Morgunblaðið - 13.09.2001, Qupperneq 49
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 49
sumar kl. 10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Net-
fang: alberte@islandia.is
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sand-
gerði, s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl.
13–17 og eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í
sumar frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykja-
vík. Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl.
15–18. S. 551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá
11. júní til 13. ágúst.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnar-
fjarðar opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKA-
SAFN: Opið mán.–fim. kl. 8.15–22, föst. kl. 8.15-19,
lau. 9–17, sun. kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð sunnud. og
handritadeild lokuð laugard. og sunnud. S: 525 5600,
bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga
nema mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu
og Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu
er alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað
mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn:
Opið alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös.
kl. 13–16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dag-
skrá á internetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu –
105 ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562
6191 Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:l-
istasafn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Op-
ið fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net-
fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu-
daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
maí–september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl.
13–16 alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er
opið alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í
s. 553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn
alla mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán-
._föst. kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safn-
ið er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími
575-7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga
frá 1. júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskóg-
um 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl.
11–17 til 1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leið-
sögn eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og
handverksmunum. Kaffi, kandís og kleinur. S.
471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Frá 1. sept. - 31. maí er opið á sun. kl. 13–
17. Hægt er að panta leiðsögn á öðrum tímum í síma
567 9009 eða á netfang: rafheimar@or.is
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar
frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s.
422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið
frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S.
462 3550 og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS,
Einholti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á
öðrum tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030,
bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is –
heimasíða: hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn-
arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og
sun. til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmynd-
um. Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–
16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði,
er opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september.
Sími sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv.
samkl. Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–
18. S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suð-
urgötu. Handritasýning opin kl. 14-16 þri.-föst. til 15.
maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla
daga kl. 13–18 nema mánudaga er lokað. Opnað fyr-
ir hópa utan þess tíma eftir samkomulagi. Mar-
íukaffi býður upp á gómsætar veitingar á opn-
unartíma. Til sölu steinar, minjagripir og íslenskt
handverk. Sími 431 5566. Vefsíða: www.islandia.is/
steinariki
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mán-
uði frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir
geta pantað leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl.
í símum 861-0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýn-
ingar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla
daga frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl.
10–19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14–18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1.
júní – 1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í
sumar frá kl. 11–17.
unnið verkið í sameiningu,“ sagði
Ásdís. „Þetta eru tákn fyrir nátt-
úruöflin, sól og himin, græna
jörðina og fjöllin.“ Neðst til
vinstri eru svo öldur og fljúgandi
fuglar en hægra megin kindur við
steinhleðslu. „Ég hef alltaf haft
gaman af veggjakroti og ég byrj-
aði eiginlega eftir fertugt að fást
ÞAÐ eru ekki margir sem hafa
málverk í fjárhúsunum hjá sér en
á bændurnir á Felli í Broddanes-
hreppi, þau Hafdís Gunnarsdóttir
og Magnús Sigurðsson, fengu
listakonuna Ásdísi Jónsdóttur í
Steinadal til að mála listaverk á
fjárhúsgaflinn.
„Það má segja að við höfum
við ýmsar listir því þá eflist mað-
ur og fer að þora að gera eitthvað
sérstakt. Fólkið mitt var mikið
hagleiksfólk og móðir mín er enn
að gera ýmislegt í höndum“.
Fell er með snyrtilegustu býlum
í Strandasýslu og liggur jörðin
innaf Kollafirði á leið yfir Steina-
dalsheiði.
Ljósmynd/Arnheiður Gunnlaugsdóttir
Fyrir framan listaverkið á fjárhúsunum á Felli í Broddaneshreppi er listakonan Ásdís Jónsdóttir, lengst t.v.,
ásamt bændunum á Felli, Magnúsi Sigurðssyni og Hafdísi Gunnarsdóttur. Hundurinn Lubbi stendur hjá.
Listaverk á fjárhúsum
Ströndum. Morgunblaðið.
Á VEGUM Félagsþjónustu
Reykjavíkurborgar er starfrækt
Fjölskyldumiðstöð á Sólvallagötu
10 þar sem íbúum borgarinnar er
boðið upp á fjölskyldumeðferð,
fjölskylduvinnu, námskeið og
hópastarf ýmiskonar. Til þessa
hefur miðstöðin tekið við fólki
samkvæmt ávísun sérfræðinga en
framvegis verður hún öllum opin.
