Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 26
LISTIR
26 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VLADIMIR Ashkenazy hættir
störfum sem aðalhljómsveitarstjóri
Tékknesku fílharmóníusveitarinnar
haustið 2003 þeg-
ar tékkneski
hljómsveitarstjór-
inn Zdenek Macal
tekur við starfi
hans þar. Ashken-
azy hefur gegnt
stöðu aðalhljóm-
sveitarstjóra
hljómsveitarinnar
frá árinu 1998.
Macal hefur
verið tónlistarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í New Jersey í Banda-
ríkjunum, þar sem hann hefur starf-
að í átta ár.
Með ráðningunni snýr Macal aft-
ur til föðurlands síns, en hann fædd-
ist í Brno árið 1936 og stundaði tón-
listarnám í heimalandi sínu.
Vladimir Ashkenazy er eftir sem
áður listrænn stjórnandi Æsku-
hljómsveitar Evrópusambandsins
og heiðurshljómsveitarstjóri hljóm-
sveitarinnar Fílharmóníu í Lundún-
um, auk þess sem hann kemur fram
sem gestastjórnandi víða.
Ashkenazy
kveður Prag
Vladimir
Ashkenazy
FÖSTUVAKA verður í Hásölum,
safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju
í kvöld kl. 20.30. Smári Ólason tón-
listarfræðingur
fjallar um „gömlu
lögin“ við Passíu-
sálma Hallgríms
Péturssonar og
Kammerkór
Hafnarfjarðar
undir stjórn
Helga Bragason-
ar frumflytur 11
kórútsetningar
Smára á Passíu-
sálmalögum. Þessi gömlu íslensku
þjóðlög eru skráð úr munnlegri
geymd en þau hafa áður verið flutt
sem sönglög með orgelundirleik.
Smári fjallar um þessa gömlu þjóð-
menningu, tilurð hennar og þróun,
hvernig þessi gömlu þjóðlög gleymd-
ust í lok 19. aldar og á þeirri 20. og
hvernig hluti þeirra varðveittist í
hljóðritunum.
Föstuvaka
í Hafnarfjarð-
arkirkju
Hallgrímur
Pétursson
NÚ fara í hönd vortónleikar
tónlistardeildar Listaháskóla
Íslands, og þar með lýkur
fyrsta starfsári deildarinnar.
Tónleikarnir verða sjö og fara
fram í Smiðjunni, Sölvhólsgötu
13 og hefjast allir kl. 20.
Melkorka Ólafsdóttir, nem-
andi í flautuleik, ríður á vaðið á
fyrstu tónleikunum í kvöld og
flytur hún Einleikssónötu í
a-moll eftir Carl Philip Emanu-
el Bach, First Sonata eftir Bon-
uslav Martinu, Syrinx eftir
Debussy, La Merle Noir eftir
Messiaën og Svítu eftir Benj-
amin Godard.
Nú stendur yfir skráning í
tónlistardeild LHÍ.
Flaututón-
leikar í
Smiðjunni
KÓR Áskirkju heldur tónleika í Ás-
kirkju í kvöld kl. 20. Á efnisskránni
eru „a capella“ verk frá 19. og 20.
öld eftir Pablo Casals, Francis
Poulenc, Anton Bruckner, Þorkel
Sigurbjörnsson, Jakob Hall-
grímsson, Hafliða Hallgrímsson og
fleiri.
Kór Áskirkju er skipaður ungu
söngfólki sem unnið hefur við kór-
starf síðan í haust. Stjórnandi kórs-
ins er Kári Þormar, en hann tók við
stöðu organista og kórstjóra um
sama leyti.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Sungið án
undirleiks
í Áskirkju
Morgunblaðið/Ásdís
Kári Þormar stjórnandi æfir hinn unga kór Áskirkju.
VIÐAR Gunnarsson bassasöngvari
er í hópi þeirra íslensku óperu-
söngvara sem farsælastir hafa orðið
á erlendum vettvangi. Hann hefur
búið í Þýskalandi í tæp tólf ár og
sungið í fjölmörgum þýskum óperu-
húsum og víðar um Evrópu. Viðar
hefur nokkrum sinnum komið heim
til að syngja með Íslensku óper-
unni, en ár og dagur er síðan hann
hefur haldið einsöngstónleika hér.
