Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Arðbær aukavinna
þar sem engin takmörk eru. Gerðu þér
og þínum greiða með því að skoða málið.
http://pentagon.ms/galaxy
Hársnyrtimeistari
Óska eftir að ráða hressan og sjálfstæðan hár-
snyrtimeistara frá 1. maí. Góð laun í boði.
Upplýsingar gefur Hulda í síma 544 4465,
á virkum dögum, eða 699 3793.
Hársnyrtir óskast
Hársnyrtir óskast hálfan eða allan dag-
inn. Upplýsingar í síma 690 9680.
Handflakarar
Vantar vana ýsuflakara
Mikil vinna framundan.
Vinsamlegast hringið í Þórð í síma
893 6321 eftir kl. 17.00.
Sætoppur ehf.
Sandgerðisbær
Sandgerðisbær óskar eftir að ráða í tvær stöður
við Leikskólann Sólborgu. Viðbygging við
leikskólann verður vígð 22. mars nk.
Aðstoðarleikskólastjóra
með leikskólakennararéttindi í 100% stöðu.
Húsaleiga verður niðurgreidd; veittur verður
flutningsstyrkur. Upplýsingar um starfið veitir
bæjarstjóri í síma 423 7554 eða í gegnum
netfangið sigurdur@sandgerdi.is .
Matráð
Upplýsingar veitir Jórunn Guðmundsdóttir
leikskólastjóri í síma 423 7620 og á skrifstofu
Sandgerðisbæjar í síma 423 7554.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sandgerð-
isbæjar, Tjarnargötu 4, fyrir 22. mars. nk.
Einnig eru umsóknareyðublöð á netinu
(sandgerdi.is).
Bæjarstjórinn.
"#
$%& '(&&
)&*&& $$+ ))%) ,
-
'./. ,
0
0 !
1
2
32
0
'' #2
0
% 4
5 6 )&& 7
$%& '(&& 6 ,8 $%& '(&'
9 *
:
Akureyrarbær
skóladeild
Kennarar
Eftirtaldar stöður eru lausar við grunnskóla Akureyrar skólaárið 2002-2003:
Óskað er eftir jákvæðum og kraftmiklum einstaklingum til starfa. Mikilvægt er að þeir eigi
auðvelt með mannleg samskipti og séu tilbúnir til að taka þátt í umbótum á skólastarfi og
þróunarvinnu næstu skólaár. Allir grunnskólar Akureyrar eru einsetnir.
Brekkuskóli v /Laugargötu: Fjöldi nemenda
er um 520 í 1.-10. bekk.
Kennara vantar í:
Almenna kennslu á yngsta stigi
Almenna kennslu á miðstigi
Tölvukennslu - tölvuumsjón
Smíðar
Myndmennt
Sérkennslu
Upplýsingar veita skólastjórnendur í síma
462-2525 eða vasasímum 899-3599 Björn
Þórleifsson og 897-3233 Sigmar Ólafsson.
Veffang: http://www.brek.akureyri.is
Giljaskóli v/Kiðagil: Fjöldi nemenda er um 340.
Skólaárið 2002 - 2003 verður kennt í 1. - 9. bekk
og í sérdeild fyrir nemendur með mikla fötlun.
Giljaskóli mun taka í notkun nýja kennslustof-
uálmu og sérgreinastofur frá næsta hausti, öll
aðstaða verður þá hin glæsilegasta. Þar sem
skólinn er í mótun er óskað eftir kraftmiklu og
framtakssömu fagfólki sem vill taka þátt í upp-
byggingar- og þróunarstarfi.
Nánari upplýsinar um skólann er einnig að
finna á heimasíðu skólans: http://
www.giljaskoli.akureyri.is
Kennara vantar í eftirtalin störf; ýmist heilar
stöður eða hlutastörf, fastráðningu eða laus-
ráðningu vegna barnsburðarleyfa:
Almenna kennslu og umsjón á yngsta stigi
Almenna kennslu á miðstigi og í unglingadeild
Raungreinar á unglingastigi
Sérkennslu
Heimilisfræði,
Tónmennt, myndmennt og handmennt
Skólasafnskennslu 75%
Námsráðgjöf 35%.
Danskennslu í námskeiðsformi
Einnig verða ráðnir deildarstjórar í hlutastörf;
æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
stjórnunarstörfum, góða hæfni í mannlegum
samskiptum og skipulagshæfileika.
