Morgunblaðið - 18.12.2001, Síða 62
HESTAR
62 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Reiðfatnaður í
miklu úrvali frá
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
EINN fremsti fimireiðmaður
Þýskalands, Bent Branderup,
er væntanlegur til Íslands í
apríl á vegum Félags tamning-
manna og mun halda hér nám-
skeið 13. til 14. apríl nk. í reið-
höll Sörla í Hafnarfirði. Bent
þessi Branderup er raunar
danskur en af þýskum ættum
og starfar í Þýskalandi. Hefur
hann verið flokkaður sem bar-
okkreiðmaður þar sem mjög er
höfðað til barrokkstímans í
klæðaburði knapa á sýningum.
Eyjólfur Ísólfsson sem mun
annast undirbúning fyrir komu
kappans ásamt Atla Guð-
mundssyni sagði að mjög fáir
kæmust í reiðtíma til hans en
um væri að ræða einkatíma en
hann benti hinsvegar á að um
leið yrði boðið upp á áhorfsþátt-
töku og þar kæmust að fjöldi
manna. Ekki er ljóst enn hvað
muni kosta á námskeiðið en það
verður auglýst síðar.
Eyjólfur kvað mikinn feng í
að fá Bent Branderup hingað
því ekki væri neinum blöðum
um að fletta að þar færi einn
færasti fimireiðmaður Evrópu
og af honum færi mjög gott orð
sem kennari. Þess má geta að
Branderup hefur áður komið til
Íslands en hann var sumar-
langt við bústörf að Grjóteyri í
Kjós þá rétt ríflega tvítugur að
aldri. Sagði bóndinn þar Krist-
ján Finnsson að hann hefði þá
sýnt mikinn áhuga á hestum og
klæddist gjarnan fínum reið-
buxum og leðurreiðstígvélum.
Síðar fór hann til náms á mjög
góðan spænskan reiðskóla.
Barokk-
reiðmaður
kennir Ís-
lendingum
breytingar á efnistökum, felldir út
kaflar og nýir settir inn og nú er í rík-
um mæli notast við litaferninga í töfl-
um sem auðvelda mjög skilning á
erfðum lita.
Bókinni er skipt upp í sex meg-
inkafla og eru þrír síðustu áhuga-
verðastir enda þar fjallað um litina
og erfðir þeirra. Fyrst eru það al-
mennar reglur um erfðir lita, síðan
erfðir á einstökum litum og að síð-
ustu kafli sem kallast „Leikur að lit-
um“ þar sem tekin eru nokkur dæmi
um spurningar sem upp hafa komið
vegna erfða á litum. Í inngangsorð-
um höfundarins Stefáns Aðalsteins-
sonar kemur fram að eiginkona hans
Erla Jónsdóttir gætti hagsmuna leik-
manna og kom með ábendingar þeg-
ar henni fannst þurfa gleggra orða-
lag til að byrjendur í litaerfðafræði
ættu auðveldara með að skilja það
sem erfðafræðingurinn var að setja
fram. Þar hefur þeim hjónum tekist
prýðilega í samvinnunni. Það er
kannski helsti kostur bókarinnar
hversu vel efnið er fram sett og auð-
skiljanlegt, efni sem mjög auðveld-
lega getur orðið afar torvelt að skilja.
Áhugaverðir
folaldalitir
Án mynda væri bók eins og þessi
lítils virði. Nú eins og í fyrri bókinni
hefur Friðþjófur Þorkelsson borið
hitann og þungann af myndaöflun.
Það sem er líklega skemmtilegast við
myndir bókarinnar eru myndir af fol-
öldum sem Friðþjófur hefur tekið og
er þar sýndur bæði fæðingarlitur fol-
aldanna og síðan haustlitur þeirra.
Kemur þar glöggt í ljós að ekki er allt
sem sýnist á fyrstu dögunum eða vik-
unum í lífi folaldsins hvað litinn varð-
ar. Þá eru margar nokkuð athyglis-
verðar myndir af sérstökum litum
eins og leirljóslitföróttum hesti. Önn-
ur mynd af móvindóttum, skjóttum
hálfhjálmóttum hesti. Þá getur að
líta mynd af mósvindóttum hesti sem
er ekki alveg það sama og móvind-
óttur hestur. Ekki má svo gleyma
myndinni af móvindóttri litföróttri
hryssu. Þar sameinast tvö eftirsótt
litaafbrigði og ætti sú að teljast væn
til útflutnings ef marka má eftir-
spurnina.
Það sem helst mætti finna að er að
í nokkrum tilfellum hefði mátt tengja
myndir betur texta bókarinnar og
sömuleiðis að tengja betur saman
myndir af sömu folöldum í fæðingar-
og haustlitum.
Hér er á ferðinni áhugaverð bók
sem án efa kemur til með að styrkja
baráttu manna fyrir verndun þeirrar
fjölbreytni sem fyrirfinnst innan ís-
lenska hrossastofnsins. Hún hefur að
geyma aðgengilegan fróðleik fyrir
hestamenn sem eykur skilning
þeirra á erfðum lita og stuðlar meðal
annars að öruggari ættfærslu lit-
greiningar hrossa. Hún hefur að
geyma 105 ljósmyndir og sextán
teikningar sem tryggja hið mikla
gildi sem verkið hefur.
EKKI eru mörg ár liðin síðan ís-
lenskir hestamenn gerðu sér al-
mennt grein fyrir þeirri auðlegð sem
býr í litadýrð íslenska hrossastofns-
ins. Á tímabili virtist sem rauði, brúni
og jarpi liturinn
myndu útrýma
öðrum litum úr
stofninum. Þá
þótti nú ekki fínt
að ríða skjóttu, í
mesta lagi fyrir
krakka sem höfðu
gaman af slíkum
litum. Hver brúni
stóðhesturinn
kom fram á fætur
öðrum og hefði
illa getað farið ef ekkert hefði verið
að gert.
Vissulega fundust sérvitringar
sem vildu halda í hina og þessa sér-
kennilegu liti en það voru kannski
öðrum fremur útlendingarnir eða
með öðrum orðum kaupendurnir sem
opnuðu augu manna fyrir verðmæt-
unum sem fólust í fjölbreytileika lita.
Áhugi vaknar
á litafjölbreytni
Og nú er svo komið að mikil vakn-
ing hefur átt sér stað og mikill áhugi
hefur vaknað fyrir hrossalitum,
verndun og viðhaldi fjölbreytileik-
ans. Að sama skapi hefur áhugi á lita-
erfðum aukist og má því ætla að betr-
umbætt endurútgáfa bókarinnar
Íslenski hesturinn – litir og erfðir
eigi eftir að falla í góðan jarðveg.
Allnokkrar breytingar hafa nú
verið gerðar á útgáfunni og munar
þar sjálfsagt mestu um öskjuna sem
bókin og myndaspjöld voru höfð í. Nú
er málið einfaldað enda ljóst að þessi
mikla umgjörð var mistök. Nú er
þetta bara ein bók með öllum mynd-
unum á síðunum og fer vel á því.
Einnig hafa verið gerðar nokkrar
Liðsauki til verndar
litauðgi íslenska hestsins
Morgunblaðið/Valdimar
Friðþjófur Þorkelsson með ein-
um bleikálóttum en hann annað-
ist myndatökur fyrir bókina.
Íslenski hesturinn – litir og erfð-
ir er prýdd fjölda mynda, flestar
teknar af Friðþjófi Þorkelssyni.
BÆKUR
Hestar
Íslenski hesturinn – litir og erfðir
eftir Stefán Aðalsteinsson. Myndir tók
Friðþjófur Þorkelsson. Útgefandi Orms-
tunga. 155 bls.
Valdimar Kristinsson
Slettuskjótt eða hjálmótt, eins og farið er að kalla það, hefur verið mikið í umræðunni og meðal annars verið
stofnaður félagsskapur um þennan lit sem menn greinir á um hvort sé fagur eður ei.
Dr. Stefán
Aðalsteinsson
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is