Morgunblaðið - 16.01.2002, Page 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 21
Skráning í fullum gangi
Allar nánari
upplýsingar
og skráning á
www.ntv.is
eða í síma
555 4980 og
544 4500
Spennandi nám í Forritun- og kerfisfræði
k
la
p
p
a
ð
&
k
lá
rt
-
ij
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
Markmiðið með þessu námskeiði er að svara vaxandi þörf atvinnulífsins fyrir starfsfólk til að vinna við
forritun og kerfisfræði. Val kennslugreina miðast við að mæta þörfinni þar sem hún er mest, þ.e. í
hlutbundinni greiningu, hönnun og forritun (Object Oriented Development). Prófað er í hverri námsgrein
og auk þess taka nemendur tvö alþjóðleg sérfræðipróf sem gefa alþjóðlega viðurkenningu:
"Sun Certified Java Programmer" og "Certified Delphi Programmer".
Nám í forritun og kerfisfræði hjá NTV hefur skilað góðum árangri og má fullyrða að flestir nemendur sem
ná prófum fá vinnu á þessu sviði að námi loknu. Námið byggir á kennslu og verklegum æfingum og þarf að
gera ráð fyrir talsverðu heimanámi og vinnu utan skólatíma. Ágæt viðmiðun er að reikna með jafn löngum
tíma fyrir heimanám og viðveran er í skólanum.
Dagskóli (Hraðferð) Kvöldskóli (Nám með vinnu)
Dagskólinn er tvær annir og er kennt frá
mánudegi til föstudags kl. 8-12 aðra vikuna og
frá mánudegi til fimmtudags kl. 8-12 hina
vikuna. Námið er samtals 858 kennslustundir.
Í dagskólanum verða nemendur að taka báðar
annirnar og í lokin útskrifast nemendur sem
Kerfisfræðingur NTV með tveim alþjóðlegum
prófgráðum.
Kvöldskólinn er þrjár annir og er kennt tvö
kvöld í viku (18-22) og hluta úr laugardegi.
Hver önn er 264 kennslustundir og er námið
þannig skipulagt að hver önn er sjálfstæð og
gefur ákveðinn áfanga. Til að fá titilinn Kerfis-
fræðingur NTV með tveim alþjóðlegum
prófum þarf að ljúka öllum þrem önnunum.
Greitt er fyrir hverja önn fyrir sig.
Visa & Euro
raðgreiðslur
¨
¨
Býður upp á hagstæð
starfsmenntalán.
FERÐAMENN taka myndir af risa-
stóru skúlptúrverki, sem búið var
til úr ís, í borginni Harbin í Heil-
ongjiang-héraði í norðausturhluta
Kína um helgina. Þessu listaverki
hafði verið gefið nafnið „hin ótta-
slegna frelsisstytta“ og er ætlað að
lýsa þeim harmleik sem átti sér
stað 11. september sl. í New York
þegar hryðjuverkamenn gerðu
árás á Bandaríkin.
Reuters
Óttaslegin
frelsisstytta
ÞJÓÐARHER Albana (ANA),
samtök herskárra Albana í
Makedóníu, varaði í gær við því
að liðsmenn hans væru reiðu-
búnir í frekari átök ef stjórn-
arher landsins gerir sig líkleg-
an til að beita albanska
minnihlutann í landinu ofbeldi.
ANA er andsnúinn friðarsamn-
ingi sem gerður var fyrir milli-
göngu Vesturveldanna í ágúst á
síðasta ári og vill sameina alb-
anskan hluta Makedóníu við
Albaníu.
Margrét
drottning
í 30 ár
MARGRÉT
Danadrottn-
ing hélt upp
á það í gær
að hún hefur
nú setið
þrjátíu ár á
valdastóli.
Ekki var þó
um formleg
hátíðahöld
að ræða og
drottningin
sinnti störfum sínum eins og
venjulega. Margrét var 31 árs
þegar hún var lýst þjóðhöfðingi
Dana hinn 14. janúar 1972.
Rétt að
heyja blóðugt
frelsisstríð
MEIRIHLUTI Króata telur að
rétt hafi verið að heyja blóðuga
sjálfstæðisbaráttu á árunum
1991–1995 við Serba í því skyni
að öðlast sjálfstæði frá Júgó-
slavíu sem var og hét. Sýnir ný
skoðanakönnun að 55,3% Kró-
ata telja stríðsátökin hafa verið
fórnarinnar virði en þúsundir
manna féllu í blóðugri styrjöld-
inni sem reið yfir Balkanskaga
á síðasta áratug síðustu aldar.
23,8% íbúa Króatíu voru þessu
ósammála og 20,9% kváðust
ekki geta gert upp hug sinn.