En nú er loks komið að því. Á föstu-
dagskvöld kl. 20.00 syngur hann í
Salnum í Kópavogi, og Jónas Ingi-
mundarson leikur með honum á pí-
anó. Á efnisskrá eru sýnishorn úr
þeim óperuhlutverkum sem Viðar
hefur verið að syngja ytra, íslensk
sönglög og ljóð eftir Schumann. En
hvers vegna höfum við ekki fengið
að heyra meira í honum á þessum
tíma? „Mér finnst ég hafa verið svo
bundinn úti, og það tekur mikinn
tíma að æfa upp heilt tónleikapró-
gramm, en nú er komið að því að ég
ætla gefa fólki kost á að heyra hvað
ég er búinn að vera að gera und-
anfarin ár úti í Þýskalandi.
Meginuppistaðan eru atriði úr
óperum. Ég ætla að bjóða upp á
tvær aríur úr Boris Godunov eftir
Mussorgskíj, en ég söng í þessari
óperu á síðasta ári. Þetta er mikið
verk eins og þeir vita sem til þekkja.
Á mínum fyrstu árum í Wiesbaden
byrjaði ég á því að syngja Rocco í
Fidelio eftir Beethoven og hafði
mjög gaman af. Það var eitt mitt
fyrsta hlutverk á þýsku sviði og á
tónleikunum syng ég atriði úr þess-
ari óperu. Svo syng ég aríu úr Don
Giovanni – hlutverk Leporellos, en
ég söng það við óperuna í Essen.
Það er gaman að segja frá því að
óperan í Essen er tiltölulega ný og
hönnuð af Alvari Aalto, sem teikn-
aði Norræna húsið. Það er með ólík-
indum hve vel hefur tekist til með
þetta óperuhús, því það er svo frá-
bær hljómburður í því. Ég hef bara
ekki kynnst því betra.“
Viðar segist ekki viss um hver
hannaði hljómburðinn í óperunni í
Essen, en Aalto hannaði nánast allt
í húsinu, allt útlit, ytra sem innra,
sæti í salinn, svæði fyrir utan hann
og fleira.
„Hef lengi gjóað
augunum á Daland“
„Þetta er mjög nútímalegt hús og
með ólíkindum hve vel hefur tekist
til með þetta. Við gætum þess vegna
tekið okkur þetta hús til fyrirmynd-
ar, því það er konsertsalur líka og
maður sér oft í sjónvarpinu að verið
er að sjónvarpa þaðan Evróputón-
leikum, þannig að húsið er mjög
gott og eftirsótt. Hljómsveitin sem
starfar við húsið í Essen er ein af
bestu hljómsveitum Þýskalands og
salurinn þjónar henni líka vel og er
bara alveg frábær hvernig sem á
hann er litið.“
Viðar er lausamaður, hefur ekki
fastan samning við eitt ákveðið hús,
heldur ferðast á milli þeirra á lausa-
samningum og er mjög eftirsóttur.
Í vetur hefur hann verið að syngja í
óperunni í Mannheim og í Bremen.
Í byrjun apríl byrja svo æfingar á
uppfærslu Listahátíðar Íslensku
óperunanr, Sinfóníuhljómsveitar
Íslands og Þjóðleikhússins á Hol-
lendingnum fljúgandi, en þar verð-
ur Viðar í hlutverki norska sæfar-
ans Dalands. „Ég hlakka verulega
til að fást við það verkefni. Ég hef
ekki sungið Daland áður, en er bú-
inn að vera að gjóa augunum á hann
í nokkur ár og hlakka til að fá tæki-
færi til að takast á við hann, þetta er
mjög skemmtilegt hlutverk.“
Viðari líst vel á ástand söngmála
hér heima og segir framfarirnar
miklar á síðustu árum.
