Morgunblaðið - 20.03.2002, Side 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÝBYGGING Orkuveitu Reykja-
víkur hefur risið undanfarna mán-
uði milli Réttarháls og Bæjarháls í
Árbæjarhverfi í Reykjavík. Þar
verða aðalstöðvar OR til húsa í
tveimur byggingum sem alls eru
um 14 þúsund fermetrar.
Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitunnar, tjáði Morg-
unblaðinu að ráðgert væri að flytja
inn í september. Fyrsta skóflu-
stungan var tekin í janúar 2001.
Arkitektar eru Ingimundur
Sveinsson og Hornsteinar. ÞG
verktakar sjá um uppsteypu en Ís-
lenskir aðalverktakar um innrétt-
ingar. Húsið er borið uppi af stál-
grindum, þ.e. súlum og gólfi og
steypt í plöturnar í gólfum og
veggir steyptir.
Segir Guðmundur að uppsteypu
hússins sé að ljúka og er vinna við
innréttingar þegar hafin. Kostn-
aður er áætlaður um 2,2 milljarðar
króna. Guðmundur segir OR munu
nýta svo til allt húsið en ráðgert er
þó að leigja út kringum þúsund
fermetra til að byrja með.
Morgunblaðið/Ásdís
Nýbygging Orkuveitunnar: Ráðgert er að leigja út um 1.000 m².
Orkuveitan í nýjar
höfuðstöðvar í haust
Árbæjarhverfi
DRÖG að samþykkt um hávaða í
Reykjavík voru samþykkt á fundi
umhverfis- og heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur í síðustu viku. Sam-
þykktin tekur til hávaða sem stafar
frá atvinnurekstri í borginni og
verður þetta í fyrsta sinn sem slík
heildstæð samþykkt um hávaða lítur
dagsins ljós, komi hún til endanlegr-
ar samþykktar í borgarkerfinu.
Í samþykktinni segir að rekstrar-
aðila beri að koma í veg fyrir heilsu-
spillandi hávaða eða hljóð sem valda
ónæði, bæði gagnvart viðskiptavin-
um og umhverfinu. Er m.a. tilgreint
hversu mikill hávaði má mælast inn-
andyra í nærliggjandi og sambyggðu
húsnæði við atvinnustarfsemina
þannig að aðrir notendur hússins
eða nágrannar þess verði ekki fyrir
truflun, ónæði eða óþægindum. Er í
þessu skyni m.a. óheimilt að loft-
ræsa um opnanlega glugga, dyr eða
lúgur í húsnæði sem hávaði stafar
frá.
Tilgreint er hversu mikill hávaði
má vera innandyra á skemmtistöð-
um og getur heilbrigðisnefnd krafist
sérstaks útbúnaðar á veitinga- og
samkomuhúsum til að fyrirbyggja
að gestir verði fyrir óþægindum eða
heyrnarskaða af völdum hávaða. Á
sérstökum atburðum utan hefð-
bundins skemmtanahalds, s.s.
stórum rokktónleikum getur heil-
brigðisnefnd skyldað tónleikahald-
ara til að afhenda gestum eyrnar-
tappa og hengja upp viðvörunar-
skilti um hávaða. Þá er sérstaklega
tilgreint hámarkshávaði á samkom-
um sem ætlaðar eru börnum, svo
sem kvikmynda-, leiksýningum og
skemmtunum.
Í samþykktinni kemur ennfremur
fram að heilbrigðisnefnd getur
bannað mjög hávaðasama starfsemi,
s.s. umferð hávaðasamra flutninga-
og farartækja um tilteknar götur í
íbúðarhverfum og í nágrenni sjúkra-
húsa og fleiri stofnana að kvöldlagi,
um nætur eða allan sólarhringinn
eftir atvikum.
Allar reglur á einum stað
Svava S. Steinarsdóttir, heilbrigð-
isfulltrúi hjá Umhverfis- og heil-
brigðisstofu Reykjavíkur, leggur
áherslu á að samþykktin sé ekki
endanleg þar sem hún eigi eftir að
koma til umfjöllunar hollustuháttar-
áðs og borgarráðs. „Þetta miðar að
því að koma í veg fyrir að hávaði af
ónæðissamri starfsemi valdi óþæg-
indum hjá nágrönnum. Þetta nær yf-
ir alla hávaðasama starfsemi hver
sem hún er, hvort sem um er að
ræða dansstað eða fyrirtæki sem er
með háværan vélbúnað eða annað
slíkt.“ Hún segir þetta í fyrsta sinn
sem slík heildstæð samþykkt er gerð
en áður hafi verið fyrirliggjandi
samþykkt umhverfis- og heilbrigð-
isnefndar um hávaða innandyra á
skemmtistöðum auk þess sem há-
vaðareglugerð hafi verið til. „Þarna
ertu hins vegar kominn með þetta
allt á einn stað og reglurnar eru
miklu heildstæðari. Þessi er mun ít-
arlegri en fyrirliggjandi reglugerð
og það hefur kannski vantað þægi-
legra plagg að vísa í þar sem allt er á
einum stað.“
Spurð um sektarákvæði sé sam-
þykktinni ekki fylgt eftir segir Svava
að þvingunarúrræði séu skilgreind í
lögum um hollustuhætti og mengun-
arvarnir. „Samkvæmt þeim er hægt
að beita dagsektum í þeim tilfellum
sem fólk fer ekki að fyrirmælum en
þeim er reyndar afar sjaldan beitt.“
Samþykkt um hávaða komin í gegnum umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Nágrannar verði ekki
fyrir ónæði vegna hávaða
Reykjavík
! "
FRAMKVÆMDIR við gerð
tjarna í Fossvogsdalnum eru í
fullum gangi en hlutverk þeirra
er að safna yfirborðsvatni og
miðla svokölluðum rennslis-
flóðum. Gert er ráð fyrir að
framkvæmdunum ljúki í júlí í
sumar.
Að sögn Haralds B. Alfreðs-
sonar, verkfræðings hjá Gatna-
málastjóra, er um samstarfs-
verkefni Kópavogs og
Reykjavíkurborgar að ræða.
„Þetta eru þó nokkrar tjarnir
niður eftir dalnum sem eru
gerðar til að miðla rennsl-
isflóðum með því að safna yf-
irborðsvatni. Í leiðinni er þetta
umhverfisaðgerð því það verða
gerðar brýr yfir þetta og göngu-
stígar í kring. Svo verður raðað
grjóti í kring þannig að þetta á
að verða svolítið huggulegt.“
Kostnaður við verkefnið er um
60 milljónir króna. Verkið var
boðið út í desember og var byrj-
að á þessu upp úr áramótunum
en áætlað er að því ljúki í júlí í
sumar. Hönnuðir svæðisins voru
Landmótun landslagsarkitektar
og VST verkfræðistofa en verk-
taki er Fleygtak.
!"
#$ %
&
!$ '#
() "'# *+"'#
,-./0123/
/45126
7,
Unnið að
gerð tjarna
Fossvogur STRÆTÓSKÝLIN á höfuðborgar-
svæðinu eru eitt af því sem verða fyr-
ir barðinu á skemmdarvörgum. Hér
má sjá skýli við Neshaga sem orðið
er gluggalaust og búið að fjarlægja
bekkinn. Talsmaður AFA JCDe-
caux, sem sér um uppsetningu og
rekstur skýlanna og auglýsinga í
þeim, segir að eina helgina hafi 17
rúður verið brotnar í biðskýlum í
vesturhluta borgarinnar.
Segir hann að svo virðist sem
gangstéttarhellur séu rifnar upp og
notaðar til að stúta glerinu með.
Nokkuð sé einnig um að börn og ung-
lingar steli rúðuhömrum úr rútum og
gangi á skýli eftir skýli og brjóti gler-
in með þeim. Í skýlunum er öryggis-
gler sem hann segir ekki auðvelt að
brjóta og kostar gler í hvert skýli 200
til 300 þúsund krónur. Yfir 200 skýli
eru á höfuðborgarsvæðinu.
Morgunblaðið/Gunnar Lund
Brotin gler
í biðskýlum
Vesturbær