Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 28
LISTIR
28 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er sagt að í henni veröld sé
rými fyrir alla list og eigi að vera, því
bönn geri ekki annað en að hefta þró-
un hugmyndanna, og á það ekki að-
eins við í listum heldur öllum vitræn-
um umsvifum
mannsins og hug-
myndasköpun hans.
Það má jafnvel ekki
banna listaskapendum
að einangra sig, en
slíkt fylgir oft þeim
listamönnum sem til-
einka sér fastmótuð og
ósveigjanleg hug-
myndakerfi, er oftlega
byggjast meira á að
hafna frekar en að
boða nokkuð nýtt.
Þetta er að nokkru
leyti staða nútímatón-
listar í dag, sem heldur
í matsgildi sem eiga
sér nærri 100 ára sögu.
Ýmislegt sem bar
fyrir eyru á aðventutónleikum Cap-
ut-hópsins sl. sunnudag í Listasafni
Reykjavíkur minnti á vinnubrögð
Antons Weberns, hvað varðar tón-
punktanotkun, en einnig á tematísk
vinnubrögð í fyrstu atónal verkum
Schönbergs. Það sem síðar hefur
bæst við er „minimal“, þrástefjun og
„kaotísk“ kyrrstaða, sem komst í
tísku um miðja síðustu öld. Þannig
má segja að í tveimur fyrstu verk-
unum hafi fátt nýtt komið fram hvað
varðar tónskipan og samskipan blæ-
brigða, þ.e.a.s. allt var samkvæmt
bókinni. Þrátt fyrir þetta var ýmis-
legt fallegt í fyrsta verki tónleikanna,
eftir Svein L. Björnsson, sem hann
nefnir Af steinum og er samið fyrir
fimmtán flytjendur. Það var sérstak-
lega í upphafi verksins að eitthvað
heyrðist sem tengja mætti við steina-
ríkið. Hins vegar voru einraddaðar
píanókadensurnar ákaflega lítilfjör-
legar, ekki aðeins mínimal, og
„túttí“-kaflarnir sumir frekar við-
burðasnauðir, kyrrstæð kaós.
Verk Úlfars Inga var töluvert við-
burðamikið, sérstaklega fyrsti kafl-
inn, en það heitir á frummálinu
Worlds of a Third Sign og á líklega
við ímyndað tákngildi einhvers kon-
ar rúnaleturs, samkvæmt nafngift
annars kaflans, The Third Rune.
Þrátt fyrir að fátt nýtt sé í þessu
rúnaverki er það býsna vel unnið
samkvæmt hefðbundnum gildum
síðustu aldar og voru bæði verkin, Af
steinum og Heimur þriðja táknsins,
vel flutt. Í seinna verkinu, sem er
samið fyrir gítar, klarinettu og selló,
skar klarinettan sig nokkuð úr í stak-
tónaleiknum og að því leyti til var á
köflum ekki gott hljómrænt jafnvægi
milli hljóðfæranna.
DA-fantasíuna samdi Leifur Þór-
arinsson 1979 og þar
gat að heyra margt af
því sem menn fengust
við fyrir 22 árum. Þetta
fallega verk var að
mörgu leyti vel flutt af
Guðrúnu Óskarsdóttur.
Lokaverk tónleikanna
voru útsetningar á
gömlum sálmalögum
eftir Þórð Magnússon.
Það er hægt að velja
margar leiðir í útfærslu
gamalla sálmalaga og
ein er sú að klæða þau í
tónbúning nútímalegr-
ar tónskipunar, sem
fjærst því sem annars
ætti við ef nota ætti
þessi sálmalög við hefð-
bundna messugjörð. Það má segja að
Þórður hafi farið bil beggja, því hann
lætur lögin halda gerð sinni, sem
Ólafur Kjartan Sigurðarson söng af
öryggi. Margt var fallega gert í rit-
hætti fyrir tíu hljóðfæraleikara, þó
að á stundum væri sálmalagið nokk-
uð eitt á báti og útsetningin spunnin
utan við og kringum sálmalagið.
Besta útsetningin var yfir síðasta
sálmalagið, Í nótt hefur mig Guðs
náðar hönd, reyndar mjög vel unnin
og hrynrænt skemmtileg og lyfti
sálmalaginu upp úr silalegu tónferl-
inu. Margt í þessum útsetningum
gefur tilefni til að vænta einhvers úr
smiðju Þórðar ef hann gefur sér
frjálsar hendur í mótun eigin tón-
máls.
