Morgunblaðið - 16.01.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.01.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ bak við gleraugun í kímnu brosinu. Samtímis stóð ekkert í honum að taka ákvarðanir og afstöðu. Það var ekki fyrr en ég var búinn að taka þátt í námskrárvinnunni í nokkra mánuði og sitja margan fundinn að ég fór að hugsa um þessa fágætu eiginleika Hrólfs, enda voru þeir honum svo eðl- islægir að maður tók varla eftir þeim. Þá rifjaðist upp fyrir mér rafeinda- námskeiðið í Hlíðaskóla forðum og ég sá í hendi mér að eiginleikarnir sem drápu svo léttilega og í senn vinsam- lega í gelgjubelgingi unglingsstráks úr Híðunum voru nú leiðandi afl í menntamálum þjóðarinnar. Hrólfur hafði aukið verulega við menntun sína bæði hér á landi og erlendis eftir að hann lauk kennaraprófi og hóf störf. Traust menntun er að sjálf- sögðu afar mikilvæg stoð, jafnt við kennslu sem stjórnunarstörf, en þeg- ar upp er staðið vegur þó fátt þyngra en sú vöggugjöf sem farsæll persónu- leiki er og þar hafði Hrólfur greini- lega hlotið stóra vinninginn. Námskrárvinnan fyrir íslenska tónlistarskóla hefur nú staðið í hart- nær tíu ár og senn sér fyrir endann á þessu viðamikla verki. Margar nefnd- ir hafa starfað og fjölmargir góðir einstaklingar komið að málum á ólík- um stigum. Ég mun vera einn um að hafa fylgt verkefninu frá upphafi, í gegnum þær þrjár ólíku nefndir sem leitt hafa starfið. Frá upphafi og á meðan heilsa leyfði var Hrólfur Kjartansson okkar næsti yfirmaður. Þótt ótrúlegt megi virðast veit ég ekki hvort hann var mikill áhugamað- ur um tónlist, söngelskur eða yfir höf- uð músíkalskur. Það kom einfaldlega aldrei upp í samskiptum okkar, enda var Hrólfur, eins og sannur atvinnu- maður, ekkert að leggja sitt einkalíf á borðið eða opinbera eigin persónu meira en ástæða var til. Miðað við velvilja hans og framgöngu í málefn- um tónlistarinnar er þó erfitt að ímynda sér annað en að hann hafi haft tónlistargyðjuna í hávegum. Hér skal síst gert lítið úr afgerandi þætti þeirra tveggja menntamálaráð- herra sem setið hafa frá 1992 eða annarra sem að námskrármálum tón- listarskólanna hafa komið. Leiðsögn, áhugi og skilningur leiðandi embætt- ismanna getur hins vegar verið af- drifaríkur styrkur fyrir litla hópa eins og tónlistarkennara á löngum göngum ráðuneytanna, þar sem stöku sinnum getur verið vandratað fyrir óvana. Ég leyfi mér að segja að einlægur áhugi og stuðningur Hrólfs Kjartanssonar hafi verið þungt lóð á vogarskál íslenskra tónlistarskóla og tónlistarkólakennara. Hrólfur var nefnilega ekki bara jákvæður, þægi- legur og ákveðinn, eins og í Hlíða- skóla forðum. Hann hafði í millitíðinni öðlast gríðarlega reynslu sem stjórnandi og gagngera þekkingu á refilstigum kerfisins. Ég held að ég tali fyrir munn íslenskra tónlistarkennara þegar ég færi fram hugheilar þakkir fyrir mikilsvert framlag Hrólfs Kjartanssonar til þróunar tónlistar- kennslu á landinu. Góður drengur er genginn allt of fljótt. Brosmildrar og farsællar nær- veru hans verður saknað víða. Fjöl- skyldu Hrólfs færi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Sjálfur er ég þess fullviss að tónlistargyðjan mun vaka yfir þessum vini sínum um ókomna tíð. Sigurður Flosason. Hrólfur minn! Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Þakka þér fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig. Alltaf varstu reiðubúinn að aðstoða mig hvort heldur við nám eða störf og gilti þá einu hvort mikið lægi fyrir hjá þér sjálfum. Það get ég sagt þér að djúp- vitur tilsvör þín reynast mér gott veganesti á lífsins göngu. Ég geymi hjá mér ljúfar minningar um skemmtilegt spjall í eldhúsinu sem oftar en ekki voru um gamanvísur eða broslegar hliðar mannlífsins. Ég vil kveðja þig með vísu sem þér fannst upplögð sem niðurlag í verk- efni sem þú hjálpaðir mér með; Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Guðlaug mín, ég votta þér og fjöl- skyldu þinni mína dýpstu samúð. Megi Guð veita ykkur styrk í sorginni og blessa fagra minningu Hrólfs Kjartanssonar. Elís Þór Rafnsson. Kveðja frá Kennarasambandi Íslands Fátt er mikilvægara en að eiga góða samstarfsaðila. Kennarasam- band Íslands þarf eðli málsins sam- kvæmt að eiga mikið og náið sam- starf við menntamálaráðuneytið. Einn af samstarfsaðilum Kennara- sambandsins í menntamálaráðuneyt- inu hefur verið Hrólfur Kjartansson deildarstjóri sem nú er fallinn frá langt um aldur fram. Hrólfur hefur með störfum sínum lagt mikið af mörkum til eflingar skólastarfs í landinu og í því sambandi hefur hann ætíð lagt áherslu á gott samstarf samtaka kennara og ráðuneytisins. Hrólfi hefur verið falin forysta um mörg mikilvæg mál og í því sambandi langar mig að nefna sem dæmi að hann var formaður í verkefnisstjórn sem hafði umsjón með allri vinnu er tengdist flutningi grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga. Starf verkefn- isstjórnar var umfangsmikið og miklu varðaði að víðtæk samstaða næðist um allar útfærslur. Með lip- urð, sanngirni og festu tókst Hrólfi að leiða þetta vandasama verk til lykta á þann hátt að allir aðilar sem að mál- inu komu gátu staðið saman að til- lögum um málsmeðferð. Ofangreint dæmi er eitt af mörgum þar sem við höfum notið þess að eiga samstarf við Hrólf, samstarf sem aldrei bar skugga á. Nú þegar við kveðjum Hrólf Kjartansson vil ég fyrir hönd Kennarasambandsins þakka gott og árangursríkt samstarf um árabil. Fjölskyldu Hrólfs votta ég samúð og óska henni Guðs blessunar. Eiríkur Jónsson, formaður. Kveðja frá Foreldraráði Hafnarfjarðar Nú kveðjum við, sem höfum tekið þátt í foreldrastarfi grunnskólanna í Hafnarfirði, góðan félaga og braut- ryðjanda í foreldrastarfi í bænum. Hrólfur Kjartansson var einn af stofnendum Foreldraráðs Hafnar- fjarðar og talsmaður þess frá upphafi (1991) til 1995. Starf foreldraráðsins varð fyrirmynd annarra samtaka for- eldra vítt og breitt um landið, auk þess sem Hrólfur var stofnandi og að- aldriffjöðrin í foreldrafélagi Hvaleyr- arskóla um árabil. Hann hafði ein- stakt lag á að laða það besta fram í samstarfsmönnum sínum og allir voru tilbúnir að leggja sig fram. Hrólfur mótaði samráðsvettvang for- eldra fyrstu árin, sem gerði þeim kleift að samræma vinnubrögð í grunnskólum bæjarins og læra hverj- ir af öðrum. Ekki spillti fyrir hvað hann var fróður um skólamál vegna starfa sinna í menntamálaráðuneyt- inu og var alltaf tilbúinn að miðla okkur af þekkingu sinni, hvort sem það voru lagaleg atriði eða annað sem tengdist grunnskólanum. Með störf- um sínum ávann hann foreldrastarfi virðingu sem gerði þeim sem á eftir komu auðveldara að hafa áhrif á stefnumótun í uppbyggingu skóla- kerfisins. Þegar kom að því