Morgunblaðið - 20.03.2002, Side 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 15
Framtíðin hefst ....núna!
Borgartúni 28 • S: 562 2901 & 562 2900 • www.ef.is
159.900,-,
Super A
nti-Alia
s Filter
540 lín
ur
stgr.*
TOSHIBA DVD • 5 gerðir frá
5. kynslóð DVD mynddiskaspilara, með betri myndgæðum
og mun fullkomnari en aðrir bjóða!
TOSHIBA eru fremstir í tækniþróun. Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins, Pro-Drum mynd-
bandstækjanna og DVD mynddiskakerfisins.
29“eða 33“
100HZ
DIGITAL SCAN
*Staðgreiðsluafsláttur er 5%
Heimabíó:
Sjónvarp, skápur, magnari og hátalarar,
allt í einum pakka!
Nýjasta og fullkomnasta tækni á
einstöku verði:
frá kr.
• Super-5 Digital Blackline myndlampi
• 180-300W magnari
• 3 Scarttengi að aftan
• 2 RCA Super VHS/DVD
tengi að aftan
Super VHS, myndavéla- og
heyrnartækjatengi að framan
• Barnalæsing á stöðvar
• Glæsilegur skápur m/glerhurð og 3 hillum
• 6 framhátalarar
• 2 bassahátalarar
• 2 x 2 bakhátalarar
Margverðlaunuð tæki:
Önnur TOSHIBA tæki fást frá 14“-61“
34.900,- stgr.*
SLEÐADAGAR
Notaðir vélsleðar
með ríflegum
afslætti
Sími: 594 6000
HUGMYNDIR um almenningssam-
gangnamiðstöð neðanjarðar undir
Miklubraut við Kringluna voru
kynntar í skipulags- og bygginga-
nefnd Reykjavíkur í síðustu viku.
Forstjóri Strætó bs. segir slíka
skiptistöð í miðju höfuðborgarsvæð-
isins forsendu fyrir skilvirku leiða-
kerfi.
Byggðarsamlagið Strætó bs. var
stofnað um mitt ár í fyrra og að sögn
Ásgeirs Eiríkssonar forstjóra var eitt
af meginverkefnunum í stofnsam-
þykkt samlagsins að framkvæma
heildarendurskoðun á leiðakerfinu
þar sem litið væri á höfuðborgar-
svæðið sem eina heild. „Í dag erum
við í rauninni að keyra tvö gömul
leiðakerfi sem hefur verið slegið sam-
an, annars vegar gamla SVR-kerfið
og hins vegar gamla AV-kerfið. Og
við höfum komist að því að til þess að
geta gert kerfið skilvirkt þurfum við
koma okkur fyrir á einum miðlægum
punkti og búa til eina aðalskiptistöð í
kerfinu.“
Útreiknaður þyngdarpunktur
höfuðborgarsvæðisins
Hann segir eðlilegt að slík skipti-
stöð kæmi sem næst þyngdarmiðju
svæðisins, sem er á mótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar.
„Þetta er útreiknaður þyngdarpunkt-
ur höfuðborgarsvæðisins hvort held-
ur sem litið er til atvinnuskiptingar
eða íbúaskiptingar. Þar að auki mæt-
ast þarna tveir meginásarnir í gatna-
kerfinu, austur-vestur ásinn og norð-
ur-suður ásinn þannig að þarna liggja
greiðar leiðir til allra átta,“ segir
hann.
Að sögn Ásgeirs leiddu athuganir í
ljós að á þessum gatnamótum væri
nánast ekkert laust pláss fyrir slíka
samgöngumiðstöð. Í framhaldinu
hafi verið farið í hugmyndavinnu og
með aðstoð umferðarverkfræðings
og arkitekts hafi verið gerð tillaga og
uppkast að neðanjarðarstöð sem
grafin yrði á um það bil sex metra
dýpi. Stöðin kæmi undir Miklubraut-
ina á móts við Kringluna eða nokkurn
veginn milli tveggja bensínstöðva
sem eru sitt hvorum megin við braut-
ina. Það er Vinnustofan Þverá sem
hefur unnið uppkastið að tillögunni.
Ásgeir leggur áherslu á að neðan-
jarðarstöðin yrði fyrir fleiri tegundir
almenningssamgangna til að styrkja
starfsemi hennar. „Þá erum við að
tala um sérleyfisbíla, flugrútuna,
leigubíla og annað slíkt. Þetta er gríð-
arlega mikilvægur punktur í okkar
huga því með þessu móti eru menn í
raun og veru að koma sér úr öllum
áttum og til allra átta á einum stað,
hvort sem þeir eru að ferðast innan
höfuðborgarsvæðisins, út á land eða í
flug innanlands eða utan.“
En væri með þessu kominn vísir að
neðanjarðarsamgöngukerfi? „Við
leikum okkur að því að kalla þetta
svona Grand Sentral,“ segir Ásgeir
og hlær. „Auðvitað horfum við líka til
þess því möguleikar á sporbundnum
samgöngum hafa verið í umræðunni
hjá okkur alveg frá því í aðdraganda
stofnunar Strætó bs. Við gerum því
ráð fyrir að svona miðstöð yrði af
þeirri stærðargráðu að hún myndi
rúma brautarpall fyrir sporbundnar
samgöngur líka.“
Spurður um kostnað við neðan-
jarðarstöðina segir Ásgeir að ekki sé
búið að gera áætlun þar að lútandi
enda sé málið einungis á umræðu- og
kynningarstigi enn sem komið er. Þó
hafi verið giskað á að kostnaður gæti
verið á bilinu 1,5–2 milljarðar króna
en það sé án allrar ábyrgðar. Verið sé
að varpa þessari hugmynd fram svo
að ekki verði lokað fyrir þennan
möguleika í framtíðinni. „Við viljum
ekki að það verði hindrun í þessu
þarfa verkefni vegna þess að við telj-
um að það sé bráðnauðsynlegt í leið-
arkerfi okkar að fá svona miðlæga
stöð. Það er grundvallaratriði í því að
koma upp leiðakerfi sem virkar vel.“
Mislægu gatnamótin, sem fyrir-
huguð eru á mótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar og greint var
frá í Morgunblaðinu í gær, segir hann
ekki hafa áhrif á hugmyndir um neð-
anjarðarstöðina. „Við erum það langt
frá að þetta er alveg sjálfstætt. Hins
vegar sjáum við fyrir okkur, ef þessi
umræða fer inn í góðan og æskilegan
farveg, að þá hljótum við að skoða
mjög vandlega með borgaryfirvöld-
um og Vegagerðinni hvort hugsan-
lega mætti tengja þessar fram-
kvæmdir saman.“
Samgöngumið-
stöð neðanjarð-
ar komi undir
Miklubraut
Kringla