Morgunblaðið - 20.03.2002, Qupperneq 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNLAUGUR Sævar Gunn-
laugsson, forstjóri líftæknifyrirtæk-
isins Urðar Verðandi Skuldar og
stjórnarformaður Ísfélags Vest-
mannaeyja, var í gær kjörinn stjórn-
arformaður Tryggingamiðstöðvar-
innar. Aðrir í stjórn voru kjörnir
Einar Sigurðsson, Geir Zoëga, Jón
Ásgeir Jóhannesson, Hreinn Lofts-
son sem allir sátu áður í stjórn
ásamt Gunnlaugi en nýir stjórnar-
menn eru þau Guðrún Pétursdóttir
og Sigurbjörn Magnússon hrl. Þor-
geir Baldursson og Þorsteinn Már
Baldvinsson gengu úr stjórn.
Samkomulag náðist á milli hlut-
hafa í TM um að skipa stjórnina með
þessum hætti, að sögn Hreins Lofts-
sonar fráfarandi stjórnarformanns,
en aðalfundur Tryggingamiðstöðv-
arinnar fór fram í gær. Ljóst er að
nýr stjórnarformaður, Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson, er fulltrúi fjöl-
skyldu Sigurðar heitins Einarsson-
ar, útgerðarmanns í Vestmannaeyj-
um og Guðbjargar Matthíasdóttur,
en Guðbjörg og tengdir aðilar eiga
nú 43,29% hlutafjár í Tryggingamið-
stöðinni. Fulltrúar fjölskyldunnar í
stjórn eru einnig Einar Sigurðsson
varaformaður, sonur Sigurðar og
Guðbjargar, Geir Zoëga og Sigur-
björn Magnússon hrl. Jón Ásgeir Jó-
hannesson og Hreinn Loftsson eru
fulltrúar Ovalla Trading sem á
18,02% hlutafjár og Guðrún Péturs-
dóttir er fulltrúi Vors ehf., fjárfest-
ingarfélags Péturs Björnssonar,
fyrrverandi forstjóra Vífilfells, sem
á 4,75% hlut í TM, en Guðrún er
dóttir Péturs.
Eðlilegt framhald af
undangengnum atburðum
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson
stjórnarformaður segir í samtali við
Morgunblaðið að ný stjórn endur-
spegli breytt eignarhlutföll í Trygg-
ingamiðstöðinni. „Þetta er eðlilegt
framhald af þeim atburðum sem átt
hafa sér stað síðustu vikur. Fjöl-
skyldan í Vestmannaeyjum hefur
styrkt stöðu sína í félaginu og full-
komin sátt ríkir um þessar breyt-
ingar á milli þeirra sem um þær
fjölluðu. Tryggingamiðstöðin er öfl-
ugt félag í mikilli sókn. Það er engra
stórra breytinga að vænta í rekstr-
inum við þessar breytingar,“ segir
Gunnlaugur.
Hreinn Loftsson, fráfarandi
stjórnarformaður, segir í samtali við
Morgunblaðið að eðlilegt sé að þeir
aðilar sem hafi náð svo sterkum hlut
í TM taki við forystu. „Ég á ekki von
á öðru en að menn muni vinna vel
saman að því að efla fyrirtækið og
leita tækifæra sem til staðar eru fyr-
ir fyrirtækið. Þessar breytingar í
samsetningu hluthafahópsins eiga
ekki að hafa áhrif á það. Ég á heldur
ekki von á öðru en að menn hugi að
hagsmunum allra hluthafa í því
efni,“ segir Hreinn.
Mætt var fyrir 85,82% atkvæða á
aðalfundinn. Tillögur sem lágu fyrir
fundinum voru samþykktar, þ.á m.
tillaga um greiðslu arðs upp á um
186,5 milljónir króna, heimild til
stjórnar til kaupa á hlutabréfum í
TM allt að 10% af nafnverði hluta-
fjár. Kaupverð bréfanna má verða
allt að 10% yfir markaðsverði.
Einnig var samþykkt aukning
hlutafjár í formi útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa. Hlutafé TM verður auk-
ið um kr. 699.297.126 með útgáfu
jöfnunarhlutabréfa og verður
hlutafé félagsins eftir jöfnun kr.
