Morgunblaðið - 20.03.2002, Qupperneq 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 47
GUÐRÚN Marteinsdóttir, prófess-
or í fiskifræði við Háskóla Íslands,
flytur erindi á vegum Líffræðifélags
Íslands sem nefnist „Áhrif strauma á
framlag ólíkra stofnhluta þorsks til
nýliðunar“, fimmtudaginn 21 kl. 20 í
Lögbergi stofu 101.
Almennt er talið að hrygning
þorsksins fari fram að meginhluta
við suðurströndina og að egg, lirfur
og seiði reki þaðan vestur með land-
inu inn á uppeldisstöðvar þorsksins
fyrir norðan og austan lan.
Fyrirlestur hjá
Líffræðifélaginu
FÉLAG ungra framsóknarmanna í
Reykjavík efnir til opins umræðu-
fundar um nýtt aðalskipulag Reykja-
víkur 2001–2024, 21. mars kl. 20 í
höfuðstöðvum Framsóknarflokksins
á Hverfisgötu 33 (3. hæð).
Frummælendur verða: Óskar
Bergsson varaborgarfulltrúi og
Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda-
gerðarmaður.
Hægt er að kynna sér tillöguna:
http://www.reykjavik.is/borgar-
skipulag.nsf/pages/ar2001.html, seg-
ir í fréttatilkynningu.
FUF ræðir nýtt
aðalskipulag
SKEMMTIDAGSKRÁ í bíósal
Austurbæjarskóla undir yfirskrift-
inni „Börn gegn kynþáttafordóm-
um“ verður á morgun, fimmtudaginn
21. mars, kl. 18.
Sýndur verður frumsaminn leik-
þáttur unglinga frá 8 löndum,
MOMO leikþáttur og dans frá Balk-
anskaga, Albaníu og Kúbu.
Austurbæjarskóli er fjölmenning-
arlegur skóli, 10% nemenda hefur ís-
lensku sem annað tungumál.
Skemmtidag-
skrá í Austur-
bæjarskóla
JOHN McKinnell frá Háskólanum í
Durham heldur fyrirlestur á vegum
Félags þjóðfræðinga á Íslandi
fimmtudaginn 21. mars kl. 17.15 í
stofu 201 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og fjallar um ástarsambönd
Óðins í norrænum goðsögnum.
John McKinnell er sérfræðingur
um norræna trú, eddukvæðin og
miðaldaleiklist. Hann hefur skrifað
fjölda greina um íslenskar bók-
menntir, þýtt verk á borð við Víga-
Glúms sögu og Ögmundar þátt dytts,
og leikstýrt fjölda miðaldaleikrita.
Fyrirlestur
um ástarsam-
bönd Óðins
BERGMÁL, líknar- og vinafélag,
heldur árshátíð laugardaginn 23.
mars í safnaðarheimili Háteigs-
kirkju og hefst hún kl. 19.
Húsið verður opnað kl. 18.30. Boð-
ið verður upp á mat og skemmtiat-
riði. Miðar verða seldir við inngang-
inn, segir í frétt frá stjórn Bergmáls.
Árshátíð
Bergmáls
Á AÐALFUNDI Félags leiðsögu-
manna sem haldinn var fyrir
skömmu var Eiríkur Þ. Einarsson
kosinn formaður félagsins í stað
Borgþórs Kjærnested.
Að öðru leyti er stjórnin skipuð
eftirtöldum leiðsögumönnum: Vara-
formaður Jón Ingvar Jónsson, ritari
Valgarð Runólfsson, gjaldkeri Hild-
ur Bjarnason og meðstjórnandi Ásta
Óla Halldórsdóttir. Í varastjórn eru
Guðjón Jensson, Sigurður Levy, Val-
ur Pálsson og Bjarni Þorsteinsson,
segir í fréttatilkynningu.
Ný stjórn Félags
leiðsögumanna
RÁÐSTEFNAN „Hreyfingarleysi
og offita – tíðni, meðhöndlun og for-
varnir“ verður haldin á Hótel Loft-
leiðum á morgun, fimmtudaginn 21.
mars, kl. 10 –15.30.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, setur ráð-
stefnuna. Erindi halda: Mikael Fog-
elholm, næringarfræðingur og for-
stöðumaður UKK-stofnunarinnar í
Finnlandi, Robert Ross, lífeðlisfræð-
ingur og dósent við læknadeild
Queen’s University í Kanada, Sig-
urður Guðmundsson landlæknir, Vil-
mundur Guðnason, forstöðulæknir
Rannsóknastöðvar Hjartaverndar,
Laufey Steingrímsdóttir, forstöðu-
maður Manneldisráðs, Þórarinn
Sveinsson, dósent og skorarformað-
ur sjúkraþjálfunarskorar Háskóla
Íslands, og Erlingur Jóhannsson,
dósent og forstöðumaður Íþrótta-
fræðaseturs Kennaraháskóla Ís-
lands á Laugarvatni.