Hvað sem annars má segja um ein-
stök verk á þessum tónleikum er
ljóst að ungu tónskáldin eru alvar-
lega þenkjandi og kunna margt fyrir
sér en tíminn verður að ljá þeim eyra
til að rata um völundarhús listarinn-
ar, þar sem efinn er einn til leiðsagn-
ar en sannfæringin leiðir til þess eins
að menn villast af leið.
Efinn er einn
til leiðsagnar
TÓNLIST
Listasafn Reykjavíkur
Caput-hópurinn undir stjórn Úlfars Inga
Haraldssonar frumflutti þrjú kammerverk
eftir Svein Lúðvík Björnsson, Úlfar Inga
Haraldsson, Þórð Magnússon og DA-
fantasíuna eftir Leif Þórarinsson. Sunnu-
daginn 9. desember.
AÐVENTUTÓNLEIKAR
Úlfar Ingi
Haraldsson
Jón Ásgeirsson
SCHOLA cantorum er fimm ára
kammerkór sem starfræktur er
við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Á
þessum skamma tíma hefur Schola
cantorum sýnt að hann er einn
okkar allra bestu kóra og vann
strax í frumbernsku til verðlauna
á erlendri grund fyrir söng sinn.
Tónleika kórsins hefur jafnan ver-
ið beðið með eftirvæntingu; þeir
hafa þótt menningarviðburðir sem
ekki væri stætt á að missa af.
Á nýjum geisladiski syngur kór-
inn sjö íslensk kórverk; allt frá
stuttum sálmum til lengri verka.
Nafn geisladisksins er dregið af
fyrsta verkinu, sálminum Heyr
himna smiður sem Þorkell Sigur-
björnsson samdi við vers Kolbeins
Tumasonar. Strax í þessu fyrsta
verki er tónninn gefinn fyrir það
sem á eftir kemur. Það er ekki erf-
itt að lýsa söng Schola cantorum;
himnesk fegurð eru orðin sem ein-
kenna söng þessa góða kórs. Þetta
er kór í fullkomnu jafnvægi; Hörð-
ur Áskelsson heldur öllum þráðum
músíkalskrar túlkunar í hendi sér
og leikur á þetta hljóðfæri sitt eins
og Orfeus á lýruna forðum. Radd-
gæði kórsins eru mikil; ekki bara
að kórfélagar séu skólaðir og flink-
ir í sínu fagi, heldur falla raddir og
raddhópar fullkomlega saman í
yndislegum samhljómi.
Viðamesta verkið á diskinum er
Sam’s Mass eftir John Speight,
samið í minningu ungs vinar tón-
skáldsins við latneskan messu-
texta. Það var ein mesta músík-
upplifun síðustu ára að heyra
Schola cantorum, Mörtu Halldórs-
dóttur og Daða Kolbeinsson frum-
flytja þetta verk í Hallgrímskirkju
fyrir nokkrum árum. Það var upp-
lifun engri lík að finna hvernig
þetta ægifagra verk snart heilan
sal tónleikagesta inn að hjarta, og
þögnin sem skapaðist í lok flutn-
ingsins var ein sú sterkasta sem
undirrituð hefur upplifað, það var
eins og salurinn vildi ekki eyði-
leggja stemmninguna með klappi.
Auðvitað brast það þó á um síðir
og var mikið og innilegt. Það er
því ekki lítill fengur í að geta nú
gengið að því vísu í hillunni hjá sér
til afnota hvenær sem hugurinn
þarf. Söngur Mörtu og kórsins er
stórkostlegur, og einsöngvarar í
röðum kórfélaga leggja sitt af
mörkum í fallegum einsöngshend-
ingum. Leikur Daða er hugljúfur –
og alltaf hógvær, aldrei þó litlaus.
