Morgunblaðið - 18.12.2001, Page 73
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 73
Undir sama þaki
(Two Family House)
Drama
Bandaríkin, 2000. Myndform VHS. Bönn-
uð innan 16 ára. (104 mín.) Leikstjórn og
handrit: Raymond De Felitta. Aðal-
hlutverk: Michael Rispoli, Kelly Mac-
Donald og Katherine Narducci.
Í þessari kvikmynd, sem vann til
áhorfendaverðlauna á Sundance-
kvikmyndahátíðinni í fyrra, er fjallað
um brostnar vonir og hina fallvöltu
drauma hvers manns. Þar segir frá
Buddy, góðlegum en dálítið sein-
heppnum manni
með athafna-
drauma sem nagar
sig í handarbakið
yfir því að hafa lát-
ið stóra tækifærið í
lífinu fram hjá sér
fara. Hann er þó
ekki af baki dottinn
og þegar hann
kynnist ungri
stúlku sem trúir á hann fer ýmislegt
að breytast til batnaðar.
Undir sama þaki er hæglát mynd
með stórt hjarta. Það er fyrst og
fremst handrit myndarinnar sem er
mikil listasmíð, og birtist það ekki
síst í nýstárlegu hlutverki sögu-
manns. Óþekktir leikararnir standa
sig allir með prýði og óhætt er að
segja að leikstjórinn og handritshöf-
undurinn Raymond De Felitta
kveðji sér hljóðs með þessari mynd.
Að lokum vaknar engu að síður sú
spurning hvers vegna Kvikmynda-
eftirlitið hafi séð ástæðu til að banna
þessa ágætu og ljúfsáru kvikmynd
innan 16 ára. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Uppreisn
hvers-
dagsins
Dagbók kynlífsfíkils
(Diary of a Sex Addict)
Drama
Bandaríkin 2001. Skífan VHS. Bönnuð
innan 16 ára. (93 mín.) Leikstjórn Jos-
eph Bruntman. Aðalhlutverk Michael
Des Barres, Nastassja Kinski, Rosanne
Arquette.
KYNLÍFSFÍKN ku vera orðin
viðurkenndur sjúkdómur og
skemmst er að minnast þess er sjálf-
ur Michael Douglas sá sig knúinn til
þess að fara í meðferð vegna þessa.
Dagbók kynlífsfíkils fjallar eins og
nafnið gefur til kynna um þungt
haldinn kynlífsfíkil sem er á barmi
sturlunar. Fíkillinn er kokkur, vel
stæður og vinsæll, hamingjusamlega
giftur og stolltur faðir. En undir
sléttu og felldu yf-
irborðinu á hann í
glataðri rimmu við
draug girndarinnar
og eins og hann
segir sjálfur þá líð-
ur honum illa ef
hann stundar ekki
kynlíf í sífellu. Vit-
anlega getur eigin-
konan ekki annað
eftirspurninni ein þannig að hann
leitar ítrekað út fyrir hjónabandið og
því meiri spenna og ögrun, því minni
eru þjáningarnar.
Hér er á ferð allsérstök mynd.
Hún tekur vissulega á athyglisverðu
efni og framsetningarmátinn, við-
vaningsleg stafræn kvikmyndataka í
ódýrum stíl djarfra mynda, meira að
segja vel til fundinn.
Það er því hin mesta synd að yf-
irmáta tilgerðarlegur leikur og
handrit skuli skemma svo fyrir (Arq-
uette á heimavelli). Skarphéðinn Guðmundsson
Með kynlíf
á heilanum
FÉLAGAR í Öðlingaklúbbnum
komu galvaskir saman á laug-
ardaginn á Kringlukránni, rifjuðu
upp liðnar stundir og slógu á létta
strengi.
Margt bar á góma. Pétur Pét-
ursson, fyrrverandi þulur, var sem
oft áður hrókur alls fagnaðar og
veitti örugga leiðsögn um slóðir
minninganna og tónelskir félagar
tóku lagið við góðar undirtektir.
Dixielandhljómsveit Árna Ísleifs-
sonar steig þá á svið og
sýndi að þar á bæ hafa
menn engu gleymt er
rennt var áreynslulítið í
nokkrar af ógleyman-
legum perlum djassins.
Öðlingar
skrafa saman
Morgunblaðið/Ásdís
Öðlingarnir
hlýddu af áhuga á
fortíðarferðasögu
gamla þularins.