Ráðstefnan er samvinnuverkefni
Íþróttafræðaseturs, Kennarahá-
skóla Íslands, Íþrótta- og ólympíu-
sambands Íslands, sjúkraþjálfunar-
skorar Háskóla Íslands og Land-
læknis.
Ráðstefna um
hreyfingarleysi
og offitu
GARÐYRKJUFÉLAG Íslands,
Skógræktarfélag Íslands og
Reykjavíkurborg boða sameiginlega
til ráðstefnu 22. mars kl. 11–17.30 í
Borgartúni 6, Reykjavík (ráðstefnu-
salir ríkisins), um aukna fjölbreytni
gróðurfars í búsetulandslagi á Ís-
landi.
Ráðstefnustjóri er Vilhjálmur
Lúðvíksson. Erindi halda: Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, Jóhann Pálsson,
Sigurður Blöndal, Jón Geir Péturs-
son, Simon Bell, Samson Harðar-
son, Kristinn H. Þorsteinsson,
Hrefna Jóhannesdóttir, Aðalsteinn
Sigurgeirsson, Áslaug Helgadóttir,
Þorsteinn Tómasson, Aðalsteinn
Sigurgeirsson, Sigurbjörg Ósk
Áskelsdóttir, Helgi Þórsson og Guð-
ríður Helgadóttir.
Tilgangur ráðstefnunnar er að
lýsa hugsanlegum breytingum sem
verða í kjölfar breyttrar búsetu og
landnýtingar og velta fyrir sér í
hvaða farveg við viljum beina þró-
uninni með hliðsjón af fenginni
reynslu í skógrækt og garðyrkju,
segir í fréttatilkynningu.
Ráðstefnan er tileinkuð Jóhanni
Pálssyni, fyrrv. garðyrkjustjóra
Reykjavíkur, sem varð sjötugur á sl.
ári og lét þá af störfum.
Að lokinni dagskrá eru veitingar í
boði Reykjavíkurborgar.
Ráðstefna um breyting-
ar á gróðurfari landsins
FJÖGURRA daga alþjóðlegu nám-
skeiði fyrir eftirlitsmenn Flugmála-
stjórnar og flugrekenda í úttektum
og gæðastjórnun lauk nýlega. Nám-
skeiðið var á vegum Flugmálastjórn-
ar og sátu námskeiðið 16 manns, eft-
irlitsmenn Flugmálastjórnar ásamt
starfsmönnum frá smærri flugrek-
endum, s.s. Flugfélagi Vestmanna-
eyja, Flugfélaginu Jórvík hf. og
Flugfélaginu Mýflugi. Einnig sátu
námskeiðið starfsmenn Landhelgis-
gæslunnar.
Námskeiðið skiptist í tvo hluta og
hófst með umfjöllun Péturs K.
Maack, framkvæmdastjóra flugör-
yggissviðs, um kröfur ISO 9001-
gæðastjórnunarstaðalsins til gæða-
stjórnunarkerfa og uppbyggingu
þeirra í flugrekstri. Einnig fékk
Flugmálastjórn breska fyrirtækið
Nigel Bauer & Associate til að ann-
ast seinni hluta námskeiðsins, þar
sem þátttakendur voru þjálfaðir í að
gera úttektir í flugrekstri á grund-
velli gæðastjórnunar.
Samkvæmt upplýsingum Flug-
málastjórnar eru smærri flugrek-
endur á Íslandi í innleiðingarferli
fyrir svokallaðar JAR-OPS 1-flug-
rekstrarreglur Flugöryggissamtaka
Evrópu, en þessar reglur voru tekn-
ar upp fyrir stærri flugrekendur
hérlendis fyrir fjórum árum. Var
námskeið Flugmálastjórnar ekki
hvað síst haldið til að gera smærri
flugrekendur betur í stakk búna til
að innleiða og vinna eftir reglunum.
Innleiðingu þeirra á að vera lokið í
júní nk.
Erfitt að vera hlutlaus
í úttektum hinna smærri
„Hjá smærri flugfélögum vinnur
sami einstaklingurinn mörg verk,
ólíkt því sem gerist hjá stærri félög-
unum þar sem sérhæfingin er
meiri,“ sagði Alan Munro, aðstoðar-
maður Nigels Bauers, kennara á
námskeiðinu. „Það er því mjög erfitt
að gera hlutlausa og sjálfstæða út-
tekt á flugrekstrinum og nauðsyn-
legt að kalla til utanaðkomandi aðila
af og til. Þá eiga smærri flugfélög
aldrei fé til ráðstöfunar í þessa hluti,
en hins vegar er ekki þar með sagt
að smærri félögin geti ekki haft
sama gagn af gæðastjórnun og
stærri félögin, en þessir hlutir þurfa
þá líka að vera stöðugt undir smá-
sjánni.“
Nigel Bauer sagði þátttakendur fá
að framkvæma ýmsa hagnýta hluti
námskeiðinu, sem þeir félagar hafa
haldið víða um heim og sagði hann
afar áhugavert að sjá fulltrúa Flug-
málastjórnar og flugfélaganna sam-
an á námskeiðinu hér.
