sér. Lítið sak- laust áhyggjulaust krútt. Hann var eiginlega alltof ungur til þess að hugsa nokkuð um Guð, vilja hans og tilgang lífsins. Hann varð unglingur og varð að prófa allt mögulegt og ómögulegt. Honum þótti bara hreinlega ekki nógu töff að pæla í Guði. Hann kynntist stúlku sem var auðvitað hið besta mál. Hann eyddi öllum stundum með henni. Hann varð ástfanginn alveg upp fyrir haus. Hann var eiginlega allt of ást- fanginn til að reikna með og rækta sambandið við Guð. Það var eitt- hvað svo óaðgengilegt og flókið að honum fannst. Það varð að bíða betri tíma. Hann gifti sig. Brúðkaupsdagur- inn var ólýsanlegur. En sú fegurð. Þvílíkar minningar. Sannarlega dýrmætar minningar. Hann stofn- aði heimili og vann myrkranna á milli. Börnin hlóðust niður. Allur tíminn fór í kapphlaupið um verald- legar eignir. Hann varð jú að sjá sér og sínum farborða. Hann var hrein- lega allt of upptekinn til þess að gefa sér tíma til þess að hugsa um Guð. Enda til hvers? Allt í svo góð- um gír. Svo varð hann gamall og þreytt- ur, vinnulúinn eftir erfiði daganna. Hann var eiginlega orðinn allt of þreyttur og gamall til að fara að leiða hugann að Guði. Það kom að því að líkaminn fór að gefa sig. Eitt bilaði af öðru. Hann hafði lifað langa ævi og haft mörg tæki- færi til þess að leiða hugann að lífinu, feg- urð þess og gildi. Hann hafði farið á hraðferð í gegnum ævina án þess í rauninni að leiða hug- ann að því sem mestu máli skiptir þegar allt kemur til alls. Nú tók hann að missa mátt. Honum fór að líða illa. Honum leið eiginlega allt of illa til að geta talað við Guð og lesið orð hans og hugleitt það. Hann hafði alltaf ætlað að rækta sambandið við Guð en ekkert hafði orðið af því. Forgangurinn hafði verið annar. „Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.“ Það kom að því og kom svo sem ekki á óvart. Hann dó eins og lög virðast gera ráð fyrir. Dauðinn varð ekki umflúinn. Hann varð of seinn til þess að leiða hugann að Guði, kærleika hans, vilja og gjöfum, líf- inu sjálfu. Hann dó í andlegri fátækt og án þess raunverulega að vita um hvað lífið snýst. Að lifa lífinu Hvernig ætlum við að lifa lífinu ef við vitum ekki um hvað það snýst? Hvernig ætlum við að lifa lífinu ef við þekkjum ekki lífið? Og hvernig ætlum við að fara að því að lifa lífinu ef við eigum það ekki? Ég trúi því að Guð hafi gefið okk- ur lífið af kærleika sínum. Og ég trúi því að lífið taki aldrei enda. Því að Jesús er lífið! Jesús, sonur Guðs. Sá sem sagði: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja.“ Og svo spurði hann: „Trúir þú þessu?“ Þá sagði hann einnig: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Og „sá sem varð- veitir mitt orð, skal aldrei að eilífu deyja.“ Hleypum því hinu raunverulega lífi að okkur í allri þess fegurð og mætti og lifum því jafnt í gleði sem sorg. Það dýpkar alla okkar veru og tilgang. Lifi lífið! Á hraðferð í gegnum ævina Sigurbjörn Þorkelsson Trú Hvernig ætlum við að lifa lífinu, spyr Sigurbjörn Þorkelsson, ef við vitum ekki um hvað það snýst? Höfundur er rithöfundur, fram- kvæmdastjóri Laugarneskirkju og forseti Landssambands Gídeon- félaga á Íslandi. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 37 flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is BROSTE - HAUST 2001 Hjá Erlu, Egilsstöðum Huggulegt heima.... er heitast í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.