Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 1

Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 1
66. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 20. MARS 2002 UM 3.200 Afganir voru fluttir í gær frá flóttamannabúðum við borgina Mazar-e-Sharif til fyrri heimkynna sinna annars staðar í landinu. Verða aðrir 1.000 fluttir þaðan á laugar- dag en að undanförnu hefur meira en 7.000 manns, sem höfðust við í gömlum bækistöðvum Sovétmanna í Kabúl, verið hjálpað heim til sín. Var fólkið búið út með matvæli, 150 kíló af hveiti á fjölskyldu, 10.000 kr. ísl. og sáðkorn svo það gæti tekið til við að erja jörðina. Afganir, sem flúðu yfir til Pakistans, hafa einnig verið að snúa heim. Stúlkan á myndinni, með brauð- körfu á höfði, ætlar að fara að halda upp á afganska nýárið en áramóta- heitið í Afganistan er „Tökum til við lærdóminn“. Hefur fólk verið hvatt til að senda börnin í skóla þegar þeir verða formlega opnaðir 25. mars eftir sex ára bann talibana við menntun stúlkna. Reuters Flóttafólk á heimleið ZIMBABWE var rekið í gær úr öll- um ráðum Breska samveldisins í eitt ár vegna margvíslegs misferlis og ofbeldis í kosningunum, sem færðu Robert Mugabe aftur völdin í hendur. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, greindi frá þessu í gær en það var þriggja manna nefnd, sem ákvörðunina tók. Auk John How- ards voru í henni þeir Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, og Olusegun Obasanjo, forseti Nígeríu. Í skýrslu þeirra segir, að kosningarnar 9. til 11. mars hafi einkennst af ofbeldi, ofsóknum og misferli, sem ætlað hafi verið að gagnast Mugabe. Þótt ekki sé um fullan brottrekst- ur að ræða þá þýðir hann, að eng- inn fulltrúi Zimbabwe mun sitja fundi samveldisríkjanna 54 næsta árið. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði í gær brott- rekstrinum og stjórnvöld í Sviss til- kynntu, að þau hygðust grípa til refsiaðgerða gegn Zimbabwe. Með- al annars verða hugsanlegir banka- reikningar ráðamanna í landinu frystir. Landsmenn að komast á vonarvöl John Robertson, hagfræðingur í Zimbabwe, sagði í gær, að efna- hagslífið í landinu væri hrunið, svo væri Mugabe fyrir að þakka. Það væri ekki lengur á færi íbúanna sjálfra að reisa það úr rústum og litlar líkur væru á erlendri aðstoð. Zimbabwe rekið úr sam- veldisráðum London. AFP. BINYAMIN Ben Eliezer, varnar- málaráðherra Ísraels, sagði í gær, að yfirlýsingar um vopnahlé milli Ísr- aela og Palestínumanna væri að vænta á næstu tveimur sólarhring- um og ónefndur, palestínskur emb- ættismaður sagði, að búast mætti við því í dag. Palestínumenn vilja hins vegar ekki una þeirri yfirlýsingu Dick Cheneys, varaforseta Banda- ríkjanna, að hugsanlegt vopnahlé sé eingöngu komið undir Yasser Ara- fat, leiðtoga þeirra. Ben Eliezer kvaðst vona, að um vopnahléið semdist á fundi ísraelsk- palestínskrar öryggisnefndar í dag og tilkynnti jafnframt, að allt ísr- aelskt herlið hefði verið flutt frá yf- irráðasvæði Palestínumanna á Vest- urbakkanum og á Gaza. Palestínu- menn segja hins vegar, að ísraelskur her sé enn í tveimur bæjum nyrst á Gaza og þangað hafi jafnvel verið sendur meiri herbúnaður. Cheney sagði í Ísrael í gær, að hann væri fús til að hitta Arafat ein- hvern tíma eftir að vopnahléi hefði verið komið á og hafa Palestínu- menn fagnað því. Þeir saka hann hins vegar um að draga taum Ísraela í einu og öllu. Ariel Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, sagði í gær, að Arafat fengi ferðafrelsi ef vopnahlé kæm- ist á og gæti þá hugsanlega sótt leið- togafund arabaríkjanna í Beirút þar sem rætt verður um tillögur Sádi- Araba um frið í Miðausturlöndum. Hann gaf þó í skyn, að Arafat fengi ekki að snúa heim, brytust út átök í fjarveru hans eða ef hann segði eitt- hvað á fundinum, sem Ísraelum mis- líkaði. 34 nýjar gyðingabyggðir Ísraelsku samtökin „Friður nú“ skýrðu frá því í gær, að í valdatíð Sharons hefði verið komið upp 34 nýjum byggðum gyðinga á palest- ínsku landi. Væri það þvert gegn þeim loforðum, sem hann hefði gefið er hann komst til valda. Eru gyð- ingabyggðirnar ólöglegar sam- kvæmt alþjóðalögum og hafa valdið mestri ólgu meðal Palestínumanna. Nú búa um 200.000 Ísraelar á landi, sem þeir hafa tekið frá Palestínu- mönnum. Búist við samkomu- lagi um vopnahlé Líklegt að Arafat fái að fara á fund arabaleiðtoga Jerúsalem. AP, AFP. Reuters Yasser Arafat og Anthony Zinni, sendimaður Banda- ríkjastjórnar, á skrifstofu Arafats í Ramallah í gær. RÁÐGJAFI atvinnumálaráð- herra Ítalíu var skotinn fyrir ut- an heimili sitt í Bologna í gær. Hefur morðið vakið ugg um nýj- an uppgang innlendra hryðju- verkamanna. Marco Biagi, ráðgjafi Robert- os Maronis atvinnumálaráð- herra, var einn af höfundum nýrrar vinnulöggjafar, sem margir ítalskir vinstrimenn for- dæma harðlega og segja, að verði hún samþykkt, muni hún gefa vinnuveitendum of mikið frelsi til að segja upp fólki. Í gærkvöld var raunar ekkert vit- að hver var að verki en morðið minnir marga á ástandið á átt- unda og níunda áratugnum þeg- ar vinstri- og hægrisinnaðir hryðjuverkamenn myrtu hundr- uð manna. Ráðgjafi ráðherra myrtur Róm. AP. STÓR íshella við suðurskautið, á svæði sem hlýnar hraðar en með- alhlýnunin er á jörðinni, hefur brotnað upp með „undraverðum“ hraða, að því er breskir og banda- rískir vísindamenn greindu frá í gær. Íshellan er kölluð Larsen B, er 200 metra þykk og er yfirborð hennar 3.250 ferkílómetrar. Hef- ur hún nú brotnað upp í litla ís- jaka og hröngl. Samkvæmt upplýsingum bandarísku rannsóknarmiðstöðv- arinnar National Snow and Ice Data Center byrjaði hellan að brotna upp fyrir rúmum mánuði. Miðstöðin varar við því, að verði sumurin áfram jafn heit sé hætta á að aðrar íshellur hljóti sömu ör- lög. Það gæti leitt til aukins haf- ísreks frá Suðurskautslandinu og hækkunar á yfirborði sjávar. Á vefsíðu sinni (www.- nsidc.org) segir miðstöðin, sem starfrækt er við Háskólann í Colorado, að los hafi komist á Larsen B, 720 milljarða tonna ís- hellu, 31. janúar sl. Ísinn í henni kann að vera allt að 12 þúsund ára gamall. Þetta sé stærsti ein- staki atburðurinn í röð áfalla sem íshellurnar við Suðurskautsskag- ann hafi orðið fyrir undanfarin 30 ár. Ástæða þessara áfalla sé talin vera mikil hækkun hitastigs á svæðinu. Hitastigshækkunin nemi um 0,5 gráðum á áratug, og megi rekja þá þróun aftur til fimmta áratugarins. Suðurskautið Risastór íshella brotnar London, Auckland. AP, AFP. ÍRAKAR hafa haft samband við al- Qaeda-hryðjuverkasamtökin og hafa hugsanlega unnið með þeim. Kom þetta fram í vitnisburði George Ten- ets, yfirmanns CIA, bandarísku leyniþjónustunnar, fyrir hermála- nefnd öldungadeildar Bandaríkja- þings í gær. Bandaríkjastjórn hefur hingað til ekki viljað slá neinu föstu um hugs- anleg tengsl milli ríkisstjórnar Sadd- ams Husseins Íraksforseta og al- Qaeda og Tenet lagði ekki fram nein- ar sannanir fyrir þeim. Hann sagði hins vegar, að þótt Íraka og al-Qaeda greindi á um margt, ættu þau saman óslökkvandi hatur á Bandaríkja- mönnum og konungsfjölskyldunni í Sádi-Arabíu. Yfirlýsing Tenets kemur á sama tíma og Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, reynir að afla stuðn- ings meðal arabaríkja við árás á Írak. Líta því sumir á hana sem inn- legg í þá umræðu og tilraun til að réttlæta hugsanlegar hernaðarað- gerðir. Bulent Ecevit, forsætisráð- herra Tyrklands, sagði aftur á móti í gær eftir viðræður við Cheney, að Bandaríkjamenn hygðust ekki ráð- ast á Írak í „náinni framtíð“. Tengsl milli Íraka og al-Qaeda? Washington. AFP.  Háttsettur/23

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.