„Um það leyti sem þeir ljúka nám-
skeiðinu geta þeir sýnt færni sína í
verki í umhverfi sem líkir eftir raun-
verulegum aðstæðum,“ sagði hann.
„Þeir læra líka mjög öfluga aðferða-
fræði í úttektaráætlunum, sem hefur
skilað góðum árangri í flugöryggis-
málum hjá öðrum flugmálayfirvöld-
um ogstærstu aðilunum í flug-
rekstri.“
Íslendingar með fyrstu Evrópuþjóðum til að innleiða
JAR-OPS 1-reglur fyrir smærri flugrekendur
Morgunblaðið/Sverrir
Sextán manns sátu námskeið Alans Munros og Nigels Bauers á vegum Flugmálastjórnar.
Þjálfaðir í flugrekstrarúttekt
á grunni gæðastjórnunar
AÐBÚNAÐUR til heimilisfræði-
kennslu er góður og þægð ís-
lenskra grunnskólabarna er aðdá-
unarverð að mati 12 verðandi
heimilisfræðikennara frá Norð-
urlöndunum sem voru í heimsókn
hér á landi fyrir skemmstu. Þeir
voru hér til að kynna sér náms-
umhverfi og komu á vegum Félags
heimilisfræðikennara á Norður-
löndum.
Í fyrra var Danmörk heimsótt og
í ár var röðin komin að Íslend-
ingum að taka á móti norrænum
frændum sínum. Vanalega eru
tveir nemar sendir frá hverju landi
og dvelja eina viku en vegna mikils
áhuga á Íslandsheimsókninni tvö-
faldaðist þátttakendafjöldinn frá
Danmörku og Noregi og voru því
nemarnir alls 12 í stað 8. Konur
voru í miklum meirihluta, en þær
fylla tuginn á móti tveim körlum.
„Þau kynntu sér heimilisfræði-
kennslu, skólastarf og menningu
landsins í þeim tilgangi að víkka
sjóndeildarhring sinn og skiptast á
skoðunum,“ sagði Brynhildur
Briem, lektor við Kennaraháskóla
Íslands, sem skipulagði heimsókn-
ina. Nemarnir heimsóttu grunn- og
framhaldsskóla, Hótel- og mat-
vælaskólann í Kópavogi, Kenn-
araháskóla Íslands og Hússtjórn-
arskólann. Lögð var áhersla á að
nemarnir tækjuþátt í kennslu-
stundum og kynntust þannig
hvernig kennslan fer fram. „Þeim
fannst þetta skemmtilegt og sömu-
leiðis eftirtektarvert hversu
snemma er byrjað á heimilisfræði-
kennslu. Hér á Íslandi hefst
kennslan í 1. bekk sem er ólíkt því
sem gerist annarsstaðar á Norð-
urlöndunum. Þau dáðust líka að
því hvað börnin voru þæg og hvað
allt gekk vel. Þá fannst þeim að-
búnaður góður í þeim stofnunum
sem þau hafa heimsótt og enn-
fremur njóta þau þess að ferðast
um landið,“ sagði Brynhildur.
Nemarnir eru mislangt komnir í
kennaranámi sínu, sumir eru að
ljúka því og aðrir nýbyrjaðir. Nem-
arnir nýttu Íslandsheimsóknina
einnig til að skreppa á hestbak,
fara í Bláa lónið og skoða álfa-
byggðir í Hafnarfirði.
Íslenskir heimilisfræðikenn-
aranemar fóru síðast í svipaða
heimsókn árið 2000 til Noregs en
sátu hjá í fyrra vegna fjárskorts
þegar Jótland var heimsótt.
Morgunblaðið/Sverrir
Brynhildur Briem ásamt norrænum heimilisfræðikennaranemum sem hér voru í stuttri heimsókn.
Kynntu sér heimilisfræði-
kennslu á Íslandi
Rangt heiti
Í frétt á höfuðborgarsíðunni í gær
misritaðist nafn Ungmennasam-
bands Kjalarnesþings og er beðist
velvirðingar á þeim mistökum.
LEIÐRÉTT
Í TILEFNI af alþjóðlegum degi
Sameinuðu þjóðanna gegn kynþátta-
misrétti 21. mars verður opið hús í
Alþjóðahúsi fimmtudaginn 21. mars
kl. 17 – 19. Dagskráin hefst kl. 17
með málstofu þar sem fjallað verður
um kynþáttafordóma. Að málstof-
unni lokinni verða óvæntar uppá-
komur og boðið upp á léttar veiting-
ar. Dagskráin er öllum opin og
aðgangur ókeypis. Alþjóðahús er að
Hverfisgötu 18, gegnt Þjóðleikhús-
inu, segir í fréttatilkynningu.
Alþjóðlegur
dagur gegn kyn-
þáttamisrétti