Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MYND vikunnar hjá Filmundi er
Wild at Heart, verðlaunamynd Dav-
ids Lynch frá árinu 1990.
Þessi ofursvala mynd vakti mikla
athygli og viðbrögð á sínum tíma,
bæði góð og slæm, vann meðal ann-
ars Gullpálmann í Cannes, mörgum
til mikillar furðu en þó fleirum til
ómældrar ánægju.
Wild at Heart, sem Sigurjón Sig-
hvatsson framleiddi fyrir þáverandi
fyrirtæki sitt Propaganda
Film, er í vissum skilningi
vegamynd, eða öllu held-
ur paródía á slíkar mynd-
ir, sem gerist á sjötta
áratugnum, með til-
heyrandi brilljantíni og Presley-
lögum. Hún vísar til unglingamenn-
ingar þessa tíma, sem er löngu búið
að gera ódauðlega í kvikmyndum og
nægir þar að nefna Grease, Americ-
an Graffiti og Cry-Baby en þetta
tímabil virðist eiga vel upp á pall-
borðið þegar kemur að því að gera
ástum ungmenna skil. Wild at Heart
er þó engan veginn hefðbundin ung-
lingamynd og í raun ekki hefðbundin
í neinum skilningi. Vísanir eru mý-
margar í hinar ýmsu kvikmynda-
greinar og menningarkima og þannig
vinnur Lynch úr klisjum á markviss-
an en þó súrrealískan hátt. Óhætt er
að segja að myndmál Lynch sé engu
líkt og er þessi mynd engin undan-
teking þar á.
Í Wild at Heart segir frá ástarsam-
bandi Sailor Ripley (Nicolas Cage)
og Lula Pace Fortune
(Laura Dern). Marietta,
móðir Lulu, reynir að fá
Sailor til við sig inni á kló-
setti á balli og þegar ekk-
ert gengur hjá henni
sendir hún mann á hann til að ganga í
skrokk á honum. Sailor drepur
manninn og lendir í fangelsi í tæp tvö
ár og Lula bíður þolinmóð eftir ást-
inni sinni á meðan. Þegar hann losnar
loks úr prísundinni halda þau
skötuhjú í ferðalag um gjörvöll
Bandaríkin, á flótta undan Mariettu,
sem hefur heitið því að eyðileggja
þetta samband með góðu eða illu.
Ferðalag þeirra minnir sterklega á
ferðalag Dóróteu í uppáhaldsbíó-
myndinni þeirra, Galdrakarlinn í Oz.
Gallinn er bara sá að það býður eng-
inn galdrakarl við lok ferðarinnar
sem þau geta spurt ráða.
Og þau þurfa svo sannarlega á góð-
um ráðum að halda. Mar-
ietta hefur fengið kærast-
ann sinn, sem jafnframt
er einkaspæjari, til að
elta þau uppi. Það gengur
erfiðlega og að lokum
ákveður hún að fá leigu-
morðingja í lið með sér.
Ferðalag skötuhjúanna
snýst upp í martröð, þau
eru hundelt af alls konar
óþjóðalýð, minnisstæð-
astur þeirra er án efa Willem Dafoe í
hlutverki Bobbys Perus. Ekki verður
sagt frá endi myndarinnar hér – til að
spilla ekki fyrir þeim sem enn eiga
eftir að sjá hana.
Þeir sem þekkja til verka Lynch
munu sjá hér nokkur af hans helstu
stíleinkennum. Myndin er í senn
gaman- og harmleikur og kaldhæðni
og einlægni blandast saman á ein-
stakan hátt. Hinar martraðarkenndu
myndir sem Lynch framkallar á hvíta
tjaldinu minna á óra undirmeðvit-
undarinnar eða drauma, bæði klisju-
kenndar, hráar og hættulegar. Mörk-
in milli góðs og ills leysast áþreif-
anlega upp í súrrealískum hug-
myndaheimi Lynch, þar sem ekkert
er eins og það á að vera. Af öðrum
myndum Lynch má nefna Eraser-
head, Blue Velvet og Lost Highway,
svo ekki sé minnst á hina Twin
Peaks-þættina.
Wild at Heart verður sýnd í Há-
skólabíói í kvöld kl. 20, á morgun kl.
22.30, sunnudaginn kl. 18 og mánu-
daginn kl. 22.30.
Villt eðli
Davids
Lynch
Sailor á þjóðveginum
í snákaskinnsjakkanum
sem hann segir tákn
fyrir sjálfstæði sitt
og persónufrelsi.
LIÐ Menntaskólans við Sund sigr-
aði lið Verkmenntaskóla Austur-
lands í undanúrslitakeppni Gettu
betur í Neskaupstað síðasta föstu-
dag með 31 stigi gegn 18 stigum
heimamanna. Það verður því lið
MS sem mætir liði MR, sem er í
úrslitum eins og oft áður.