„Gamli mað-
urinn“ látinn
GREGORIO
Fuentes,
sem talinn er
hafa verið
fyrirmynd
gamla
mannsins í
verki Ern-
ests Hem-
ingways,
„Gamli mað-
urinn og haf-
ið“, lést á sunnudag á Kúbu,
104 ára gamall. Fuentes og
Hemingway voru góðir vinir
meðan Nóbelsskáldið bjó á
Kúbu en Fuentes stýrði báti
Hemingways, Pilar.
Leyfa aftur
bjór í áldósum
DANSKA umhverfisráðuneyt-
ið afnam í gær bann við sölu
gosdrykkja og bjórs í áldósum
en bannið hefur verið í gildi í
Danmörku frá árinu 1982.
Ákvörðunin kemur í kjölfar
dómsmáls sem Evrópusam-
bandið höfðaði á hendur danska
ríkinu fyrir að sinna ekki til-
skipunum sambandsins. Mega
Danir eiga von á að geta gætt
sér á dósabjór þegar í vor.
STUTT
Vara við
átökum
Margrét
Danadrottning
Gregorio
Fuentes
ALI Khamenei, erkiklerkur í Íran,
gaf í gær eftir og náðaði umbótaþing-
manninn Hossein Loghmanian en
Loghmanian hafði verið fangelsaður
fyrir að móðga dómsvaldið, sem er í
höndum klerkastjórnarinnar í Íran.
Kom náðunin í kjölfar háværra kvart-
ana umbótasinnaðra þingmanna þess
efnis að dómstólar virtu að vettugi
þinghelgi þeirra og reyndu ítrekað að
sækja þingmenn til saka fyrir um-
mæli sem þeir létu falla í þingsölum
eða á stjórnmálafundum.
Fulltrúar helsta umbótaflokksins á
íranska þinginu sögðu að Loghmani-
an, sem situr á þingi fyrir Hamedan-
hérað í Vestur-Íran, myndi snúa aftur
í þingsali í dag, miðvikudag. Hann
hafði verið dæmdur í fangelsi 25. des-
ember sl. af íhaldssömum dómstólum
landsins fyrir að „móðga dómsvaldið“
í ræðu, sem hann hélt í íranska
þinginu.
Brugðust þingmenn umbótaflokk-
anna ókvæða við fangelsun Log-
hmanians en þeir eru þar í meirihluta.
Þingforseti
hótaði afsögn
Fyrr um daginn hafði verið greint
frá því að klerkurinn Mahmud Hash-
emi-Shahduri hefði lagt til að Log-
hmanian yrði náðaður og varð
Khamenei síðan við þeirri beiðni.
Kom náðunin einungis örfáum
klukkustundum eftir að Mehdi Kar-
ubi, forseti íranska þingsins, hafði
tjáð Khamenei að hann gæti ekki
sinnt störfum sínum áfram nema
erkiklerkurinn gripi inn í málið.
Á sunnudag höfðu um sextíu þing-
menn lýst mótmælum sínum vegna
aðfara dómstóla með því að mæta
ekki til þingfundar.
Loghmanian var dæmdur til tíu
mánaða fangelsisvistar fyrir „brot“
sitt. Tveir aðrir þingmenn hafa einnig
hlotið dóma en þó ekki verið fangels-
aðir og margir til viðbótar bíða rétt-
arhalda.
Umbóta-
sinnaður
þingmaður
náðaður
Teheran. AFP.
ÍRINN Pat Cox var í gær kjörinn for-
seti Evrópuþingsins, sá 24. frá upp-
hafi. Er hann jafnframt leiðtogi
þeirra þingmanna, sem tilheyra
frjálsum demókrötum í aðildarlönd-
um Evrópusambandsins. Cox náði
kjöri í þriðju umferð og tekur við af
Nicole Fontaine, franskri hægrikonu,
sem verið hefur forseti þingsins frá
1999. Af 568 gildum atkvæðum fékk
Cox 298, breski Verkamannaflokks-
maðurinn David Martin fékk 237 og
danski Evrópuandstæðingurinn
Jens-Peter Bonde fékk 33.
Í ræðu að loknu kjörinu lagði Cox
áherslu á mikilvægi þingsins, ekki síst
í því að hafa eftirlit með „tæknikröt-
unum“, en Evrópuþingið er eina
ESB-stofnunin, sem kosið er beint til.
Fjárlög ESB verða ekki afgreidd
nema með blessun þess og það stend-
ur að mestallri löggjöf ásamt ráð-
herraráðinu.
Nýr forseti
Evrópu-
þingsins
Strassborg. AFP.