Morgunblaðið - 18.12.2001, Side 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
24 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ACOTÆKNIVAL hefur kært til
Samkeppnisstofnunar viðskipta-
hætti Eddu-miðlunar og útgáfu.
Málavextir voru þeir að verslanir
AcoTæknivals, BT og Office 1, vildu
fyrir stuttu gerast endursöluaðilar á
jólabókum frá Eddu, sem og öðrum
bókaútgefendum. Edda sagðist ekki
bæta við sig fleiri endursöluaðilum
fyrir jól en bauð þess í stað sambæri-
legt verð án skilaréttar. AcoTækni-
val kærði þessa ákvörðun til Sam-
keppnisstofnunar og sagði Eddu
vera að verja hagsmuni stórrar
verslunarkeðju sem sé nánast í ein-
okunarstöðu.
Að sögn Halldórs Guðmundsson-
ar, forstjóra Eddu, eiga slíkar full-
yrðingar engan veginn við um bóka-
markaðinn. „Því fer fjarri að þar sé
ein verslanakeðja einráð, og við selj-
um þannig í fjölda bókabúða, en líka
bæði í Bónus og Nettó, svo ásakanir
um að við séum að hygla einum ráð-
andi aðila eru alveg út í hött. Við vor-
um hins vegar treg að bæta BT og
Office 1 við sem nýjum endursölu-
aðila á jólabókum einfaldlega vegna
þess að við töldum varasamt fyrir
okkur að bæta við okkur nýjum út-
sölustað svo skömmu fyrir jól. Lag-
erinn okkar fer þá á enn fleiri staði
og við eigum ekki lager í ótakmark-
aðan fjölda útsölustaða. Við buðum
þeim að fá bækur á sambærilegum
kjörum og aðrir endursöluaðilar en
ekki með skilarétti. Þeir gætu þá
prófað hvernig þeim gengi og þá
pantað meira.“ Halldór segist telja
eðlilegt að fyrirtækið ráði því hverjir
útsölustaðir þess eru þegar komið er
langt út fyrir hefðbundna útsölustaði
einsog heilsársbóksala í þessu tilviki.
„Við seljum orðið mjög víða og finnst
hæpið að bæta við aðilum svona á
síðustu stundu, hálfum mánuði fyrir
jól, sem enga reynslu hafa af þeirri
bóksölu.
Við höfum átt ágætis viðskipti við
þetta fyrirtæki, selt þeim til dæmis
orðabækur á tölvudiskum, og viljum
afgreiða þá á góðum kjörum sem
skuldajöfnun við þá, því að við höfum
líka verið að kaupa af þeim vörur, en
við viljum ekki láta þá hafa bækur
með skilarétti“, segir Halldór en
Edda á að svara kærunni til Sam-
keppnisstofnunar á morgun.
Einkennilegar ástæður
Guðmundur Magnason, rekstrar-
stjóri BT-verslana AcoTæknivals,
segir forsvarsmenn Eddu hafa í
fyrstu verið ófáanlegir til að selja
fyrirtækinu bækur. „Okkur þóttu
ástæður þeirra einkennilegar. Fyrst
var að það þjónaði ekki viðskipta-
hagsmunum þeirra. Síðan báru þeir
við að þeir þekktu okkur ekki þrátt
fyrir að við höfum áður átt í tals-
verðum viðskiptum við þá með vörur
tengdar tölvum. Loks, þegar búið
var að kæra, sögðust þeir hafa
áhyggjur af stöðu okkar en sjálfir
eiga þeir hér ógreidda gjaldfallna
reikninga.“
Guðmundur segir viðskipti við
aðra bókaútgefendur hafa verið með
besta móti en bendir á að Edduút-
gáfan sé frábrugðin öðrum bókaút-
gefendum enda einnig stór smásali.
„Það fer mjög illa á því að smásala og
dreifing sé á einni hendi því að hags-
munaárekstrar eru svo augljósir.“
Um hvort ekki hefði mátt ganga
að tilboði Eddu um sambærileg kjör
án skilaréttar, segir Guðmundur:
„Það eru ekkert sambærileg kjör. Ef
þeir hefðu boðið Bónus eða öðrum
stórmörkuðum þessi kjör þá hefðu
ekki orðið mikil viðskipti.“
BT kærir Eddu til
Samkeppnisstofnunar
AcoTæknival hefur kært útgáfufyrirtækið Eddu til Samkeppnisstofnunar.