Upplýsingar gefa skólastjórnendur Halldóra
Haraldsdóttir (halldora@akureyri.is) og
Þorgerður J. Guðlaugsdóttir
(johannag@akureyri.is) og í síma 462
4820, fax: 461 3640.
Glerárskóli v/Höfðahlíð: Fjöldi nemenda er
um 430 í 1.-10. bekk.
Kennara vantar í: Almenna kennslu, þrjár
stöður
Handmennt
Tónmennt, hálfa stöðu
Sérkennslu, tvær stöður
Einnig vantar þroskaþjálfa í tvær stöður
Upplýsingar veita skólastjórnendur Vil-
berg Alexandersson og Halldór Gunnars-
son í síma 461-2666. Veffang: http://
www.gler.akureyri.is/
Lundarskóli v/Dalsbraut: Fjöldi nemenda
er um 520 í 1.-10. bekk.
Kennara vantar í:
Almenna kennslu og umsjón á yngsta stigi
Almenna kennslu og umsjón á miðstigi
Íslenskukennslu á unglingastigi
Samfélagsfræði á unglingastigi
Stærðfræði á unglingastigi
Tölvukennslu
Heimilisfræði
Hannyrðir
Smíðar
Upplýsingar veita skólastjórnendur Þór-
unn Bergsdóttir og Gunnar Jónsson í síma
462-4888.
Oddeyrarskóli v/Víðivelli: Skólinn er fá-
mennasti grunnskóli Akureyrarbæjar. Þar
stunda um 200 nemendur nám í 10 bekkjar-
deildum. Starfsfólk sem alls telur um 38 manns
vinnur með nemendum í daglegu skólastarfi.
Kennara vantar í:
Raungreinar,hlutastöðu
Tónmennt, hlutastöðu
Heimilisfræði, hlutastöðu
Textílmennt, hlutastöðu
Upplýsingar veita skólastjórnendur Helga
Hauksdóttir og Svanhildur Daníelsdóttir
í síma 462-4999. Veffang: http://
www.oddak.akureyri.is/
Síðuskóli v/Bugðusíðu: Fjöldi nemenda er
um 480 í 1.-10. bekk.
Kennara vantar í:
Myndmenntakennslu, ein staða
Hannyrðakennslu, ein staða
Íþróttakennslu, ein staða
Upplýsingar veita skólastjórnendur Ólafur
B. Thoroddsen og Sigríður Ása Harðard-
óttir í síma 462-2588. Veffang: http://
www.gler.akureyri.is/
Hlíðarskóli Kennara vantar við Hlíðarskóla.
Hlíðarskóli er lítill sérskóli fyrir börn á grunn-
skólaaldri í aðlögunarvanda sem ekki hafa náð
að fóta sig í hverfisskóla. Breytingavinna er
í gangi sem miðar að því að efla skólann og
tengja hann umhverfi sínu á virkan hátt. Fram-
sækið uppbyggingarstarf er því framundan.
Skólinn er staðsettur í Varpholti 5 km norðan
Akureyrar.
Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri,
Bryndís Valgarðsdóttir í síma 462-4068
og GSM: 848-4709.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar
Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu
í störfin. Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og
Launanefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar um kaup og kjör eru veittar á starfsmannadeild Akureyrarbæjar í síma 460-1000.
Umsóknum skal skilað í upplýsingaanddyri í Geislagötu 9, á eyðublöðum sem þar fást. Einnig
er hægt að sækja um á heimasíðu Akureyrarbæjar - www.akureyri.is. Umsóknarfrestur er til
8. apríl 2002.
STYRKIR
Auglýsing um styrk
til náms í Finnlandi
Í tilefni 50 ára afmælis íslenska lýðveldisins
(1994) ákvað stjórn Menningarsjóðsins Ísland-
Finnland að veita sérstakan árlegan námsstyrk.
Styrkurinn er veittur til náms í finnskri tungu,
sögu eða þjóðháttafræði. Styrkurinn er nú til
umsóknar fyrir Íslending til náms í Finnlandi
í einhverri af ofangreindum námsgreinum
námsárið 2002—2003. Styrkurinn er að upp-
hæð 5.900 evrur og mögulegt er að skipta hon-
um milli tveggja námsmanna. Ennfremur er
veittur ferðastyrkur.
Umsóknir, ásamt staðfestum afritum af prófskír-
teini og meðmælum, skulu sendar til finnska
sendirkennarans í Norræna húsinu fyrir 15. maí
nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Nán-
ari upplýsingar hjá finnska sendikennaranum,
Sari Päivärinne, í síma 525 4044 eða sari@hi.is.