Morgunblaðið - 19.03.2002, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 53
DAGBÓK
Bankastræti 14, sími 552 1555
Þýskar dragtir
margir litir
Jakkar frá 8.900 - Buxur frá 5.950
Pils frá 5.900. Gott verð
Dragtir
Jakkar,
pils,
buxur
15.00 Ræða formanns: Tryggvi Jónsson, formaður
stjórnar SVÞ
Ávarp: Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra.
Erindi: Hinn virki starfsmaður í fyrirtæki
morgundagsins
The active person. Søren B.Henriksen,
Managing Director, Dansk Handel & Service
Menntun morgundagsins - starfsmaður í
þekkingarsamfélagi
Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á
Bifröst
Virkjun mannauðs í verslun og þjónustu
Steinþór Þórðarson, verkefnastjóri, Skref fyrir skref ehf
16.30 Veitingar
17.00 Hefðbundin aðalfundarstörf
Aðalfundur
SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu verður
fimmtudaginn 21. mars 2002 í Ársal Hótels Sögu
Samtök verslunar og þjónustu
Samtök verslunar og þjónustu
Þátttökutilkynningar í síma 511 3000 eða á svth@svth.is
HÁGÆÐA
UNDIRFÖT
Ný sending
Vor 2002
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert kappsamur, vand-
virkur og átt auðvelt með
mannleg samskipti. Kom-
andi ár verður mjög kröft-
ugt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur margar hugmyndir
um það hvernig þú vilt verja
peningum þínum. Þú ættir að
hugsa þig tvisvar um áður en
þú ráðstafar tekjum þínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert kappsamur og kraft-
mikill í dag. Þú hefur þörf
fyrir að tala við aðra og það
laðar að þér ólíklegasta fólk.
Það vilja allir hlusta á þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú gætir komist að mikil-
vægum upplýsingum í dag
sem geta nýst þér vel í starfi.
Skynsamlegast væri að segja
fátt en taka þeim mun betur
eftir því sem aðrir segja.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Trú þín á hugmyndir þínar
og lífsgildi gera þig færan
um að nýta þér þau tækifæri
sem bjóðast í dag. Þér finnst
þú hafa eitthvað mikilvægt
fram að færa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef einhver reynir að telja þig
á sitt mál í dag muntu verja
afstöðu þína með kjafti og
klóm. Þú hefur fulla trú á
sjálfum þér og lætur ekki
aðra telja þér hughvarf.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér finnst þú verða að telja
einhvern á þitt mál í dag.
Þetta gerir þig óvenju ræð-
inn og viljugan til að koma
fram á opinberum vettvangi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Í dag er líklegt að þú verðir
óvenju upptekinn. Þú ert
tilbúinn að leggja hart að þér
til að ná árangri þegar hugð-
arefni þín eru annars vegar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú gætir haft gaman af góðri
rökræðu í dag. Samkeppnin
kitlar þig auk þess sem þú
nýtur þess að finna að þú
getur sannfært aðra um það
sem þú hefur fram að færa.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Dagurinn hentar vel til að
safna upplýsingum sem geta
nýst þér í vinnunni. Vel-
gengni felst að stórum hluta í
réttri tímasetningu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ættir að láta hendur
standa fram úr ermum því
dagurinn býður upp á mörg
tækifæri. Samræður, stutt
ferðalög og viðskipti geta
skilað þér árangri.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú færð góðar hugmyndir
varðandi fasteignaviðskipti
eða leiðir til að bæta heim-
ilisaðstæður þínar. Vertu
óhræddur við að gera þær að
veruleika.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hugur þinn er vakandi og
hugmyndirnar streyma
fram. Áhugi þinn og fram-
takssemi eru mjög smitandi í
dag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ef t i r Frances Drake
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 19.
mars, er fimmtugur Þórólf-
ur Gíslason, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Skagfirð-
inga, Sauðárkróki.
Eiginkona hans er Andrea
Dögg Björnsdóttir, grunn-
skólakennari. Í tilefni af af-
mælinu verða þau með mót-
töku í Félagsheimilinu
Ljósheimum, Skagafirði, á
afmælisdaginn frá kl. 20.
95 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 19.
mars, er 95 ára Ástríður
Eyjólfsdóttir frá Laxárdal í
Dalasýslu. Ástríður býr á
Hrafnistu í Reykjavík. Hún
er að heiman í dag.