932.396.168. Hreinn Loftsson út-
skýrði tillöguna svo á fundinum að
stjórnarmönnum hafi ekki þótt nafn-
verð hlutafjár endurspegla eigið fé
TM réttilega og eftir nokkrar um-
ræður í stjórninni hafi verið ákveðið
að leggja þessa tillögu fyrir aðal-
fund.
Fækkun tryggingafélaga
Í ræðu sinni á fundinum gerði
Hreinn Loftsson hryðjuverkin 11.
september m.a. að umtalsefni. „Á
síðasta aðalfundi félagsins kom fram
að ýmsar blikur væru á lofti á er-
lendum endurtryggingamörkuðum.
Mörg stórtjón höfðu þá orðið í heim-
inum sem lent höfðu af miklum
þunga á endurtryggingafélögum og
má í því sambandi nefna mestu óveð-
urstjón í Evrópu frá upphafi vega.
Þegar svo við bættist versnandi
ástand á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum var ljóst að hækkanir endur-
tryggingaiðgjalda voru óumflýjan-
legar. Það var við slíkar aðstæður á
endurtryggingamörkuðum sem hin
skelfilegu hryðjuverk í Bandaríkjun-
um, 11. september sl., urðu. Ljóst er
að þar var um stærsta vátrygginga-
legan atburð sögunnar að ræða.“
Hreinn sagði að endurnýjun end-
urtryggingasamninga Trygginga-
miðstöðvarinnar hefði verið viðun-
andi. Félagið ber hærri fjárhæðir í
einstökum tjónum en áður hefur
verið og mun breytingin leiða til
þess að meiri sveiflur geta orðið í af-
komu félagsins vegna stærri tjóna
en áður hefur verið.
Hreinn vakti ennfremur athygli á
því að skaðatryggingafélögum hefur
fækkað úr tólf árið 1995 í fjögur nú.
„Mikil og hörð samkeppni
hefur ríkt á íslenskum vá-
tryggingamarkaði og hef-
ur hún leitt til þess að
þátttakendum hefur fækk-
að mjög. Nú er svo komið
að aðeins fjögur íslensk
skaðatryggingafélög eru
starfandi hér þ.e. Trygg-
ingamiðstöðin, VÍS, Sjóvá
Almennar tryggingar og
Vörður á Akureyri. Nú
síðast yfirtók Sjóvá Al-
mennar tryggingar rekst-
ur tveggja bátaábyrgða-
félaga á sl. ári og eignaðist
ennfremur öll hlutabréf í
Samábyrgð Íslands á fiski-
skipum. Ef markaðshlut-
deild félaganna síðastliðin
ár er skoðuð sést að
Tryggingamiðstöðin hefur
haldið hlut sínum og vel
það.“ Markaðshlutdeild
TM hefur vaxið úr 24,8%
árið 1995 í 27,6% árið 2001, að sögn
Hreins. Á sama tíma hefur markaðs-
hlutdeild Sjóvár-Almennra og yfir-
tekinna félaga lækkað úr 37,3% árið
1995 í 33,7% árið 2001 en hlutdeild
VÍS og yfirtekinna félaga aukist úr
33,9% árið 1995 í 40,5% árið 2001.
Fjórða skaðatryggingafélagið, Vörð-
ur á Akureyri, hefur markaðshlut-
deild í kringum 1% og var hún 1,2%
árið 1995, samkvæmt tölum Hreins.
Afleit afkoma
eignatrygginga
Gunnar Felixson, forstjóri TM,
fór yfir reikninga félagsins og lýsti
ánægju sinni með aukningu mark-
aðshlutdeildar Tryggingamiðstöðv-
arinnar á sl. ári. Hann telur rekstr-
arniðurstöðu ársins 2001 ásætt-
anlega þegar tekið er tillit til þess að
óvenju mörg stórtjón lentu á félag-
inu á sl. ári en hagnaðurinn nam 417
milljónum miðað við 171 milljón árið
áður. Í ræðu Gunnars kom einnig
fram að bókfærð tjón námu 4.912
milljónum króna á síðasta ári og
hækkuðu um 1.004 milljónir eða
25,7%. Þessi mikla hækkun stafar
fyrst og fremst af brunatjóni hjá Ís-
félagi Vestmannaeyja í desember
2000 en það var að fullu greitt á síð-
asta ári en fjárhæð þess var um
1.000 milljónir króna.
Gunnar fór einnig yfir afkomu
þriggja stærstu tryggingaflokkanna.
Afkoman í eignatryggingum hefur
versnað verulega á undanförnum ár-
um og var sýnu verst á síðasta ári
eða afleit, að sögn Gunnars. „Vonir
standa til að hækkanir á iðgjalds-
töxtum í brunatryggingum atvinnu-
húsnæðis og fasteignatryggingum
sem og endurmat á einstökum
áhættum, leiði til þess að afkoma
þessarar greinar verði viðunandi,“
sagði Gunnar.
Afkoman í sjó-, flug- og farm-
tryggingum var viðunandi og lög-
boðnar ökutækjatryggingar sem er
langstærsti greinaflokkurinn skilaði
hagnaði í fyrsta sinn í mörg ár á síð-
asta ári. „Það veldur þó nokkrum
áhyggjum að þessi jákvæða þróun
byggist að nokkru á því að tjónatíðni
var óvenju lág á fyrri hluta sl. árs en
hefur síðan færst aftur í fyrra horf.“
TM á þrjú hlutdeildarfélög, þ.e.
félög sem TM á yfir 15% hlut í:
Hekla hf. með 33% hlut, Íslensk end-
urtrygging hf. með 38% hlut og
Sameinaða líftryggingarfélagið hf.
15% hlut. Hlutdeild TM í eigin fé
þessara félaga er nú 779 milljónir
króna í stað 843 milljónir árið áður.
Samstæðan á hlutabréf í 65 fé-
lögum. Keypt voru hlutabréf í 16 fé-
lögum, þar af sex nýjum félögum,
fyrir 1.725 milljónir króna á árinu og
voru stærstu kaupin í hlutabréfum í
Íslandsbanka hf. fyrir 1.241 milljón
króna, en kaupin fóru fram í desem-
ber sl.
Stenst kröfur um gjaldþol
Gunnar gat þess einnig að sam-
kvæmt útreikningum fullnægir TM
vel kröfum um gjaldþol samkvæmt
ákvæðum laga um vátryggingastarf-
semi. Gjaldþol félagsins nú er 5,07
sem hlutfall af lámarksgjaldþoli en
það var 4,0 í árslok 2000.
„Góðir fundarmenn. Árið 2001 var
afar annasamt ár hjá starfsfólki fé-
lagsins. Mikil tjónatíðni og mörg
stórtjón hafa kostað mikla vinnu.
Mikil samkeppni ríkir á vátrygg-
ingamarkaði, þó sumir vilji halda
annað,“ sagði Gunnar m.a.
„Ég tel Tryggingamiðstöðina
standa vel að vígi til að takast á við
þau verkefni sem framundan eru.
Félagið er fjárhagslega traust og
hefur á að skipa hæfu og metnaðar-
fullu starfsfólki sem er reiðubúið að
leggja hart að sér til þess að félagið
haldi áfram að dafna. Miklar um-
ræður hafa verið um félagið í sam-
félaginu á undanförnum vikum og
vonar sá sem hér stendur að þær séu
að baki,“ sagði Gunnar Felixson
undir lok ræðu sinnar.
Stjórnarformanns-
skipti hjá Trygg-
ingamiðstöðinni
Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, lýsti á aðalfundi félagsins
ánægju sinni með aukna markaðshlutdeild þess.
Morgunblaðið/Ásdís
Á AÐALFUNDI Delta hf. í gær kom
fram í máli stjórnarformanns félags-
ins, Péturs Guðmundarsonar, að
mikil áhersla hefði verið á útvíkkun
starfseminnar erlendis og væru
kaupin á Pharmamed á Möltu til
marks um það. Eftir þau kaup fer
mestur hluti framleiðslu Delta fram
á Möltu. Pétur sagði að samtökin
Europe’s 500 hefðu valið Delta eitt af
500 framsæknustu fyrirtækjum í
Evrópu og að mikil aukning hefði
verið í sölu inn á Evrópumarkað.
Auk markaða á meginlandi Evr-
ópu talaði Pétur um að sótt yrði inn á
Norðurlönd og einnig horft lengra til
austurs. Þar að auki yrði haldið
áfram að undirbúa markaðssókn inn
á Bandaríkjamarkað.
Tvö ný svið hafa verið stofnuð inn-
an Delta, gæðasvið og þróunarsvið,
og lagði Pétur áherslu á að gæða-
kröfur væru sífellt að aukast. Innan
fyrirtækisins væri mikið unnið að
auknum gæðum og 65 manns störf-
uðu að gæðamálum.
Róbert Wessman, forstjóri Delta,
sagði í ræðu sinni að árið í fyrra hefði
verið það besta í sögu félagsins og
sem dæmi hefði hagnaður verið
105% yfir áætlun. Hagnaður var 813
milljónir króna í fyrra en 222 millj-
ónir króna árið 2000. Þá sagði hann
síðustu ár hafa verið ár mikils vaxt-
ar, umsvifin hafi sjöfaldast frá árinu
1998 og markaðsverð félagsins auk-
ist úr 2,7 milljörðum króna haustið
1999 í um 16 milljarða króna nú, án
þess að hlutafé hefði verið aukið.
Róbert sagði að áætlanir félagsins
gerðu ráð fyrir 10,5 milljarða króna
veltu félagsins í ár og að hagnaður
eftir skatta yrði 1,7 milljarðar króna.
Framleiðslugeta félagsins sagði
hann að væri orðin 3,6 milljarðar
taflna á ári, en um 2 milljarðar færu
til stofnana sem stunda hjálparstarf,
svo sem Alþjóða rauða krossins og
Lækna án landamæra.
Stefnt að
áframhaldandi vexti
Stefnt er að áframhaldandi vexti
hjá fyrirtækinu og sagði Róbert að
ætlunin væri að markaðssetja er-
lendis um 25 ný samheitalyf fyrir
árslok 2005 og í framtíðinni sé stefnt
að því að ljúka við þróun á 10–12 nýj-
um samheitalyfjum á hverju ári.
Á aðalfundinum var gerð tillaga
um greiðslu 15% arðs, sem jafngildir
um 33 milljónum króna, en hlutafé er
218 milljónir króna og eigið fé 2,5
milljarðar króna.
Í stjórn Delta voru kjörnir Jón
Halldórsson, Karl Wernersson, Ottó
B. Ólafsson, Pétur Guðmundarson
og Stanley Pálsson, en úr stjórn
gengu Hannes Guðmundsson og
Grímur Sæmundsen.
Í lok fundarins kvaddi Grímur sér
hljóðs og sagðist hafa verið í stjórn
frá árinu 1999 fyrir hönd Lyfjaversl-
unar Íslands, sem nú ætti ekki leng-
ur hlut í félaginu. Grímur fagnaði
vexti félagsins, meðal annars sam-
runans við Omega Farma, sem orðið
hefði að veruleika fyrr um daginn.
Sagði hann að forsvarsmenn fyrir-
tækjanna tveggja hefðu rætt mögu-
leikann á þessum samruna skömmu
eftir að Róbert Wessman tók við
stjórn Delta fyrir um þremur árum,
og síðan hefði þetta verið rætt af og
til með þeim árangri sem nú lægi
fyrir.
Aðalfundur Delta hf.
Mikill vöxtur
Morgunblaðið/Ásdís
Róbert Wessman, forstjóri Delta, segir árið 2001 besta ár í sögu félagsins
og að áfram sé stefnt að auknum vexti.
ÁREIÐANLEIKAKÖNNUN
vegna sameiningar Delta og Omega
Farma er lokið og hafa stjórnir
beggja félaganna undirritað endan-
legt samkomulag um sameiningu fé-
laganna. Áætluð velta sameinaðs fé-
lags á þessu ári eru 10,5 milljarðar
króna og koma yfir 90% teknanna er-
lendis frá.
Omega Farma verður rekið sem
dótturfélag Delta og munu eigendur
Omega Farma fá 26% hlut í Delta
sem greiðslu fyrir Omega Farma.
Friðrik S. Kristjánsson verður
áfram framkvæmdastjóri Omega
Farma en tekur auk þess sæti í fram-
kvæmdastjórn sameinaðs félags. Ró-
bert Wessman, forstjóri Delta, verð-
ur forstjóri sameinaðs félags.
Helstu eigendur Omega Farma
eru Birkir Árnason, Jón Á. Ágústs-
son og Stanley Pálsson, sem allir
sitja í stjórn þess, og að auki Friðrik
S. Kristjánsson og Jón Halldórsson.
Stanley Pálsson og Jón Halldórsson
tóku sæti í stjórn Delta á aðalfundi
félagsins í gær.
Delta og
Omega
Farma
sameinuð