Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 16
300 manns
á atvinnu-
leysisskrá
UM síðustu mánaðamót voru 300
manns á atvinnuleysisskrá á Akur-
eyri, 176 karlar og 124 konur, Þetta
eru rúmlega 100 fleiri en voru á at-
vinnuleysisskrá á sama tíma í fyrra en
hins vegar fækkaði atvinnulausum
um 12 frá því í lok janúar sl., sam-
kvæmt yfirliti frá Vinnumálastofnun.
Í Dalvíkurbyggð voru 16 manns á
atvinnuleysisskrá í lok febrúar, 9
karlar og 7 konur. Atvinnulausum
fækkaði um tvo frá mánuðinum á
undan og um fimm frá sama tíma í
fyrra. Í Hrísey voru þrjár konur á at-
vinnuleysisskrá en enginn karl. Alls
fækkaði um 7 á atvinnuleysisskránni
milli mánaða og um 9 frá sama tíma í
fyrra.
Í Ólafsfirði voru 55 á atvinnuleys-
isskrá, 22 karlar og 33 konur og fækk-
aði um fjóra frá mánuðinum á undan.
Þetta eru þó 8 fleiri á atvinnuleys-
isskránni en á sama tíma í fyrra.
Á Norðurlandi eystra voru um 460
manns á atvinnuleysisskrá í lok febr-
úar sl., 241 karl og 218 konur. Þetta
eru 60 færri á skrá en í mánuðinum á
undan en 55 fleiri en á sama tíma í
fyrra.
Atvinnulausum
fækkar milli mánaða
á Norðurlandi eystra
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Glerárskóli við Höfðahlíð
Fjöldi nemenda er um 460
í 1.-10. bekk.
Vegna veikinda vantar dönskukennara
í 8.-10. bekk um óákveðinn tíma.
Upplýsingar veita skólastjórnendur Vilberg Alexandersson
í síma 461 2666 og 893 2253 og
Halldór Gunnarsson í síma 461 2666 og 690 3575.
Veffang: http://www.gler.akureyri.is/
SÍÐASTLIÐIÐ haust var lokið við
að leggja ljósleiðara þvert yfir há-
lendið, frá Vatnsfelli í Rangár-
vallasýslu að Þormóðsstöðum í
Sölvadal í Eyjafjarðarsveit og
þaðan áfram í dælustöð Norðuorku
við Þórunnarstræti á Akureyri. Í
kjölfarið hafa Norðurorka og
Fjarski, hlutafélag í eigu Lands-
virkjunar, lagt grunnnet um
bæinn, fyrst og fremst í eigin
stofnanir en einnig í húsnæði
Háskólans á Akureyri og Verk-
menntaskólans á Akureyri.
Í næsta mánuði er stefnt að
stofnun hlutafélags í eigu Norður-
orku og Fjarska um grunnþjón-
ustu í gagnaflutningum á Akur-
eyri. Franz Árnason forstjóri
Norðurorku sagði það bíða vors að
tengja fleiri við þessa þjónustu og
að einnig væri hugsanlegt að fleiri
aðilar í fjarskiptageiranum kæmu
inn í væntanlegt hlutafélag.
Franz sagði að ástæðan fyrir því
að Norðurorka kæmi að þessu
máli væri sú að fyrirtækið hefði
átt nokkrar tilbúnar lagnaleiðir,
fyrirtækið ætti spennistöðvar og
hitaveitubrunna þar sem gæti ver-
ið hentugt að koma fyrir tengibox-
um. „Þannig að með þessu erum
við að nýta þessar eignir okkar
enn frekar.“
Ljósleiðaratenging er komin í
þrjú hús Háskólans á Akureyri,
við Þingvallastræti, Glerárgötu og
á Sólborg, húsnæði VMA, húsnæði
Norðurorku og Landsvirkjunar á
Rangárvöllum, húsnæði Lands-
virkjunar við Glerárgötu og fé-
lagssviðs Akureyrarbæjar við
sömu götu.
Á morgun, fimmtudag, mun
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra opna ljósleiðarateng-
inguna sem liggur frá Reykjavík
til Akureyrar með formlegum
hætti í húsnæði HA við Sólborg.
Við það tækifæri verða einnig
möguleikar gagnaflutnings um
ljósleiðara kynntir.
Ljósleiðarastrengur frá Reykjavík til Akureyrar tekinn í notkun
Hlutafélag stofnað um grunn-
þjónustu í gagnaflutningum
Fyrirlestur
um mannlega
líðan
SAMHYGÐ, sorgarsamtökin á Ak-
ureyri, verða með fyrirlestur um
mannlega líðan fimmtudaginn 21.
mars kl. 20 í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju. Gylfi Jónsson flytur er-
indi er hann nefnir: Líður þér svona?
Umræða um tilfinningaleg viðbrögð
við áföllum og missi. Hann ræðir
einnig um hvernig fólk bregst við
áföllum, bæði andlega og líkamlega.
Fyrirlesturinn er einkum ætlaður
þeim er orðið hafa fyrir áföllum og
missi og vinum þeirra. Veitingar og
umræður eftir fyrirlesturinn.
Þór og ÍV end-
urnýja sam-
starfssamning
KNATTSPYRNUDEILD Þórs og
Íslensk verðbréf, ÍV, hafa skrifað
undir nýjan samstarfssamning og
verður ÍV því áfram helsti sam-
starfsaðili knattspyrnudeildar í ár,
líkt og undanfarin tvö. Á þessum ár-
um hafa Þórsarar náð frábærum ár-
angri á knattspyrnuvellinum og unn-
ið tvær deildir, 2. deild árið 2000 og
1. deild á síðasta ári. Þórsarar mæta
því til leiks í úrvalsdeild á sumri
komanda, eftir nokkurt hlé.
Árni Óðinsson formaður knatt-
spyrnudeildar sagðist mjög ánægður
með samstarfssamninginn, „og við
erum stoltir af því að bera merki ak-
ureyrsks fyrirtækis á keppnisbún-
ingum okkar.“ Sævar Helgason
framkvæmdastjóri Íslenskra verð-
bréfa lýsti einnig yfir ánægju með
samninginn og sagði að samstarfið
við bæði stjórn knattspyrnudeildar
og leikmenn hefði gengið mjög vel.
Jafnframt sagði Sævar að samstarfið
hefði verið jákvætt fyrir fyrirtækið.
Stjánasýning
í Freyvangi
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ hefur
sýnt leikritið Halló Akureyri eftir
Hjörleif Hjartarson frá Tjörn, við
mjög góðar undirtektir undanfarnar
vikur. Sýnt verður næst á föstudags-
og laugardagskvöld og er sýningin á
föstudagskvöldið svokölluð Stjána-
sýning. Allur ágóði hennar rennur í
sérstakan sjóð til minningar um
Kristján Jónasson frá Rifkelsstöðum
sem var ötull liðsmaður leikhússins.
Hann lést af slysförum fyrir nokkr-
um árum. Efnilegir leikara- og leik-
myndasmíðanemar hjá leikhúsinu
geta sótt um styrki úr sjóðnum.
Eyjafjarðarsveit
Mekka selur
dkRetis-hug-
búnað
MEKKA-tölvulausnir hafa tekið að
sér sölu og þjónustu á viðskiptahug-
búnaði frá dkRetis. Þetta er íslensk-
ur hugbúnaður, hannaður frá grunni
af starfsmönnum dkRetis og byggð-
ur á áratuga reynslu í þjónustu við
íslensk fyrirtæki.
Mekka-tölvulausnir tók til starfa í
september árið 2000 og tók þá við
rekstri skrifstofu Hugar sem er
stærsti eigandinn á móti EJS.
Starfsmenn eru nú 12 talsins.
NEMENDUR og kennarar í Gler-
árskóla á Akureyri lögðu náms-
bækurnar til hliðar í gær og skelltu
sér á skíði í Hlíðarfjalli á sérstökum
útivistardegi. Veðrið var með allra
besta móti, glampandi sól en dálítið
frost. Krakkarnir kunnu vel að
meta það að komast undir bert loft
og skemmtu sér konunglega í fjall-
inu. Ekki voru þó allir á skíðum eða
brettum, því stór hluti hópsins var
með snjóþotur og sleða.
Morgunblaðið/Kristján
Í sól og blíðu í Hlíðarfjalli
FULLTRÚAR meiri- og minnihluta í
bæjarstjórn Akureyrar sýndu mikil
tilþrif þegar þeir kepptu sín á milli í
hléi í hinni árlegu spurningakeppni
sem kvenfélagið Baldursbrá efnir til
í Glerárkirkju. Alls tóku þrjú lið
þátt, lið meirihlutans með þau Krist-
ján Þór Júlíusson, Þóru Ákadóttur
og Ásgeir Magnússon innanborðs,
lið minnihlutans sem skipað var Víði
Benediktssyni, Ástu Sigurðardóttur
og Jakobi Magnússyni og loks lið
Vinstri grænna, sem í voru þau Jón
Erlendsson, Valgerður Bjarnadóttir
og Kristín Sigfúsdóttir.
Atriði þetta með stjórnmála-
mönnunum var kynnt sem skemmti-
atriði og voru reglur frjálslegar, en
spurningar gengu út á að kanna
kunnáttu þeirra í málefnum kven-
félaganna í bænum. Einnig var
spurt um nafn bæjarstjóra á Ak-
ureyri og mikið fát greip um sig í
öllum liðum þegar borin var upp
spurningin um hver yrði næsti bæj-
arstjóri á Akureyri. Kristján Þór
náði bjöllunni og nefndi nafn sitt en
fulltrúar minnihlutans mótmæltu
ákaft.
Fjögur lið tóku þátt í undan-
úrslitum nú, Morgunblaðið tapaði
með einu stigi fyrir DV og Síðuskóli
átti stórleik gegn prestum. Hinir
kappsfullu kennarar komu ekki eins
sterkir til leiks í úrslitin „þeir topp-
uðu á vitlausum tíma,“ eins og einn
drengjanna úr sigurliði DV orðaði
það. Kvenfélagið Baldursbrá hefur
um árabil staðið fyrir spurninga-
keppni í Glerárkirkju á milli hinna
ýmsu fyrirtækja eða félaga til að
auðga mannlíf bæjarbúa, en ágóð-
anum hafa konurnar varið til marg-
víslegra góðra málefna. Nú stendur
til að mynda yfir söfnun fyrir steind-
um glugga í Glerárkirkju.
Guðrún Sigurðardóttir er höf-
undur spurninga, dómari og stiga-
vörður, Kristín Þorsteinsdóttir er
einnig stigavörður,spyrill er Snjó-
laug Aðalsteinsdóttir og Þorsteinn
Pétursson tímavörður.
Hver verður
næsti bæjarstjóri
á Akureyri?
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson, Jón Erlendsson og Víðir Benediktsson berjast
um bjölluna í keppni meirihluta og minnihluta í Glerárkirkju.
Blásið í VMA
LÚÐRASVEIT Akureyrar, Blás-
arasveit Tónlistarskólans á Akureyri
og Blokkó munu halda tónleika í
Verkmenntaskólanum á Akureyri í
kvöld, miðvikud. 20. mars kl 19.30.
Á efnisskránni eru verkefni í létt-
ari kantinum. Má þar nefna tónlist
úr teiknimyndum Disney og önnur
lög. Í hléinu verður boðið upp á kaffi-
hlaðborð í umsjón foreldrafélagsins.
Þá munu áheyrendur verða fræddir
um ferð sveitanna á tónlistarhátíð í
Gautaborg í Svíþjóð í júní.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