Morgunblaðið - 16.01.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DRENGUR á þriðja ári, sem slasað-
ist í bílslysinu á Kísilvegi síðastliðið
föstudagskvöld, var útskrifaður af
gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut í gær.
Maður sem slasaðist í bílslysinu í
Kömbunum sama dag er enn á gjör-
gæsludeildinni við Hringbraut. Líðan
hans er góð að sögn læknis og verður
hann undir eftirliti næstu daga.
Þá er maður sem slasaðist í bílslys-
inu í Kömbunum á hægum batavegi á
gjörgæsludeild Landspítalans í Foss-
vogi. Hann er þó enn tengdur við önd-
unarvél.
Kominn af
gjörgæsludeild
ALLS bárust 42 umsóknir um stöðu
forstjóra Póst- og fjarskiptastofnun-
ar til samgönguráðuneytisins. Af
þessum 42 umsóknum barst 41 um-
sókn frá körlum en Herdís Þorgeirs-
dóttir, þjóðréttarfræðingur, sótti ein
kvenna um starfið.
42 sóttu um
stöðu forstjóra
GRUNUR er um að brotið sé á erlendu verkafólki
sem starfar í fyrirtækinu Flúðasveppum á Flúðum.
Bæði Vinnumálastofnun og Alþýðusamband Ís-
lands (ASÍ) hafa nú málið til skoðunar.
Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ, sagðist
hafa upplýsingar um starfs- og launakjör starfs-
manna fyrirtækisins sem gæfu tilefni til að ætla að
þeir njóti ekki kjara samkvæmt ákvæðum kjara- og
ráðningasamninga sem fylgja atvinnuleyfi þeirra.
Gögnin sem um ræðir eru afrit af atvinnuleyfisum-
sóknum og ráðningasamningum sem þeim fylgja
auk launaseðla frá hluta starfsmannanna. Með því
að bera þessi gögn saman hafi að sögn Halldórs
komið í ljós að ósamræmis gætti.
„Það lítur út fyrir að fyrirtækið hafi ráðið fólkið í
fast starf samkvæmt ráðningasamningi, en síðan
virðast kjörin ráðast af störfum sem greitt er tíma-
kaup fyrir. Þannig að starfsfólkið er ekki að njóta
fullra launa samkvæmt kjarasamningum.“
Halldór segir málið til að byrja með í höndum
Verkalýðsfélagsins Bárunnar Þórs á Selfossi og
mun ASÍ veita þá aðstoð sem til þarf. „Ef grunur
okkar reynist réttur verður þess krafist að kjör
starfsmanna fyrirtækisins verði leiðrétt í samræmi
við það sem þeir eiga rétt til. Fyrirtækið verður
einnig að undirgangast það að greiða síðan áfram
þau kjör sem lög og kjarasamningar gera ráð fyr-
ir.“
Vinnumálastofnun mun kanna
atvinnuleyfi starfsmanna
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar,
segir að fyrir um viku hafi stofnuninni borist fyr-
irspurnir frá Verkalýðsfélaginu Bárunni Þór um að
í fyrirtækinu kynni að starfa fólk sem væri ekki í
fullu starfi og ynni önnur störf en atvinnuleyfi þess
hljóðaði upp á. „Við erum núna að fara yfir þetta
mál, hvenær fyrirtækið fékk útgefin atvinnuleyfi
og hversu mörg.“
Gissur segir að ef í ljós komi að um ólöglegt at-
hæfi sé að ræða komi til greina að Vinnumálastofn-
un og ASÍ taki höndum saman um rannsókn máls-
ins en það sé nú ekki gert með formlegum hætti.
„Ef það er rétt að brotinn hafi verið kjarasamn-
ingur og ekki greidd laun í samræmi við hann, þá er
eðlilegt að verkalýðsfélagið grennslist fyrir um
þann hluta. Ef þarna er um að ræða einstaklinga án
atvinnuleyfis, eða verið er að brjóta lögin um at-
vinnuréttindi að öðru leyti, þá munum við ganga í
það mál.“
Heiða Gestsdóttir, lögfræðingur hjá Vinnumála-
stofnun, sagði að þar sem málið væri frekar nýtil-
komið hjá stofnuninni væri engar frekari upplýs-
ingar að hafa að svo stöddu. Málið væri í vinnslu hjá
stofnuninni. „Ef um er að ræða útlendinga sem eru
að vinna án atvinnuleyfa er þetta orðið lögreglu-
mál. En ef um er að ræða brot á samningum snýr
málið fyrst og fremst að verkalýðsfélögunum að
innheimta eða leiðrétta.“
Kristján Jónsson, formaður Verkalýðsfélagsins
Bárunnar Þórs á Selfossi, vildi ekki tjá sig um mál-
ið að svo stöddu. Ekki náðist í eiganda Flúðasveppa
í gær vegna málsins.
Grunur um að brotið
sé á erlendu verkafólki
GUÐNI Ágústsson landbún-
aðarráðherra opnaði í gær nýjan
vef íslensks landbúnaðar, landbu-
nadur.is Á vefnum verður safnað
saman í einn stað upplýsingum um
íslenskan landbúnað og er mark-
miðið að auðvelda miðlun og öflun
upplýsinga sem snerta íslenskan
landbúnað.
Að vefnum standa Bændasamtök
Íslands, Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri, Rannsóknastofnun
landbúnaðarins auk Lífeyrissjóðs
bænda, Aðfangaeftirlitsins og Yf-
irkjötmats ríkisins en Hóp-
vinnukerfi sáu um hönnun og upp-
setningu vefjarins. Fleiri aðilar
innan landbúnaðarins eru að und-
irbúa tengingu við vefinn á næst-
unni
Landbunadur.is er eins konar yf-
irvefur yfir vefjum þessara sex að-
ila og er virk tenging þar á milli
þannig að landbunadur.is dregur
saman upplýsingar af hinum vefj-
unum og menn geta því haft aðgang
að öllum upplýsingum á einum stað.
Á vefnum er sérstök dagbók um
alla fundi og ráðstefnur sem snerta
landbúnaðinn. Almennir notendur
síðnanna geta sett inn efni á vefinn
með einfaldri ritvinnslu og á það
jafnt við um fréttir, fræðigreinar,
viðburði í dagbók og smáauglýs-
ingar. Þá er á landbunadur.is mjög
stórt greinasafn með fleiri en eitt
þúsund greinum og niðurstöðum úr
rannsóknum, auk fréttasíðu.
Vefurinn er hugsaður sem vett-
vangur þar sem bændur, nem-
endur, fræðimenn og starfsmenn
landbúnaðarstofnana fá tækifæri til
þess að miðla upplýsingum og
þekkingu sinni á einum stað.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra opnar vefinn en Þorsteinn Tóm-
asson, forstjóri Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins, fylgist með.
Nýr vefur um ís-
lenskan landbúnað
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands,
ASÍ, sendi í gær frá sér eftirfar-
andi ályktun í tilefni af hækkun
neysluvísitölunnar:
„Alþýðusamband Íslands lýsir
ótta sínum vegna þeirrar miklu
hækkunar sem varð á vísitölu
neysluverðs nú í byrjun janúar.
Þessi hækkun er langt umfram það
sem búast mátti við og getur gert
að engu þau áform sem fólust í þrí-
hliða samkomulaginu sem gert var
13. desember síðastliðinn. Ljóst er
að forsvarsmenn ríkisstjórnar,
sveitarfélaga og fyrirtækja í versl-
un og þjónustu verða að gjörbreyta
viðhorfum sínum til hækkana vöru
og þjónustu, ef markmið aðila
vinnumarkaðar og stjórnvalda um
verðbólgu í maí á að nást.
ASÍ bæði krefst þess og hvetur
fyrirtæki í verslun og þjónustu til
að sjá til þess að hækkun á gengi
íslensku krónunnar skili sér bæði
hratt og vel í verðlagi til neytenda.
Þessir aðilar voru þátttakendur í
gerð samkomulagsins 13. desem-
ber. Þá voru allir aðilar sammála
um að það væri algjört forgangs-
verkefni að lækka verðbólgu til
frambúðar og tryggja stöðugleika í
efnahagslífinu. Það hefur ekki
breyst frá sjónarhóli verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Um leið og gerðar eru kröfur til
fyrirtækja um að þau haldi aftur af
sér í verðhækkunum, telur ASÍ
einsýnt að opinberir aðilar, ríkis-
stjórn og sveitarfélög, hafi gengið
of langt í hækkunum á þjónustu-
gjöldum, lyfjum og fasteignagjöld-
um í byrjun janúar. Tæplega helm-
ing verðhækkana í janúar má rekja
til ákvarðana þessara aðila. Al-
þýðusambandið telur það skyldu
ríkis og sveitarfélaga að endur-
skoða þessar ákvarðanir sínar,
þannig að hægt verði að endur-
heimta stöðugleika í efnahagslífinu
eins og stefnt var að.“
ASÍ ályktar um verðlagsmálin
Ríki og sveit-
arfélög endur-
skoði ákvarð-
anir sínar
upplýsingafulltrúa Flugmálastjórnar,
boðaði einn flugumferðarstjóri forföll
í flugturninum í Reykjavík en hafði
það engin áhrif á stjórnun innan-
landsflugsins. Önnur forföll höfðu
ekki verið boðuð fyrir komandi kvöld-
og næturvakt.
