Morgunblaðið - 16.01.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 16.01.2002, Síða 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 31 Þegar flugvél nálgast íslenska flug- stjórnarsvæðið, láta flugumferðar- stjórar á því svæði sem flugvélin kem- ur frá, vita af væntanlegri komu flugvélarinnar. Þessar upplýsingar eru færðar á pappírsræmuna. Eftir að flugvélin er komin undir stjórn flugstjórnar hér, berast upplýsingar um flug hennar eftir fjórum megin- leiðum. Í fyrsta lagi berast upplýsing- ar í skeytaformi frá loftskeytastöð- inni í Gufunesi, sem sér um talsamband við flugvélar á langdræg- ari bylgjulengdum. Í öðru lagi getur flugumferðarstjórinn séð flugvélina á ratsjám, ef hún er innan ratsjárdræg- is. Í þriðja lagi getur flugumferðar- stjóri verið í beinu talstöðvarsam- bandi við flugvélina. Og í fjórða lagi hafa sumar nýrri flugvélar sjálfvirkan gagnasendi, sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu, flughraða og hæð flugvélarinnar til flugstjórnar- miðstöðvarinnar í gegnum gervi- hnetti. Með FDPS eru þessar upplýsingar allar færðar sjálfkrafa inn í kerfið með rafrænum hætti. Þetta hefur reynst sérfræðingum flóknara úr- lausnarefni en nokkurn grunaði í upp- hafi, þar sem flækjuþættir flugum- ferðarstjórnunar eru mun fleiri en menn gerðu sér grein fyrir. Enda þarf að taka tillit til fjölda flugvéla í mismunandi eða sömu flughæð, hraða þeirra, stefnu, veðurs o.s.frv. FDPS- kerfið vinnur sjálfkrafa úr veðurupp- lýsingum og fylgist með og lætur vita ef aðskilnaður flugvéla er að nálgast leyfilegt lágmark. Í kerfi sem þessu má engu skeika. Þegar flugumferð er hvað mest yfir íslenska flugstjórnar- svæðinu eru um 500 þotur að fara um svæðið á sólarhring, með allt að 100– 150 þúsund farþega sem treysta því að öryggis þeirra sé gætt. Áætlað er að FDPS-kerfið hafi að fullu tekið yfir sem aðalkerfi flug- stjórnarmiðstöðvarinnar næsta vor. Yfirvinnubann flugumferðarstjóra gæti tafið málið, en það verður von- andi ekki í langan tíma. Með FDPS- kerfinu mun eiga sér stað bylting í flugumferðarstjórnun á Íslandi, sem er forsenda framþróunar flugumferð- arþjónustunnar til framtíðar. Höfundur er upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands. alheildartekjur flugumferðarstjóra í júní þegar flugumferð (og þ.a.l. yfirvinna) er í algjöru hámarki, stór hluti flugumferðarstjóra er í sumarorlofi, og allir flugumferð- arstjórar eru teknir inn í myndina þ.á m. yfirflugumferðarstjóri, varðstjórar o.fl. sem toga þessa tölu eins hátt og greinilega þarf til þess að sannfæra almenning um að flugumferðarstjórar þurfi alls enga launahækkun. M.a.s. hátt- virtur utanríkisráðherra gekk svo langt að segja að flugumferðar- stjórar hafi „frá 500.000 og upp í 900.000 kr.“ í laun á mánuði sem er ekki aðeins stórlega ýkt heldur tekur hann einnig þröngan hóp flugumferðarstjóra inn í myndina. Það er nefnilega hefð fyrir því að bera saman byrjunarlaun hópa eins og kennara og sjúkraliða ann- ars vegar og svo heildartekjur flugumferðarstjóra hins vegar, en staðreyndin er sú að þegar öllu er á botninn hvolft eru byrjunarlaun flugumferðarstjóra mun lægri en framangreindra stétta. Í öllum siðmenntuðum löndum tíðkast það að flugstjórar og flug- umferðarstjórar séu á sambæri- legum launum og hvar er þá betra viðmið að finna hér á Íslandi en hjá flugstjórum Landhelgisgæsl- unnar? Þeir eru ríkisstarfsmenn rétt eins og flugumferðarstjórar en laun þeirra eru allt að því helm- ingi hærri. Því vil ég hér með hvetja samn- inganefnd ríksins og ráðamenn samgöngu-, utanríkis-, og fjár- málaráðuneytis til þess að ganga sem fyrst frá samningum og borga flugumferðarstjórum það sem þeir segja þjóðinni að flugumferðar- stjórar séu með í laun. Þá geta þeir hætt að ljúga og allir verða ánægðir. Höfundur er flugumferðarstjóri. FRÉTTIR GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins, Reykjum í Ölfusi stendur fyrir fræðslufyrirlestri í húsakynnum skólans föstudaginn 18. janúar kl. 13 til 16 um innflutning á plöntum. Fræðslufyrirlesturinn er boðað- ur vegna nýrrar reglugerðar um- hverfisráðherra um „innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda“, en markmið reglugerðarinnar er að koma í veg fyrir að útlendar plöntutegundir valdi óæskilegum breytingum á líf- fræðilegri fjölbreytni í íslenskum vistkerfum. Fyrirlesarar eru: Líneik Sæv- arsdóttir, formaður sérfræðinga- nefndar umhverfisráðuneytisins um framandi lífverur, Guðmundur Halldórsson, sérfræðingur á Mó- gilsá, Björn B. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Suðurlandsskóga, Ólafur Njálsson, garðplöntufram- leiðandi í Nátthaga, og Margrét Frímannsdóttir alþingismaður. Fyrirspurnir og umræður. Skrán- ing og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Garðyrkjuskólans eða á heimasíðu hans, www.reykir.is, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestur um inn- flutning á plöntum GARÐYRKJUFÉLAG Íslands efnir til fræðslufundar í Norræna húsinu miðvikudaginn 16. janúar kl. 20. Jó- hann Pálsson, fv. garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, flytur erindi í máli og myndum um garða á Ítalíu, í Svíþjóð og í St. Pétursborg. Farið verður í marga áhugaverða garða, ekki síst í St. Pétursborg, m.a. garða sem rússnesku keisararnir létu gera á sínum stórveldistímum. Inngangs- eyrir er 500 kr. og er boðið upp á kaffi og te, segir í fréttatilkynningu. Garðar í norðri og suðri Fræðslufundur BÓKAFUNDUR Sagnfræðinga- félags Íslands fer fram í húsi Sögu- félags í Fischersundi fimmtudaginn 17. janúar kl. 20.30. Þrjár bækur verða teknar fyrir. Már Jónsson ræðir um bókina „Landsins forbetran“ eftir Hrefnu Róbertsdóttur, Erla Hulda Halldórs- dóttir um bókina „Björgu“ eftir Sig- ríði Dúnu Kristmundsdóttur og Gunnar Karlsson um bókina „Upp- gjör við umheiminn“ eftir Val Ingi- mundarson. Höfundarnir verða við- staddir og gefst því tækifæri til þess að spyrja þá út í verkin. Fundurinn er öllum opinn, segir í fréttatilkynningu. Bókafundur Sagnfræðinga- félagsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.