að ákveða hvaða leið yrði valin í uppbyggingu grunn- skólanna í Hafnarfirði kom þekking hans að góðun notum fyrir okkur sem með honum unnu við val á leiðum, þ.e. einn eða tveir stórir gagnfræðaskólar fyrir allan bæinn, blandað kerfi eða einn heildstæður skóli í hverju hverfi. Þegar þessi vinna stóð sem hæst var honum falið, fyrir hönd menntamála- ráðuneytisins, að leiða samningavið- ræður við sveitarfélögin í landinu um flutning grunnskólans til sveitarfé- laganna og taldi hann því rétt að segja af sér sem talsmaður Foreldra- ráðs Hafnarfjarðar. Það var ekki auðvelt að taka við af slíkum manni, sem átti svo auðvelt með að stjórna og vissi allt um menntakerfið. Við þökkum Hrólfi fyrir ánægju- legt samstarf og kveðjum hann með söknuði. Guðlaugu konu hans og börnum vottum við samúð okkar. Þóroddur S. Skaptason. Kveðja frá Hvaleyrarskóla Það er mikil gæfa fyrir hvern skóla sem er að hefja göngu sína að hafa foreldra sem unna skólastarfinu öllu af heilum hug. Fyrir rúmum áratug þegar Hvaleyrarskóli í Hafnarfirði var stofnaður vorum við svo gæfusöm að margir foreldrar voru afar áhuga- samir um velgengni skólans. Það átti svo sannarlega við um Hrólf Kjart- ansson, en hann var frumkvöðull að nýrri stefnu í samstarfi heimila og skóla. Stofnaði hann í samvinnu við stjórnendur Hvaleyrarskóla Samtök foreldra og barna í skólanum, sem enn starfa eftir hans fyrirmynd. Til- gangur þeirra er að styðja vel við skólann og skólastarfið í heild á já- kvæðan hátt og að stuðla að velferð nemenda í leik og starfi. Valdir eru tengiliðir úr hverjum bekk, en ein- ingar samtakanna eru bekkjarfélög sem starfa ýmist sjálfstætt eða í sam- vinnu sín á milli. Þessi bekkjarfélög voru nýbreytni á þessum tíma, en markmiðið með þeim var að foreldrar gætu sem best einbeitt sér að bekkj- arstarfi barna sinna. Minnumst við þess eitt árið er starfsfólk skólans fór í skólaheim- sókn út á land að samtök foreldranna sáu um alla kennslu þann daginn og kom t.d. einn pabbinn með ógrynni af uppstoppuðum fuglum og fræddi börnin á alla lund um þá. Var Hrólfur í forsvari fyrir þessu öllu. Einnig er okkur hugstætt er hann fékk foreldra og börn til að gróðursetja trjáplöntur og lauka í kringum skólann með okk- ur. Fyrir tilstuðlan Hrólfs var For- eldraráð Hafnarfjarðar stofnað árið 1991. Í því sitja fulltrúar foreldra frá öllum grunnskólunum í Hafnarfirði. Foreldraráðið hefur verið lyftistöng fyrir skólastarf í bænum með því að fylgjast grannt með því hvað vel er gert og veita viðurkenningu fyrir bæði einstökum skólum, einstakling- um og félagsmiðstöðvum. Til gamans má geta þess að Hvaleyrarskóli fékk eitt vorið viðurkenningu Foreldra- ráðs fyrir jákvætt og lifandi samstarf heimila og skólans og átti Hrólfur ekki síst heiðurinn af þeirri viður- kenningu. Alltaf var Hrólfur reiðubúinn að veita stjórnendum ráðleggingar og að- stoð þegar við leituðum til hans og var það ómetanlegt, sérstaklega fyrstu ár- in þegar verið var að leggja grunninn undir skólastarfið í Hvaleyrarskóla. Þar sem Hrólfur vann lengst af í ráðu- neytinu kom það sér oft vel fyrir okkur þegar erfið mál þurftu að fá skjóta og góða úrlausn. Við vorum svo lánsöm að hafa dóttur Hrólfs hér í skólanum, hana Rannveigu okkar, en bæði Guð- laug móðir hennar og Hrólfur mættu ætíð þegar boðað var til skemmtana að loknum samstarfsverkefnum