Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 28
UMRÆÐAN
28 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HEFÐBUNDIN
bankastarfsemi er í
eðli sínu smásala á
peningum og þjónustu.
Vaxtamunur, þóknanir
og gengishagnaður
endurspegla arðsemis-
og ávöxtunarkröfu
banka. Er nema von að
spurt sé þegar árs-
reikningar bankanna
hafa verið birtir hvort
þessar kröfur bank-
anna séu eðlilegar;
hvort þær séu í sam-
ræmi við tíðarandann?
Hvers vegna bankar
komist upp með að
halda vöxtum jafn
háum og raun ber vitni? Opinbera
svarið er að þenslan í samfélaginu
sé enn svo mikil að Seðlabankinn
geti ekki lækkað stýrivexti. Þrátt
fyrir leit hefur undirritaður ekki
fundið merki um þenslu, nema ef
vera kynni að sumir túlkuðu það
þenslueinkenni að fólk og fyrirtæki
eigi í vandræðum með að greiða
reikninga. Staðreyndin er sú að
bankarnir hafa verið að taka miklu
meira til sín af þjóðarkökunni en
þeim ber. Til lengri
tíma litið getur það að-
eins komið niður á
bönkunum sjálfum, því
það að slátra mjólk-
urkúnum, sem fyrir-
tæki og almenningur
eru í þessu tilviki, hitt-
ir þá sjálfa fyrir því
ekki er í aðra vasa að
leita. Þessi háa ávöxt-
unarkrafa íslenskra
banka er ekki síður
eftirtektarverð í ljósi
víðtækari heimilda til
að verðtryggja lán en
annars staðar þekkist,
auk hins undarlega
ábyrgðarmannakerfis
sem ekki á sér hliðstæðu í veröld-
inni. Þessi atriði, sem stundum hafa
verið nefnd „almannatryggingakerfi
fjármagnsins“, ættu við „eðlilegar“
aðstæður að leiða til lægri vaxta
vegna minni áhættu; sú er þó ekki
raunin.
Tekjur banka
Hátt hlutfall rekstrartekna ís-
lenskra banka á sér ekki hliðstæðu í
þeim löndum á EES-svæðinu sem
við viljum bera okkur saman við. Í
þessu samhengi er fróðlegt að skoða
tölur sem Samtök iðnaðarins hafa
látið frá sér um að rekstrartekjur
(vaxtatekjur, gengishagnaður og
þóknanir) séu 77–95% hærri hjá ís-
lenskum bönkum en gengur og ger-
ist á öðrum Norðurlöndum og í Evr-
ópu. Það er því mun arðvænlegra að
reka banka á Íslandi en annars stað-
ar á EES-svæðinu. Spurningin sem
brennur á vörum flestra sem láta sig
þessa huti einhverju varða er hvort
Íslendingar séu að reka lúxusbanka-
kerfi sem aðrar þjóðir hafa ekki efni
á? Ef svo er er nauðsynlegt að grípa
til róttækra breytinga því einn af
lykilþáttum þess að geta rekið sam-
keppnishæft atvinnulíf og samfélag
er að bankakerfið sé samkeppnis-
hæft við nágrannalöndin.
Staðan á Íslandi
Hvers vegna komast bankarnir
upp með að innheimta þá okurvexti
sem raun ber vitni? Svo virðist sem
skjól stjórnvalda, einsleitt eignar-
hald og fákeppni skipti miklu. Lík-
lega eru staðreyndirnar þær, að
þrátt fyrir að stjórnvöld breyttu sín-
um kúrs vegna tilvistar íslensku
krónunnar og engrar samkeppni
munum við áfram að búa við hátt
vaxtastig og lúxusbankakerfi, nema
róttækar breytingar komi til. Hagn-
aður af hefðbuninni bankastarfsemi
eins og sá sem hér hefur verið lýst
næst ekki nema á sjúkum markaði;
eða hvernig svara menn fyrir það að
lækkun verðbólgu skuli engin áhrif
hafa á vaxtastig þar sem útlán eru
verðtryggð? Svari hver fyrir sig.
Mitt mat er það að nýbirtir árs-
reikningar banka og lánastofnana
séu bestu rökin sem fram hafa kom-
ið lengi fyrir því að taka upp evru og
ganga í ESB. Það getur ekki verið
markmið í sjálfu sér að almenningur
og fyrirtæki í landinu standi undir
lúxusbankakerfi. Það má nýta fjár-
magnið í aðra hluti.