Edda neitaði
BT og Office 1
um að gerast
endursöluaðilar á
jólabókum
AMGEN, sem er stærsta líftækni-
fyrirtæki Bandaríkjanna, hefur til-
kynnt um 16 milljarða dollara (1.700
milljarða króna) yfirtöku á keppi-
nauti sínum, Immunex. Er hér um að
ræða stærsta samning sem um getur
í líftæknigeiranum.
Sameinað verður fyrirtækið það
stærsta í heimi á heilbrigðissviði en
markaðsvirði þess mun nema 72,5
milljörðum dollara, eða um 7.700
milljörðum íslenskra króna. Það er
ríflega tvöfalt hærra en markaðs-
virði Genentech, sem er annað
stærsta líftæknifyrirtækið, en mark-
aðsvirði þess er 28 milljarðar doll-
ara.
Verði samruninn samþykktur af
bandarískum yfirvöldum fá
hluthafar í Immunex greitt fyrir
85% hluta sinna með hlutabréfum í
Amgen og 15% með peningum.
Stærsti líf-
tæknisam-
runi sög-
unnar
NÝTT félag, Iosat ehf., hefur
verið stofnað um rekstur Net-
Hnattar sem áður var í eigu
AcoTæknivals. Að nýja félag-
inu standa Ari Jóhannesson og
Vilhjálmur Árnason, fyrrver-
andi starfsmenn AcoTækni-
vals, auk Rúnars Sigurðssonar,
fyrrum framkvæmdastjóra
AcoTæknivals og Öryggismið-
stöðvar Íslands.
Meginverkefni Iosat verða
tengingar við Netið yfir gervi-
hnetti auk víðnetstenginga og
varasambanda fyrir fyrirtæki
sem mega ekki við því að missa
netsamband vegna bilana í
netveitum, rafmagnstruflana
eða útfalls útlandalínu. Meðal
samstarfsfyrirtækja Iosat er-
lendis eru Eutelsat og Hughes
Olivetti Telecom. Starfsvett-
angur félagsins verður bæði
innan lands og utan, að því er
fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Nýtt félag
stofnað um
NetHnött
● FISKAFLI landsmanna í nóvember
síðastliðnum var alls 97 þúsund
tonn sem er jafnmikill afli og í nóv-
ember 2000. Botnfiskaflinn var tæp-
lega 37 þúsund tonn í mánuðinum
en var rúmlega 37 þúsund tonn í
nóvember 2000. Þrátt fyrir afar erfitt
veður til sjósóknar víðast hvar var
þorskafli í nóvember meiri en í sama
mánuði árið áður. Þannig var landað
20.495 tonnum af þorski af Íslands-
miðum í nýliðnum mánuði en aðeins
17.186 tonnum í nóvember 2000.
Minna veiddist hins vegar af karfa og
grálúðu. Afli krókabáta var mun
minni í nóvember núna en í fyrra. Afli
uppsjávartegunda hefur verið slakur
það sem af er fiskveiðiárinu eins og í
fyrra. Aðeins veiddust 56 þúsund
tonn af síld á tímabilinu september –
nóvember og ekkert veiddist af
loðnu. Heildaraflinn á tímabilinu 1.
janúar – 30. nóvember var 1.890
þúsund tonn en var 1.926 þúsund
tonn á sama tíma árið áður.
97 þúsund tonn
í nóvember
● NORSKA flugfélagið Braathens
verður hluti af SAS-flugfélaginu fyrir
áramót. 98% hluthafa í Braathens
hafa samþykkt tilboð SAS í hlutabréf-
in, en tilboðsfresturinn rann út á
föstudagskvöldið. Eigendum hluta-
fjárins sem eftir stendur ber laga-
skylda til að selja sitt þar sem yfir
90% hluthafa hafa samþykkt til-
boðið.
SAS byrjaði á að kaupa um 68% í
Braathens sl. vor og setti síðan fram
yfirtökutilboð upp á 35 norskar krón-
ur á hlut. Síðan hefur tilboðið verið
lækkað vegna almenns samdráttar á
flugmarkaði og nemur nú 27 norsk-
um krónum fyrir hvern hlut í Braath-
ens.
