Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 35
! "
#$%
FJÁRMÁL Reykja-
víkurborgar hafa ver-
ið fyrirferðarmikil í
pólitískri umræðu
þetta kjörtímabil. Við
sjálfstæðismenn höf-
um bent á þá gríð-
arlegu skuldaaukn-
ingu sem átt hefur sér
stað á sama tíma og
tekjur hafa aukist
sem aldrei fyrr.
Hreinar skuldir borg-
arinnar munu áttfald-
ast á föstu verðlagi
frá árslokum 1993 til
ársloka 2002. Skulda-
aukningin nemur tæp-
um 9 milljónum króna
á dag.
Borgarstjóri hefur haft hinn
mesta ama af þessari umræðu og
svarar því helst til að hún væri í
pólitík en ekki í bókhaldi. En nú
getur Ingibjörg Sólrún ekki lengur
barið höfðinu við steininn og neit-
að staðreyndum. Í tilraun sinni til
að klóra í bakkann og afsaka
skuldasöfnunina hefur borgarstjóri
sagt að engar áhyggjur þurfi að
hafa af 9 milljóna króna skulda-
aukningu á dag, því að fjárfest-
ingar á móti hafa numið 37 millj-
ónum króna á dag frá 1998 til
2002.
Eitthvað hafa tölurnar verið á
reiki hjá borgarstjóranum. Í Kast-
ljósþætti nýlega lækkaði þessi
upphæð í 30 m.kr. og í grein í
Morgunblaðinu sl.
laugardag er talan
komin í 28 m.kr.
Hvaða tala skyldi
birtast næst í niður-
talningu borgar-
stjóra?
Þegar farið er að
rýna nánar í það sem
að baki býr kemur í
ljós að sitthvað er tínt
til. Þannig hafa t.d.
holræsi borgarinnar
verið eignfærð, sem
ekki var gert áður, og
þessi færsla leiðir til
margra milljarða
„aukningar“ í bók-
færðri fjárfestingu.
Fasteignamat hefur hækkað langt
umfram almennar verðlagshækk-
anir og það hefur sömuleiðis leitt
til „aukningar“ í fjárfestingum.
Sem dæmi má nefna Ráðhús
Reykjavíkur. Fasteignamat þess
hefur hækkað verulega á um-
ræddu tímabili og samkvæmt skil-
greiningu borgarstjóra hefur verið
fjárfest í Ráðhúsinu sem nemur
um 1⁄2 milljón á dag!
Þessi málflutningur borgar-
stjóra er auðvitað fráleitur og sýn-
ir í hvers konar vörn hún er komin
vegna fjármálastöðu Reykjavíkur-
borgar. Þessar tölur sem borgar-
stjóri hefur nú verið að kynna
standast ekki og Ingibjörg Sólrún
mun því væntanlega halda áfram
að leiðrétta sig og telja niður
næstu vikurnar. Raunveruleg
eignaaukning borgarinnar mun
eftir því sem best verður séð vera
nálægt því sú sama og skulda-
aukningin. Eignaaukningin á um-
ræddu tímabili er nánast öll fjár-
mögnuð með lánum.
Hvaða tölur
fáum við næst?
Inga Jóna
Þórðardóttir
Borgarmál
Samkvæmt skilgrein-
ingu borgarstjóra, segir
Inga Jóna Þórðardótt-
ir, hefur verið fjárfest í
Ráðhúsinu sem nemur
um 1⁄2 milljón á dag!
Höfundur er oddviti borgarstjórn-
arflokks Sjálfstæðisflokksins.
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, félag laganema
ÞAÐ er ekki ónýtt að geta slegið
um sig með dæmisögum góða dát-
ans Svejk. En það er ekki öllum
hent. Svejk var frómur maður og
heiðskír á svipinn. Þess vegna hef
ég orð á þessu, að í Morgun-
blaðinu í gær lýsti Lúðvík Berg-
vinsson alþingismaður Svejk
þannig, þegar hann var að selja
rottuhunda: „Söluaðferð hans
gekk út á að sýna skepnuna aldrei,
ljúga upp á hana kostum sem hún
bjó alls ekki yfir, taka við pening-
um um leið og færi gafst og stinga
svo af inná næsta bar.“ Alþingis-
maðurinn segir, að þessar hug-
renningar hafi sótt á sig, það séu
„afglöp“ að ég skuli láta skanna
Alþingistíðindin á Ólafsfirði og að
ég eigi að biðjast afsökunar!
Rétt er að athuga tvær fullyrð-
ingar í grein Lúðvíks Bergvins-
sonar, sem skipta máli:
1. Hann segir að hugmyndin um
að skanna Alþingistíðindin hafi
óvænt borist frá Stöðvarfirði. Það
er ekki rétt að hugmyndin hafi
komið þaðan eins og honum á að
vera kunnugt, þar sem hann seg-
ist hafa lesið greinar mínar í
Morgunblaðinu fyrir helgi. Þar
kemur fram, að farið var að vinna
að hugmyndinni áður en ég var
kjörinn forseti Alþingis vorið
1999. Ég átta mig ekki á, með
hvaða rökum Lúðvík Bergvinsson
hefur ætlast til að erindum Ólafs-
firðinga yrði vikið til hliðar, þótt
óskir um samvinnu bærust frá
nýjum aðilum. Ég hef áður minnt
á það atvinnuleysi, sem landlægt
hefur verið í Ólafsfirði síðan í des-
ember 1999.
2. Lúðvík segir, „að vegna for-
sögunnar hefði verið viðkunnan-
legra að láta Stöðfirðinga vita um
afdrif erindis síns“. Það gerði ég.
Að síðustu þetta: Það er þýðing-
armikið að fjarvinnsluverkefni
séu flutt út á land. Það er rétt, að
það hefur ekki gengið nógu vel.
Við skulum þó ekki gleyma því, að
í fjárlögum fyrir þetta ár eru und-
ir ýmsum framlögum í mennta-
málaráðuneyti veittar 4 millj. kr.
til SMS, samskipta með síma,
Stöðvarfirði, en engar slíkar fjár-
veitingar eru sérmerktar Óley,
Ólafsfirði. Ég veit ekki hvort Lúð-
vík Bergvinsson hefur haft þetta í
huga, þegar hann kallar það „af-
glöp“ að skönnunin skuli fara til
Ólafsfjarðar.
Þegar Lúðvík Bergvinsson líkir
því við sölu rottuhunda að ég skuli
vinna að því að færa fjarvinnslu-
verkefni til Ólafsfjarðar þekki ég
hann ekki fyrir sama mann. Það
er engu líkara, sem kemur auðvit-
að ekki til greina, en einhver ann-
ar hafi haldið um pennann og
myndi pistill Lúðvíks þá vel mega
kallast gott dæmi um ósjálfráða
skrift.
Halldór Blöndal
Kratinn og góði
dátinn Svejk
Höfundur er 1. þingmaður Norð-
urlandskjördæmis eystra.
Klapparstíg 44 Sími 562 3614PIPAR OG SALT
PÁSKA-
EGGJAMÓT
KONFEKTMÓT MATARLITIR
Póstsendum