Hafa Íslendingar efni
á lúxusbankakerfi?
Lúðvík
Bergvinsson
Bankakerfið
Mitt mat er það að árs-
reikningar banka og
lánastofnana, segir
Lúðvík Bergvinsson,
séu bestu rökin sem
fram hafa komið lengi
fyrir því að taka upp
evru og ganga í ESB.
Höfundur er alþingismaður.
„ÆGIR tekur sinn
toll,“ þetta hefur verið
viðkvæðið þegar skip
og bátar hafa farist við
Íslandsstrendur í ald-
anna rás.
Þegar flugvélar far-
ast er lögð í slysarann-
sóknir margra ára
vinna, blaðaskrif um
atburðinn og gang
rannsóknar svo að
segja daglega í öllum
helstu fjölmiðlum
landsins og niðurstöð-
urnar birtar í skýrslu-
formi og ræddar á
fundum og samkom-
um. Með þessum orð-
um er ég aðeins að segja að svona á
þetta að vera.
Þegar sjóslysin verða og sjómenn
farast, birtist mynd af þessum
blessuðum mönnum í blöðum sem
ekki komu heim úr sjóferð sinni,
viku seinna man enginn nema nán-
ustu ættingjar þeirra er lentu í þeim
hremmingum þau atvik er leiddu til
þess að börn þeirra eru nú föður-
laus. Rannsóknarnefnd sjóslysa
(RS) skilar svo áliti sínu árum
seinna og oft með athugasemdinni
„slysið varð af mannlegum mistök-
um“. Það er ekkert sem heitir
mannleg mistök, heldur getur verið
um menntunar- og þjálfunarleysi,
bilanir í tækjum, um náttúruölf að
ræða, o.s.frv.
Oft á tíðum þurfti ekki Ægir að fá
sinn toll. Bjarmi VE fórst núna
seinni partinn í febrúar og með hon-
um tveir menn. Ég ætla að fullyrða
að hvorugur þeirra þurfti að farast
ef staðið hefði verið rétt að málum
varðandi haffærni, tilkynningar-
skyldu (TS) og björgunarmál.
Það sér hver maður sem eitthvað
hefur fylgst með björgunarmálum
sjómanna síðustu misseri að þar er
mikil brotalöm í framkvæmd björg-
unarmál og TS. Það leið klukku-
stund uns TS lét Landhelgisgæsl-
una (LHG) vita að skipið væri horfið
af skjánum hjá sér, þá var reyndar
Gæslan búin að heyra neyðarsend-
ingu frá einhverju skipi eða bát. Það
kemur fram í kvöldfréttum RÚV 27.
febrúar að það hafi átt sér mannleg
mistök hjá TS, þar sem starfsmaður
hennar var að leita að báti austan
við eyjar.
Samkvæmt reglum, undirrituðum
af dómsmálaráðherra, um skipulag
og yfirstjórn leitar og björgunar á
hafinu þá stjórnar Slysavarnafélag-
ið Landsbjörg (SL) við strendur
landsins og hafsvæðinu næst henni
en LHG á hafi úti. Ef um útkall er
að ræða hjá öðrum hvorum aðilan-
um skal hann láta hinn vita. Það
hefur orðið misbrestur á þessari
framkvæmd, sbr. þegar Una í Garði
fórst norður af landinu árið 2001.
Það eru alltof margir aðilir með
puttana í þessum geira, það á aðeins
að vera ein TS og ein björgunarstöð
fyrir sjófarendur og þá meina ég
allt undir sama hatti. Það á að vera
skylda að öll fley, hvort sem það eru
trillur eða frystitogarar, að vera
með sjálfvirka tilkynningarskyldu
um borð, og náttúrlega tæki sem
virka. Ég sé ekki nokkurn annan
stað fyrir svona stöð nema í höndum
LHG, þar er mannskapur sem er
menntaður í sjósókn
og þjálfaður í björgun-
armálum. Þar er tækn-
in til að fylgjast með
skipum, tækin svo sem
skipastóll, þyrlur og
flugvélar. Þegar öllu er
á botnin hvolft virðast
þessi mál snúast um
krónur og aura, það
vill enginn láta það frá
sér sem hann hefur.
Ég hef 5 spurningar:
1. Hver bað starfs-
mann TS að leita að
báti austan við eyjar ?