Sökum yfirvinnubannsins frestast
YFIRVINNUBANN flugumferðar-
stjóra, sem tók gildi klukkan sjö á
mánudagsmorgun hafði engin áhrif á
flugumferð í fyrrakvöld, hvorki í inn-
anlandsflugi eða millilandaflugi, sam-
kvæmt upplýsingum frá Flugmála-
stjórn.
Að sögn Heimis Más Péturssonar,
undirbúningur á því að taka nýtt flug-
gagnakerfi í notkun, sem ætlað er að
leysa gamla kerfið af hólmi í síðasta
lagi í vor. Bannið er í gildi þar til að
kjarasamningar hafa tekist við flug-
umferðarstjóra og því óvíst hvenær
tekst að taka kerfið í notkun, sem hef-
ur verið í undirbúningi í mörg ár.
Yfirvinnubann flugumferðarstjóra
Hefur engin áhrif á flugið
ÓVENJUMIKIL aðsókn er að
hjónanámskeiðum sem séra Þór-
hallur Heimisson í Hafnarfjarð-
arkirkju hefur verið með und-
anfarin ár og varð upppantað í
námskeiðin hjá honum fram á vor
á einum degi.
Þórhallur, sem verið hefur
með þessi námskeið í sex ár,
sagði að aðsóknin hefði aldrei áð-
ur verið jafnmikil og nú og öll
sæti á námskeiðunum hefðu fyllst
á einum degi. Námskeiðin hefðu
verið auglýst í Morgunblaðinu á
laugardaginn var. Skráning hefði
hafist á mánudagsmorgni og um
kvöldið hefði verið orðið fullt á
námskeiðin.
Ekki hægt að bæta
við námskeiðum
Þórhallur sagði að samanlagt
væru það um 150 pör sem kæm-
ust á námskeiðin. Alltaf hefði ver-
ið fullt á þau þann tíma sem hann
hefði haldið þau, en það hefði allt-
af tekið talsverðan tíma að skrá
fólk inn, nokkrar vikur jafnvel.
Viðbrögðin hefðu aldrei áður ver-
ið eins og nú.
Þórhallur sagðist aðspurður
ekki kunna neina skýringu á
þessum mikla áhuga á hjóna-
námskeiðunum nú. Það væri
áfram hringt mjög mikið og þau
hefðu þurft að vísa fólki frá í allan
gærdag, en því miður væri ekki
hægt að bæta við námskeiðum.
Á námskeiðunum er farið yfir
hjónaband, sambúð og fjöl-
skyldumál. Þórhallur sagði að
þau hefðu líkt þessu við sjálf-
styrkingarnámskeið fyrir hjón.
Þau hefðu ekki einhvern stóra-
sannleik fram að færa á nám-
skeiðunum, heldur færi fólk heim
með þessar hugmyndir þeirra og
ynni áfram með þær þar.
Mikil aðsókn að
hjónanámskeiðum
Upppant-
að á ein-
um degi
♦ ♦ ♦
ÚTLENDINGAR sem hljóta refsi-
dóma fyrir alvarleg fíkniefnalaga-
brot á Íslandi afplána að jafnaði að-
eins helming refsitímans en
Íslendingar afplána að öllu jöfnu 2/3.
Þetta á við um þá útlendinga sem
Útlendingaeftirlitið vísar úr landi
áður en afplánun lýkur.
Þorsteinn A. Jónsson, forstjóri
Fangelsismálastofnunar segir að
forsendan fyrir þessu sé sú að talið
er að útlendingarnir afpláni dóma
við lakari kjör en Íslendingar. Þeir
séu m.a. á öðru menningarsvæði og
eigi við tungumálaerfiðleika að
stríða. Þá fá þeir ekki dagsleyfi frá
afplánun líkt og Íslendingar og mun
færri heimsóknir. „Þeir geta ekki í
eins ríkum mæli nýtt sér réttindi
fanga eins og Íslendingar,“ segir
Þorsteinn.
Útlendingar sem hafa nýverið
dæmdir fyrir önnur brot, s.s. inn-
brot, hafa afplánað helming refsitím-
ans, líkt og Íslendingar.
Níu útlendingar afplána nú refsi-
dóma á Íslandi og fjórir sitja í gæslu-
varðhaldi.
Útlendingar af-
plána helming
refsitímans
Alvarleg fíkniefnalagabrot