Morgunblaðið - 18.12.2001, Síða 63
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 63
Skartgripaverslun - vinnustofa - Smáralind
Íslensk og ítölsk skartgripahönnun og -smíði
tískuskartgripir
Laugavegi
s. 511 4533
Kringlunni
s. 533 4533
Smárinn
s. 554 3960
Mikið úrval af Tískuskartgripum
Skemmtileg, fróðleg og fjörlega
skrifuð bók um forvitnilegt efni:
Í þessu síðara bindi endur-
minninga af 35 ára starfi í
utanríkisþjónustunni skýrir
dr. Hannes Jónsson frá kynn-
um sínum af innlendum og er-
lendum áhrifa- og valdamönn-
um, þegar hann var ambassad-
or hjá 18 ríkjum og 4 fjölþjóða-
og alþjóðastofnunum. Reifuð
er atburðarás mikilvægra al-
þjóðamála, greint frá fyrstu
opinberu heimsókn íslensks
utanríkisráðherra til Sovét-
ríkjanna og síðar forsætisráð-
herra; rakið er efni bréfs H. K.
Laxness til sendiherra um 7
ára móðgunartímabil hans við
Kremlverja vegna ritstuldar. Í
lokakaflanum um starfslok er
m.a. fjallað um Evrópumark-
aðsmálin og viðskilnaðinn við
utanríkisþjónustuna eftir 35
ára farsæl embættisstörf.
376 bls.
Muninn bókaútgáfa.
SENDIHERRA Á
SAGNABEKK II
Heimsreisa við
hagsmunagæslu
EITT mesta framfara- og upp-
gangsskeið á sviði reiðmennsku hefur
staðið yfir í nokkur ár og stendur enn.
Nýverið var gefið út af Reiðskóla
Reynis myndband sem er enn eitt
framlagið til þessa uppgangs og heitir
Vinna við hendi. Viðfangsefni Reynis
Aðalsteinssonar, sem verið hefur einn
af okkar fremstu reiðmönnum um
áratuga skeið, er taumvinna af ýmsu
tagi þar sem þjálfarinn stendur mis-
langt frá hestinum, fer eftir lengd
taumsins og því hvað verið er að gera
hverju sinni.
Á myndbandinu sýnir Reynir
nokkrar æfingar af þessum toga, út-
skýrir tilgang þeirra og eðli og að síð-
ustu fer hann á bak hrossunum og
sýnir þau í reið. Fer vel á því að sýna
það sem kalla má markmiðið með æf-
ingunum. Allnokkuð þróunarferli hef-
ur átt sér stað hér á landi í taum-
hringsvinnu síðustu 15 árin eða svo og
er nú svo komið að hægt sé að tala um
afar skilvirkar aðferðir og gagnlegar.
Talsvert hefur færst í vöxt að tamn-
ingamenn vinni að hluta til á öllum
stigum þjálfunar og tamningar á
jörðu niðri eða jafnfætis hestinum
eins og Reynir kallar það.
Á myndbandinu segir Reynir að
kostir þess að vinna með hesta á þess-
um nótum séu meðal annars þeir að
þjálfarinn sér hestinn allan og við-
brögð hans við bendingum sem hon-
um eru gefnar. Hann segir að hestar
verði forvitnir, læri að treysta mann-
inum sem fær um leið betra færi á að
vinna sér sterkari sess sem leiðtoginn
í leiknum. Þá er það ótvíræður kostur
að hesturinn er ekki truflaður af
ásetu eða þyngd knapans og sömu-
leiðis er minni hætta á að hesturinn
verði truflaður af óstöðugri taum-
hendi knapa til dæmis þegar setið er
brokk. Af þessu leiðir að hesturinn á
mun auðveldara með að finna og
halda jafnvægi í þeim æfingum sem
hann lærir og framkvæmir.
Tilgangur með þeim æfingum sem
Reynir kynnir eru margþættar og má
þar nefna að kenna hrossum eða
venja þau við taumsamband og jafna
það, jafna misstyrk í spyrnu afturfóta
sérstaklega, fá hest til að ganga sam-
spora, undirbúa hestinn fyrir hliðar-
hvetjandi fót með framfótarsnúningi
og sömuleiðis að undirbúa hann fyrir
hliðargang eins og sniðgang og kross-
gang. Þá sýnir hann hvernig er gott
að kenna hesti að ganga afturábak og
verður honum tíðrætt um að fá hest-
inn til að fella lenda og kreppa liði í
afturparti. Þær æfingar sem Reynir
sýnir á myndbandinu eiga fullt erindi
við hesta á öllum stigum tamningar
og þjálfunar. Þótt þessar æfingar séu
í sjálfu sér ekki markmið eða takmark
í þjálfun íslenskra hesta er ekki að efa
að þær geta fært knapanum mikla
ánægju því mjög skemmtilegt er að
upplifa skilning og vinnugleði hests-
ins á þennan máta. Auk þess geta slík
vinnubrögð aukið mjög skilning og
þroska knapans á því hvernig best er
að nálgast hestinn, fá hann til að skilja
og skilja hann sömuleiðis sjálfur.
