Morgunblaðið - 18.12.2001, Page 57
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 57
ÞRÁTT fyrir um-
bætur í málefnum
sjúklinga undanfarin
ár hvað varðar sér-
staka lagasetningu
um réttindi, sem og
tryggingu til handa
þeim er kunna að
verða fyrir mistökum
eða óhöppum í með-
ferð, er enn ýmislegt
sem á skortir í hinu
annars umfangsmikla
heilbrigðiskerfi okk-
ar. Umboðsmann
sjúklinga inni á
sjúkrahúsum vantar
sárlega, en slíkt
skipulag hefur þó
verið í nágrannalöndum okkar um
nokkurn tíma og gefist vel. Aug-
ljóst er mikilvægi þess fyrir alla að
geta gripið strax inn í það ferli
þegar óhöpp eða mistök eiga sér
stað. Raunin er sú hjá Samtök-
unum Lífsvog að þær kvartanir
varðandi t.d. skurðaðgerðir, bein-
ast í 60% tilvika að sömu læknum.
Þess vegna eftir 6 og hálft ár sem
samtökin Lífsvog hafa starfað og
bent á hversu miklivægt er fyrir
heilbrigðiskerfið að hafa umboðs-
mann sjúklinga. Hin langsótta leið
sjúklings til kvörtunar hjá Land-
lækni eftir útskrift af sjúkrastofn-
unum, ætti því að geta verið nær
óþörf í mörgum tilvikum.
Slík skipan mála myndi stór-
minnka þau verkefni Landlæknis
að þurfa að taka við kvörtunum
sjúklinga, og gæti embættið þess í
stað ef til vill einbeitt sér enn
frekar að eftirlitshlutverki sínu
hvað varðar gæðastaðla, í hinu
umfangsmikla kerfi, þar sem m.a.
má nefna lyfjaávísanir.
Hvar eru gæðin?
Því miður höfum við Íslendingar
ekki enn farið sömu leið og Norð-
menn í því efni að upplýsa sjúk-
linga sem einnig eru skattborg-
ararar um hæfni heilbrigðisstarfs-
manna, en miðað við þá einkastofu-
starfsemi sem hér hefur verið við
lýði er sú krafa sjálfsögð og eðlileg
að mínu mati. Ofþjónusta sérfræði-
lækna á einkastofum er hafa getað
fengið að komast inn á skurðstofur
sjúkrahúsa sem verktakar hefur
þýtt að ekki hefur tekist að manna
sjúkrahús, með þess konar skipu-
lagi, en barátta læknanna sjálfra
m.a. gegn tilvísanakerfi á sínum
tíma segir ákveðna sögu um erf-
iðleika í því fólgna að einfalda
skipulag og spara peninga.
Biðlistar skattborgara eftir t.d.
brjósklosaðgerðum sem eru til-
tölulega einfaldar aðgerðir, eru
allt of langar miðað við greiðslu
þeirra hinna sömu í þetta kerfi,
gegnum tíð og tíma sem og miðað
við vinnutap, og lyfjanotkun er
viðkomandi má þola allan biðtím-
ann. Með öðrum orðum sjúklingur
getur leitað sárþjáður á einkastofu
í viðtal við bæklunarlækni, sem
kannski ávísar verkjalyf, meðan
skurðstofan á hátæknisjúkrahús-
inu er lokuð, af því að það er hag-
kvæmara fyrir lækninn að tala og
skrifa út lyf á sinni einkastofu
heldur en að vinna á sjúkrahúsinu,
nema sem verktaki í hlutastarfi.
Hér er því ekki hægt að tala um
skilvirkt skipulag er þjónar fyrst
og fremst hagsmunum sjúklinga,
það mættu læknar ögn betur eygja
sýn á.
Þessu til viðbótar væri alveg
ágætt að athuga hvaða læknar
eiga hlut í hvaða lyfjafyrirtækjum,
og athuga einstakar lyfjaáskriftir
þeirra hinna sömu í samræmi við
það. Lyfjanotkun hefur nefnilega
aukist langt úr hófi fram, þar sem
oft og iðulega virðist ekki aðgætt
nægilega hvernig þetta lyf sam-
verkar með öðru með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum, á stundum. Lyf
eru nauðsynleg til þess að lækna
eða halda í skefjum sjúkdómum en
jafn ónauðsynleg þegar enginn
sjúkdómur fyrir lyfin er fyrir
hendi. Sjúklingar eru ráðvilltir í
frumskógi þar sem einn læknir
segir þetta en annar hitt og ný og
ný lyf eru prófuð jafnvel án rann-
sókna sem hægt væri að inna af
hendi á undirliggjandi sjúkdómum
innan veggja sjúkrahúsa, með
þeirri tækni sem þar er til staðar,
og fyrirbyggja það að sjúklingur
þurfi að vera eins konar tilrauna-
dýr lyfjaprófana, þar sem jafnvel
er ekki fyrir hendi að læknar gefi
gaum að fyrirliggandi frábending-
um við ávisun lyfja. Það þarf að
vera mögulegt að manna sjúkra-
húsin og draga saman í einka-
stofurekstri til þess arna. Það er
því nauðsynlegt að skoða allt heil-
brigðiskerfið í heild, og gæði þess
og annmarka mun betur en verið
hefur, og frumvarp það er ráð-
herra málaflokksins hefur nú lagt
fram þess efnis að einn aðili semji
um opinberar greiðslur til allra
lækna er stórþarft og hefði fyrir
löngu átt að vera komið fram í
ljósi þjóðarútgjalda vorra til mála-
flokksins.
Betra er seint en aldrei, og því
ber að fagna veg betra skipulags
til handa öllum sjúklingum á land-
inu.
Réttindi sjúklinga og gæði
heilbrigðisþjónustu
Guðrún María
Óskarsdóttir
Lyf
Lyf eru nauðsynleg til
þess að lækna eða halda í
skefjum sjúkdómum,
segja Guðrún María
Óskarsdóttir og Jórunn
Anna Sigurðardóttir, en
jafn ónauðsynleg þegar
enginn sjúkdómur fyrir
lyfin er fyrir hendi.
Höfundar eru stjórnarmenn
í Samtökunum Lífsvog.
Jórunn Anna
Sigurðardóttir
Laugavegur 68, sími 551 7015.
Chasmir trefill
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir
G
læ
si
le
g
a
r
g
ja
fa
vö
ru
r Skál
kr. 8.350
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.