Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 21
FAKTORSHÚSIÐ í Hæsta-
kaupstað, Aðalstræti 42, Ísafirði,
er nú opið almenningi. „Á neðri
hæðinni er tilbúin kaffi- og veit-
ingasala. Þar eru tvær stórar
stofur (litlir salir), koníaksstofa
og bar. Á efri hæðinni verður á
næstu vikum opnaður viðbót-
arsalur, húsið mun taka 80–100
manns í sæti.
Á sl. tveimur vikum hefur ein-
göngu verið tekið á móti hópum
sem áttu pantað og eru þeir orðn-
ir nokkrir. Þeir hafa beðið um
margvíslegar veitingar, t.d. jóla-
hlaðborð, súkkulaði og smákökur
og jólaglögg, jafnvel tekið lagið á
píanó hússins og sungið jólalög. Á
boðstólum er kaffi frá Kaffitári,
t.d. Grýlukanilkaffi, og kaffi-
drykkir svo sem espresso og
cappuccino. Faktorshúsið í
Hæstakaupstað var reist 1788,
vinna við endurbætur á því hófst
5. júní 1998. Magnús Alfreðsson
húsasmíðameistari, annar eigenda
hússins, hefur unnið að og stjórn-
að verkinu. Rekstur á húsinu mun
nú tengjast rekstri Gistiheimilis
Áslaugar, Austurvegi 7, næsta
húsi við Faktorshúsið. Það er rek-
ið af eiginkonu Magnúsar, hins
eiganda hússins, Áslaugu Jens-
dóttur,“ segir í fréttatilkynningu.
Veitingasala í Faktors-
húsi í Hæstakaupstað
Faktorshúsið
Ísafjörður
ATVINNA mbl.is