Morgunblaðið - 18.12.2001, Qupperneq 25
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 25
Mokkajakkar frá 29.900 kr.
Mokkavesti frá 15.900 kr.
Kápur frá 29.900 kr.
Jakkar frá 19.900 kr.
Buxur frá 9.900 kr.
Peysur frá 6.900 kr.
Náttföt frá 3.900 kr.
GLÆSILEG FÖT TIL
JÓLAGJAFA
KRINGLUNNI • sími 568 4900
LAUGAVEGI 32 • sími 552 3636
HRING EFTIR HRINGHVÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
FISKISTOFA svipti alls 13 skip leyf-
um til veiða í atvinnuskyni í nóvember
sl. Þar af voru tvö skip, Ásthildur SH
og Katrín GK, svipt veiðileyfi vegna
afla umfram heimildir en það síðar-
nefnda hefur fengið leyfið að nýju eft-
ir að aflamarksstaða þess var lag-
færð. Þá voru 7 skip svipt veiðileyfi í
tvær vikur vegna vanskila á frumriti
úr afladagbók vegna veiða í október.
Þau eru Víðir Trausti EA, Snæbjörg
ÍS, Hraunsvík GK, Vísir SH, Kristinn
SH, Nunni EA og Vestfirðingur BA.
Aðalvík SH var svipt veiðileyfi í tvær
vikur þar sem skipinu var haldið til
veiða án þess að eftirlitsmaður Fiski-
stofu, sem tilkynnt hafði skipstjóra
skipsins að hann hygðist koma með til
eftirlits í veiðiferð, væri tekinn með.
Þá var Berghildur SK svipt veiðileyfi í
sex vikur vegna ítrekaðs brots gegn
reglum um vigtun sjávarafla, Bjarmi
BA í átta vikur vegna brottkasts á
hluta af afla skipsins og Ör SH í tvær
vikur vegna brots gegn reglum varð-
andi tilkynningu í Símakrók.
13 skip svipt veiðileyfi
DÓTTURFYRIRTÆKI SÍF-sam-
stæðunnar í Frakklandi, SIF France,
hlaut nýlega Saveur de l’année-verð-
laun, eða „Bragð ársins“, fyrir nokkr-
ar gerðir síldar- og laxaafurða. Verð-
launin, sem eru veitt árlega, eru þau
virtustu í frönskum matvælaiðnaði og
vekur úthlutun þeirra alltaf mikla at-
hygli. SIF France hlýtur verðlaunin
nú annað árið í röð, en í fyrra fékk fyr-
irtækið viðurkenningu fyrir reyktan
lax og þrjá tilbúna sjávarrétti.
„Fyrir utan viðurkenningu á vöru-
þróun og rannsóknarstarfi okkar hafa
verðlaunin mikla þýðingu fyrir mark-
aðsstarf SIF France,“ segir Birgir
Sævar Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri SIF France. „Við fáum að nota
merki þeirra á verðlaunavörur okkar
og vitum að það er þekkt meðal
franskra neytenda, en auk þess gefst
okkur tækifæri til að vinna með fram-
leiðendum sem hafa fengið svipuð
verðlaun fyrir vörur sínar.“
Þeir aðilar sem fá Saveur de l’ann-
ée-verðlaunin mega merkja viðkom-
andi vörur með einkennismerki
keppninnar í rúmt ár eftir að verð-
launin eru veitt. SIF France hlaut að
þessu sinni viðurkenningu fyrir tvær
vörur, annars vegar reykt síldarflök,
sem fá sérstaka meðhöndlun frá
frumvinnslu til afhendingar, í loft-
skiptum neytendaumbúðum, og hins
vegar fyrir vörulínuna „Saveurs
Scandinaves“ eða „Bragð norðurs-
ins“. Birgir segir að með verðlaunun-
um staðfesti SIF France forystu sína
á markaði sjávarafurða í Frakklandi.
„Við höfum lagt ríka áherslu á þróun
hefðbundinna afurða á borð við síld og
að færa þær í nútímalegan búning, og
keppt að því að ná til nýrra neytenda-
hópa. Þær viðtökur sem vörurnar
hafa fengið og sú viðurkenning sem
Saveur de l’année-verðlaunin eru sýn-
ir okkur að við erum á réttri leið,“
segir Birgir.
Framkvæmdastjórn SIF France með Saveur de l’année-verðlaunin. F.v.
Birgir S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri SIF France, Pascal Roth, Bernard
Henaut, Emmanuelle Rigot, Olivier de Lauriston og Frédéric Beauvir.
SIF France hlýtur
Saveur de l’année-
verðlaunin
Viðurkenning á vönduðu þróunar-
og rannsóknarstarfi fyrirtækisins
DILBERT mbl.is