Sam’s Mass er eitt magnaðasta
kórverk sem samið hefur verið af
íslensku tónskáldi og verðskuldar
ekkert minna en þennan afbragðs
flutning Schola cantorum. Þótt
mikill fengur sé að því að eignast
Sam’s Mass í svona góðri hljóð-
ritun er vissulega ekki minna
gleðiefni að hin verkin sex skuli
hafa verið skrásett með þessu móti
af Schola cantorum. Heyr himna
smiður og Maríukvæði hafa þó
margoft verið hljóðrituð en fullt
tilefni er til að eiga þau í flutningi
Schola cantorum. Drottinn er
minn hirðir eftir Jónas Tómasson
er gott verk sem skilar sér afar vel
í söng kórsins. Tignið Drottin eftir
Jón Hlöðver Áskelsson er sterkt
verk og einsöngur kórfélaganna
Jónínu Guðrúnar Kristinsdóttur
og Gísla Magnasonar sérstaklega
góður. Verk Ólivers Kentish, Turn
Thee Unto Me, er samið sérstak-
lega fyrir Schola cantorum og læt-
ur lítið yfir sér, grípur mann ekki í
fyrstu en vinnur á við endurtekna
hlustun. Clarcitas eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson er mikilfenglegt, og
Douglas Brotchie laðar fram sterk
hughrif í glæsilegum orgelleik með
kórnum. Diskurinn er rammaður
inn af sígildum perlum Þorkels og
Atla Heimis Sveinssonar, sem kór-
inn syngur af miklu listfengi eins
og annað. Þessi diskur er góður
gripur og mikilsvert framlag til ís-
lenskrar kórtónlistar og kirkjutón-
listar. Eini gallinn sem má finna
að er sá að í tæknilegri úrvinnslu
er of stutt bil á milli verka. Það
skapast ekki nægilegt andrúm fyr-
ir hlustandann til að kveðja eitt
verk og tæma hugann fyrir það
næsta. Hvað sem því líður hafa
Hörður Áskelsson og Schola cant-
orum skilað góðu dagsverki með
þessum fallega og vandaða geisla-
diski.
„Það er ekki erfitt að lýsa söng Schola cantorum; himnesk fegurð eru
orðin sem einkenna söng þessa góða kórs.“
Himnesk
fegurð
TÓNLIST
Geislaplata
Schola cantorum syngur íslensk kórverk:
Heyr himna smiður eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson, Drottinn er minn hirðir eftir
Jónas Tómasson, Tignið Drottin eftir Jón
Hlöðver Áskelsson, Turn Thee Unto Me
eftir Óliver Kentish, Clarcitas eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, Sam’s Mass eftir John
Speight og Maríukvæði eftir Atla Heimi
Sveinsson. Einsöngvarar í verki Jóns
Hlöðvers eru Jónína Guðrún Krist-
insdóttir og Gísli Magnason; Douglas
Brotchie leikur með á orgel í verkinu
Clarcitas, Marta Guðrún Halldórsdóttir
syngur einsöng í Sam’s Mass og Daði
Kolbeinsson leikur einleik á óbó í sama
verki. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
HEYR HIMNA SMIÐUR
Bergþóra Jónsdóttir
HÁDEGISTÓNLEIKAR
verða í Listasafni Einars Jóns-
sonar á morgun. Hefjast þeir
kl. 12.30 og standa í um hálfa
klukkustund. Þar flytja Ólöf
Sesselja Óskarsdóttir, viola da
gamba, og Snorri Örn Snorra-
son, theorba, verk eftir tón-
skáldin Marin Marais, meðal
annars verk úr kvikmyndinni
„Allir heimsins morgnar“, og
Robert de Visée. Tónleikarnir
verða í aðalsal safnsins. Inn-
gangur frá Eiríksgötu.
Frönsk bar-
okktónlist
leikin
Á VÍNBARNUM á Kirkjutorgi
stendur yfir málverkasýning
Inacio Pacas frá Brasilíu.
Pacas hefur búið á Íslandi í 9
ár. Hann hefur stundað mynd-
listarnám í 5 ár. Verkin á sýn-
ingunni eru landslagsmyndir
frá Íslandi.
Sýningin stendur til 5. jan-
úar.
Myndlist
á Vínbarnum
Kominn er út
geisladiskur
með píanóleik-
aranum Ólafi
Elíassyni. Þar
leikur hann tvo
píanókonserta
eftir J.S. Bach (BWV 1055 í D-moll
og 1057 í F-dúr) ásamt ensku
hljómsveitinni London Chamber
Group. Þessir konsertar eru einna
þekktastir af konsertum Bachs og
hafa notið mikilla almennra vin-
sælda í næstum 300 ár.
Þeir voru upphaflega skrifaðir fyrir
fiðlu og hljómsveit en Bach umritaði
mikið af konsertum sínum fyrir ýmis
hljóðfæri eftir því sem honum hent-
aði. Konsertinn í F-dúr er til að
mynda einnig þekktur sem fjórði
Brandenborgarkonsertinn. Þar er
hann skrifaður út fyrir fiðlu, tvær
flautur og hljómsveit.
Á geisladiskinum leikur hljóm-
sveitin að auki hljómsveitarsvítu nr.
1 í C-dúr eftir Bach.
Hljómsveitin London Chamber
Group var stofnuð árið 1996 og hef-
ur aðallega haldið tónleika í London
og nágrenni. Hún er skipuð ungum
atvinnuhljóðfæraleikurum víðs veg-
ar að úr Evrópu og stjórnandi henn-
ar er Harry Curtis. Þetta er annar
geisladiskurinn sem hljómsveitin
gefur út.
Konsertar