„Það er sérstaklega ánægjulegt
að Íslenska óperan skuli hafa getað
fastráðið íslenska söngvara. Þetta
hefur okkur marga söngvarana
dreymt um, og ef maður hefði átt
kost á því á sínum tíma, þá hefði
maður sjálfsagt ekki látið sér detta í
hug að flytja búferlum til annars
lands til að sinna þessu starfi. Þetta
er meiriháttar skref fram á við.“
Það eru rúm tíu ár síðan Viðar
söng síðast einsöngstónleika hér, og
því hefur hann ekki áður sungið í
þeim nýju tónlistarhúsum sem hér
hafa sprottið upp á þeim tíma. „Ég
hef aldrei sungið í Salnum áður. Ég
söng þar í fyrsta skipti í gærkvöldi
með Jónasi þar sem hann var að
kynna rússneska músík, Múss-
orgskíj og verk hans Myndir á sýn-
ingu. Hann bað mig að syngja atriði
úr Boris Godunov eftir sama tón-
skáld, og mér leist sérstaklega vel á
að syngja í salnum. Hljómburður-
inn þar er frábær og veikasti tónn
kemst til skila um allt hús.“
Næsta vetur syngur Viðar í Kass-
el og syngur hlutverk landgreifans í
Tannhäuser eftir Wagner, en Viðar
segir það draumahlutverk sem
hann hafi lengi langað að takast á
við. Hann syngur einnig hlutverk
Don Alfonsos í Cosi fan tutte eftir
Mozart.
„Þessi hlutverk eru bæði ný fyrir
mig og ég hlakka verulega til að
syngja þau þótt ég sé nú búinn að
syngja ansi mörg hlutverk.“
„Alvarlegri hlutverkin
fara röddinni betur“
Viðar hefur tök á ótal mörgum
bassahlutverkum og syngur bæði
gamanhlutverk og alvarleg hlut-
verk. „Mér finnst þó alvarlegri hlut-
verkin og bel canto hlutverk fara
best við röddina. En röddin passar
þó í buffo og gamanhlutverk líka.“
Viðar segir að efnahagsástandið í
Þýskalandi hafi komið almennt
verulega hart niður á listum og erf-
iðara sé nú en áður fyrir söngvara
að starfa í lausamennsku. Hann
hlær þó þegar hann er spurður að
því hvort hann sé nokkuð á heimleið
og svarið er einbeitt og ákveðið nei.
„Ég er ekki á leiðinni heim. Það
er nóg að gera úti og ég er með tvo
hálffullorðna unglinga sem eru í
námi úti, þannig að ég er ekkert að
hugsa mér til hreyfings enn sem
komið er.“
Auk þeirra verka sem Viðar
nefndi og sungin verða á tónleik-
unum á föstudagskvöld, eru aríur úr
Töfraflautunni og Rakaranum í
Sevilla, sönglög eftir Árna Thor-
steinsson, Sveinbjörn Sveinbjörns-
son og Sigvalda Kaldalóns og ljóða-
söngvar eftir Robert Schumann.
„Ég er ekki á leiðinni heim“
Morgunblaðið/RAX
Jónas Ingimundarson píanóleikari og Viðar Gunnarsson bassasöngvari.
Viðar Gunnarsson
bassasöngvari hefur
ekki sungið á einsöngs-
tónleikum á Íslandi í
meir en áratug.
Bergþóra Jónsdóttir
ræddi við hann um störf
hans ytra og aðstöðu
söngvara, Aalto-óp-
eruhúsið í Essen og
tónleika hans í Salnum
á föstudagskvöld.
begga@mbl.is
ÁSHILDUR Haraldsdóttir flautu-
leikari, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlu-
leikari og Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari, leika
á öðrum áskrift-
artónleikum Tón-
listarfélags Ísa-
fjarðar sem
haldnir verða í
Hömrum í kvöld,
miðvikudags-
kvöld, kl. 20.30.
Á efnisskránni
eru píanósónata
eftir Jónas Tóm-
asson, verk f.
flautu og píanó
eftir Copland og
Arthur Foote,
verk eftir de
Falla og Tsjaík-
ovský f. fiðlu og
píanó og að lokum
tríó eftir tékk-
neska tónskáldið
Martinu.
Áskriftarkort
Tónlistarfélags-
ins gilda á tón-
leikana, og að
venju býður fé-
lagið skólanem-
um 20 ára og
yngri ókeypis að-
gang. Félag ís-
lenskra tónlistar-
manna styrkir
þessa tónleika.
Kammertón-
leikar í Hömrum
Nína Margrét
Grímsdóttir
Sigrún
Eðvaldsdóttir
Áshildur
Haraldsdóttir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