Morgunblaðið - 16.01.2002, Síða 11

Morgunblaðið - 16.01.2002, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 11 VIÐRÆÐUNEFND þriggja stjórn- málaflokka um framboð undir merkjum Reykjavíkurlistans í borg- arstjórnarkosningunum lauk ekki störfum um helgina eins og að var stefnt. Enn á eftir að ganga frá nokkrum atriðum varðandi skipt- ingu sæta á framboðslista og ann- arra embætta og fyrr en samkomu- lag um þau liggur fyrir munu flokkarnir þrír, þ.e. Framsóknar- flokkur, Samfylkingin og Vinstri hreyfingin – grænt framboð, ekki taka formlega og endanlega afstöðu til sameiginlegs framboðs. Að sögn Guðjóns Ólafs Jónssonar lögmanns, sem leiðir viðræður um framboð R-listans af hálfu Fram- sóknarflokksins, á enn eftir að hnýta nokkra lausa enda og stendur til að funda um þau mál í vikunni. Kvaðst Guðjón Ólafur eiga von á því að við- ræðunefndin skili af sér um eða eftir næstu helgi. Allt enn opið, segir formaður Reykjavíkurfélags VG Sigríður Stefánsdóttir, formaður Reykjavíkurfélags VG, segir hins vegar að enn sé allt opið varðandi þátttöku í framboðinu af hálfu Vinstri grænna þótt langt sé frá því að viðræðunefndin sé á byrjunarreit. „Þetta er ekki búið fyrr en allt er bú- ið. Við stefnum enn að því að ná sam- komulagi til að bera undir fé- lagsfund, en þangað til öllu hefur verið lokað vitum við ekki um lyktir þessara mála,“ sagði hún. Viðræðu- nefnd enn að störfum Framboð Reykjavíkurlistans JÓNA Sigurlín Harðardóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka um kvenna- athvarf, segir stjórn Kvennaat- hvarfsins ekki hafa tekið ákvörðun um hvort úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur frá því á mánudag verði kærður til Hæstaréttar. Í úrskurð- inum féllst héraðsdómur á útburðar- kröfu eigenda húss Kvennaathvarfs- ins. Kvennaathvarfið hefur keypt nýtt húsnæði sem afhent verður í júní og á að vera farið úr núverandi húsnæði fyrir 1. febrúar. Jóna segir öruggt að starfsemin haldi áfram ótrufluð þrátt fyrir að ekki verði flutt inn í nýja hús- næðið fyrr en í júní. Myndbirtingar komu sér illa Vegna málsins í heild sinni hafa sumir fjölmiðlar birt myndir af húsi Kvennaathvarfsins. Hefur það vakið upp spurningar hvort myndbirting- arnar hafi fælt stjórnina frá því að kæra úrskurðinn. Jóna segist telja það hæpið en engu að síður hafi myndbirtingarnar komið sér illa fyrir starfsemina. „Það skapaðist erfitt ástand við húsið í kjölfar myndbirtinganna,“ segir hún. „Við vitum að unnt er að komast að því hvar Kvennaathvarfið er til húsa, en hins vegar hafa fæstir fyrir því að leggja það á sig. Um lang- an tíma hefur starfsemin verið laus við áreiti manna sem eru að leita kvenna sinna og gruna þær um að hafa leitað athvarfs hjá okkur. Konur hafa því verið mjög öruggar hér en hins vegar gerðist það fyrir skömmu, að hér voru menn fyrir utan að fylgj- ast með og vildu hafa samband við konur þegar þær fóru út úr húsi. Þetta skapaði óþarfa kvíða meðal kvenna í athvarfinu og kom sér illa.“ Ekki ákveðið hvort úr- skurðurinn verði kærður Fallist á útburðarkröfu á hendur Kvennaathvarfi SAMSTARFSSAMNINGUR milli Reykjavíkurborgar og Vest- urfarasetursins á Hofsósi var und- irritaður í gær. Samningnum er ætl- að að efla menningarsamskipti höfuðborgarinnar og setursins, en jafnframt að treysta samband ein- staklinga af sama uppruna sem bú- settir eru hér á landi og í N- Ameríku. Í samningnum er getið um sýning- arrétt Reykjavíkurborgar á tíma- bundnum sýningum sem settar eru upp í Vesturfarasetrinu á Hofsósi. Í þeim er sögð saga þeirra Íslendinga sem settust að á tilteknum svæðum í Norður-Ameríku, s.s. Utah og Norð- ur-Dakota. Kveðið er á um sýning- arrétt á minni sérsýningum sem Vesturfarasetrið tekur til landsins frá N-Ameríku auk þess sem setrið mun hafa milligöngu um að útvega borginni listamenn, fræðimenn og fyrirlesara sem þekkja til viðfangs- efnisins og búa í N-Ameríku. Loks mun setrið beita sér fyrir að koma á samstarfi milli grunnskóla í Reykjavík og sambærilegra skóla í Vesturheimi auk annarra verkefna. Það voru Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri og Valgeir Þor- valdsson, framkvæmdastjóri Vest- urfarasetursins, sem undirrituðu samninginn fyrir hönd borgarinnar og Vesturfarasetursins. Morgunblaðið/Sverrir Frá undirritun samstarfssamnings Reykjavíkurborgar og Vesturfarasetursins á Hofsósi. Á myndinni eru frá vinstri Páll Samúelsson, Baldur Valgeirsson, Ólafur Thors, Valgeir Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Vest- urfarasetursins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Signý Pálsdóttir. Ætlað að efla menn- ingarsam- skipti Samstarfssamningur Reykjavíkur og Vesturfarasetursins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.