2. Af hverju var SL
ekki látin vita þegar
Una í Garði fórst norð-
ur af landinu ?
3. Af hverju eru svona óljós
landamæri milli SL og LHG í sam-
bandi við strendur landsins og hafs-
ins, hvar eru þessi mörk?
4. Er samvinnan stirð á milli SL
og LHG?
5. Snúast aðgerðarleysi manna að
koma á einni TS og sjóbjörgunar-
stöð, um að annar hvor missi spón
úr aski sínum?
Við sjóbjörgun á að kalla til; skip
og þylur LHG, björgunarbáta SL,
nærliggjandi skip, þyrlur Varnar-
liðsins, flugvélar og annarra tækja
er koma að gagni, það eru jú oftast
mannslíf í veði. Það sem við sjó-
menn förum fram á er einfaldlega
að einn aðili sé gerður ábyrgur fyrir
að boða, stjórna og samhæfa störf
allra aðila er koma að sjógæslu og
björgun.
Þáttur Siglingastofnunar
Það virist vera orðið ansi auðvelt
að koma hvaða koppi sem er á sjó
og oft á tíðum með samþykki Sigl-
ingastofnunar Íslands (SÍ). Nokkur
dæmi um tvískinnung SÍ:
1. Þegar Mýrafelli ÍS-123 hvolfdi
við veiðar í Arnarfirði árið 1996,
leiddu athuganir RS í ljós að stöð-
ugleiki bátsins stæðist ekki kröfur.
Þó svo að sama dag og stöðugleika-
gögn voru undirrituð af hálfu SÍ var
gefið út haffæriskírteini fyrir skipið.
2. Sama mál virðist vera uppi á
teningnum þegar Æsa ÍS-87 fórst í
Arnarfirðinum 1996, ýmsu ábóta-
vant við stöðugleika skipsins, samt
var skipið á sjó. Haffæriskírteini
skipsins hafði runnið út tveimur
mánuðum áður.
3. Þegar Haukur SF-208 sökk í
róðri árið 1997 uppfyllti báturinn
ekki stöðugleikakröfur SÍ hvorki frá
árunum 1975 eða 1993. SÍ gaf samt
út haffæriskírteini kvaðalaust.
4. Þegar Jonna SF-12, fórst aust-
ur af Skarðsfjöru árið 1996, heyrðist
síðast í henni á reki rafmagnslausri.
Eftirfarandi athugasemd kom fram
frá RS; „RS telur að gildandi
ákvæðum um stöðugleika fiskiskipa
hafi ekki verið framfylgt þegar SÍ
samþykkti ítrekað breytingar á
skipinu án þess að reglum um stöð-
ugleika skipsins væri fullnægt og án
þess að stöðugleiki skipsins væri
kannaður í kjölfar breytinganna. RS
vekur athygli á að athugasemdir
hafi verið gerðar við rafbúnað skips-
ins nærri 5 árum áður en skipið
fórst og það þrátt fyrir að þessar at-
hugasemdir hefi verið færðar inn í
athugasemdalista skipsins hjá stofn-
uninni hafi ítrekað verið veittar
undanþágur frá kröfum um endur-
bætur. Með hliðsjón af ofangreindu
og þar sem í fórum SÍ er aðeins að
finna óverulegan hluta þeirra teikn-
inga og gagna um þær breytingar,
sem gerðar hafa verið á skipinu á
undanförum árum og sem þar ættu
að vera fyrir hendi, telst eftirlit SÍ
með Jonnu SF-12 hafa verið í öllu
ófullnægjandi“.
5. Af hverju var Bjarmi VE með
haffæriskírteini ef sjálfvirkur sendi-
búnaður til tilkynningarskyldu var
bilaður?
Þetta er sú stofnun á Íslandi, þ.e.
SÍ, sem á að sjá til þess að þeir
bátar og skip sem við sjómenn erum
að draga björg í bú á, séu yfirhöfuð
sjófær. Við erum nú ekki mjög
kröfuharðir, en þetta er það atriði
sem ekki má klikka. Það er lögð
miklu meiri vinna í að skoða bílinn
manns heldur en það skip sem við
búum og störfum í helminginn af
árinu.
Nú er nóg komið, Ægir er fyrir
löngu búinn að fá sinn toll.
Nú er nóg komið!
Valgeir Ómar
Jónsson
Sjóslys
Mikil brotalöm, segir
Valgeir Ómar Jónsson,
er í framkvæmd björg-
unarmála og tilkynn-
ingarskyldu.
Höfundur er vélstjóri á frystitogara.
omar@centrum.is.
ÁÆTLUN um
rekstur, framkvæmdir
og fjármál borgarinnar
til næstu þriggja ára
var lögð fram í borgar-
stjórn hinn 7. mars sl.
Samkvæmt þeirri áætl-
un munu 520 ný leik-
skólapláss bætast við
hjá Leikskólum
Reykjavíkur á næstu
þremur árum. Nái hún
fram að ganga þýðir
það að á næsta kjör-
tímabili munum við ná
þeim áfanga að geta
boðið öllum börnum yf-
ir átján mánaða aldri
leikskólavist.
Umbylting
Frá því að Reykjavíkurlistinn tók
við stjórnartaumum í borginni fyrir
átta árum hefur orðið algjör umbylt-
ing í leikskólamálum. Byggðar hafa
verið eitt hundrað nýjar leikskóla-
deildir og nemur stofnkostnaður við
þær alls 3,3 milljörðum króna. Á
árinu 1994 rak Reykjavíkurborg 56
leikskóla en á þessu ári rekur hún 79
leikskóla víðs vegar um borgina. Að
auki hefur verið byggt við marga
eldri leikskóla, deildum fjölgað, eld-
húsaðstaða bætt vegna stóraukinnar
heilsdagsvistar leikskólabarna og
hlúð enn frekar að innra starfi skól-
anna.
Styrkir til einkarekinna leikskóla
hafa meira en þrefaldast á síðustu
tveimur kjörtímabilum og dagvistun
hjá dagforeldrum er nú niðurgreidd
fyrir öll börn en ekki
bara börn einstæðra
foreldra og námsmanna
eins og áður var. Öll
börn á leikskólaaldri í
Reykjavík eiga því rétt
á dagvistartryggingu.
93% barna
Á árinu 1994 sóttu
um 52% reykvískra
barna á aldrinum 1–5
ára leikskóla, en á
þessu ári verður hlut-
fallið 78%. Hlutfall
barna í heilsdagsvist
hefur á þessum tíma
aukist úr 30% í tæp
80%. Gert er ráð fyrir
að á þessu ári verði hægt að bjóða öll-
um börnum tveggja ára og eldri pláss
á leikskóla. Það má því með sanni
segja að þjónusta við börn á forskóla-
aldri hafi stóraukist undir forystu nú-
verandi borgarstjórnarmeirihluta.
Foreldrar liðlega 93% barna á aldr-
inum 1–5 ára nýta nú rétt sinn til nið-
urgreiddrar dagvistarþjónustu á
vegum Reykjavíkurborgar.
Átján mánaða á leikskóla
Ég hef margsinnis látið þá skoðun
í ljós að erfitt muni reynast að bjóða
öllum sem á þurfa að halda í yngsta
aldurshópnum, þ.e. börnum á aldr-
inum eins til tveggja ára, upp á leik-
skólavistun. Með lengingu fæðingar-
orlofs munu vonandi margir
foreldrar geta samnýtt rétt sinn til
fæðingarorlofs, foreldraorlofs og
sumarleyfis með þeim hætti að þeir
geti sjálfir að mestu sinnt barni sínu
fyrstu átján ævimánuði þess.
Engu að síður er mikilvægt að
tryggja þeim sem þetta geta ekki að-
gang að góðri, niðurgreiddri dagvist-
un fyrir börn sín. Það má gera með
því að búa betur að dagforeldrakerf-
inu, styðja við bakið á því fólki sem
þar starfar og hafa virkt eftirlit með
starfseminni. Við átján mánaða aldur
standi börnum svo til boða dvöl á
leikskóla. Við þetta er miðað í áætl-
unum Leikskóla Reykjavíkur til
næstu þriggja ára.
Rétturinn
til leikskóla-
þjónustu
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Höfundur er borgarstjóri.
Börn
Þjónusta við börn á
forskólaaldri, segir
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, hefur stór-
aukist undir forystu nú-
verandi borgarstjórn-
armeirihluta.
Kaffibollar
Cappucino
verð kr. 2.700
Mokka
verð kr. 1.890
Kaffikönnur
verð kr. 1.890
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18,
laugardag 11-15