Morgunblaðið - 12.12.2001, Page 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 21
OD
DI
HF
H7
97
9
73.900 kr. stgr.
Kæli- og frystiskápur
KG 31V420
Nýr glæsilegur skápur.
190 l kælir, 90 l frystir.
H x b x d = 175 x 60 x 64 sm.
79.900 kr. stgr.
Eldavél
HL 54023
Keramíkhelluborð, fjórar hellur,
fjölvirkur ofn, létthreinsun.
64.900 kr. stgr.
Bakstursofn
HB 28024
Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi.
Sannkallaður gæðaofn frá Siemens.
14.700 kr. stgr.
Nýr þráðlaus sími
Gigaset 4010 Classic
Númerabirtir. DECT/GAP-staðall.
Einstök talgæði. Siemens færir þér draumasímann.
49.900 kr. stgr.
Helluborð
ET 72654EU
Keramíkhelluborð með áföstum rofum.
Flott helluborð á fínu verði.
59.900 kr. stgr.
Þvottavél
WXB 1060BY
Frábær ný rafeindastýrð þvottavél
á kostakjörum. 1000 sn./mín.
9.900 kr. stgr.
Ryksuga
VS 51B22
Kraftmikil 1400 W ryksuga,
létt og lipur, stiglaus sogkraftsstilling.
64.900 kr. stgr.
Uppþvottavél
SE 34234
Ný uppþvottavél.
Einstaklega hljóðlát
og sparneytin.
Fjögur þvottakerfi,
tvö hitastig.
Umboðsmenn um land allt.
Í samantekt Landsbankans –
Landsbréfa segir að á heildina lit-
ið séu 9 mánaða uppgjör fyrir-
tækja á VÞÍ betri en búast mátti
við. Þrátt fyrir að rekstrarum-
hverfi og efnahagsástand hérlend-
is sem og erlendis hafi farið versn-
andi upp á síðkastið komi það
mjög misjafnlega niður á afkomu
mismunandi atvinnugreina. Sumar
atvinnugreinar séu í mikilli sókn á
meðan aðrar berjist í bökkum.
„Sé fyrst litið á jákvæðu hlið-
arnar skila útflutningsgreinarnar
almennt góðri afkomu. Sjávarút-
vegurinn skilar mjög góðri fram-
legð, sama má segja um olíufélögin
og tryggingafélögin skila ágætri
afkomu. Lyfja-, iðnaðar- og fram-
leiðslufyrirtækin eru á nokkuð
jafnri siglingu en almennt var ekki
um mikla breytingu á rekstri fé-
laga í þessum greinum á nýliðnum
ársfjórðungi að ræða.
Afkoma bankanna var viðunandi
að teknu tilliti til erfiðra rekstr-
arskilyrða. Uppgjör félaga í versl-
un og þjónustu voru nokkuð undir
væntingum.
Hagnaður fyrir afskriftir
jókst um 16,5 milljarða
Samgöngu- og upplýsingatækni-
geirinn eiga einna mest í vandræð-
um. Afkoma samgöngufyrirtækj-
anna á 3. ársfjórðungi var þó betri
en reiknað var með en staða félag-
anna og rekstrarskilyrði eru al-
mennt séð heldur bágborin. Nokk-
ur fyrirtæki í samgöngu- og upp-
lýsingatæknigeiranum eru í veru-
lega slæmri stöðu og sér ekki fyrir
endann á því, a.m.k. ekki til
skemmri tíma litið,“ segir í sam-
antektinni.
Heildarrekstrartekjur fyrir-
tækja á VÞÍ á fyrstu níu mánuðum
þessa árs námu 331,9 milljörðum
króna. Til samanburðar var velta
sömu fyrirtækja á fyrstu sex mán-
uðum ársins 209,5 milljarðar og
368,2 milljarðar allt árið í fyrra.
Þar sem einungis fáein félög
skiluðu samanburðartölum fyrir
fyrstu níu mánuði síðasta árs er
ekki hægt að sýna samanburð með
þeim hætti sem gefur bestan sam-
anburð.
Samanlagður hagnaður fyrir-
tækjanna fyrir afskriftir nam
36,15 milljörðum króna og jókst
um 16,5 milljarða á þriðja árs-
fjórðungi. Á öllu síðasta ári nam
heildarhagnaður félaganna fyrir
afskriftir 31,4 milljörðum króna.
„Aukning EBITDA-framlegðar
frá síðasta ári skýrist meðal ann-
ars af aukinni framlegð sjávar-
útvegsfyrirtækja í kjölfar veik-
ingar krónunnar og uppkaupa
erlendra fyrirtækja. Þannig jókst
framlegð í krónutölu á þriðja
ársfjórðungi mest hjá félögum í
sjávarútvegi, samgöngum, olíu-
dreifingu og hjá fjarskiptafyrir-
tækjum.
Vegið framlegðarhlutfall allra
fyrirtækjanna nam 10,9% og
hækkaði lítillega miðað við hálfs-
ársuppgjör.
Framlegðarhlutfall batnaði í öll-
um atvinnugreinum nema upplýs-
ingatækni og lyfjafyrirtækjum á
þriðja ársfjórðungi.
Hlutfallslega varð mestur fram-
legðarbati hjá samgöngufyrirtækj-
um, olíufyrirtækjum, iðnaðarfyrir-
tækjum og fjarskiptafyrirtækj-
um,“ segir í samantekt Lands-
bankans – Landsbréfa.
Samanlagður hagnaður fyrirtækja á
VÞÍ 3,7 milljarðar fyrstu 9 mánuðina
Mikil um-
skipti á mjög
stuttum tíma
SAMANLAGÐUR hagnaður allra fyrirtækja á Verðbréfa-
þingi Íslands á fyrstu 9 mánuðum ársins nam 3.691 milljón
króna en tap upp á 5.378 milljónir króna varð á fyrstu 6 mán-
uðum ársins, að því er kemur fram í samantekt Landsbankans
– Landsbréfa. Þetta eru mikil umskipti á stuttum tíma og
munar þar mestu um sjávarútveg, samgöngur, olíudreifingu
og fjármálafyrirtæki. Landsbankinn – Landsbréf segja að
hafa beri í huga að margt stuðlar að betri afkomu, svo sem
framlegðarbati útflutningsfyrirtækja, lítið gengistap á þriðja
ársfjórðungi og tekjufærsla skattalegra skuldbindinga.