Morgunblaðið - 16.01.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.01.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isBirkir Ívar heima í viðbragðsstöðu /B1 Óþekktur Spánverji sló Hewitt út /B4 4 SÍÐUR Sérblöð í dag FRÆÐSLURÁÐ samþykkti á fundi á mánudag að beina því til borgarráðs að fela þriggja manna nefnd, skipaðri fulltrúum úr borgarráði og fræðslu- ráði, að gera tillögu um fyrirkomulag tónlistarnáms í borginni og semja reglur um skiptingu fjármagns til tónlistarskóla. Þá lagði Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs, fram á fundinum tillögu þess efnis að samþykkja að veita Tónskóla Hörpunnar einnar milljónar króna styrk til að gera tilraun um breytta kennsluhætti fyrir börn á 1. og 2. ári í hljóð- færaleik. Afgreiðslu tillögunnar var frestað. Kæra mismunun til tónlistarnáms Forráðamenn Tónskóla Hörpunnar hafa ítrekað sótt um styrk frá borginni til reksturs skólans, án árangurs. Í fréttatilkynningu frá tónlistarskólanum kemur fram að nú hafa foreldrar eins barns í skól- anum lagt fram kæru hjá félagsmálaráðuneytinu, vegna þeirrar mismununar sem viðgengst hjá Reykjavíkurborg gagnvart börnum í tónlistarnámi í Reykjavík. Að sögn Sigrúnar Birgisdóttur, móður stúlkunn- ar sem um ræðir, höfðu þau, foreldrarnir, haft hug á því að koma barninu inn í tónlistarskóla í sínu hverfi, en það reyndist ómögulegt því biðlistar voru langir. „Skólinn hérna í hverfinu fær hins vegar rekstrarstyrki frá borginni og einkatímar, í klukku- tíma í senn, einu sinni í viku, hefðu kostað 55 þús- und fyrir allt skólaárið þar sem námið er niðurgreitt af Reykjavíkurborg. Hins vegar kostar námið í Tónskóla Hörpunnar, sem er í öðru hverfi, 83.500 krónur á ári og þá er miðað við að tveimur nem- endum sé kennt samtímis, því sá skóli fær enga nið- urgreiðslu.“ Sigrún segir málið af tvennum toga. „Annars vegar þarf að jafna aðstöðu til tónlistar- náms og hins vegar að jafna rekstrarmöguleika tón- listarskólanna.“ Sigrún segir það ekki möguleika að flytja dóttur sína í tónlistarskóla hverfisins ef hún fengi þar pláss, þar sem hún sé einhverf og þoli illa breytingar. Foreldrarnir fara fram á að ráðuneytið úrskurði í málinu og jafnframt gera þau þá kröfu að félags- málaráðherra víki sæti þar sem þau telja hann vera vanhæfan vegna tengsla sinna við Sigrúnu Magn- úsdóttur, formann Fræðsluráðs Reykjavíkur. „Ég mun að sjálfsögðu verða við þeirri kröfu að ég víki við úrskurð þessa máls,“ sagði Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra í samtali við Morgun- blaðið. „Innan skamms verður því tilnefndur nýr fé- lagsmálaráðherra til að fara með málið. Kæran verður tekin til afgreiðslu svo fljótt sem verða má.“ Páll segist kunnugur vanda tónlistarskólanna. „Það er nefnd að störfum sem er að fara yfir verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem um sam- starfsverkefni er að ræða. Hún á að gera tillögur um hvernig færa á verkefni til og var fengið það við- bótarhlutverk að fara yfir tónlistarskólamálin.“ Samþykkt í Fræðsluráði að skipa nefnd til að fjalla um tónlistarnám Á að tryggja skilvirka nýtingu á fjármunum RÚMLEGA tvítugur bandarískur varnarliðsmaður lést þegar pallbíll sem hann ók fór út af Grindavíkur- vegi, skammt norðan við veginn að Bláa lóninu, á fimmta tímanum í fyrrinótt. Talið er að bíllinn hafi oltið 2–3 veltur og kastaðist maðurinn við það út úr bílnum. Hann var látinn þegar lögreglan í Keflavík kom á vettvang. Bíllinn er gjörónýtur. Annar varn- arliðsmaður sem var farþegi í bíln- um skrámaðist á höfði við árekstur- inn. Mennirnir, sem eru báðir í her- lögreglunni, voru á leið frá Keflavík- urflugvelli að fjarskiptastöð varnar- liðsins skammt frá Grindavík. Að sögn lögreglu er talið líklegt að öku- maðurinn hafi misst stjórn á bílnum þegar hann ók yfir hálkublett. Niðamyrkur var þegar slysið varð. Í birtingu hófu herlögreglumenn af Keflavíkurflugvelli rannsókn á slysinu, jafnhliða því að lögreglan í Keflavík framkvæmdi sína vett- vangsrannsókn. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Pallbíllinn fór 2–3 veltur og er gjörónýtur eftir slysið. Varnarliðs- maður lést í umferðarslysi FYRSTU konurnar sem hófu nám í Stóriðjuskóla ÍSAL útskrifuðust þaðan í gær. Konurnar, sem heita Sigríður Eiríksdóttir, Anna Jóna Ár- mannsdóttir og Eyrún Ragnars- dóttir, létu vel af skólanum þegar Morgunblaðið hafði samband við þær í gær, en námið tekur þrjár ann- ir. Anna og Eyrún starfa í steypu- skálanum í álverinu í Straumsvík en Sigríður starfar í kerskálanum. Alls útskrifuðust sextán starfs- menn ÍSAL í gær og hafa 75 starfs- menn ÍSAL lokið námi við skólann. Þær Sigríður, Anna og Eyrún segja að fáar konur vinni í verka- mannavinnu í álverinu í Straumsvík en skv. fréttatilkynningu frá ÍSAL eru fimm konur til viðbótar við nám í Stóriðjuskólanum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrstu konurnar sem brautskráðust frá Stóriðjuskólanum, f.v. Sigríður Eiríksdóttir, Anna Jóna Ármannsdóttir og Eyrún Ragnarsdóttir. Fyrstu kon- urnar útskrif- ast frá Stór- iðjuskólanum LÍFTÆKNIFYRIRTÆKIÐ Prok- aria hefur lokið við að raðgreina allt erfðamengi áður óþekktrar hvera- bakteríu og fundið í henni yfir 1.500 ný gen. Bakterían framleiðir ensím sem kunna að þola háan hita en eru jafnframt virk við lágt hitastig og ensím með slíka eiginleika má nýta við ýmsa iðnaðarferla, t.d. í mat- væla- og fóðuriðnaði, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Prok- aria. Bakterían var einangruð í gufu- baðinu á Jarðbaðshólum við Mývatn og er latneskt heiti hennar, Geothermus vaporicella, dregið af fundarstaðnum. Þessi nýfundna baktería vex við sýrustig á bilinu 5,6-9,1 og við hitastig á bilinu 37-72 gráður, en það er eitt breiðasta vaxtarsvið bakteríu sem þekkist í dag. Þá sýnir bakterían einungis 86% skyldleika við nánasta þekkta ættingja sinn. Fundist hafa meira en 1.500 ný gen í genamengi bakt- eríunnar og þar af sýna 1.100 sam- svörun við þekkt gen. Ensím fundin sem sundra ávana- og fíkniefnum Geothermus vaporicella flokkast til nýrrar fylkingar baktería sem nefnist Thermomicrobia, en þekktar bakteríufylkingar eru nú alls 23. Þó að bakteríur innan fylkingarinnar finnist víða í náttúrunni hafa ein- ungis tvær aðrar tegundir innan fylkingarinnar verið ræktaðar og hvorug þeirra verið raðgreind. Nýja bakterían getur nýtt sér fjölbreyti- leg næringarefni sem bendir til þess að hún hafi yfir fjölbreyttum en- símum að ráða og bakterían inni- heldur einnig óvenjuleg fituefni. Breitt vaxtarsvið bakteríunnar gefur til kynna að ensím sem hún framleiðir kunni að þola háan hita en séu jafnframt virk við lágt hita- stig. Ensím með slíka eiginleika má nýta við ýmsa iðnaðarferla, en með- al ensíma sem fundust í bakteríunni eru pólýketíð syntasar sem nýtast í lyfjaiðnaði, en einnig amýlasi, xyl- anasi, kítinasi, pullulanasi og margir próteasar sem nýta má m.a. í sterkjuiðnaði og öðrum matvælaiðn- aði. Þá þykir forvitnilegt að finna í bakteríunni mörg ensím sem sundra ýmsum ávana- og fíkniefnum, s.s. morfíni, nikótíni og kókaíni, segir í fréttatilkynningu Prokaria. Prokaria lýkur raðgreiningu á erfðamengi nýrrar hverabakteríu Framleiðir hitaþolin en- sím sem nota má í iðnaði Á FUNDI í Félagi ísl. heimilislækna í gær var félagsmönnum kynnt stað- an í samskiptum félagsins og heil- brigðisyfirvalda vegna nýlegrar reglugerðar um greiðslur fyrir lækn- isvottorð. Þórir B. Kolbeinsson, for- maður FÍH, tjáði Morgunblaðinu í gær að samþykkt hefði verið ályktun þar sem reglugerðinni er mótmælt, svo og því að heilbrigðisráðherra skuli hafa sett hana án samráðs við félagið. Hann sagði félagsmenn líka hafa efasemdir um að ráðherra hefði haft lagaheimild til þessara breyt- inga sem snertu kjör lækna. Í reglugerðinni er kveðið á um að greiðslur til lækna vegna vottorða skuli framvegis renna til heilsu- gæslustöðva. Segir Þórir fé- lagsmenn túlka reglugerðina sem aðför að kjörum heilsugæslulækna enda sé um kjaraskerðingu að ræða. Segir hann það skoðun félagsmanna að kjaranefnd, sem mæla á fyrir um kjör heilsugæslulækna, hefði fyrst átt að ákvarða kjörin og síðan hefði mátt breyta reglugerðum. Þórir sagði að megn óánægja hefði komið fram á fundinum um þennan gerning heilbrigðisráðherra. Þórir segir að Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra hafi beint þeim tilmælum til félagsins á fundi í fyrradag að það uni við hana þar til kjaranefnd hefur kveðið upp úrskurð sinn. Sagði Þórir að þeim tilmælum hefði verið beint til kjaranefndar frá ráðherra að hún miðaði við að kjör lækna yrðu bætt frá því reglugerðin tók gildi um síð- ustu áramót. Heilsugæslulæknar mótmæla Telja vafa leika á lagaheimild ráðherra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.