Morgunblaðið - 18.12.2001, Síða 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 39
Gefðu
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
LJÓSMYNDIR af mönnum með
úlfagrímur á stjái í Reykjavík blasa
við áhorfendum sem koma inn á sam-
vinnusýningu þeirra Jóns Sæmundar
Auðarsonar og Páls Banine í Galleríi
Skugga á Hverfisgötu, en á sýning-
unni eru ljósmyndir, bæði á pappír og
á skyggnum, af þeim félögunum með
úlfagrímur á höfði á ferli í bænum.
Þeir fara í sund, í partí, á rúntinn
o.s.frv. Með sýningunni fylgir texta-
blað með viðtali Haraldar Jónssonar
myndlistarmanns við sýnendur og
þar kemur m.a. fram að þeir setja upp
grímur til að benda á að allir bera
grímur af einhverju tagi í hinu dag-
lega lífi. Skilaboðin eru hin fornfrægu
sannindi: Vertu þú sjálfur – ekki vera
sá sem þú heldur að aðrir vilji að þú
sért.
Titill sýningarinnar, Séð og heyrt,
vísar beint í samnefnt tímarit með
frásögnum af fræga fólkinu. Í hverju
tölublaði þess tímarits eru margar
grímur á lofti, fólk með tilbúna ímynd
í hlutverkaleik og styður tengingin
boðskap sýningarinnar.
En af hverju að velja úlfagrímu?
Listamennirnir segja að úlfurinn veki
viðbrögð, hann er ímynd illskunnar
og hrekkjanna, „hann er hjarðdýr;
sauðmeinlaus einn en stórhættulegur
í hópum“, svo vísað sé í textablaðið.
Úlfur hefur ríka táknfræðilega
merkingu, oft er t.d. talað um úlfa í
sauðargæru, í þýðingunni að sigla
undir fölsku flaggi. Úlfar eru gjarnan
í hlutverki illmennisins í sögum eins
og Rauðhettu t.d. og eru alltaf lævísir
og skuggalegir.
Sýningin er í öllum fjórum sölum
gallerísins. Á jarðhæð eru ljósmyndir
og í litlu bakherbergi er innsetning,
brúða með úlfshaus situr á gólfinu
fyrir framan spegil. Niðri í kjallara í
fremra rými er önnur brúða og inni í
næsta herbergi er skyggnusýning
með svipuðum myndum og uppi á
jarðhæðinni. Hér er því um stóra sýn-
ingu að ræða en á sama tíma mjög
einhæfa, þar sem ekki er kafað djúpt í
viðfangsefnið.
Ég sakna þess að sjá ekki meiri úr-
vinnslu á hugmyndinni því í raun og
veru segir ein ljósmynd og kannski
önnur brúðan á sýningunni nóg, verið
er að segja sama hlutinn aftur og aft-
ur. Umfjöllunarefnið er hinsvegar
mjög skýrt og þarft og eitthvað sem
hægt er að vinna mun meira með.
Sýningin er fagmannlega uppsett og
gengur vel upp að því leyti.
Úlfa-
grímur
MYNDLIST
Gallerí Skuggi
Opið frá kl. 13–17 alla daga nema mánu-
daga. Til 31. desember.
LJÓSMYNDIR OG INNSETNINGAR
JÓN SÆMUNDUR AUÐARSON OG PÁLL
BANINE
Þóroddur Bjarnason
Sitjandi úlfur af sýningu Jóns Sæmundar og Páls Banine.
7 tilbrigði hefur að geyma tónlist
Kjartans Ólafssonar: gítar-, kammer-,
hljómsveitar-, flautu-, kamm-
ersveitar-, radd- og rafræn tilbrigði.
Tilbrigðin sjö voru samin á árinu
2001. Örstutt brot
voru notuð úr eldri
tónsmíðum og
meðhöndluð með
ólíkum aðferðum
og síðan sett sam-
an í sérhvert til-
brigði.
Þær tónsmíðar sem efniviðurinn er
fenginn úr eru misjafnar að gerð og
hafa jafnframt verið unnar með ólík-
um rafrænum aðferðum sem hæfa
sérhverju tilbrigði.
Á meðal þessara verka eru hljóm-
sveitarverk, konsertar, strengjakvart-
ett, raftónverk, söngverk, píanóverk
og verk fyrir klarínettur og einleiks-
verk fyrir flautu, gítar og rafhljóðfæri.
Víólukonsert Kjartans er tilnefndur
til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Útgefandi ErkiTónlist sf. Slóðin er:
www.listir.is/calmus/Kjartan.net
www.listir.is/calmus/Kjart-
an.net/7.var.html.
Raftónlist
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar