Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 17

Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 17
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 17 SANDRA D. Friðriksdóttir, nem- andi í Myllubakkaskóla, sigraði í Stóru upplestrarkeppninni meðal sjöundu bekkinga á Suðurnesjum, utan Grindavíkur, en lokahátíðin fór fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju s.l. mánudag. Hildur Haraldsdóttir úr Holtaskóla hafnaði í 2. sæti og Mar- grét Kara Sturludóttir úr Njarðvík- urskóla í því þriðja. Skólarnir þrír fengu einnig viðurkenningu. Alls 13 nemendur tóku þátt í lokahátíðinni frá 7 grunnskólum á Suðurnesjum, 1 drengur og 12 stúlkur. Þau lásu fyrst brot úr Heimsljósi eftir Halldór Laxness, síðan ljóð eftir Ingibjörgu Haralds- dóttur en í lokaumferð lásu þau ljóð að eigin vali. Það var fróðlegt og skemmtilegt að heyra hvaða ljóð þau höfðu valið sér. Þar var Þór- arinn Eldjárn hlutskarpasta ljóð- skáldið en einnig höfðu orðið fyrir valinu ljóð eftir Jónas Hall- grímsson, Davíð Stefánsson, Jón úr Vör og Matthías Johannessen. Keppnin á mánudag var 29. lokahátíðin sem haldin hefur verið á landinu nú á vormánuðum og er hringnum þar með lokað. Alls 4.400 nemendur í 7. bekkjum grunnskól- anna tóku þátt í ár, en þetta er í 6. sinn sem keppnin er haldin. Und- irbúningur keppninnar hófst á degi íslenkskrar tungu, 16. nóvember og þegar Sandra var innt eftir því hvort undirbúningurinn hafi verið strembinn sagði hún svo ekki vera. „Þetta er bara búið að vera mjög skemmtilegt.“ Sigraði á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Sigurvegarinn, Sandra Friðriksdóttir, er lengst til hægri á myndinni, Hildur Haraldsdóttir, fyrir miðju, varð önnur og Margrét Klara Sturlu- dóttir, sem varð í þriðja sæti, er til vinstri. Búið að vera mjög skemmtilegt Suðurnes TJALDAÐ hefur verið yfir Eyja- bakka í Grindavík til að auðvelda löndunarmönnum störfin. Það var kalt en bjart í veðri þeg- ar fréttaritara bar að garði á Eyja- bakka en það er bryggja við Grindavíkurhöfn en ekki hið um- deilda svæði á hálendi landsins eða gata í Breiðholti. Verið var að landa úr Gnúpi GK-111 og mikill kraftur í löndunarmönnum. Sú ný- breytni er viðhöfð nú að búið er að tjalda á hafnarbakkanum og ljóst að þetta tjald mun nýtast vel ef það fer ekki í einhverju veðrinu. Hörður Guðbrandsson, verk- stjóri hjá Þorbirni-Fiskanesi, segir að tjaldið eigi að vera varanlegt enda sé það boltað niður. „Það kom maður sérstaklega frá Svíþjóð til að reisa tjaldið og það ætti að nýt- ast okkur vel,“ segir Hörður sem var vel dúðaður úti á meðan strák- arnir gátu unnið léttklæddir við að umstafla fiskinum inni í tjaldinu. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Tjaldað yfir bryggjuna Grindavík FERLIR, ferða- og útivistarhópur- inn, hefur að undanförnu verið að skoða og leita letursteina nálægt Keflavík og vill fá upplýsingar um fleiri. Ferlisfélagar segja að vitað sé um ýmsar áletranir og hægt að ganga að þeim vísum. Nefna þeir sálmavers sem er klappað á stein við Prestsvörð- una (séra Sigurðar Sívertsen) ofan við Leiru, stafi sem klappaðir eru í bergið við Helguvík og á klöpp á Keflavík- urbjargi, ártal og stafi á klöpp í Más- búðarhólma, ártöl og stafi á klappar- steini ofan við Þórshöfn, stafi á hellu yfir fornmannagröf í Garði, rúnir á steini við Kistugerði og ártal á steini í Fuglavík sem og stafi sem eru á klöpp þar í fjörunni og ártal og stafi undir Stúlknavörðunni. Þá eru nokkur dæmi um svonefnda LM-steina (landamerkjasteina) og leturhella er við hornið á Kotvogs- kirkju. Í fréttatilkynningu frá Ferli kemur fram að auk þessara áletrana séu til heimildir um letur á klöpp eða hellu yfir smalagröf innan við forna tún- hliðið á Hólmi, leturstein á Draughól við Garð, en áletrunin á að vera tengd handtöku manna Kristjáns skrifara á Kirkjubóli, áletrun við eða á Dauðs- mannsvörðu norðan Vegamótahóls (við Sandgerðisveginn forna) og ártal á steini í eða við Kolbeinsvörðuna á mörkum Voga og Njarðvíkur. Ef ein- hver getur upplýst hvar áletranir þessar geta verið eða hefur séð þær er viðkomandi beðinn um að láta Óm- ar Smára Ármannsson vita, einnig um annað það er málið varðar og kann að þykja merkilegt. Leita að letur- steinum Reykjanesbær BÆJARSTJÓRN Grindavíkur mót- mælir harðlega stjórnarfrumvarpi til hafnalaga sem liggur fyrir Al- þingi. Telur bæjarstjórnin að með samþykkt þess verði rekstrargrund- velli kippt undan Grindavíkurhöfn eins og fleiri höfnum á landsbyggð- inni. Í ályktun sem bæjarstjórn sam- þykkti samhljóða á síðasta bæjar- stjórnarfundi kemur fram það álit að nauðsynlegt sé að láta fara fram ítarlega rannsókn á afleiðingum frumvarpsins og lágmarkskrafa að kynna mótvægisaðgerðir til að koma í veg fyrir rekstrarþrot landsbyggð- arhafna. Skorar bæjarstjórn á Al- þingi og ríkisstjórn að afgreiða frumvarpið ekki á yfirstandandi þingi heldur gefa sér tíma til að undirbúa betur breytingarnar. „Stefni eigi að síður í að frum- varpið verði afgreitt mun bæjar- stjórn Grindavíkur beita öllum þeim ráðum sem hún telur að gagni megi koma til þess að ná fram nauðsyn- legum breytingum á frumvarpinu,“ segir í ályktuninni. Mótmæla harðlega hafnalagafrumvarpi Grindavík STRÁKALIÐ Fjörheima í Reykja- nesbæ vann Íslandsmót félagsmið- stöðva í billjard sem fram fór á dögunum. Átta félagsmiðstöðvar tóku þátt í drengjaflokki og fjórar í stúlkna- flokki. Félagsmiðstöðin Vitinn í Hafnarfirði sigraði í stúlknaflokki og Þruman í Grindavík varð í öðru sæti. Drengirnir sem urðu í þremur efstu sætunum í meistaramóti Fjörheima skipuðu lið félagsmið- stöðvarinnar en það eru þeir Kristinn Björnsson, Óskar Sig- þórsson og Ágúst Ágústsson. Þeir hafa verið afar sigursælir, að því er fram kemur á heimasíðu Reykjanesbæjar, eru tvöfaldir Suðurnesjameistarar og hlutu silf- urverðlaun á Íslandsmótinu í fyrra. Sigruðu í Íslandsmóti fé- lagsmiðstöðva Reykjanesbær FÉLAG myndlistarmanna í Reykja- nesbæ hefur fengið Einar Garibalda Eiríksson myndlistarmann til að flytja fyrirlestur á morgun, fimmtu- dag, klukkan 20. Fyrirlesturinn verður í Kjarna, Hafnargötu 57 í Keflavík, og er yf- irskrift hans: Búa hlutir yfir máli? Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um myndlist. Fyrirlestur um myndlist TVÖ tilboð bárust í lagningu slit- laga í Reykjanesbæ á þessu ári, bæði yfir kostnaðaráætlun. Bæj- arráð hefur ákveðið að taka tilboði frá S.E.E.S. ehf. sem lægstbjóð- anda. Tilboð S.E.E.S. ehf. var 18,4 milljónir kr. sem er 6,6% yfir kostnaðaráætlun ráðgjafa bæjar- ins en hún hljóðaði upp á 17,3 milljónir. Hitt tilboðið var frá Mal- bikunarstöðinni Hlaðbæ-Colas hf., 19,7 milljónir. S.E.E.S. ehf. malbikar AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.