Morgunblaðið - 12.12.2001, Qupperneq 16
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Aðventusamvera eldri borgara
í Glerárkirkju
verður fimmtudaginn 13. desember kl. 15.00.
Gestur samverunnar verður séra Pétur Þórarinsson
prófastur. Félagar úr kór Glerárkirkju syngja undir stjórn
Hjartar Steinbergssonar.
Að venju verður helgistund í upphafi samverunnar.
Veitingar.
Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
Hlíðarskóli
Laus er ein staða uppeldisfulltrúa
frá 1. janúar 2002
Hlíðarskóli er lítill sérskóli fyrir börn á grunnskólaaldri í
aðlögunarvanda, sem ekki hafa náð að fóta sig í
hverfisskóla. Breytingavinna er hafin, sem miðar að því
að efla skólann og tengja hann umhverfi sínu á virkan
hátt. Framsækið uppbyggingarstarf er því framundan.
Uppeldisfulltrúi starfar í nánu samstarfi við kennara og
fjölskylduráðgjafa skólans að meðferð og kennslu
nemenda.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun og/eða
reynslu í uppeldismálum.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri,
Bryndís Valgarðsdóttir,
í símum 462 4068 og 848 4709.
Upplýsingar um kaup og kjör eru veittar á
starfsmannadeild Akureyrarbæjar í síma 460 1000.
Umsóknum skal skilað í upplýsingaanddyri í Geislagötu
9 á eyðublöðum sem þar fást. Einnig er hægt að sækja
um á heimasíðu Akureyrarbæjar - www.akureyri.is.
Umsóknarfrestur er til 17. desember 2001.
AKUREYRARBÆR
Skóladeild, Glerárgötu 26, 600 Akureyri.
!
"#
$%&
'
())()
)*
#
TÖLUVERT hvassviðri var
á Akureyri í gærmorgun en
þó ekkert í líkingu við
ósköpin sem dundu yfir bæ-
inn sl. föstudagskvöld. Þá
brotnuðu og/eða rifnuðu
áratuga gömul tré upp með
rótum, enda fór vindhraðinn
yfir 70 hnúta en í gærmorg-
un fór vindhraðinn mest í 68
hnúta. Að sögn lögreglu var
eitthvað um að smáhlutir
fykju í gær en ekki var um
tjón að ræða. Aftur á móti
bar á hræðslu meðal fólks í
mestu látunum.
Slökkvilið Akureyrar fékk
hins vegar tvívegis beiðni
um aðstoð í gærmorgun.
Skjólborð hafði losnað á
svölum á 7. hæð á blokk við
Drekagil. Óttast var að
skjólborðið færi alveg af og
mundi þannig valda tjóni
eða slysi. Slökkviliðsmenn
fóru uppá svalirnar og festu
skjólborðið.
Þá hafði garðhús farið af
stað í einni vindhviðunni og
óttast var að það gæti fokið
enn frekar og valdið tjóni.
Slökkviliðsmenn komu hús-
inu á sinn stað og festu það
niður.
Hvass-
viðri á
Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Helga Ingólfsdóttir, íbúi í Grænumýri, við um 12 metra hátt og 40–50 ára gam-
alt lerkitré í bakgarði sínum sem brotnaði í hvassviðrinu sl. föstudagskvöld.
HJÁLPRÆÐISHERINN
mun leitast við að aðstoða þá
sem þess þurfa nú fyrir jólin
líkt og undanfarin ár.
Næsta föstudag, 14. desem-
ber gefst fólki kostur á að velja
sér fatnað af flóamarkaði endur-
gjaldslaust, en þar er að finna
fjölbreytt úrval af alls kyns
fatnaði á börn og fullorðna.
Markaðurinn verður opinn frá
kl. 10 til 18. Þá verður Hjálp-
ræðisherinn með innsöfnun fyr-
ir þessi jól og úthlutar til þeirra
sem með þurfa. Byrjað var að
taka á móti umsóknum nú í
byrjun vikunnar og stendur til
jóla, en tekið verður við um-
sóknunum á milli kl. 19 og 20.
Úthlutað verður 20. desember
næstkomandi frá kl. 17 til 20.
Hjálpræðisherinn minnir af
þessu tilefni á jólapotta sína
sem eru í göngugötunni í Hafn-
arstræti og á Glerártorgi, þar
sem fólk getur komið með
framlög sín, en Hjálpræðisher-
inn mun eins og endranær
reiða sig á örlæti almennings til
að geta orðið öðrum að liði.
Hjálpræðisherinn
Veita að-
stoð fyrir
jólin
PAPPÍRSTÆTARA sem Dalvík-
urbyggð hefur fest kaup á hefur
verið komið fyrir í Klemmunni á
Dalvík og þangað getur fólk komið
með dagblöð og pappa sem síðan er
tætt niður í kurl, sem notað er undir
húsdýr.
Halldór Guðmundsson, félags-
málastjóri í Dalvíkurbyggð, sagði
að um tilraunaverkefni væri að
ræða og ætluðu menn að sjá hvernig
gengi fram á næsta vor. Smári Tóm-
asson í Vík í Mýrdal smíðaði tæt-
arann en þeir Dalvíkingar rákust á
samskonar vél á Hvammstanga og
leist vel á hugmyndina, að sögn
Ingvars Arnar Sigurbjörnssonar
sem hefur umsjón með verkefninu.
Gámum hefur verið komið fyrir á
völdum stöðum í byggðarlaginu og
kvaðst Halldór vona að menn tækju
við sér og skiluðu þangað dag-
blöðum og bylgjupappa. „Þetta er
allt að koma, fólk þarf að venjast
þessum möguleika og söfnunin hef-
ur verið að aukast eftir því sem
fleiri frétta af þessu,“ sagði Halldór.
Hann sagði að einnig yrði reynt að
fá verslanir til liðs við verkefnið og
vonandi tækist að ná saman nægu
hráefni fyrir tætarann.
Opið er í Klemmunni frá kl. 13 til
15 alla virka daga og miðar þetta
tilraunaverkefni að því að fatlaðir
eða fólk sem ekki hefur fulla starfs-
getu fái þarna atvinnu. „Hug-
myndin er síðan að víkka út starf-
semina og reyna að afla okkur fleiri
verkefna og er ég bjartsýnn á að
það muni ganga,“ sagði Halldór.
Þegar pappírinn og pappinn hef-
ur farið gegnum tætarann verður til
eins konar kurl og er nú á nokkrum
bæjum gerð tilraun með að nota það
undir húsdýr; hross, kýr, svín og
hænsni, og þá standa vonir einnig til
að hægt verði í einhverjum tilvikum
að nota kurlið undir gæludýr. Ingv-
ar sagði sag, sem fram til þessa hef-
ur verið notað, vera dýrt núorðið og
menn væru að leita ódýrari lausna.
Þeir félagar sögðu að nú í fyrstu
væri verið að skoða hvernig kurlið
reyndist en síðan þyrfti að búa til
eftirspurn eftir vörunni. Fram-
haldið væri svo undir því komið að
tækist að selja vöruna. „Við gefum
okkur 6 mánuði í þetta verkefni
þannig að í vor verður ljóst hvernig
þetta tekst en við eru bjartsýn,“
sagði Halldór. Auk Ingvars vinna
þeir Magnús Páll Gunnlaugsson og
Þorsteinn Kristinn Stefánsson við
að vinna pappírskurlið og líkar vel.
Dalvíkurbyggð kaupir pappírstætara
Búa til kurl undir húsdýr
Þannig líta dagblöð og pappakassar út eftir að hafa farið í tætarann. Magnús Páll Gunnlaugsson matar pappírstætarann.
Morgunblaðið/KristjánMorgunblaðið/Kristján
JÚLÍUS Björnsson, forstöðumaður
Námsmatsstofnunar, mun kynna
frumniðurstöður PISA-rannsóknar-
innar á árangri 15 ára nemenda í
lestri, stærðfræði og náttúrufræði á
morgun, fimmtudaginn 13. desem-
ber.
Kynningin fer fram í stofu 14 í Há-
skólanum á Akureyri, Þingvalla-
stræti 23, og hefst kl. 16.15.
PISA er ný alþjóðleg rannsókn á
vegum OECD og var Ísland meðal
þátttökulanda. Allir íslenskir nem-
endur í 10. bekk árið 2000 tóku þátt í
rannsókninni. Fyrir utan að meta ár-
angur nemenda fjallar PISA einnig
um viðhorf þeirra, námsvenjur og
vinnuaðferðir og hvernig þessir
þættir hafa áhrif á námsárangur.
Kynning á
PISA-rannsókn
FJÓRIR norðlenskir listamenn
kynna nýútkomin verk sín fimmtu-
daginn 13. desember kl. 20 í Minja-
safninu á Akureyri. Ingibjörg Hjart-
ardóttir og Helgi Þórsson lesa úr
skáldsögunum Upp til Sigurhæða og
Rottusögur. Þórarinn Hjartarson
syngur ljóð eftir Pál Ólafsson af
geislaplötunni Söngur riddarans og
Hjörleifur Hjartarson les úr þýðing-
um sínum á barnabókunum Skað-
ræðisskepnur eftir Roald Dahl og
Flissararnir eftir Roddy Doyle.
Á boðstólum verður jólaöl og pip-
arkökur.
Í Minjasafninu stendur nú yfir
sýning á gömlu jólaskrauti og jóla-
kortum í eigu safnsins auk fastasýn-
inganna Akureyri – bærinn við Poll-
inn og Eyjafjörður frá öndverðu.
Kvöldvaka á Minjasafni