Morgunblaðið - 12.12.2001, Side 55

Morgunblaðið - 12.12.2001, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 55 DAGBÓK ÓLAFSVÍSUR Ólafr kóngur Haraldsson, hann gefi oss sigr og tíma! svo að eg hafi djörfung til um aðferð hans að ríma. Ólafr kóngur Haraldsson, hann reið um þykkvan skóg; hann sá lítið spor í leir, slík eru minnin stór. Svaraði’ hann Finnur Árnason, var honum á því þokki: „Fallegr mundi sá lítill fótr, væri’ hann í skarlats sokki“. „Heyrðu það, Finnur Árnason, hvað eg segi þér: áðr en sól til viðar rennr, meyna fáðu mér!“ - - - LJÓÐABROT 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6 5. Da4 c5 6. Bg2 Bb7 7. dxc5 bxc5 8. O-O Be7 9. Rc3 O-O 10. Bf4 d6 11. Hfd1 Db6 12. Hab1 Ra6 13. a3 Bc6 14. Dc2 Hfd8 15. e4 Db7 16. Re1 Hab8 17. De2 e5 18. Bg5 h6 19. Bxf6 Bxf6 20. Rc2 Db3 21. Re3 Rc7 22. Hd3 Bg5 23. Rf5 Dxc4 24. f4 exf4 25. gxf4 Bf6 26. e5 Bxg2 27. exf6 Re6 Spennan í Heimsmeist- aramóti FIDE hefur verið ólíkt meiri en í tilþrifalitlu einvígi þeirra Kasparovs og Kramniks. Núna standa yfir undanúrslitaeinvígi þar sem eigast við annars vegar Vishy Anand og Vassilí Iv- ansjúk og hins vegar Peter Svidler og Ruslan Ponomarjov. Stað- an kom upp í keppninni á milli Predrag Nikolic (2.652), hvítt, og Ashot Anastasjan (2.588). 28. Rxh6+! Kh7 Ill nauðsyn þar sem hvorki gekk upp að leika 28... gxh6 29. Hg3 né heldur 28... Kf8 29. fxg7+ Rxg7 30. Kxg2 og hvítur vinnur í báðum tilvikum. 29. Rf5 g6 30. Dg4! He8 Hvorki gekk upp að leika 30... Dxd3 vegna 31. Dh4+ Kg8 32. Re7+ og hvítur mátar né heldur 30... gxf5 31. Dh5+ Kg8 32. Hg3+ og hvítur mátar. Í framhaldinu tapar svartur drottningunni. 31. Rd5! Kg8 32. Dh4 Dxd5 33. Hxd5 Bxd5 34. Re7+ Hxe7 35. fxe7 Rd4 36. Df6 Rf5 37. He1 He8 38. Kf2 Be6 39. Hxe6 fxe6 40. Dxg6+ Rg7 41. Df6 d5 42. Kf3 d4 43. h4 Kh7 44. Df8 c4 45. h5 og svartur gafst upp saddur líf- daga. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. HVER er munurinn á góð- um spilara og sönnum meistara? Gott ef Göltur- inn grimmi kom ekki með þessa skilgreiningu: „Góð- ur spilari veit hvað er rétt, en gerir það samt ekki. Meistarinn veit það og gerir það.“ Það er hyldýpi á milli teóríu og praxís. Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ KD10974 ♥ K5 ♦ 3 ♣DG107 Vestur Austur ♠ 532 ♠ 8 ♥ 9 ♥ D87642 ♦ 108742 ♦ KD9 ♣9643 ♣ÁK5 Suður ♠ ÁG6 ♥ ÁG103 ♦ ÁG65 ♣82 Vestur Norður Austur Suður -- -- 1 hjarta 1 grand Pass 4 hjörtu * Pass 4 spaðar Pass 4 grönd ** Pass 5 lauf ** Pass 6 spaðar Dobl *** Pass Pass Pass * Texas-yfirfærsla í spaða. ** Lykilspilaspurning með spaða sem tromp og svarið sýnir þrjá „ása“ af fimm. *** „Ekki koma út með hjarta, makker!“ Norður er svolítið bjartasýnn að keyra í slemmu með höfuðlaust lauf, en vissulega gæti grandinnákoma suðurs verið betri. Vestur vissi svo sem vel að doblið var af útspilsætt, en gat þó ekki fengið sig til að spila neinu öðru út en hjarta, af því hann átti nú einspil, þrátt fyrir allt. Hvernig á sagnhafi að nýta sér þessa „óhlýðni“? Það eru aðeins tíu slagir sjáanlegir. En sá ellefti kemur á tígulgosa með því að trompa út hjónin og þá er stutt í þann tólfta, því austur ræður ekki við að halda bæði í ÁK í laufi og valda hjartadrottninguna. Sagnhafi spilar því þannig: Hann tekur á hjartakóng – sem er lykilatriði. Spilar svo tígli á ás og trompar tígul. Fer heim á háspaða og trompar enn tígul. Aft- ur fer hann heim á há- spaða og tekur nú slaginn á tígulgosa. Síðan er spaðasexu spilað á blindan og trompið klárað. Austur fær ekki við neitt ráðið. Hann verður að hanga á þremur hjörtum og henda öðrum laufhámanninum, en þá getur sagnhafi ann- aðhvort sótt laufið eða svínað hjarta og sent aust- ur inn á hálauf til að gefa fría hjartasvíningu í lokin. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þið eruð hugrökk og stór í sniðum svo að aðrir eiga oft fullt í fangi með að fylgja ykkur eftir. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þið skuluð ekki láta aðra marka ykkur völl án þess að hafa eitthvað um það að segja. Haldið á málum af festu, þá verður tekið tillit til ykkar. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þið ættuð ekki að hika við að þiggja aðstoð vina ykkar, sem eru heilir og bjóða hana af góðum hug. Munið bara að til ykkar verður leitað síðar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þið þurfið ekki að láta eins og engum líki við ykkur. Fyrr má nú vera! Á hinn bóginn þarf ekki öllum að líka við ykkur. Meðalhófið er best. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þið eigið að láta einskis ófreistað til þess að skipu- leggja betur tíma ykkar, því eins og er stefnir allt í óefni. Hefjist handa strax! Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Notið hvert tækifæri til að létta samferðamönnum ykkar lífið. Það er undravert hve mikil áhrif eitt bros getur haft eða nokkur vingjarnleg orð. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Haldið sambandi við þá sem ykkur þykir vænt um. Það eru einmitt vinir og vanda- menn sem eru kjölfesta lífs ykkar og henni ber ykkur að sinna. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þið eigið að fara út á meðal fólks en ekki loka ykkur af. Þótt gott sé að vera einn með sjálfum sér stundum er líka nauðsynlegt að umgangast aðra. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Látið ekki tækifærin renna ykkur úr greipum. Þótt þau séu ekki öll merkileg er ástæðulaust að hunsa þau og enginn veit hvenær sá stóri bítur á. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gleymið ekki að gera ykkur sjálfum til góða. Það er lítið gagn í ykkur ef þið eruð van- nærð og illa til reika. Og síst getið þið þá hjálpað öðrum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Reynið að finna ykkur afdrep í smástund til þess að slaka á og taka ykkur saman í andlit- inu. Það er undravert hvað þetta hressir, bætir og kætir. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Reynið að laða það besta fram í samstarfsmönnum ykkar; aðeins þannig eigið þið ein- hverja von til þess að koma viðamiklu verkefni ykkar í höfn. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þið eigið ekki að láta aðra segja ykkur fyrir verkum um útlit og hegðan. Snyrti- mennska og kurteisi eru dyggðir dagsins. Þið ráðið við þær. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Með morgunkaffinu Árnað heilla Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 15. september sl. í borgaralegri giftingu í Fólksvangi á Kjalarnesi af Birnu Björnsdóttur Lýdía Kristín Sigurðardóttir og Guðmundur Árni Þórisson. Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 25. ágúst sl. í Lága- fellskirkju af sr. Pétri Þor- steinssyni Guðrún Margrét Hreiðarsdóttir og Páll Páls- son.            Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 15. september sl. í Háteigskirkju af sr. Hirti Magna Jóhannssyni Hildur Hilmarsdóttir og Kristinn Kristinsson. FRÉTTIR Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen), sími 553 0100. Opið virka daga frá kl. 10–18, laugardaga kl. 10–16. Jólatilboð! Síðbuxur - ný sending! 2 fyrir 1 af síðbuxum til og með 16. des. Fjöldi annarra tilboða!           Fórnarlömb Steingríms Njálssonar Vegna framleiðslu sjónvarpsþáttar í þáttaröðinni Sönn íslensk sakamál óskum við eftir að komast í samband við fórnarlömb Steingríms Njálssonar. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Vinsamlegast hafið samband við Svein í síma 896 4573. FJÖLSKYLDA Sigurðar Hafsteins- sonar, sem býr í bænum Grenå í Dan- mörku, flutti inn til landsins 400 jólatré sem seld verða úr gámi við Dalveg 2 í Kópavogi til jóla. Sigurður sagði við Morgunblaðið að vegna tengsla fjölskyldu sinnar við Ólafsvík hefði hann ákveðið að láta 10% af and- virði hvers trés renna til fjölskyldna þeirra fjögurra sjómanna sem er saknað eða hafa farist við Íslands- strendur að undanförnu. Sigurður bjó ásamt konu sinni, Maríönnu Björgu Arnardóttur, í Ólafsvík fyrir nokkrum árum en hún er ættuð þaðan. Sigurður var þá til sjós og kynntist m.a. þeim sjómönn- um sem voru á Svanborgu SH þegar báturinn fórst sl. föstudagskvöld. Einnig þekkja þau til sjómannsins sem saknað er af Ófeigi VE þar sem hann var kaupmaður í Ólafsvík á ár- um áður. Sigurður hefur tvívegis sjálfur lent í skipsskaða og varð svo fyrir enn öðru áfalli þegar dóttir þeirra Maríönnu fórst í bílslysi á Jót- landi í Danmörku. Til að rétta við fjár- haginn ákvað fjölskyldan í haust að fara út í jólatréssölu. Fengu þau leyfi bónda í nágrenni Grenå til að fella 400 tré. Fjölskyldan pakkaði trjánum inn, setti þau í gám og sendi til Íslands. Felldu jólatré í Dan- mörku og selja hér á landi Morgunblaðið/Ásdís Sigurður Hafsteinsson selur jólatrén frá Danmörku við Dal- veg 2 í Kópavogi. Ein af hverjum tíu krónum sem koma af sölunni rennur til styrktar þeim fjöl- skyldum sem eiga um sárt að binda vegna skipsskaða Ófeigs VE og Svanborgar SH. Hluti andvirðis rennur til fjölskyldna sjómann- anna frá Ólafsvík AÐVENTUKAFFI verður í Félags- heimilinu Gullsmára, Gullsmára 13, Kópavogi, í dag, miðvikudag 12. des- ember, kl. 14. Hátíðarhlaðborð, Anna Margrét Óskarsdóttir og Árni Gunnasson syngja við undirleik Bjarna Þ. Jón- atanssonar, Valdimar Lárusson les ljóð og flutt verður hugleiðing. Allir velkomnir, segir í fréttatilkynningu. Aðventukaffi í Gullsmára FERÐAFÉLAG Íslands efnir til myndasýningar í FÍ-salnum, Mörk- inni 6, í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30. Yfirskrift sýningarinnar er „Á tröllaslóðum“, Haukur Jóhannesson sýnir myndir af landslagi Árnes- hrepps á Ströndum. Eftir kaffihlé með smákökum heldur Haukur áfram.Aðgangseyrir er 500 krónur. Allir velkomnir. Myndasýning í FÍ-salnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.