Morgunblaðið - 13.09.2001, Qupperneq 50
50 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í MORGUNBLAÐINU laugardag-
inn 8. september birtist enn einn vitn-
isburðurinn um andlegt getuleysi
framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs til
þess að átta sig á staðreyndum í þjóð-
félaginu. Nokkrar lífsglaðar og elsku-
legar knattspyrnukonur taka upp á
því í græskuleysi að auglýsa afar mik-
ilvægan landsleik sinn við Ítalíu og
setjast upp í sófa og eru íklæddar
sundfötum. Þær eru hlæjandi af gleði
og kátínu, augsýnilega af tilhlökkun
að takast á við verðuga andstæðinga.
Textinn undir myndinni er líka sak-
leysislegur, „Stelpuslagur“. Á þessu
hneykslast framkvæmdastjóri Jafn-
réttisráðs og finnur því allt til foráttu.
Textinn á að vísa til einhvers kynferð-
islegs og klæðaburðurinn á stúlkun-
um fer líka fyrir brjóstið á vesalings
framkvæmdastjóranum. Sem betur
fer er allur þorri almennings og
knattspyrnuunnenda henni ekki sam-
mála. Það sem við sáum var lífsgleði
og hjartnæm kátína, sem skapast
þegar fólk tekur sig saman um að
gera eitthvað jákvætt og skemmti-
legt, til þess að efla vináttu og sam-
kennd. Slagur hefur aldrei haft neina
kynferðislega skírskotun, sem hug-
tak. Þetta er skýrt sem góðlátlegt
tusk og fjarri því að vera ofbeldis-
kennt, en þá er það kallað átök. Bless-
uðum framkvæmdastjóranum láðist
alveg, í hinni persónulegu kynferðis-
legu leitun sinni, að taka eftir því að
stúlkurnar sátu í leðursófa, sem enn
frekar ætti að leiða hugann að kynlífs-
leikjum þeirra, sem sækjast eftir til-
breytingu á þeim sviðum.
Sá sorglegi skortur á að átta sig á
einföldustu staðreyndum í þjóðarsál-
inni hefur sem betur fer orsakað al-
gjört hrun á skoðunum jafnréttisbar-
áttunnar, eins og hún var
framkvæmd af fyrirrennurum Jafn-
réttisráðs, Rauðsokkunum og síðar
Kvennalistanum. Sem faðir þriggja
kvenna og afi fjögurra hef ég kapp-
kostað að sýna þeim fram á aulahátt-
inn í skoðunum Rauðsokkanna á sín-
um tíma og líka heimskuþvættingi
Kvennalistans og nú hefur hver
fréttaflutningurinn af öðrum um
skoðanir Jafnréttisráðs eða fram-
kvæmdastjórans bætt enn við vitleys-
una. Þeim hefur verið sýnt fram á þau
gildi, sem formæður þeirra höfðu að
leiðarljósi í sinni erfiðu baráttu til
jafnréttis. Það eru þau gildi, sem
hjálpuðu þeim þegar allt virtist þrotið
og karlmaðurinn jafnvel búinn að gef-
ast upp, það er fyrst og fremst virðing
hver fyrir öðrum og tillitssemi. Það er
ekki karlmanninum að kenna hvernig
staðan er í dag, hvað snertir jafnrétti.
Það er stjórnvöldum á hverjum tíma
að kenna og hafa þau fengið til þess
dyggan stuðning frá Rauðsokkunum,
Kvennalistanum og núna frá fram-
kvæmdastjóra Jafnréttisráðs.
Þessar einstaklega hugmyndaríku
knattspyrnukonur, með sína lífsgleði
og fallegu bros og kátínu, sýndu
skemmtileg tilþrif við að vekja athygli
á sér og sínu áhugamáli og svo sann-
arlega uppskáru þær eftir því. Þær
uppskáru virðingu og aðdáun allra
þeirra sem flykktust á Laugardals-
völlinn til þess að sjá þær þakka fyrir
stuðninginn með því að vinna Ítalíu.
ÆGIR GEIRDAL,
Hamraborg 14, Kópavogi.
Sorglegt
jafnréttisviðhorf
Frá Ægi Geirdal:
HAFT var eftir skattrannsóknar-
stjóra í fjölmiðlum fyrir nokkrum
dögum að nú væri að ryðja sér til
rúms ný tegund
skattsvika sem
væru þess eðlis að
rétt væri að halda
því leyndu hvern-
ig væru fram-
kvæmd svo fólk
færi ekki að apa
þau eftir. Bæði
ríkisskattstjóri og
skattrannsóknar-
stjóri virðast
mjög uppteknir við að elta smá-
krimmana en láta hins vegar stór-
þjófana eiga sig. Stórþjófarnir eru
líka oft á tíðum mjög valdamiklir og
því kannski rétt að abbast ekki of
mikið upp á þá vilji maður halda í fínu
„vinnuna“ sína. Það er hins vegar al-
veg á hreinu að meðan hástéttin í
landinu, þ.m.t. æðstu embættismenn
þjóðarinnar, stunda skattsvik í gegn-
um ferðakostnaðarreikninga mun
virðing almennings fyrir skattalög-
unum ekki aukast enda ber hástéttin
enga virðingu fyrir þeim lögum sem
stendur. Það væri verðugt verkefni
fyrir embætti skattrannsóknarstjóra
að rannsaka til hlítar ferðakostnað
æðstu embættismanna þjóðarinnar
og starfsmanna stjórnvalda. Það er
að kanna til hlítar hve mikla dagpen-
inga þeir fá greidda og hve mikið er
greitt fyrir þá í gistingu og uppihaldi
á sama tíma og bera síðan saman
hvort þær greiðslur hafi verið taldar
rétt fram á skattframtölum viðkom-
andi aðila í samræmi við túlkun
Hæstaréttar. Þá væri rétt að sann-
reyna hvort þessir aðilar geti lagt
fram kvittanir fyrir þeim kostnaði
sem þeir færa til frádráttar á móti
fengnum dagpeningum – þ.e. þær
upphæðir sem eru undanþegnar
tekjuskatti. Hæstiréttur hefur stað-
fest með dómi sínum 124/2000 að í
raun sé aðeins heimilt að færa til frá-
dráttar þá upphæð sem viðkomandi
hefur kvittanir fyrir. En þess er ekki
að vænta að skattyfirvöld hafi tíma til
að huga að stóru upphæðunum ef þau
eru alltaf upptekin við að telja klink-
ið. Og meðan svo er bjargar sér hver
sem betur getur.
ÖRN GUNNLAUGSSON,
Galtarlind 4, Kópavogi.
Smákrimmar
og stórþjófar
Frá Erni Gunnlaugssyni:
Örn
Gunnlaugsson