Mikil stemmning var í Neskaup-
stað í kringum keppnina og
mættu margir til að sjá liðin
kljást í íþróttahúsinu, bæði heima-
menn og fjölmennt lið stuðnings-
manna MS sem lagði á sig langt
og strangt rútuferðalag úr borg-
inni. Það ríkti mikil stemmning í íþróttahúsinu meðan á keppninni stóð.
Ljósmynd/Guðrún
Neskaupstaður
Mikill
áhugi á
Gettu betur
Neskaupstað. Morgunblaðið.
HANNA DÓRA
NOKKUR SÆTI LAUS
Engelbert Humperdinck: Hans og Gréta,
forleikur
Alban Berg: Sieben frühe Lieder
Gustav Mahler: Sinfónía nr. 4 í G-dúr
Vegna óviðráðanlegra orsaka verður breyting
á efnisskrá tónleikanna á fimmtudaginn:
Hljómsveitarstjóri: Steuart Bedford
Einsöngvari: Hanna Dóra Sturludóttir
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
gul áskriftaröð á morgun,
fimmtudaginn 21. mars
kl. 19.30 í háskólabíói
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Háskólabíó við Hagatorg
Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is
www.sinfonia.is
BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson
Lau 23. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 6. april kl 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 13. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fi 21. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Sun 24. mars kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fö 5. apr kl. 20 - NOKKUR SÆTI
ATH: Sýningum fer fækkandi
SLAPPAÐU AF eftir Felix Bergsson
Gamansöngleikur Verzlunarskólans
Fö 22. mars kl. 20. Aukasýning
ATH: Síðasta sinn
FYRST ER AÐ FÆÐAST e. Line Knutzon
Lau 23. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fi 4. april kl. 20 - UPPSELT
Fö 12. apr kl 20 - LAUS SÆTI
JÓN GNARR
Fö 22. mars kl 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Fi 21. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 24. mars kl 20 - NOKKUR SÆTI
Fö 5. april kl 20 - LAUS SÆTI
CAPUT Tónleikar
Tilegnelse
Lau 23. mars kl. 15.15.
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Fö 22. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 23. mars kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fö 5. apr kl. 20 - LAUS SÆTI
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Litla sviðið
!
" #" $
%
&
'
( )
* +
$,
" -. /
" 0 "
$
"
%
1 . 2 '
( +
!!
!
"
## $
"
##
Sunnud. 24. mars kl. 20.00 laus sæti
Mánud. 1. apríl kl. 20.00 laus sæti
!"#$
%&
sýnir í Tjarnarbíói söngleikinn
eftir Þórunni Guðmundsdóttur
5. sýn. fös 22. mars
6. sýn. sun 24. mars
7. sýn. fim 28. mars
8. sýn. lau 6. apríl
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 2525
eða með tölvup. á hugleik@mi.is
Miðasala opin alla sýningardaga
frá kl. 19.00.
ÞRIÐJUDAGINN 2.
apríl mun Útvarp Saga
94,3 fara í loftið með
breyttu sniði. Aðal-
markmið stöðvarinnar
breytist nú frá því að
leika einungis íslenska
tónlist yfir í að bjóða
upp á fréttir, spjall og
íþróttir. Fréttastofa
Stöðvar 2 mun þá flytja
hlustendum fréttir á
klukkutímafresti allan
daginn auk ítarlegra
fréttaskýringa.
Nýir stjórnendur,
sem allir eru þekktir
fyrir störf sín í fjölmiðl-
um í gegnum tíðina, munu svo stýra
gagnrýnni pólitískri og þjóðfélags-
legri umræðu um það sem efst er á
baugi hverju sinni.
Þá verður fjallað ítarlega um inn-
lendar og erlendar íþróttir, síðdegis
og á kvöldin alla daga vikunnar.
Alla virka daga verður svo boðið
upp á sérþætti þar sem tekið er á hin-
um ólíkustu málum. Seint á kvöldin
verða einnig á dagskrá sérþættir en
þá verður fjallað um
mýkri málefni.
„Við erum að sá nýju
fræi í þann útvarpsjarð-
veg sem fyrir er,“ segir
Jón Axel Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri útvarps-
sviðs Norðurljósa. „Um
er að ræða nýja tegund
útvarps, sem ekki hefur
áður verið á landinu.“
Jón vill hins vegar
ekki gefa neitt upp um
hverjir munu manna
stöðina.
„Það má ekki segja,“
segir hann og glottir.
„Við ætlum að halda
fólki á tánum með það, fyrst um sinn.
Um þessar mundir er verið að ráða
inn fólk og þarna verða reyndir ein-
staklingar á meðal. Þetta verður mjög
spennandi og skemmtilegt verkefni,
og við ætlum okkur í harða sam-
keppni við Ríkisútvarpið.“
Stöð sem þessi hefur verið í bígerð í
nokkurn tíma en útvarpsstöðvar af
þessu tagi hafa verið gríðarlega vin-
sælar erlendis.
Útvarpi Sögu
breytt í talmálsrás
Jón Axel Ólafsson