Miðstöðin er starfrækt á daginn
frá 9–16 og til kl. 18 á miðvikudög-
um. Þar starfa fjölskyldufræðing-
ur, félagsráðgjafi, leikskólakennari
og sálfræðimenntaður starfsmað-
ur.
„Margar fjölskyldur vilja gjarn-
an ráða betur við líf sitt enda oft
mikið álag á fólki og ýmsir erf-
iðleikar að takast á við. Lausna-
miðuð fjölskyldumeðferð hefur
reynst mörgum vel til að taka ný
og jákvæð skref í átt að bættri líð-
an og til aukins árangurs. Áhersla
er lögð á að einstaklingar og fjöl-
skyldur setji sér raunhæf markmið
að vinna að og þeim hjálpað við að
koma auga á styrkleika sinn og
getu,“ segir í fréttatilkynningu.
Þjónusta þessi er opin öllum borg-
arbúum og er þeim að kostnaðar-
lausu.
Nánari upplýsingar er hægt að
fá hjá Fjölskyldumistöðinni, Sól-
vallagötu 10, og hjá borgarhluta-
skrifstofum Félagsþjónustunnar.
Fjölskyldu-
miðstöð opn-
uð öllum
GRAFARVOGSDAGURINN
verður haldinn hátíðlegur í fjórða
skipti laugardaginn 15. septem-
ber. Þessi dagur er að skapa sér
fastan sess í Grafarvoginum og
þátttakan eykst með ári hverju,
segir í fréttatilkynningu.
Dagskráin er fjölbreytt. Má þar
nefna opið hús í Borgarholtsskóla,
helgistund á byggingarreit kirkj-
unnar við Spöngina, sögugöngu,
grill, opið hús hjá myndlistar-
mönnum á Korpúlfsstöðum, flug-
eldasýningu, handverksmarkað,
myndlistarsýningu, leiktæki fyrir
börnin, Grafarvogsglímu, Þjóð-
lagasveit Tónlistarskólans í Graf-
arvogi, upplestur skálda, harmon-
ikkusveit, ýmsar uppákomur í
Spönginni og marg margt fleira.
Um kvöldið skemmta KK og Ellen
Kristjánsdóttir á Gufunessvæðinu
ásamt skátunum og Borgóband-
inu.
Grafarvogsdagurinn
haldinn hátíðlegur
HÓPÞJÁLFUN Gigtarfélags Ís-
lands er byrjuð aftur eftir sum-
arfrí og er öllum velkomið að vera
með. Reynslan sýnir að hreyfing
og rétt þjálfun er gigtarfólki, og í
raun öllum, afar mikilvæg, segir í
fréttatilkynningu.
Í boði eru mismunandi hópar.
Má þar nefna létta leikfimi, vefj-
agigtarhópa, bakleikfimi fyrir
karlmenn og vatnsleikfimi. Auk
þess er boðið upp á jóganámskeið,
sem aðlagað er einstaklingum með
gigt. Markmiðið er að bjóða upp á
leikfimi fyrir alla, bæði fólk með
gigt og aðra fullorðna sem vilja
góða leikfimi án hamagangs. Þjálf-
unin fer fram á mismunandi tímum
dags.
Þjálfunin fer fram í húsi GÍ að
Ármúla 5 og vatnsþjálfunin í
Sjálfsbjargarlaug í Hátúni 12.
Skráning og nánari upplýsingar
eru á skrifstofu GÍ.
Hópþjálfun
Gigtar-
félagsins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Samtökum
tónlistarskólastjóra:
„Aðalfundur STS haldinn í Nes-
kaupstað 25. ágúst 2001 lýsir yfir
þungum áhyggjum af stöðunni í
kjaradeilu tónlistarskólakennara og
Launanefndar sveitarfélaga. Vel
menntaðir kennarar eru undirstaða
öflugs skólastarfs tónlistarskólanna í
landinu. Tónlistarskólakennarar
munu ekki sætta sig við lakari launa-
kjör en aðrir kennarar með sambæri-
lega menntun. Seinagangur í samn-
ingamálum stefnir nú skólastarfi í
hættu og komi til verkfallsaðgerða
getur það haft alvarlegar afleiðingar
fyrir starfsemi þessara stofnana.
Samtökin skora á Launanefnd
sveitarfélaga að koma af fullri alvöru
að samningaborðinu nú þegar.“
Áhyggjur
vegna deilu
um laun
tónlistar-
kennara
HINN 1. september sl. tók Fé-
lagsþjónustan í Reykjavík við
rekstri á stuðningsþjónustu við geð-
fatlaða sem undanfarin ár hefur ver-
ið rekin af félaginu Geðhjálp. Um er
að ræða stuðning til sjálfstæðrar bú-
setu fyrir 35 geðfatlaða Reykvík-
inga.