Braathens verður
hluti af SAS
GENGI krónunnar hækkaði
um 0,9% í 11 milljarða viðskipt-
um í gær. Mikið flökt var á vísi-
tölu krónunnar í gær, sam-
kvæmt upplýsingum frá
Íslandsbanka, og fór hún lægst
í 141,90, en endaði í 142,40.
Gengi krónunnar hefur því
hækkað um 3,5% í desember og
gengi krónunnar ekki verið
hærra síðan um miðjan október
sl. Gengi dollara stendur nú í
102,40 og hefur lækkað um 8
krónur á sl. 3 vikum. Jenið hef-
ur þó lækkað einna mest og
hefur ekki verið lægra síðan í
ágústbyrjun. Gengishækkunin
þessar vikurnar er þó ekkert
einsdæmi t.a.m. hækkaði geng-
ið um rúm 8% frá miðjum júní
fram í miðjan ágúst. Undan-
farnar vikur hefur gengi krón-
unnar hækkað um rúm 6%.
Bæði tímabilin eiga það sam-
eiginlegt að hefjast með við-
skiptum Seðlabankans, en
hann keypti krónur 21. júní
sem var upphaf gengishækkun-
ar krónunnar sem stóð fram í
ágúst. Í desember hefur Seðla-
bankinn tvívegis keypt krónur
fyrir rúma 5 milljarða samtals.
Krónan
styrkist
um 0,9%
● STJÓRN Sláturfélags Suðurlands
svf., sem er jafnframt stjórn SS Af-
urða ehf., hefur samþykkt að sam-
eina félögin undir nafni Sláturfélag
Suðurlands svf. Samruninn miðast
við áramót. Þetta var ákveðið á
stjórnarfundum félaganna sem
haldnir voru föstudaginn 14. desem-
ber. SS Afurðir ehf. er dótturfélag
Sláturfélags Suðurlands svf. og er al-
farið í eigu þess. SS Afurðir ehf. hef-
ur séð um afurðaþátt starfsemi Slát-
urfélags Suðurlands svf. Sláturfélag
Suðurlands svf. hefur birt reiknings-
skil sín sem samstæðureikningsskil
Sláturfélagsins og dótturfélagsins
SS Afurða ehf., þannig að önnur áhrif
sameiningar félaganna á fjárhags-
stöðu samstæðunnar eru engin.
Starfsmenn SS Afurða ehf. flytjast
allir yfir til Sláturfélags Suðurlands
svf.
SS Afurðir
sameinast SS
● ÍSLENSKI hugbúnaðarsjóðurinn
hefur selt allan eignarhlut sinn í
Tölvumiðlun hf. Um er að ræða
25,6% hlut í félaginu. Að mati stjórn-
ar Íslenska hugbúnaðarsjóðsins er
hér um að ræða mjög hagstæðan og
jákvæðan samning fyrir Íslenska
hugbúnaðarsjóðinn hf. en ekki er
gefið upp hver keypti hlutinn er né á
hvaða verði hann er seldur.
Tölvumiðlun er eitt elsta hugbún-
aðarfyrirtæki landsins en Tölvu-
miðlun starfar aðallega á sviði launa-
kerfa. Tölvumiðlun hefur unnið að
Landskrá fasteigna í þróunarsam-
starfi með FMR. Auk þess er SFS-
upplýsingakerfi fyrirtækisins í notk-
un hjá um 80 sveitarfélögum.
Íshug selur allan hlut
sinn í Tölvumiðlun
● GREINT var frá því í flöggun frá Ís-
landsbanka-FBA hf. á Verðbréfaþingi
Íslands í gær að bankinn hefði keypt
hlutabréf í Íslandsbanka-FBA hf. að
nafnvirði kr. 10.000.000,- þann 14.
desember síðastliðinn. Eftir kaupin
varð eignarhlutur bankans 5,07%
eða kr. 507.185.086,- að nafnvirði,
en var áður 4,97% eða kr.
497.185.086,- að nafnvirði.
Þá kom jafnframt fram í flögg-
uninni að bankinn hefði selt 2,1% af
5,07% eignarhlut sínum, kr.
210.377.576,- að nafnvirði, fram-
virkt. Ekki kemur fram hver keypti
bréfin af bankanum.
Íslandsbanki
kaupir og selur
bréf í bankanum