Eitt og annað vekur athygli manns
á myndbandinu og má þar nefna að í
einu tilfellinu notar Reynir stangamél
og er það glöggt vitni um breytta
tíma. Hér áður fyrr voru stangir all-
gjört tabú í öllu sem vék að fimiþjálf-
un hesta og svona föndri eins og getur
að líta á spólunni. Nú þykir í góðu lagi
að ríða fimi við stangamél en eftir sem
áður eru slíkur búnaður vandmeð-
farnari en hringamélin, því skulu
menn ekki gleyma.
Fagmennska, næmni
og tilfinning
Handbragð Reynis og nálgun við
hrossin á myndbandinu er að sjálf-
sögðu afar fagmannleg, allt gert af
næmni og tilfinningu en þó laust við
allan tepruskap. Hann sér sjálfur um
lestur texta og ferst það prýðilega, er
skýrmæltur og gengur mjög ákveðið
til verksins, nokkuð hraðmæltur á
stöku stað en skilar þó öllu vel. Má
ætla að margir verði að spóla til baka
og endurtaka ýmislegt af því sem á
góma ber en ekki þó endilega vegna
þess hve Reynir er ákveðinn í texta-
flutningi heldur vegna þess að mörg
orð og orðatiltæki gætu verið mörg-
um framandi. Nafn spólunnar Vinna
við hendi stendur örlítið í manni, oft-
ast hefur verið talað um vinnu í hendi
en fræðingarnir hafa kosið að kalla
þetta vinnu við hendi og þarf maður
þá bara að venjast því.
Þess má geta að í því þróunarferli
sem átt hefur sér stað í reiðmennsk-
unni hefur farið mikið púður þeirra
sem ráðið hafa ferðinni í að finna
réttu orðin á býsna margar gerðir og
hugtök. En það er fleira sem kallar
vafalaust á spólun fram og til baka og
má þar nefna útfærslur æfinganna.
Gera má ráð fyrir að
áhugasamir reiðmenn
muni velta sér upp úr
þessari spólu fram og til
baka, horfa, hlusta og
prófa og svo horfa aftur og
prófa.
Óhætt er að segja að
þetta myndband sé fjöl-
skylduafurð því auk Reyn-
is sjálfs sem gerði handrit
og stjórnaði upptökum,
koma þrjú barna hans
þarna við sögu. Einar, sem
væntanlega er nemandi í
Kvikmyndaskóla Íslands,
sá um kvikmyndun og
klipping með aðstoð Reyn-
is bróður síns og Soffía
systir þeirra hafði svo um-
sjón með öllu heila klabb-
inu.
Íslensk reiðlist
á hærra plan
Myndbandið fjallar um
mjög áhugaverða hluti, gengið hreint
til verks án allra óþarfa málalenginga.
Efnið kemst vel til skila og ættu allir
sem á annað borð hafa áhuga á þjálf-
un og uppbyggingu hrossa að hafa
gagn af því. Hiklaust má nota orðið
hvalreki á fjörur reiðmanna um út-
gáfu þess ekki ósvipað og um mynd-
band Benedikts Líndal frá síðasta ári
sem fjallaði um frumtamningu en var
að vísu lengra og ítarlegra. Nú hafa
verið gefnar út tvær myndbandsspól-
ur á Íslandi sem telja má afar vel
heppnaðar sem kennslu og leiðbein-
ingargögn á sviði tamninga og þjálf-
unar íslenskra hrossa og er það vel.
Íslensk reiðlist er loksins komin á það
plan að hægt er að setja hlutina fram
á skipulegan og auðskiljanlegan máta
þannig að flestir geti verið með á nót-
unum og náð betri árangri í glímunni
við að bæta hest sinn og fá af honum
meiri yndisarð. Nýjasta afurð Reið-
skóla Reynis leggur þar drjúgt á vog-
arskálarnar.
Hvalreki á fjörur
reiðmanna
Morgunblaðið/Valdimar
Reynir Aðalsteinsson á Högna frá Gerði á
Kaldármelum þar sem hann hefur marga
hildina háð en Högni kemur einmitt fram í
kennslumyndbandinu.
Valdimar Kristinsson
MYNDBÖND
Hestar
VINNA VIÐ HENDI
Útgefandi Reiðskóli Reynis,
lengd 30 mínútur.