Morgunblaðið - 12.12.2001, Side 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 19
...í skíðaferðina
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I •
4
8
0
1
/ sia
.is
BRÆÐURNIR Ágúst Guðmunds-
son, stjórnarformaður Bakkavar-
ar, og Lýður Guðmundsson, for-
stjóri Bakkavarar, hlutu í gær
Viðskiptaverðlaun DV, Stöðvar 2
og Viðskiptablaðsins fyrir árið
2001. Jafnframt var Arngrímur
Hermannsson, stjórnarformaður
Íslenskra ævintýraferða, valinn
frumkvöðull ársins 2001.
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra afhenti þremenn-
ingunum verðlaunin og sagði þá
vel að þeim komna. Fyrir hönd
bræðranna í Bakkavör þakkaði
Ágúst Guðmundsson starfs-
mönnum Bakkavarar og velunn-
urum stuðninginn í gegnum tíð-
ina. Þá sagði Arngrímur
Hermannsson frumkvöðlaverð-
launin hvatningu fyrir aðra
brautryðjendur. Vitnaði hann til
hvatningarorða góðvinar síns og
sagði: „Aldrei hefur komið svo
vont veður að ekki hafi komið
gott veður á eftir því.“
Dómnefnd sátu Jónas Haralds-
son, aðstoðarritstjóri DV, Karl
Garðarsson, fréttastjóri Stöðvar
2, og Örn Valdimarsson, ritstjóri
Viðskiptablaðsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Ágúst Guðmundsson, stjórnarformaður Bakkavarar, Arngrímur Hermannsson, stjórnarformaður Íslenskra æv-
intýraferða, og Lýður Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar.
Viðskiptaverðlaunin 2001
til bræðranna í Bakkavör
Arngrímur Her-
mannsson frum-
kvöðull ársins
Velkomin
í Hólagarð
NIÐURSKURÐARTILLÖGUR á
aflaheimildum Evrópusambandsins
hafa mætt mikilli andstöðu meðal
sjómanna víða í álfunni og hafa þeir
hvatt sjávarútvegsráðherra viðkom-
andi ríkja til að samþykkja ekki til-
lögurnar. Framkvæmdastjórn ESB
hefur lagt til að heildarafli aðild-
arríkja sambandsins verði samtals
dreginn saman um 14% á næsta ári.
Niðurskurðurinn bitnar þó mis-
mikið á einstökum aðildarlöndum.
Ef tillögur framkvæmdastjórnar
ESB verða að veruleika verður
kvóti írskra útgerða skorinn niður
um allt að 70% á næsta ári. Í næstu
viku á írskur fiskiðnaður ennfremur
von á að tilkynnt verði um miklar
takmarkanir á því hvernig og hve-
nær má fiska, samkvæmt nýrri frið-
unaráætlun fyrir hrygningarþorsk,
-ýsu og -lýsing. Enn frekari hömlur
vofa yfir írskum fiskiðnaði vegna
nýrra takmarkana á styrkjum ESB
til endurnýjunar fiskiskipaflota, sem
gæti kollvarpað áætlunum Íra um
nýsmíðar fiskiskipa.
Tólf fiskistofnar að hruni komnir
Framkvæmdastjórn ESB segir að
þrátt fyrir niðurskurð í fiskiskipa-
flota aðildarlandanna sé veiðigeta
fiskiskipa sambandsins í heild enn
helmingi meiri en þörf krefur fyrir
þann fisk sem veiða má. Fram-
kvæmdastjórnin vill að aðildarríkin
samþykki kvótatillögurnar á árleg-
um aðalfundi hennar um áramótin.
Þar eru m.a. tillögur um 20–30%
niðurskurð á hvítfisk- og rækju-
kvóta Íra í Atlantshafi, ofan á kvóta-
niðurskurð sl. árs. Kvóti á uppsjáv-
arfiski, öðrum en makríl, mun þá
minnka um 30–70%. Tillögurnar um
kvótaniðurskurð í Írskahafi eru enn
harkalegri, t.d. 52% niðurskurður á
ýsukvóta.
Þótt áður hafi yfirleitt ekki verið
farið eftir þessum tillögum fram-
kvæmdastjórnarinnar leggur dr.
Franz Fischler, yfirmaður sjávarút-
vegsmála hjá ESB, áherslu á að nú
þurfi að taka fast á þessum málum
vegna lélegs ástands fiskistofna.
Hann hefur sagt að nú séu að
minnsta kosti 12 fiskistofnar að
hruni komnir, allt vegna of mikillar
afkastagetu fiskiskipaflotans og að
ekki hafi verið fylgt eftir ráðlegg-
ingum vísindamanna.
Sjávarútvegsráðherra Íra, Frank
Fahey, telur að tillögur ESB um
niðurskurð kvóta gangi of langt.
Hann segist viðurkenna að ástand
fiskistofna sé alvarlegt, en að aðrar
leiðir verði að fara, s.s. tæknilegar
verndunaraðgerðir og lokun hrygn-
ingarsvæða. Hann segir að svo rót-
tækur kvótaniðurskurður sem
bandalagið leggur til hafi mikil áhrif
á lítil aðildarlönd eins og Írland, og
að engin grein iðnaðar geti búið við
60 prósenta skerðingu hráefnisöfl-
unar á einu ári. Ennfremur segir
Fahey að tillögur framkvæmda-
stjórnar ESB gangi lengra en ráð-
gjöf fiskifræðinga.
Verndun verði innan
skynsamlegra marka
Þá hafa franskir sjómenn heitið
því að halda uppi þrýstingi á sjáv-
arútvegsráðherra sinn, Jean Glav-
any, fram að umræðufundi ESB um
kvótaúthlutun sem fer fram 17. og
18. desember. Sjómennirnir telja
kvótatillögur ESB fráleitar og segja
að þeir séu hlynntir verndun fiski-
stofna en slík verndun verði að vera
innan skynsamlegra marka.
Kvótatillögur
ESB mæta and-
stöðu sjómanna