Stuðningsþjónusta af þessu tagi er
samstarfsverkefni ríkis og borgar og
gerði Félagsþjónustan þjónustu-
samning við Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra í Reykjavík/félags-
málaráðuneytið.
Gildir samningurinn út árið 2002
og gert ráð fyrir framlengingu ef
fyrir liggur vilji beggja aðila. Ingi-
björg Hrönn Ingimarsdóttir geð-
hjúkrunarfræðingur hefur verið ráð-
in forstöðumaður.
Stuðnings-
þjónusta fyrir
geðfatlaða
„SUNDDEILD Breiðabliks í
Kópavogi býður upp á svokallað
Garpasund, sundþjálfun fyrir full-
orðið fólk. Garpasund er í Kópa-
vogslaug við Borgarholtsbraut (á
móts við Kópavogskirkju) og er
fyrir alla, fasta sundlaugargesti,
sundafreksfólk sem aðra. Fólki er
kennt að bæta sundstíl sinn í
gamla góða bringusundinu og læra
nýjar sundgreinar líkt og skrið-
sund, baksund eða flugsund.
Garpasund er liður í að kynna
sund sem sérlega heilbrigða hreyf-
ingu og almenningsíþrótt. Þátt-
tökugjaldi er mjög í hóf stillt.
Æfingar eru á mánudags- og
miðvikudagskvöldum kl. 19:30–
20:30. Þjálfari er Kristín Vala
Matthíasdóttir,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu.
Sundþjálfun
fyrir full-
orðna
Á STJÓRNARFUNDI Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni,
sem haldinn var í Ásgarði í Glæsibæ
þriðjudaginn 11. september, var eft-
irfarandi tillaga samþykkt:
„Stjórn Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni skorar á Pál
Pétursson félagsmálaráðherra að
framlengja frest til að skila inn at-
hugasemdum við nýtt brunabótamat
og fasteignamat sem taka á gildi 15.
sept. næstkomandi, vegna þess að
hann er alltof skammur, m.a. fyrir
eldri borgara.
Jafnframt er þess krafist að
tryggingavernd verði viðunandi eftir
breytinguna.“
Vilja lengri
kærufrest
VINSTRI hreyfingin – grænt fram-
boð í Reykjavík heldur fund í Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6,
fimmtudaginn 13. september. Fund-
urinn hefst kl. 20.
Umræðuefni fundarins eru borgar-
mál almennt og staðan í viðræðum um
sameiginlegt framboð Vinstri hreyf-
ingarinnar – græns framboðs, Fram-
sóknar og Samfylkingar. Félagsmenn
eru hvattir til að koma á fundinn og
taka þátt í áframhaldandi stefnumót-
un, segir í fréttatilkynningu.
VG ræðir
um borgar-
málefni
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
VEFURINN ros.is hefur tekið upp
samstarf við blómavefinn www.flor-
ist.com um að afgreiða viðskiptavini
ros.is utan Íslands.
Í upphafi þjónaði ros.is eingöngu
höfuðborgarsvæðinu ásamt Akur-
eyri en fyrir einu ári útvíkkaði ros.is
þjónustuna til allra þéttbýliskjarna
landsins. Með samningi ros.is og
florist.com nú er skrefið tekið til fulls
og getur fyrirtækið nú þjónað Ís-
lendingum sem þurfa að senda blóm
hvert sem er í heiminum, segir í
fréttatilkynningu.
Blómavefir
í samstarf
♦ ♦ ♦
TVÖ ný námskeið eru eru að hefjast
í Biblíuskólanum við Holtaveg 20.
Alfanámskeið I verður á þriðjudög-
um 25. september til 27. nóvember
kl. 19–22, kennari Kjartan Jónsson
kristniboði. Fjallað verður um lyk-
ilatriði kristinnar trúar og reynt að
svara spurningum þátttakenda.
Skúli Svavarsson kristniboði
kennir á Alfanámskeiði II sem verð-
ur á sama tíma. Með námskeiðinu er
leitast við að hjálpa nútímafólki til
að lifa ríkara trúarlífi. Lögð verður
áhersla á að auka þekkingu á Bibl-
íunni og lestri hennar. Innritun lýk-
ur 21. september á bæði námskeið-
in.
Ný námskeið
Biblíuskólans