Morgunblaðið - 18.12.2001, Qupperneq 31
ÁÆTLANIR um meiriháttar
sprengjuárás á London hafa fundist í
þjálfunarbúðum hryðjuverkamanna í
Afganistan, að því er breska blaðið
The Observer greindi frá á sunnudag.
Áætlanir um hryðjuverkaárásina eru
í minnisbók, sem fannst í þjálfunar-
búðum al-Qaeda í Kandahar í Afgan-
istan. Er þar gefið í skyn að skot-
markið sé Moorgate í fjármála-
hverfinu í London.
Ekkert er hins vegar vitað um
hvort maðurinn, sem skipulagði árás-
ina, hafi orðið eftir í Afganistan til að
berjast við hlið Osama bin Ladens
eða hvort hann hafi farið til Bretlands
fyrir hryðjuverkin í Bandaríkjunum
11. september.
Heimildarmaður í bresku lögregl-
unni sagði við blaðið að sérsveit gegn
hryðjuverkum myndi rannsaka minn-
isbókina gaumgæfilega. „Við verðum
að gera okkur grein fyrir að það eru
mjög stór hugsanleg skotmörk í fjár-
málahverfinu í London,“ sagði hann.
Skrifað er í minnisbókina á skýrri
ensku og þykir málfarið benda til
þess að breskur múslími hafi gert
áætlanirnar í þjálfunarbúðum al-
Qaeda í Sheragha Jama-hverfinu í
Kandahar.
Blaðið Independent on Sunday
kvaðst hafa séð áætlanir al-Qaeda um
að sprengja bílsprengju á Moorgate-
svæðinu. Koma átti sprengingunni af
stað með fjarstýringu.
Al-Qaeda skipulagði
hryðjuverk í London
London. AFP.
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 31
HRAÐUR og óvæntur flótti
margra harðnaðra al-Qaeda-her-
manna úr hellum og göngum í
fjöllunum í Austur-Afganistan
kann að vera til marks um það
sem sálfræðingar og sérfræðingar
í lofthernaði lýsa sem sálrænum
áhrifum þungra loftárása. Afg-
anskir liðsforingjar hafa greint frá
því, að loftárásir Bandaríkjamanna
við Kabúl í síðasta mánuði hefðu
haft mikil sálræn áhrif á hersveitir
talibana, og sögðu frá talstöðvar-
samtölum, sem hleruð voru, þar
sem hermennirnir töluðu um að
þeir hlypu í skjól í hvert sinn sem
bandarískar sprengjuflugvélar
nálguðust.
Liðhlaup
verður algengt
Talsmenn bandaríska flughers-
ins segja að það hafi jafnvel enn
meiri sálræn áhrif þegar sprengj-
um er varpað úr flugvélum, sem
fljúgi of hátt til að hermenn, sem
haldi sig djúpt í hellum, geti séð
þær eða heyrt í þeim. Þá virðist
sem sprengjurnar komi sem
þruma úr heiðskíru lofti og lendi
beint á skotmarkinu. „Höggið,
raskið, hávaðinn – hávaði virðist
skipta mestu – hefur niðurdrep-
andi áhrif á baráttuþrekið,“ sagði
Richard P. Hallion, lofthernaðar-
sagnfræðingur og sérfræðingur í
rannsóknum á áhrifum lofthern-
aðar.
„Þetta hefur komið í ljós í mörg-
um herferðum. Það mátti sjá þetta
í Persaflóastríðinu. Eftir nokkurn
tíma er baráttuþrekið orðið svo lít-
ið að liðhlaup er algengt, og það
hefur svo sannarlega verið raunin
undanfarið,“ sagði Hallion. Sýnt
hefur verið fram á, að hermenn
sem sæta sífelldum árásum fara að
taka árásirnar persónulega, að
sögn Hallions. Þeir fara að trúa
því, að orrustu- og sprengjuflug-
vélar í mörg þúsund feta hæð geti
fylgst með hreyfingum þeirra
sjálfra. Með nýjustu tækni geta
Bandaríkjamenn miðað árásir út
frá loftmyndum af bílum á hreyf-
ingu og rafrænum hlerunum sem
sýna staðsetningu manns sem er
að tala í gervihnattasíma.
Bardagastreita fer
að gera vart við sig
Hallion sagði að serbneskur her-
maður, sem var yfirheyrður eftir
árásir Atlantshafsbandalagsins á
Kosovo 1999, hefði verið farinn að
trúa því, að stjórnendur loftárás-
anna hefðu fylgst nákvæmlega
með öllum ferðum fylkinga hans.
„Þeir vissu meira að segja af því
þegar við vorum að reykja,“ hafði
Hallion eftir serbneska her-
manninum.
Kafteinn Andrew P.N. Lambert,
sem stjórnar rannsóknum á varn-
armálum við Royal Air Force Staff
College í Bretlandi, skrifaði í rit-
gerð 1997 um sálræna þætti loft-
árásanna í Persaflóastríðinu, að
„alger loftyfirráð ollu fórnarlömb-
unum getuleysistilfinningu. Ein-
angrun, frumstæð skilyrði og eng-
in tækifæri til að veita mótspyrnu,
ásamt sífelldum dyn í óvinaflug-
vélum, vakti ekki einungis ótta
heldur líka tilfinningu fyrir til-
gangsleysi og vonleysi.“
Lambert sagði að árásirnar og
áróðursherferð, með dreifiritum
sem sögðu íröskum hermönnum til
um hvernig þeir ættu að fara að
því að gefast upp, hefðu „rústað“
baráttuþrekinu. Bandaríkjamenn
hafa notað svipuð dreifirit í Afgan-
istan. „Fyrir hvern einn Íraka sem
var felldur í stríðinu gáfust rúm-
lega 20 upp, flestir án þess að
veita mótspyrnu.“
Ekki er vitað nákvæmlega hvaða
þættir verða til þess að hermenn
sýna svonefnd bardagastreituvið-
brögð, en Lambert segir að inni-
lokurnarkennd, hávaði, einangrun
og tilhneiging til að ætla óvininum
ofurmannlega getu hafi áreiðan-
lega allt sitt að segja.
Sálræn áhrif loft-
árásanna afar mikil
Hávaði, innilokunarkennd, varnarleysi –
allt hefur þetta lamandi áhrif á baráttuþrekið
The Washington Post.
HERMENN af þjóð Hazara styðjast
við riffla sína í Bamiyan í Afganistan
en í baksýn má sjá hamravegg þann
er áður geymdi ævaforn Búdda-
líkneski. Talibanar létu eyðileggja
líkneskin fyrr á þessu ári.
Reuters
Stund milli stríða