EFTIR nokkuð glanna-
legar sagnir endar suður
sem sagnhafi í fjórum
hjörtum:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 1053
♥ ÁG94
♦ 52
♣Á942
Vestur Austur
♠ 962 ♠ ÁD84
♥ 62 ♥ 873
♦ G984 ♦ KD10
♣G863 ♣KD10
Suður
♠ KG7
♥ KD105
♦ Á763
♣75
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 lauf Dobl
2 lauf Dobl Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Vestur kemur út með
smátt lauf. Sér lesandinn
leið að tíu slögum með
bestu vörn?
Teljum fyrst hina óhjá-
kvæmilegu tapslagi: Einn
á spaðaás, einn á tígul og
einn á lauf. En tökuslag-
irnir eru ekki þar með
tíu, því ef vörnin trompar
út við hvert tækifæri fást
aðeins fimm slagir á
hjarta til hliðar við ásana
í láglitunum og KG í
spaða. Það vantar því
slag.
En sjáum hvað gerist:
Það er sjálfsagt að gefa
fyrsta slaginn. Austur
fær á drottninguna og
skiptir yfir í tromp. Það
er tekið í borði og spaða
spilað á gosann. Síðan er
tígli spilað í bláinn. Aust-
ur fær slaginn og tromp-
ar enn út. Aftur er tekið í
borði til að spila spaða að
kóngnum, en nú rýkur
austur upp með ásinn og
spilar þriðja trompinu, en
vestur hendir spaða.
Staðan er þá þessi:
Norður
♠ 10
♥ G
♦ 5
♣Á94
Vestur Austur
♠ -- ♠ D8
♥ -- ♥ --
♦ G98 ♦ KD
♣G86 ♣K10
Suður
♠ K
♥ K
♦ Á76
♣7
Þegar spaðakóngur er
tekinn neyðist vestur til
að henda frá öðrum lág-
litnum, en þá trompar
sagnhafi þann lit frían og
fær þar úrslitaslaginn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
STÖKUR
Drangey sett í svalan mar
sífelt mettar snauða.
Báran létta ljóðar þar
um líf og Grettis dauða.
Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum
Byrinn þýður þenur voð,
þönguls víða rýkur lá,
bratta skríður boða gnoð,
brjóstum sýður löður á.
Þá er hægur bróðir báls,
báran þæg og smávaxin,
mörg um dægur meiðar stáls
myrða nægan hákarlinn.
Ásmundur Sigurðsson í Lundi
1. d4 e6 2. e4 d5 3. Rd2 c5 4.
Rgf3 cxd4 5. exd5 Dxd5 6.
Bc4 Dd6 7. O-O Rf6 8. He1
Be7 9. Rb3 Rc6 10. Rbxd4
Rxd4 11. Rxd4 O-O 12. c3
e5 13. Rf3 Dc7 14. Db3 Bd6
15. h3 h6 16. Be3 Bd7 17.
Had1 e4 18. Rd2 Bc6 19.
Bb5 Bd5 20. Bc4 Bc6 21.
Bd4 Bh2+ 22. Kh1 Be5 23.
Rf1 b5 24. Be2 Had8 25.
Re3 Bxd4 26. Hxd4 Hxd4
27. cxd4 Db7 28. Hc1 Hd8
29. Hc5 Rd7 30. Hf5 Rf6
Staðan kom
upp á Reykja-
víkurmótinu
sem lauk fyrir
skömmu. Sigur-
vegari mótsins,
Jaan Ehlvest
(2589), hafði
hvítt gegn Eric
Lobron (2517).
31. Hxf6! gxf6
32. Rf5 Dc7 33.
Dc3! Hótar 34.
Dxc6. Í fram-
haldinu nær
svartur ekki að
verjast með við-
unandi hætti. 33...Hd7 34.
Dc1 Hd5 35. Bg4 Hxf5 36.
Bxf5 e3 37. Dxe3 Kg7 38.
a3 Bd5 39. Bd3 a6 40. Kg1
Dd6 41. De2 Kf8 42. Dh5
og svartur gafst upp. Loka-
staða efstu keppenda varð
þessi: 1.-2. Jaan Ehlvest og
Oleg Korneev 7 vinninga af
9 mögulegum. 3.-6. Helgi
Áss Grétarsson, Valery
Neverov, Jonathan Rowson
og Mikhail Ivanov 6½ v. 7.-
12. Stefán Kristjánsson,
Henrik Danielsen, Hannes
Hlífar Stefánsson, Helgi
Ólafsson, Eric Lobron og
Normunds Miezis 6 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Með morgunkaffinu
Og hvernig
finnst þér svo
að vera kominn
með eigin
skrifstofu?
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðar-
manns og símanúm-
er. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík