Morgunblaðið - 20.03.2002, Side 22
ERLENT
22 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Dub
lin
Ver›dæmi
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • 200 Kópavogur • Sími 535 2100
48.845kr.
...páskafer›
örfá sæti laus
www.plusferdis.is
á mann miðað við Bewleys Hótelið í 2ja manna herbergi með
morgunverði, ferðum til og frá flugvelli erlendis og flugvallarsköttum.
JACQUES Chirac Frakklandsforseti sést hér á há-
degisverðarfundi með félagasamtökum í París í gær
en kosningabarátta vegna forsetakosninganna í
Frakklandi í apríl stendur nú sem hæst og sækist
Chirac þar eftir endurkjöri.
Í glugganum speglast síðan vegfarendur. Ljóst
þykir að mjög mjótt verði á mununum með Chirac
og helsta keppinauti hans, sósíalistanum Lionel
Jospin, sem verið hefur forsætisráðherra síðan
1997.
Reuters
Chirac í þungum þönkum
928 flóttamenn, sem komu með
flutningskipi til hafnar á Sikiley í
fyrradag, voru í gær fluttir í herstöð
nálægt Bari í Apulia-héraði. Þar
eiga flóttamennirnir að gista í hjól-
hýsum og ítölskum yfirvöldum hefur
verið séð fyrir skrifstofum í herstöð-
inni til að afgreiða umsóknir flótta-
fólksins um hæli.
Norðursambandið, stjórnmála-
samtök sem vilja að gerðar verði
ráðstafanir til að draga úr straumi
ólöglegra innflytjenda til Ítalíu,
krafðist þess að flóttafólkinu yrði
vísað strax úr landi.
Um 360 börn voru um borð í flutn-
ingaskipinu, sem lagði af stað frá
Líbanon í vikunni sem leið. Talið er
að flestir flóttamannanna séu Kúrd-
ar frá Sýrlandi og hafi ætlað að fara
til ættingja sinna í Þýskalandi. Þar
býr nú um hálf milljón Kúrda, að-
allega frá Tyrklandi en einnig frá
Írak og Sýrlandi.
Um 20.000 flóttamenn komu með
skipum til Ítalíu á síðasta ári. Marg-
ir flóttamannanna fara þaðan til
Þýskalands og annarra Evrópuríkja.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins sagði í gær að koma flótta-
fólksins til Sikileyjar í fyrradag
sýndi að sambandið þyrfti að móta
sameiginlega stefnu í innflytjenda-
málum. Þegar hefur verið ákveðið
að innanríkisráðherrar ESB-land-
anna komi saman 30. maí til að ræða
málið og tillögu um að stofnaðar
verði sérstakar sveitir til að halda
uppi eftirliti við landamæri ESB-
ríkja.
Stjórn Ítalíu lýsti yfir neyðar-
ástandi á Sikiley til að veita yfirvöld-
um aukið vald til draga úr straumi
flóttafólks til eyjunnar.
Nokkrir skipverja flutningaskips-
ins voru handteknir eftir að skipið
var dregið til hafnar á Sikiley. Áhöfn
skipsins er sögð hafa eyðilagt vélar
þess og reynt að fela sig meðal
flóttafólksins.
Flóttamennirnir sögðust hafa
greitt andvirði 200.000–400.000
króna hver fyrir siglinguna frá Líb-
anon.
Flóttafólkið
flutt í her-
stöð á Ítalíu
Cataniu. AP, AFP.
LEIFAR áður óþekktrar Inkabyggðar hafa
fundist á afskekktum og óblíðum tindi í And-
esfjöllum, og gæti uppgötvun þessi varpað
nýju ljósi á uppruna og endalok síðasta stóra
menningarstórveldis indjána í Vesturheimi.
Byggðin, sem hinar nýuppgötvuðu leifar
eru af, hefur verið á tindi er heitir Cerro Vict-
oria, og kann að hafa verið eitt af síðustu vígj-
um Inkanna áður en þeir voru gersigraðir af
Spánverjum 1572, að því er munir, sem fundist
hafa á staðnum, benda til. Staðurinn er í
Vilcabamba-héraði í Perú, en þangað flýðu
Inkarnir eftir að spænskir hermenn börðu nið-
ur uppreisn indjána 1536.
Byggðin hefur verið í bröttum fjallshlíðum í
2.500 til 3.300 metra hæð. Af palli, sem byggð-
ur hefur verið efst á toppnum, segja könnuðir
að sé „stórkostlegt útsýni“ yfir nokkra snævi
þakta fjallstinda.
Slíkir tindar voru Inkum helgir staðir og
pallurinn hefur að öllum líkindum verið not-
aður til trúarathafna, og til að viðhalda tíma-
tali Inkanna, sagði breski rithöfundurinn Pet-
er Frost, sem stjórnaði leiðangrinum sem fann
staðinn, ásamt Scott Gorsuch, landkönnuði frá
Kaliforníu og perúska fornleifafræðingnum
Alfredo Valencia Zegarra.
Leiðangursmenn hafa enn sem komið er
einungis rannsakað aðra hlíð fjallsins, en fund-
ið þar rústir um eitt hundrað bygginga, þ. á m.
híbýla, geymsluhúsa, grafreita, greftrunar-
turna og rétta. Þéttur skógur er yfir miklum
hluta svæðisins. „Við höfum enn sem komið er
rétt aðeins klórað í yfirborðið,“ sagði Frost.
Leirker frá staðnum benda til að byggð hafi
verið í Cerro Victoria um það leyti sem Ink-
arnir hófu að byggja upp veldi sitt um árið
1400. Það er „tiltölulega sjaldgæft“ að finnist
Inkabyggð sem er að mestu óþekkt, sagði
bandaríski fornleifafræðingurinn Johan Rein-
hard, sem er sérfræðingur í Vilcabamba-hér-
aðinu. „Ég tók strax eftir stærðinni, sem þýðir
að þetta hlýtur að hafa verið mikilvægur stað-
ur, jafnvel þótt hans sé ekki getið í sögulegum
heimildum.
Staðurinn, sem heimamenn kalla Corihu-
ayrachina, er tæpa 40 km suðvestur af Machu
Picchu, frægustu Inka-fornleifunum í Perú og
helsta ferðamannastað landsins. Þær eru enn
nær öðrum helgistað sem heitir Choquiquirao.
En ólíkt þessum tveim stöðum, þar sem
bjuggu úrvalshópar ráðamanna, presta og
stjórnenda, er líklegast að í Corihuayrachina
hafi búið alþýðufólk sem vann í nærliggjandi
silfurnámu og bændur sem framleiddu mat
fyrir Choquiquirao.
Það er mikilvægt fyrir fornleifafræðinga að
finna svona leifar vegna þess að staðir þar sem
fólk starfaði og bjó segja meira um menningu
þess en stjórnarsetrin, segir Vincent Lee, ann-
ar sérfræðingur í rannsóknum í þessu héraði.
Reuters
Hópur landkönnuða á vegum bandarísku samtakanna National Geographic að störfum í
hinum nýuppgötvuðu leifum Inkaborgarinnar í Andesfjöllunum í Perú.
Leirker og aðrir hlutir
frá tímum Inkanna, er
fundist hafa nýverið í
Andesfjöllum.
Leifar áður óþekktrar
Inkabyggðar finnast í Perú
Los Angeles Times.
’ Þetta hlýtur að hafaverið mikilvægur staður ‘
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hafnaði gagnrýni Margaret
Thatcher, fyrrverandi forsætisráð-
herra, á Evrópusambandið og sagði
að sú afstaða hennar að Bretar ættu
að segja skilið við sambandið og hafna
evrunni væri „ekki til marks um föð-
urlandsást, heldur glópsku“.
Thatcher segir í nýrri bók sinni,
„Statecraft“, að Evrópusambandið sé
„trúlega mesta vitleysa nútímans“ og
lýsir þátttöku Breta í þessu samstarfi
sem „sögulegum stórmistökum“.
Blair segir hins vegar að Bretar
tækju nú þátt í að móta framtíð
Evrópu og breska stjórnin myndi
halda áfram „að ná því besta út úr
Evrópu fyrir Bretland“.
„Meðan þessi stjórn er við völd
verður ekki horfið aftur til þeirra
daga þegar Bretland var veikt og ein-
angrað,“ sagði Blair á þinginu í fyrra-
dag. „Á valdatíma síðustu stjórnar
Íhaldsflokksins var Bretland sett út á
jaðarinn … í einangrunarherbergi
Evrópu.“
Slæmt fyrir Duncan Smith?
Blair hafnaði þeirri afstöðu Thatch-
er að aðrar Evrópuþjóðir þörfnuðust
Breta meira en þeir þörfnuðust Evr-
ópusambandsins og sagði að þær
framfarir sem orðið hefðu í álfunni
mætti að miklu leyti rekja til sam-
starfs Breta við aðrar Evrópuþjóðir,
samstarfs sem hefði verið óhugsandi
á valdatíma breskra íhaldsmanna.
Talsmaður framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins sagði að hún
svaraði yfirleitt ekki ummælum
stjórnmálamanna, en bætti við að
samstarfið í mikilvægustu málaflokk-
unum byggðist ekki á því að aðildar-
ríkin gætu „valið og hafnað“.
Talið er að gagnrýni Thatcher geti
komið sér illa fyrir Iain Duncan
Smith, leiðtoga Íhaldsflokksins, sem
hefur reynt að draga úr umræðunni
um Evrópumálin og einbeitt sér að
því að gagnrýna stefnu stjórnarinnar
í innanríkismálum.
Blair ósammála Thatcher
London. AFP.