Morgunblaðið - 12.12.2001, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
1. vélstjóra
vantar á Hring SH. Vélarstærð 2.200 hö.
Upplýsingar gefur Runni í síma 852 2656 og
892 0735.
Sölufólk
Óskum eftir sölufólki sem fyrst um allt land
í bráðskemmtilegt verkefni. Um hlutastarf er
að ræða. Góð sölulaun í boði.
Upplýsingar gefur Heimir í síma 530 7635.
Sandgerði
Kennari
Vegna forfalla vantar kennara í 1/1 stöðu.
Stuðningsfulltrúi
Stuðningsfulltrúa vantar í ½ stöðu.
Nánari upplýsingar veita skólastjóri, Guðjón
Þ. Kristjánsson, og aðstoðarskólastjóri,
Pétur Brynjarsson.
Síminn á skrifstofu skólans er 423 7439.
Skólastjóri.
Austur-Hérað
Leikskólinn Tjarnarland Egilsstöðum
Lausar stöður
leikskólakennara
í 100% stöðu og 50% stöðu eftir hádegi.
Til greina kemur að ráða starfsmenn með aðra
uppeldismenntun eða leiðbeinendur.
Í starfsemi Tjarnarlands er tekið mið af hug-
myndafræði Reggio Emilia.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri
í síma 471 2145.
Umsóknir berist til leikskólastjóra fyrir
21. desember, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf.
Leikskólastjóri.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Almennur hluthafafundur
Almennur kynningarfundur fyrir hluthafa Stoke
Holding verður á Grand Hótel, Sigtúni, föstu-
daginn 14. desember kl. 16.00.
Dagskrá fundar:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins kynntir.
3. Tilnefning til stjórnar fyrir aðalfund Stoke
Holding S.A. í Luxemborg.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Fyrirtæki/einstaklingar
Einbýlishús til leigu á Akureyri
Hlýlegt 240 fm einbýlishús á þremur hæðum, á
besta stað á Akureyri, til leigu til lengri tíma frá
jan. 2002. Áhugasamir hringi í Þorgerði/Sveinbjörn
í síma 462 1161 milli kl. 18.00 og 20.00.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Íbúðaskipti
Kaupmannahöfn — Reykjavík
Óskað er eftir skiptum á 2ja herbergja íbúð í
miðbæ Kaupmannahafnar (Íslandsbryggja)
fyrir íbúð í mið- eða vesturbæ Reykjavíkur á
tímabilinu ca 20. desember til 5. janúar 2001.
Svör óskast send til auglýsingadeildar Mbl.,
eða í box@mbl.is, fyrir 15. des. 2001, merkt:
„Íbúð — 10334“.
TIL SÖLU
Til sölu
ýmiss búnaður fyrir kjöt-/matvælavinnslu:
ULMA Alaska pökkunarvél flow-pack (BDF),
ILPRA Food Pack pökkunarvél f. loftsk. bakka,
3 Multivac línupökkunarvélar, steikingarlína,
(-band, mótari, battervél, raspari), tromlur,
hrærivél, hakkavél, steikingarband, pylsu-
sprauta, glycol búnt, reykofn o.fl.
Norðlenska ehf., Grímseyjargötu,
600 Akureyri, s. 460 8850.
STYRKIR
Meistarafélag
húsasmiða
Styrktarsjóður
Meistarafélag húsasmiða auglýsir eftir
umsóknum til úthlutunar úr styrktarsjóði
félagsins.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
félagsins í Skipholti 70 og þurfa að hafa
borist fyrir 18. desember nk.
Menntamálaráðuneytið
Auglýsing um styrki úr
Endurmenntunarsjóði
grunnskóla 2002
Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntun-
arsjóð grunnskóla árið 2002. Sjóðurinn er í
vörslu menntamálaráðuneytisins og sér þriggja
manna stjórn um að meta umsóknir og gera
tillögur til menntamálaráðherra um styrkveit-
ingar.
Um framlög úr sjóðnum geta sótt þeir sem
hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir
grunnskólakennara, t.d. skólaskrifstofur, sveit-
arfélög, skólar, kennaramenntunarstofnanir,
félög og fyrirtæki. Gert er ráð fyrir að nám-
skeiðum verði að fullu lokið eigi síðar en við
lok skólaársins 2002—2003.
Þær umsóknir einar koma til álita sem sýna
að byggt sé á:
● að endurmenntunartilboð mæti þörfum
grunnskólans,
● skólastefnu og aðalnámskrá,
● fagmennsku og gæðum.
Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds
kennara sem njóta endurmenntunarinnar.
Í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar
um hvers konar endurmenntunartilboð um-
sækjandi hyggst bjóða fram, m.a. markmið
námsins, stað og tíma, áætlaðan fjölda þátttak-
enda, skipulag kennslu, stjórnun, ábyrgðar-
mann og annað það sem máli kann að skipta
við mat á umsókn. Einnig skal leggja fram
sundurliðaða kostnaðaráætlun.
Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk
verður gerður sérstakur samningur um hvert
endurmenntunarverkefni þar sem fram kemur
m.a. lýsing á markmiðum og fyrirhugaðri fram-
kvæmd og hvernig greiðslum verður háttað.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síð-
asta lagi 31. janúar 2002, á sérstökum eyðu-
blöðum sem liggja frammi í menntamálaráðu-
neytinu og á heimasíðu ráðuneytisins.
Upplýsingar um Endurmenntunarsjóð grunn-
skóla, reglur sjóðsins o.fl. er að finna á heima-
síðu menntamálaráðuneytisins:
www. menntamalaraduneyti.is .
Menntamálaráðuneytið,
6. desember 2001.
menntamalaraduneyti.is .
TILKYNNINGAR
Auglýsing um mat á umhverfisáhrifum
— úrskurður Skipulagsstofnunar
Stækkun Kröfluvirkjunar
í Skútustaðahreppi um
40 MW
Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt
lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif-
um. Fallist er á stækkun Kröfluvirkjunar í Skútu-
staðahreppi um 40 MW eins og henni er lýst
í matsskýrslu framkvæmdaraðila.
Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu-
lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is .
Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 16. janú-
ar 2002.
Skipulagsstofnun.
Skautarýmingarsala
Við rýmum til á lagerernum okkar og bjóðum
skauta í öllum stærðum og gerðum á ótrúlegu
verði. Allt að 50% afsláttur. Aðeins í nokkra
daga. Verðdæmi:
Hokkískautar verð áður kr. 9.338, verð nú kr. 4.590.
Komið og gerið frábær kaup.
Örninn, Skeifunni 11,
sími 588 9890.