foreldra, barna og kennara. Þá voru oft ort ljóð og eða pistlar samdir heima og í ljóða- bókinni „Ljóð af Holtinu“, sem gefin var út á 10 ára afmæli skólans, má finna Sterkar hliðar mínar eftir þau feðginin Rannveigu og Hrólf. Þá var unnið með samstarfsverkefnið: Allir hafa eitthvað til síns ágætis. Ljóðið er þannig: Hverjar eru sterkar hliðar mínar? Ég held ég geti alveg sagt þér það. Eftir að pabbi hafði sagt mér sínar, við settum þessa litlu vísu á blað. Oftast nær er ég til fyrirmyndar og alla daga er ég þæg og góð, og þó það blási um mig ýmsir vindar er ég bara mesta gæðablóð. (Rannveig og pabbi.) Mætur maður er genginn. Við sendum Guðlaugu, dætrunum og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd starfsfólks Hvaleyrar- skóla, Helga og Marsibil. HRÓLFUR KJARTANSSON Elsku bróðir minn, í dag hefðir þú orðið 45 ára. Ég á svo erfitt með að skilja að þú skulir vera farinn, en ég hugga mig við það að nú sért þú hjá mömmu og laus við þessi veikindi. Þegar ég hugsa til baka streyma minningarnar yfir mig, t.d. þegar við vorum litlir, ég var 9 eða 10 ára og þú 12 eða 13 ára, þá um sumarið var sauðburður að hefjast hjá pabba og afa Þorbergi, og varst þú beðinn að fara að gá að kindunum, hvort einhver þeirra væri að bera, en þú fékkst mig til þess í staðinn enda hafði ég mikinn áhuga á þessum kind- um eins og þú vissir. Ég sem sagt fór en þá var ein kindin búin að bera en lambið var dautt, og var ég alveg mið- ur mín en lengi vel stríddir þú mér og sagðir að það þýddi nú ekkert að senda hann Eirík til að athuga með ELVAR RAGNARSSON ✝ Elvar Ragnars-son fæddist í Súðavík 16. janúar 1957. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Ísafirði 29. des- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Súðavíkur- kirkju 5. janúar. kindurnar því þá dræp- ist allt. Var ég frekar fúll en þú hafðir gaman af, þú sást alltaf spaugi- legu hliðarnar á öllu. Síðastliðið sumar verður mér minnis- stætt, þegar ég, þú og Jónas bróðir fórum á bátnum á ball í Ögri, þú varst svo kátur og skemmtilegur. Við stóð- um fyrir utan bræðurn- ir ásamt öðrum og vor- um að spjalla um liðna tíð, þú varst hrókur alls fagnaðar, þú varst svo laginn við að herma eftir hinum og þessum og var mikið hlegið. Ekki grunaði mig þá að þú yrðir far- inn frá okkur eftir aðeins nokkra mánuði, það var ekki að sjá að neitt amaði að þér, en þetta er lúmskur sjúkdómur. Ég veit Elvar minn að þú varst mjög hamingjusamur enda sást þú ekki sólina fyrir henni Önnu eig- inkonu þinni og varst svo stoltur af börnunum þínum, mér þykir svo leitt að þú sért farinn og ég sakna þín kæri bróðir. Nú kveð ég þig að sinni þar til við hittumst aftur þegar minn tími kemur. Þinn bróðir Eiríkur. <   8        %  8   3  *3* "     "  #%     #%     #%   #   #  <   +  "2 =   8  #-    ##  *!"        *!"  *   .    %   " "" ,!$   ,!!   %"" ,!!   <% "%3<%7!$ )7""" ,!!  =3!#%$  ((* (((* <   8      8    3   *3*   "      " #%       #%       #%   #   #    89  &9 +  %*"$! .    % 3 "A$3! " $ " "8#/%7!!  ' ;%$ &/%%#/%7!!  #/%7!$ %=" %"2!!  A$3!#/%7!$  A$$%=" %  ((* (((* " 4&/%!$ <   8   #-     %    3         "             I   M=) >?N  " #%  *       0    ;3    #%   9'    =    8     ##  "   %     :  -!    ##  $! !" *"  # *3*- -  .    #   %  3  !%(O >? 8$G$!!  =#*%!2%"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.